Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.03.2020, Blaðsíða 32
SUNNUDAGUR 1. MARS 2020
york
ligne
classico
magnifique
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
SERTA ER OPINBER SAMSTARFSAÐILI
HILTON WORLDWIDE HÓTELKEÐJUNNAR
Nótt fyrir tvo á Hilton Reykjavik Nordica,
ásamt morgunverði og aðgangi að
Hilton Reykjavik Spa, fylgir kaupum
á Serta fimm stjörnu hótelrúmi.
Verðmæti: 36.000 kr.
Kynningarverð: 296.650 kr
Verð frá: Classico 160 x 200 cm (botn, fætur, dýna, yfirdýna og gafl)
Fullt verð: 349.000 kr. (með Hilton Reykjavik Nordica kaupauka 385.000 kr.)
5STJÖRNUHÓTELRÚMIN frá Serta eru framleidd til að fullnægja
ýtrustu kröfum. Fjaðrandi botn gefur 5 svæða heilsudýnunni
óviðjafnanlega fjöðrun og stuðning, lúxus yfirdýnan lagast
að þér og þér líður eins og þú svífir. Velkomin í þitt 5 stjörnu
heilsurúm, heima hjá þér – allar nætur – alltaf.
CLASSICO, YORK OG LIGNE eru með Serta Splendid Royal
heilsudýnu frá Serta. Hún er fimm svæðaskipt pokagormadýna
með góðum stuðningi við bak en mýkra gormakerfi á axla- og
mjaðmasvæði. Hægt er að velja um tvo stífleika á dýnunni eftir
því hvað hentar hverjum og einum. Yfirdýnan er millistíf, úr
kaldpressuðum svampi og vinnur vel á móti fjöðruninni í botni
og dýnu.
MAGNIFIQUE rúmið er með Serta Royalty Superior heilsudýnu
sem sker sig frá Splendid Royal m.a. með því að vera með
tvískiptu gormakerfi og aukinni kantstyrkingu.
Áklæðið á rúmunum er slitsterkt bómullaráklæði, ofnæmisfrítt
og andar einstaklega vel. Það er fáanlegt í nokkrum litum sem
eru mismunandi eftir rúmgerðum. Hægt er að velja mismunandi
fætur og einnig eru fáanleg náttborð í stíl.
FIMM STJÖRNU
LÚXUS HÓTELRÚM
– HEIM TIL ÞÍN –
Fimm stjörnu Hótel -rúmalínan frá Serta er
nú á kynningarverði í Betra Baki auk þess að
nótt á Reykjavik Nordica ásamt morgunverði
fyrir tvo og aðgangi að Hilton Reykjavik Spa
fylgir kaupum á Serta fimm stjörnu hótelrúmi.
Það kom Greipi Hjaltasyni ekki mikið á óvart að landa
Íslandsmeistaratitlinum í uppistandi á fimmtudaginn
var, enda segist hann hafa lagt mikla vinnu í undirbún-
ing.
„Það var nú alltaf ætlunin að vinna þetta; ég nálgast
uppistandið með íþróttamannahugarfari. Það er betra
að trúa því að maður geti verið sá besti. Ég lagði allt
undir. Samkeppnin var samt meiri en ég átti von á.“
Ertu svona fyndinn?
„Já, eða það er alveg hægt að vera fyndinn á sviði
þó maður sé ekki fyndinn. Þetta er óttaleg vinna líka.
Á sviði læt ég allt flakka; ég er með allar gerðir
brandara. Allt sem mér finnst fyndið. Þetta er svolítið
þannig að ef þú heldur áfram að henda kúk í vegg, þá
mun einhvern tímann eitthvað festast,“ segir hann.
„Svo má maður ekkert vera feiminn við að prófa
brandarana alls staðar, eins og í matarboði hjá
tengdó.“
Ljósmynd/Mummi
Lætur allt flakka
Greipur Hjaltason er nýkrýndur Íslandsmeistari í uppistandi.
„Þetta er svolítið þannig að
ef þú heldur áfram að henda
kúk í vegg, þá mun einhvern
tímann eitthvað festast,“
segir Greipur Hjaltason,
uppistandari ársins.
„Í gær var alþingi slitið. Það
mun jafnan verða talið eitt hið
merkilegasta í sögu vorri, þar
sem því auðnaðist að samþykkja
hina nýju stjórnarskrá vora, lífs-
reglurnar, sem hið unga, ís-
lenzka ríki á að haga sér eftir í
ókominni tíð og auka þroska
sinn og veg við. Vænta allir góðir
Íslendingar þess, að hún verði
þjóð vorri til blessunar, og þær
breytingar, sem hún hefir inni að
halda.“
Með þessum orðum hófst
frétt í Morgunblaðinu fyrir réttri
öld, 2. mars 1920.
„Annað er það, sem mun ein-
kenna þetta þing um langan ald-
ur. Það var erfiði það, sem það
lenti í með að mynda stjórn.
Hefir aldrei staðið svo lengi á
fæðingu nokkurrar stjórnar hér
hjá okkur. Hefir saga hennar, og
þeirra tilrauna, sem gerðar voru
til þess að koma henni á lagg-
irnar, verið rakin áður hér í
blaðinu, og verður því ekki nán-
ar getið. En benda má á það í
þessu sambandi, að myndun
þessarar stjórnar er ekki nema
sýnishorn þeirrar óreiðu og
tvístrunar, sem á sér stað í
stjórnmálum vorum nú,“ sagði
ennfremur í frétt blaðsins.
GAMLA FRÉTTIN
Lífsreglur
samþykktar
Óreiða og tvístrun var í stjórnmálum landsins fyrir réttri öld, að mati
Morgunblaðsins, þrátt fyrir að ný stjórnarskrá hefði verið samþykkt.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Peter Weber
piparsveinn
Sindri Sverrisson
blaðamaður
Luke Bryan
sveitatónlistarmaður