Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.03.2020, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.03.2020, Blaðsíða 12
VIÐTAL 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.3. 2020 Þ að var hvorki auðvelt né sjálfsagt fyrir Rannveigu Rist að mæta í viðtalið sem hér fer á eftir. „Ég hef alltaf verið svolítil Greta Garbo þegar kemur að einkalíf- inu,“ trúir hún mér fyrir þegar fundum okkar ber saman fyrsta daginn sem hún er í veikindaleyfi frá starfi sínu sem forstjóri ISAL í Straumsvík. Hún upplýsti á föstu- daginn fyrir rúmri viku að hún væri á leið í veikindaleyfi fram á haust að ráði hjarta- læknis. Rannveig hefur verið áberandi í íslensku atvinnulífi í þrjá áratugi eða svo; fyrst sem talsmaður og síðan forstjóri álversins í Straumsvík en hún var fyrsta konan sem settist í stól forstjóra stórfyrirtækis á Ís- landi árið 1997. Fyrir vikið er hún alvön samskiptum við fjölmiðla og er reglulegur gestur í ljósvaka- og prentmiðlum. Það hef- ur þó fyrst og síðast verið til að ræða mál- efni álversins sem er hluti af einum stærsta álframleiðanda í heimi, Rio Tinto. Miklu minna hefur farið fyrir manneskjunni Rann- veigu enda hefur hún markvisst valið að halda einkalífi sínu utan fjölmiðla gegnum tíðina. „Ég velti þessu mikið fyrir mér og niður- staðan var sú að fara í persónulegt viðtal núna til að gera grein fyrir veikindaleyfinu sem ég er komin í. Annars vegar skiptir það mig miklu máli að hafa allt uppi á borð- inu og koma um leið í veg fyrir að ein- hverjar sögur fari á kreik og hins vegar langar mig að vekja athygli á mikilvægi þess að fólk gefi heilsufarslegum hættu- merkjum gaum áður en það er um seinan,“ heldur Rannveig áfram. Öryggismál hafa löngum verið sett á odd- inn í Straumsvík og mottóið er að „staldra við“ ef grunur leikur á því að ekki sé allt með felldu. Það er nákvæmlega það sem Rannveig er að gera. „Heilsan er það mik- ilvægasta sem við eigum og ég vil halda henni eins lengi og unnt er,“ segir hún. Mikið pabbabarn Upp á samhengið skulum við byrja á því að hverfa fjörutíu ár aftur í tímann. Sem barn og unglingur var Rannveig öll sumur með föður sínum, Sigurjóni Rist, við vatnamæl- ingar úti á landi. „Ég var algjört pabbabarn og hann var fyrirmynd mín í svo mörgu. Fyrir vikið vissi ég ekkert skemmtilegra en að þvælast með honum um landið, sofa í trukkum og stunda vatnamælingar. Sjálfur hafði pabbi mikið yndi af starfi sínu og það smitaði út frá sér. Það eru mikil forréttindi í lífinu að stunda vinnu sem maður hefur ánægju af,“ segir Rannveig. Þess má geta að Sigurjón var frumherji í íslenskum vatnamælingum og kom á kerfis- bundnum rennslismælingum í vatnsföllum landsins, annaðist dýptarmælingar og kort- lagningu stöðuvatna og sá um útgáfu ár- legra rennslismæligagna hjá Orkustofnun. Sigurjón var á háþrýstingslyfjum, sem hann tók á morgnana, þegar hann fann fyr- ir háþrýstingnum en var annars heilsu- hraustur; „þrekskrokkur og heljarmenni að burðum“, eins og dóttir hans lýsir honum. Það var því mikið reiðarslag þegar hann fékk heilaáfall og lamaðist öðrum megin sumarið 1980, 63 ára. „Veikindi pabba komu eins og þruma úr heiðskíru lofti,“ segir Rannveig sem var ný- orðin nítján ára á þessum tíma. „Einn lækn- ir sagði að oft væru einhverjar vísbendingar s.s höfuðverkur, náladofi og skortur á jafn- vægi, undanfari svona áfalls. Ég fór að velta því fyrir mér og hugsaði til baka til sumarsins, þá sá ég að það voru ákveðnar vísbendingar um það vikurnar og mánuðina fyrir áfallið að pabbi væri ekki eins og hann ætti að sér að vera. Hann hafði til dæmis ekki dottið við rennslismælingu í á nema einu sinni frá árinu 1947 en það gerðist í tvígang þetta sumar. Svo var hann farinn að missa hluti og reka þá í. Hann braut til dæmis kaffibollann sinn, sem var stór og þykkur, skömmu áður, þegar hann rak hann í. Minnstu munaði líka að við fengjum loft- pressu yfir okkur þegar við vorum að lyfta henni upp á bílpall og pabbi rak sinn enda pressunnar í pallinn. Það var mjög ólíkt honum. Ég man að mér þótti þetta skrýtið en tengdi það eigi að síður ekki við veikindi. Þegar maður er nítján ára eru veikindi lík- lega ekki manns fyrstu hugsanir þegar eitt- hvað óvenjulegt á sér stað,“ segir Rannveig en þótti það mikil sorg að hvorugt okkar var læst á þessi einkenni. „En það þýðir víst lítið að velta því fyrir sér. Því miður.“ Rannveig og faðir hennar héldu ferða- bækur við vatnamælingarnar og það hjálp- aði henni að rifja upp hvað á daga þeirra hafði drifið og ná betur utan um einkennin. Allur tilfinningaskalinn Sem hendi væri veifað var Sigurjón orðinn sjúklingur, í hjólastól og þurfti að læra að ganga á nýjan leik. Hann féll frá árið 1994 hafði þá fengið sjö heilaáföll. „Vegna þess hversu vel hann var á sig kominn þoldi pabbi áfallið líklega betur en margir myndu gera. Þetta var samt gríðarlegt högg fyrir hann og hann fór gegnum allan tilfinn- ingaskalann, vonbrigðin, reiðina, sorgina og allt það. Það tók hann tíma að sætta sig við orðinn hlut en svo varð pabbi hann sjálfur á ný. Sem betur fer hafði áfallið engin áhrif á persónuleika hans og hann tókst á við veik- indi sín af æðruleysi og jákvæðni; hélt húm- ornum og lífsgleðinni uns yfir lauk.“ Veikindi Sigurjóns höfðu að vonum djúp- stæð áhrif á heimilið; fyrir utan andlega þáttinn drógust tekjurnar saman. Það þýddi að móðir Rannveigar, María Sigurðardóttir, viðskiptafræðingur og kennari við Fjöl- brautarskólann í Breiðholti, þurfti að auka við sig vinnu. Hún á eina systur, Bergljótu, sem er fimm árum yngri og hún því líka á viðkvæmum táningsaldri er áfallið reið yfir. Í þessi fjörutíu ár sem síðan eru liðin hef- ur Rannveig verið með veikindi föður síns og aðdraganda þeirra í bakþankanum. Í byrjun þessa árs rann upp fyrir henni ljós; hún væri sjálf komin með sömu einkenni og hann var með fyrir áfallið. „Ég hef aldrei verið klaufsk en nú var ég allt í einu farin að hrasa og brjóta glös og bolla sem er alls ekki líkt mér. Newton var byrjaður að rífa hluti af mér sem hann gerði ekki áður,“ segir Rannveig og bætir við að hún, sem oft er á háum hælum, hafi ekki notað slíkt skó- tau síðan í október. „Það hefur bara verið svo mikill snjór að enginn hefur tekið eftir þessu.“ Spurð hvort hennar nánustu hafi verið farnir að veita því athygli að hún væri ekki eins og hún á að sér svarar Rannveig neit- andi. „Ekki fyrr en greiningin var komin og ég fór að tala um þetta. Þá sást þetta í bak- sýnisspeglinum. Alveg eins og hjá pabba.“ Hún fékk aldrei höfuðverk og tekur aldr- ei verkjalyf, átti þau ekki einu sinni til. „No brain, no pain, er ég vön að segja,“ útskýrir hún hlæjandi. „En nú var mjög slæmur höf- uðverkur allt í einu farinn að vekja mig á morgnana, dag eftir dag í janúar. Það var ekki eðlilegt. Neglurnar á fingrunum á mér voru líka farnar að verða hrufóttar, alveg eins og hjá pabba og ég fann fyrir dofa- tilfinningu í líkamanum sem var mjög skrýtin. Loks var það blóðþrýstingurinn, sem ég mæli reglulega. Hann sveiflaðist verulega mikið upp og niður. Var allt of hár á morgnana en allt of lágur á kvöldin,“ seg- ir Rannveig og bætir við að hún nálgist nú aldurinn sem faðir hennar var á þegar hann veiktist en hún er fædd árið 1961. „Var ég á leið í sama pyttinn?“ Hefur áður verið hætt komin Til að gera langa sögu stutta þá leist Rann- veigu ekkert á blikuna og hafði því sam- band við Davíð O. Arnar hjartalækni sem hún hefur farið til 1-2 sinnum á ári í 20 ár. „Ég fékk alvarlega meðgöngueitrun fyrir 27 árum og var í lífshættu í nokkra sólar- Hlutirnir hafa tilhneigingu til að fara vel Þegar hann var 63 ára fékk Sigurjón Rist vatnamælingamaður heilaáfall sem í þá daga var kallað heilablóðfall og lamaðist annars vegar í líkamanum. Nú, fjörutíu árum síðar, áttaði dóttir hans, Rannveig Rist, sig á því að hún var komin með sömu einkenni og faðir hennar hafði áður en hann veiktist og hafði samband við hjartalækni sinn. Hann rannsak- aði hana þegar í stað og niðurstaðan er sú að hún er komin í veikindaleyfi frá starfi sínu sem forstjóri álversins í Straumsvík fram á haust til að ná fullri heilsu á ný. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is ’ Eins hræðileg og veikindipabba voru þá má segja aðöllum þessum árum síðar sé gottað hafa þó lært af þeim; hefði þetta ekki komið fyrir pabba hefði ég örugglega hunsað öll einkennin og keyrt áfram.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.