Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.03.2020, Blaðsíða 19
Hér er Kári í Friðheimum ásamt Ali Tate Cutler og kærasta sínum, Ragnari Sigurðssyni.
Cutler dvaldi á Íslandi í fjóra daga ogfór Kári með henni í Friðheima, íBláa Lónið og á Gullfoss og Geysi
svo eitthvað sé nefnt ásamt Theodóru El-
ísabetu Smáradóttur, eiganda MTK. Kári
hefur unnið töluvert fyrir erlend tískutímarit
og var því algerlega á heimavelli þegar hann
myndaði Cutler.
„Ali Tate Cutler er fyrirsæta í ofurstærð
en hún var fyrsta fyrirsætan í tískuheim-
inum sem ráðin var til Victoria’s Secret.
Cutler hefur unnið sem fyrirsæta í nokkur
ár og unnið með mörgum flottum vöru-
merkjum. Auk þess hefur hún gengið tísku-
pallana fyrir stór fatamerki. Hún er með yfir
165 þúsund fylgjendur á Instagram og er
einnig áhrifavaldur. Ástæðan fyrir því að
Cutler varð fyrir valinu er að hún stendur
fyrir svo mikið af flottum hlutum. Hún er í
yfirstærð og er upptekin af jákvæðri líkams-
ímynd. Hún heldur fyrirlestra úti um allan
heim og okkur fannst hún passa við ímynd
MTK. Hún er ekki bara falleg að innan held-
ur að utan líka og er erfitt að taka lélegar
myndir af henni. Okkur fannst hún hafa
þennan eiginleika að geta náð til allra. Það
var auðvelt að vinna með henni, hún þekkir
sjálfa sig vel og er örugg og fagleg á setti,
sem gerði okkar vinnu skemmtilegri og auð-
veldari,“ segir Kári þegar ég spyr hann um
Cutler.
Kári hefur myndað fyrir MTK síðan 2012
en fatamerkið hefur vaxið hratt síðustu ár.
Línan er hönnuð af Theodóru Elísabetu
Smáradóttur og er markmið þess að draga
fram það besta þegar kemur að líkama kon-
unnar.
„MTK „shapewear“ línan samanstendur af
leggingsbuxum, íþróttabuxum, gallabuxum
og samfestingum. Öll línan hefur þá sérstöðu
að meginmarkmið hennar er að láta konum
líða vel og móta fallegar línur þeirra. Þegar
Theodóra kom til mín með þessa hugmynd
um að markaðssetja línuna erlendis og fá
fræga fyrirsætu til landsins til að vera andlit
línunnar þurfti ég ekki að hugsa mig lengi
um og sló til. Svo hófst undirbúningurinn að
velja rétta andlitið og flotta fyrirsætu sem
hefur allt sem merkið stendur fyrir og meira
til,“ segir Kári og bætir við:
„Theodóra vildi að fyrirsætan fengi að
upplifa Ísland og kynnast okkur og merkinu
þannig að Theodóra ákvað að fljúga henni
inn til landsins þar sem ég myndaði hana
hérlendis. Tökurnar fóru fram á einum degi
en hún var hér í fjóra daga allt í allt og fór-
um við með hana á nokkra þekkta ferða-
mannastaði.“
Kári segir að ferlið að velja fyrirsætu í
þetta verkefni hafi tekið nokkra mánuði.
„Þar sem þetta er auglýsingaherferð sem
verður birt um allan heim þá tók smá tíma
að undirbúa þetta og púsla þessu öllu saman.
Einnig var erfitt að að ná henni hingað í
nokkra daga, þar sem hún er bókuð langt
fram í tímann,“ segir hann.
-Hvað lærðir þú af þessu verkefni?
„Þakklæti og ég lærði helling af öllum sem
komu að þessu verkefni. Má kannski segja
að það er allt hægt ef viljinn er fyrir hendi
og með góðri skipulagningu. Við erum mjög
þakklát og ánægð að hafa unnið með topp-
fyrirsætu eins og Cutler. Hún vinnur ekki
með hverjum sem er og umboðsmaður henn-
ar passar ímynd hennar mjög vel og setur
hana ekki í verkefni nema að það passi við
ímynd hennar og að það muni hjálpa ferli
hennar.“
Ali Tate Cutler hefur mikið
að gera en hún gaf sér tíma til
að vera í fjóra daga á Íslandi.
Kári myndaði
Ali Tate Cutler
á Íslandi
Kári Sverriss ljósmyndari fékk það verkefni að mynda ofur-
fyrirsætuna Ali Tate Cutler fyrir íslenska tískumerkið MTK.
Hún er þekkt í tískuheiminum og var til dæmis fyrsta
fyrirsætan sem nærfatamerkið Victoria’s Secret réð til starfa
í yfirstærð (ef fólk flokkar stærð 14 sem yfirstærð).
Marta María mm@mbl.is
Línan frá íslenska tísku-
merkinu MTK er sér-
hönnuð fyrir konur
með fallegar línur.
1.3. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19