Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.03.2020, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.03.2020, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.3. 2020 Innsæi þitt er þinn fjársjóður, notaður það. Elsku Meyjan mín, orka, kraftur og uppleið eru einkunnarorð þín, þú verður í essinu þínu, ert að ganga frá og klára verkefni og hefja skemmtilegt upphaf. Í öllu þessu geturðu fundið fyrir spennufalli þannig að það sem þú hlakkaðir mest til gefur þér ekki allt sem þú óskaðir þér, en þetta er svipað og að vinna stóra keppni þar sem þó þú fáir bikarinn í lokin fylgir alltaf spennufall og þegar þú skilur þetta sérðu allt í nýju ljósi. Ég sé dásamlega hluti mæta þér, þú ert með réttu svörin og átt eftir að sjá auðveld- lega hvernig þú munt undirbúa þig fyrir næstu skref og í þessari stöðu muntu notfæra þér þennan kraft til að ná fram jákvæðum breytingum og það er í raun allt sem þú þrá- ir. Þér er annt um mannorð þitt og sjálfstæði og elskar fólk sem hugsar líkt og þú, hleyptu nýjum manneskjum inn í líf þitt sem kemur með jákvæða strauma og tengdu þig við fleiri hópa í kringum þig, í því felst farsæld þín. Þú átt eftir að sjá að þú ert glúrin í viðskiptum og það mun gefa þér þann styrk sem þú þarft í einkalífinu, þú verður á réttum stað á réttum tíma til þess að skora markið og vinna bikarinn og einnig áttu, elsku hjartað mitt, eftir að hvetja aðra áfram, því þú berst fyrir þínu fólki og verndar alla fram í rauðan dauðann. Þar af leiðandi geturðu orðið ólýsanlega sár vegna höfnunar sem þú hefur einhvern- tímann orðið fyrir og hefur allt of mikil áhrif á líf þitt í dag, en hristu þetta af þér og segðu við sjálfa þig þér sé slétt sama og lifðu hvern dag eins og hann sé þinn síðasti. Orka, kraftur og uppleið MEYJAN | 22. ÁGÚST 22. SEPTEMBER Elsku Vogin mín, nýr dagur, ný tækifæri, nýr dagur, ný hugsun. Þið endurnýist eins fljótt og púpa verður að fiðrildi, svo allt sem ykkur finnst ömurlegt í dag er orðið glæsilegt á morgun. Það sem drepur ykkur svo sannarlega er að hanga of lengi í einhverju hundleiðinlegu, en þið eruð búnar að taka ákvörðun til að loka og læsa og taka svo nýtt skref. Það er yfirfullt hjarta þitt af gleði, vegna þess að þú sérð að það sem þú ætlar þér, það geturðu. Þér finnst leiðinlegt að þú þurfir að reka einhvern frá þér, en það er honum kannski jafnvel fyrir bestu, að fara að gera eitthvað annað en að vera í kringum þig. Í ástinni ert þú við stjórnvölinn og ræður, hvað mikið og hvort þú sért ástfangin gerir þú upp við sjálfa þig, en fylgdu útkomunni eftir, því alheimurinn er að senda þér þá staðhæfingu að þetta sé þinn tími. Það er dásamlegur Meyjarkraftur yfir þínu tímabili, því þann 9. mars er fullt tungl í Meyjarmerkinu. Þú færð hvatningu til að gera meira en þú ætlaðir þér og þar af leiðandi uppskera tvöfalt meira en þú bjóst við. Stjörnurnar eru þér hliðhollar, ef þú ert sár og líður eitthvað illa þá er það út af einhverju sem þú getur ekki breytt, svo æfðu þig í því að vera ekki sífellt að hugsa um það, því það dregur úr þér allan styrk og læt- ur þig ekki standa eins virkan og það er gott að nota æðruleysisbænina á þetta: Guð - gef mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt, kjark til að breyta því sem ég get breytt og vit til að greina þar á milli. Og í framhaldi af þessu er gott fyrir þig að hafa markþjálfa, einhvern sem getur sorterað hugsanir þínar og sagt þér hverjar eru bestar fyrir þig, það er ekki málið að þú eigir erfitt með að velja ein- hverja flík, eins og já eða nei, heldur ertu með svo mikið af hugmyndum og hugsunum í hausnum og þarft aðstoð við að skoða hvaða hugmynd sé best að framkvæma núna. Stjörnurnar hliðhollar VOGIN | 23. SEPTEMBER - 22. OKTÓBER Elsku Sporðdrekinn minn, það eru margar góðar ákvarðanir sem þú hefur tekið og átt eftir að taka, stundum finnst þér að þú hafir gefist upp á einhverju, en það er ekki þannig heldur stundum skiptirðu bara um skoðun og sleppir hlutum út sem þú nennir ekki að standa í, er það ekki bara dásamlegt? Taktu lífinu fagnandi þó svo þér finnist allt á heljarþröm, því lífið er að færa þér velgengni án nokkurs fyrirvara, velgengni þarf ekki að þýða eitthvað stórbrotið, en óskir þínar eru að rætast og þú siglir í rétta höfn. Hin magnaða og óútreiknanlega pláneta Plútó er ríkjandi hjá þér og þú munt svo sannarlega finna leiðir út úr öllum krísum og þessi segulmagnaða orka mun færa þér hvert tækifærið á fætur öðru. Þú hefur magnaðan húmor sem getur nú verið svolítið kaldhæðinn og átt það til að nota hann til að breiða yfir sárar tilfinningar. En þú hefur svo heillandi útgeislun og áhrif á alla, en þarft að muna að þegar þú vaknar klæðir þú þig í daginn, í hvaða föt ætlarðu að fara, hvernig ætlarðu að hafa daginn? Ég er til dæmis alltaf í sparifötunum tilbúin í hvaða partí sem er og þú þarft akk- úrat að skilja það, elsku Sporðdrekinn minn, að þú stjórnar þessu partíi sem lífið er svo dressaðu þig upp fyrir tilefnið sem er dagurinn í dag. Húsnæði eða breytingar á högum í þá áttina eru í sjónmáli fyrir þá sem vilja skapa sér það tækifæri, þetta er líka tenging við það að breyta húsnæði sem maður er í eða bæta stöðuna hjá þér og þar færð þú svo sannarlega meðbyr því þín einskæra þrjóska og ákveðni mun koma þér þangað sem þú ætlar. Daðraðu þig svolítið áfram og þeir ykkar sem vilja hleypa ástinni inn í líf sitt, takið þá áhættu því útkoman verður góð. Þú stjórnar þessu partíi SPORÐDREKINN | 23. OKTÓBER 22. NÓVEMBER Elsku Bogmaðurinn minn, lífið hefur svo sannarlega samið eitthvað nýtt fyrir þig, fólk tekur eftir þér hvar sem þú ferð og þú gerir þér fyllilega grein fyrir því að þú ert tilbúinn til að gefa þig allan og þú ert svo dýrðlegur eða dýrslegur, smart og öðruvísi. Það er pínulítil þreyta eða leti í kortunum þínum og það er heldur ekkert að því að skríða undir feld í smátíma og efla orkuna, því að fyrir miðjan mars er svo margt að bætast við lífið þitt. Það er að bætast í ástina hjá þeim sem eru að leita eftir því, það eru að bætast við áskoranir og vinna sem spennir bog- ann hjá Bogmanninum og eftir því sem þú spennir hann meira muntu skjóta lengra, bæði í ást og frama. Á báðum stigum áttu að taka meiri áhættu en meðalmaðurinn, átt að trúa að þú náir í þessa týpuna eða getir byggt þetta hús eða sigrað þennan skóla. Meðalmennskan gerir þig hálfdaufan og ég kannast ekki við neinn í þessu merki sem er það. Þú fjarlægir hindranir án þess að aðrir sjái, jafnvel telur þér trú um það séu engar og trúin flytur fjöll og fjarlægir hindranir. Þú skalt hætta öllum for- dómum, því fordómar eru að dæma eitthvað fyrirfram, þar af leiðandi eru þeir afkvæmi heimskunnar og hættu að láta fréttir hafa áhrif á þig, því þú ert skoðanamikill og stundum um of. Leiktu þér áfram með lífið næstu tvo mánuði, því vinnan, ástin og verkefnin verða eins og leikur og þá skemmta allir sér. Þinn sterkasti þáttur er að þegar þú talar þá talarðu frá hjartanu og ert svo sannarlega þú sjálfur, þú átt eftir að stöðva setningarnar oft hjá þér þegar þú ert pirraður út í aðra þótt þeir eigi það skilið, en þú munt sleppa að láta út úr þér hvað þér finnst. Þú munt stoppa leiðindin og orðin þín munu ljóma frá hjartanu. Við erum kannski allt of oft að leitast við að virðast svo allt of gáfuð og þorum ekki að gera neitt nema það sé fullkomið, en góður vinur minn sagði eitt sinn við mig að þegar hann var ungur leit hann upp til gáf- aða fólksins, en þegar hann varð eldri sá hann að það var góða fólkið sem hann leit upp til og það var það sem breytti lífi hans. Þannig verður það góðmennskan sem færir þér það sem þú þarft og vilt. Spenntu bogann BOGMAÐURINN | 23. NÓVEMBER 20. DESEMBER Elsku Steingeitin mín, þú ert vagga Alheimsins, í þessu merki fæðast stærstu og sterkustu stríðsmennirnir, en eftir því sem árin hafa liðið eru það stærstu og sterkustu réttlætis- kempurnar. Ykkur verður gefinn kraftur til sköpunar og þrautseigju, þolinmæðin er alveg við tærnar á ykkur, þið þurfið bara að sýna að þið séuð í fullkominni aflslöppun alveg sama hverjar aðstæðurnar eru og þá stendur þú uppi sterk og með öll þau tæki og tól til að koma þér á næsta stig. Frestunar- vesen er kæfandi kapítuli fyrir þig, tímasettu hvenær þú átt að vera búin með eitthvað, þá helst ná- kvæmlega klukkan hvað og þá rúllar þetta allt eins og smurð vél í rauðum Mustang. Beintengt þessu ætla ég að tengja ástarlífið, því þeir sem eru svo heppnir að vera á þessari kerru í lífinu eiga að láta aðra bíla alveg vera, því heiðarleiki gefur hundrað þúsund stig, en harmur bítur hina. Fyrir þá sem eru á lausu gæti allt verið byrjað að loga í kringum þá, eða taktu kannski líka eftir að þú munt hitta gyðju eða goð, jafnvel í kringum afmælisdag hennar/þess, svo þetta prjónar sig allt svo skemmtilega saman í flotta peysu. Margar Steingeitur munu eignast barn á árinu eða á því næsta og stofna til fjölskyldu eða bæta þá fjölskyldu sem þér var gefin, svo einhvernveginn verður þetta svo góð fyrirmynd fyrir aðra og allir vilja fá þig í einhverskonar vinnu, hvað svo sem þú ert að gera í dag, en leyfðu þér að gera það sem þér líkar best því þá verður lánið meira. Þér finnst eins og þú hafir haft eitthvað að fela og ert búin að vera kvíðin að lífið reddist ekki alveg eins og þú skrifaðir það, en elsku hershöfðinginn minn, þú ert bara svo hugmyndaríkur að þú finnur leið til að stroka út vitleysuna. En elskan mín, ég segi það frá botni hjarta míns að ef einhver getur reddað málunum, þá ert það þú! Sköpun og þrautseigja STEINGEITIN | 21. DESEMBER 19. JANÚAR Elsku Vatnsberinn minn, það er búið að vera svo margt að angra þig, bæði erfið- leikar, gleði og miklar tilfinningar og spenna. Síðustu tveir mánuðir hafa verið að senda þér skilaboð um hverju þú megir búast við. Þú ert líka búinn að taka mjög vel eftir og sem betur fer hefur þú svo opna og skapandi hugsun og svo mikinn áhuga á því sem er að gerast í kringum þig að þú ert alveg viðbúinn og slakur. Það eru rosalega margir Vatnsberar sálfræðingar og það er eins og það sé innbyggður í þér sá þáttur að skilja tilfinningar og líðan annarra svo vel, þannig að þú lætur alltaf öllum líða betur eftir þinni bestu getu og þú getur nefnilega treyst innsæi þínu því þú ert svo næmur og það hefur bjargað þér þúsund sinnum. Næsti mánuður líður alveg rosalega hratt, það verður fullt tungl þann 9. mars í Meyjarmerkinu og í kringum það tímabil skaltu klára samninga, tala við banka ef þú þarft að redda fjármálum því þetta verður tíminn sem verður þér hliðhollur í þeim efnum. Ástin er allt í kringum þig og þú laðar til þín ótrúlegasta fólk því ekkert er sterkara en hugsunin ást eða alvöru ást. Þú hefur meistaralega hæfi- leika til að gera líf þitt rómantískt og spennandi, og einfaldlega ert þú bara spennandi; treystu meira tilfinningunum og leyfðu huganum að fleyta þér lengra en þig hefur nokkurntímann dreymt um. Þú ert að læra að þroskast á methraða og ert að tengja þig við allskonar sem nærir þig andlega og líkamlega, það eina sem getur sett strik í reikninginn er að þú náir ekki að sofa nógu vel, svefninn er heilandi lífskraftur fyrir þig. Þetta verður líka tími sem þú átt eftir að undirbúa ferðalög, verður mikið á ferðinni og það er mikill ávinningur fólginn í einhverri af þessum ferðum, þetta er allt svo spennandi og þú átt eftir að sýna þeim sem eiga við veikindi eða erfiði að stríða mikla umhyggju, hjálpa þeim, blessa og gefa tíma þinn, því að það dýrmætasta sem þú átt er tíminn því hann fæst ekki keyptur. Ástin er allt í kring VATNSBERINN | 20. JANÚAR 18. FEBRÚAR Knús og kossar

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.