Morgunblaðið - 03.03.2020, Síða 12

Morgunblaðið - 03.03.2020, Síða 12
BAKSVIÐ Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Stöðugur vöxtur hefur verið hjá sölufélaginu Mar- ós GmbH í Cuxhaven sem selur íslenskar sjávar- afurðir á Evrópumarkað en í febrúar voru fjögur ár frá stofnun félagsins, segir Óskar Sigmunds- son, eigandi Marós. Hann segir reksturinn hafa gengið mjög vel og að velta félagsins í fyrra hafa numið um fimm milljörðum íslenskra króna. „Það er búið að vera vöxtur frá því við byrjuðum og óvenju góður gangur í byrjun ársins,“ segir Óskar og bendir á að sala fyrirtækisins hafi aukist mikið á fyrstu tveim mánuðum þessa árs, 37% í janúar og 44% í febrúar. Kaupendur greiða hærra verð Fyrirtækið selur fjölbreytt úrval tegunda og mest inn í þjónustugeirann og hefur frá upphafi verið lögð áhersla á gullkarfa frá Íslandi. Þá hefur verð á frystum gullkarfaflökum hækkað mikið og er nú 84% hærra en fyrir fjórum árum, auk þess er gullkarfi sem fyrirtækið selur í smásölu seldur á 24% hærra verði en annar frosinn íslenskur karfi, að sögn Óskars. „Í veitingageiranum seljum við gullkarfa frá Íslandi í dag á nánast þreföldu verði tvífrystra karfaflaka úr Kyrrahafinu þannig að eitthvað virðumst við hafa verið að gera rétt und- anfarin ár og á ég þá ekki bara við Marós heldur þau fyrirtæki sem eru að selja gullkarfaflök inn á þýska markaðinn.“ Að baki árangursins er samhent átak fleiri aðila, að sögn Óskars sem segir þessar jákvæðu breyt- ingar sýna hvernig hægt er að auka virðisaukann með markvissri vinnu og samstilltu átaki í mark- aðssetningu. Þá sýni þetta einnig að það séu enn til staðar ónýtt tækifæri í sölu sjávarafurða til Evrópu. Hann segir að einn af þeim þáttum sem fyrir- tækið hefur einblínt á sé að kynna hversu stutt leið sé á markaðinn með íslenskan karfa borið saman við karfa frá Asíu og að kaupendur séu í auknum mæli meðvitaðir um kolefnisspor afurða. „Við sendum ekki vöruna til Kína og til baka og við finnum meðbyr hvað það varðar.“ Þá séu sífellt fleiri að horfa til umhverfisþátta þegar vörur eru keyptar og kaupendur í auknum mæli reiðubúnir til þess að borga hærra verð. Kórónuveiran hefur áhrif Hann segir einn af þeim þáttum sem fyrirtækið hefur einblínt á sé að kynna hversu stutt leið sé á markaðinn með íslenskan karfa borið saman við karfa frá Asíu og að kaupendur séu í auknum mæli meðvitaðir um kolefnisspor afurða. „Við sendum ekki vöruna til Kína og til baka og við finnum með- byr hvað það varðar.“ Þá séu sífellt fleiri að horfa til umhverfisþátta þegar vörur eru keyptar og kaupendur í auknum mæli reiðubúnir til þess að borga hærra verð. Óskar viðurkennir að útbreiðsla kórónuveir- unnar hafi skapað aðstæður sem hafa ýtt enn frek- ar undir þessa þróun en kveðst vona að sá þáttur verði ekki viðvarandi. „Þeir [kínversku fyrir- tækin] eru smám saman að ná sinni afkastagetu aftur, en það gengur mjög hægt,“ útskýrir hann og segir þessi fyrirtæki í fyrsta lagi geta komist með vörur á markaðinn í sumar. „Svo er mark- aðurinn líka varkár. Það eru blikur á lofti en það kemur örugglega til með að vera aukin eftirspurn eftir evrópskri og íslenskri framleiðslu.“ Gæti haft áhrif á aðsókn Í ár verður sjávarútvegssýningin Seafood Expo Global/Seafood Processing Global haldin í síðasta sinn í Brussel og flytur hún til Barcelona á næsta ári. Óskar telur að flutningurinn geti haft jákvæð áhrif á aðsókn á sýninguna Fish International í Bremen, þar sem hún sé nær ákveðnum mörk- uðum. „Það er svo auðvelt fyrir marga að keyra til Brussel og það getur haft áhrif á það hverjir sækja sýninguna. En það á eftir að koma í ljós.“ Eftirspurn eftir íslenskum afurðum eykst í Evrópu Vöxtur Óskar Sigmundsson, annar f.h., ásamt teymi Marós. Hann telur tækifæri til frekari vaxtar.  Gullkarfi á nánast þreföldu verði kyrrahafskarfa  Sala jókst um 44% í febrúar 12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MARS 2020 PFAFF • Grensásvegi 13 • Sími: 414 0400 • www.pfaff.is FaGfÓLk Í SaUmAvÉLuM 3. mars 2020 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 125.99 126.59 126.29 Sterlingspund 162.39 163.17 162.78 Kanadadalur 93.68 94.22 93.95 Dönsk króna 18.589 18.697 18.643 Norsk króna 13.353 13.431 13.392 Sænsk króna 13.023 13.099 13.061 Svissn. franki 130.58 131.3 130.94 Japanskt jen 1.1581 1.1649 1.1615 SDR 173.11 174.15 173.63 Evra 138.91 139.69 139.3 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 170.4298 Hrávöruverð Gull 1626.35 ($/únsa) Ál 1662.5 ($/tonn) LME Hráolía 51.42 ($/fatið) Brent ● Hrein staða Ís- lands við útlönd var jákvæð sem nam 667 millj- örðum króna um síðustu áramót eða 22,5% af vergri landsframleiðslu. Þetta sýna bráða- birgðatölur Seðla- banka Íslands yfir greiðslujöfnuð við útlönd á fjórða ársfjórðungi 2019.Batn- aði staðan um 84 milljarða á fjórð- ungnum eða 2,8% af VLF. Erlendar eignir þjóðarbúsins námu 3.900 millj- örðum króna en skuldirnar 3.233 millj- örðum. Hrein fjármagnsviðskipti bættu erlenda stöðu um 52 milljarða á fjórðungnum og munaði þar mestu um niðurgreiðslur skuldabréfa innláns- stofnana sem námu 63 milljörðum króna. Erlendar eignir lækkuðu í heild- ina um 25 milljarða vegna fjármagns- viðskipta en skuldir lækkuðu um 77 milljarða. Gengis- og verðbreytingar höfðu einnig jákvæð áhrif á erlenda stöðu þjóðarbúsins sem nam 43 millj- örðum, einkum vegna mikilla verð- hækkana á erlendum verðbréfamörk- uðum sem voru 8,3% á ársfjórðungnum. Gengi íslensku krón- unnar lækkaði um 0,6% gagnvart helstu gjaldmiðlum á tímabilinu. Hrein staða við útlönd 667 milljarðar króna Gjaldeyrir Eign- irnar hafa aukist. STUTT Hlutabréfaverð hélt áfram að lækka í Kauphöll Íslands í gær eftir tals- verða lækkanahrinu í liðinni viku. Virðist markaðurinn líkt og þá taka illa í fréttir af frekari útbreiðslu kór- ónuveirunnar. Lækkaði úrvalsvísitalan um 2,82% í viðskiptunum í gær. Mest lækkuðu bréf Origo um 7,1% í tæplega 79 milljóna króna viðskiptum. Þá lækk- uðu bréf Kviku banka um tæp5,4% í tæplega 183 milljóna króna viðskipt- um. Svipuð varð lækkunin á bréfum Icelandair Group sem lækkuðu um tæp 5,4%. Félagið sendi tilkynningu frá sér á sunnudag og sagði þar að félagið gæti ekki lengur staðið við afkomuspá sem gefin var út fyrir ár- ið í febrúar síðastliðnum. Námu við- skipti með bréf félagsins tæpum 202 milljónum króna. Bréf Marels lækkuðu um 3,7% í ríflega 477 milljóna króna viðskip- um. Festi lækkaði um 3,3% í tæplega 269 milljóna viðskiptum. Önnur félög lækkuðu minna en ekkert félag í Kauphöll Íslands hækkaði í viðskiptum í gær. Morgunblaðið/G.Rúnar Viðskipti Kauphallir hafa ekki farið varhluta af útbreiðslu kórónuveirunnar. Markaðurinn tók á sig annað högg  Úrvalsvísitalan lækkaði um 2,82% í gær

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.