Morgunblaðið - 03.03.2020, Page 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MARS 2020
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Þjónusta
Málningarþjónusta
Upplýsingar í síma 782 6034.
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
Húsviðhald
Tek að mér
ýmiskonar
húsaviðhald og fl.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Atvinnuauglýsingar
Blaðberar
Upplýsingar veitir í síma
Morgunblaðið óskar eftir
blaðbera
Raðauglýsingar
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9.30-12.30, nóg pláss. Hreyfisal-
urinn er opinn kl. 9.30-11.30, líkamsræktartæki, lóð og teygjur. Boccia
kl. 10.15. Bíó í miðrými kl. 13. Tálgað í tré kl. 13. Postulínsmálun kl. 13.
Vatnslitun kl. 13, leiðbeinandi, ókeypis og allt til staðar. Engin veiting-
asala vegna verkfalls en heitt á könnunni. Nánari upplýsingar í síma
411 2702. Allir velkomnir.
Árskógar Smíðar, útskurður með leiðbeinanda kl. 9-16. Botsía með
Guðmundi kl. 10. Brids kl. 12. Handavinnuhópur kl. 12-16. Kóræfing,
Kátir karlar kl. 12.45. MS fræðslu- og félagsstarf kl. 14-16. Opið fyrir
innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á
könnunni, allir velkomnir. S. 535-2700.
Bústaðakirkja Félagsstarfið er á sínum stað á miðvikudaginn frá kl
13-16. Gestur dagsins er fjölmiðlakonan Sigurlaug M. Jónasdóttir og
ætlar hún að segja okkur frá starfi sínu. Spil, handavinna og fram-
haldssagan á sínum stað og auðvita kaffið góða. Hlökkum til að sjá
ykkur sem flest. Starfsfólk Bústaðakirkju.
Dalbraut 18-20 Félagsvist kl. 13.30 í borðsal.
Fella og Hólakirkja Kyrrðastund kl. 12. súpa og brauð eftir stundina.
Bíósýning kl. 13. Við grípum síðan í spil, prjóna og spjöllum og eigum
góða stund saman. Verið velkomin
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Við hringborðið og kaffisopi kl.
8.50-11. Púslum saman kl. 9-16. Myndlistarnámskeið kl. 9-12. Thai shi
kl. 9-10. Spekingar og spaugarar kl. 10.30-11.30. Kríur myndlistarhópur
kl. 13. Tölvur kl. 13. Enska kl. 13-15. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari
upplýsingar í síma 411-2790.
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Glerlist kl. 9. Bútasaumshópur hittist kl.
9. Hópþjálfun með sjúkraþjálfara kl. 10.30. Bókband kl. 13. Frjáls spila-
mennska kl. 13. Opin handverkstofa kl. 13-16. Söngstund kl. 13.30.
Bókaklúbbur kl. 15. Heitt á könnunni. Verið velkomin á Vitatorg.
Garðabær Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Bónusrúta fer frá
Jónshúsi kl. 14.45. Vatnsleikfimi kl. 7.30/15.15. Qi-gong í Sjálandi kl. 9.
Liðstyrkur Ásgarði kl. 11.15. Karlaleikfimi Ásgarði kl.12. Botsía í Ás-
garði kl. 12.45. Línudans Sjálandi kl. 13.30/14.30. Smiði Smiðju Kirkju-
hvoli kl. 9/13.
Gjábakki ATH! Zumba hefst aftur þriðjudaginn 3. mars kl. 13. Kl. 9
handavinna, kl. 9.45 stólaleikfimi, kl. 13.30 alkort.
Grafarvogskirkja Opið hús fyrir eldri borgara kl. 13–15.30. Starfið
hefst á samsöng og helgistund. Boðið upp á spil, spjall og handa-
vinnu. Samverunni lýkur með kaffi kl. 15.
Grensáskirkja Kl. 12 á þriðjudögum er boðið upp á kyrrðarstund í
Grensáskirkju. Stundin hefst með orgelleik og síðan er nærandi orð
og kyrrðarbæn. Eftir samveruna í kirkjunni er samfélag yfir léttri
máltíð gegn vægu gjaldi.
Guðríðarkirkja Kótilettudagur í félagsstarfi eldri borgara miðviku-
daginn 5. mars kl. 12. Helgistund í kirkjunni og söngur. Borðað verður
vel af kótilettum og spjallað, sr. Pétur Ragnhildarson kemur og segir
eitthvað skemmtilegt. Matur kr. 15. Hlökkum til að sjá ykkur, sr. Karl,
sr. Leifur Ragnar, sr. Pétur og Lovísa.
Gullsmári Myndlistarhópur kl. 9. Botsía kl. 9.30. Málm- og silfur-
smíði, kanasta og tréskurður kl. 13. Leshópur kl. 20.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Handavinna með leiðbeinanda kl. 9-11.30. Félagsvist kl. 13.15.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8.30-10.30. Útvarpsleik-
fimi kl. 9.45. Zumba með Carynu kl. 10. Brids í handavinnustofu 13.
Gönguferð kl. 13 ef veður leyfir. Verði verkfall verður ekki hægt að
kaupa mat eða kaffi í félagsmiðstöðinni.
Korpúlfar Listmálun með Marteini kl. 9 í Borgum, frjáls postulíns-
málun kl. 9.30 í listasmiðju, botsía kl. 10 og 15 í Borgum. Helgistund
kl. 10.30, leikfimishópur Korpúlfa í Egilshöll, Ársæll leiðbeinandi.
Spjallhópur í listasmiðju Borgum kl. 13 og sundleikfimi í Grafarvogs-
sundlaug kl. 13.30. Heimanámskennsla bókasafninu í Spöng e.h.
Neskirkja Krossgötur kl. 13. Sr. Hreinn Hákonarson fyrrum fanga-
prestur segir frá störfum og þjónustu fangelsisprests. Kaffiveitngar
og söngur.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, trésmiðja kl. 9-
16, opin listasmiðja kl. 9-16, morgunleikfimi kl. 9.45, upplestur kl. 11,
Samverustund með djákna kl. 13, Bónusbíllinn kl. 15, hugleiðslan kl.
15.30. Uppl. í s. 4112760.
Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 7.10. Kaffispjall í krókn-
um kl. 10.30. Leikfimi /farsæl öldrun í fimleikasal Gróttu kl. 9,10,11 og
12. Pútt í Risinu Eiðistorgi kl. 10.30. Kvennaleikfimi í Hreyfilandi kl.
11.30. Brids í Eiðismýri 30 kl. 13.30. Karlakaffi í safnaðarheimilinu kl.
14. Nk. fimmtudag verður félagsvist í salnum á Skólabraut kl. 13.30.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–16. Heitt á
könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30 –12.15, panta þarf matinn daginn áður. Bókabíllinn kemur kl.
13.15 og Bónusbíllinn kl. 14.40. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30
–15.30. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586.
Stangarhylur 4 Skák kl. 13, allir velkomnir í hópinn.
ses.xd.is
Samtök eldri
sjálfstæðismanna, SES
Hádegisfundur SES
Jórunn Pála Jónasdóttir, varaformaður
Öldungaráðs Reykjavíkurborgar og vara-
borgarfulltrúi, verður gestur á hádegisfundi
SES, miðvikudaginn 4. mars kl. 12:00, í
Valhöll, Háaleitisbraut 1.
Húsið opnað kl. 11:30.
Boðið verður upp á súpu
gegn vægu gjaldi, 1000
krónur.
Allir velkomnir.
Með kveðju,
stjórnin.
Fundir/Mannfagnaðir
– með morgunkaffinu
Vantar þig
pípara?
FINNA.is
Elskulega Ebba
mín átti afmæli í
dag, hún hefði orðið
96 ára. Þegar hún
fæddist og missti
mömmu sína kom mamma mín
sem var móðursystir Ebbu og tók
að sér litla barnið. Og með manni
sínum, sem var pabbi minn, þá
ólu þau hana upp ásamt börnun-
um sínum. Ég var ein af þeim og
var 10 árum yngri en Ebba.
Pabbi minn og mamma voru
virkilega duglegt fólk og byggðu
sér gott hús í Eyjum. Pabbi var
39 ára þegar við fluttum í nýja
húsið, hann þá orðinn veikur.
Hann dó stuttu seinna.
Mamma var þá orðin ein með
börnin sex, það yngsta einungis
fjögurra ára, ég sex ára og Ebba
systir sextán ára og farin að
vinna fyrir sér. Hún var alltaf af-
skaplega dugleg. Fór til Reykja-
víkur til að vinna og kom aftur til
Eyja með kærastann sinn hann
Óskar með sér. Þau voru svo fal-
leg, bara eins og kvikmynda-
stjörnur, hann spariklæddur með
hattinn sinn og hún svo fínt uppá-
klædd. Óskar var svo mikið góð-
ur maður og mér fannst þau
passa svo vel saman. Þau giftust
og eignuðust 3 myndarleg og góð
börn, þau Sigrúnu, Kristínu og
Gísla.
Ebba og Óskar bjuggu lengst
af í Sörlaskjólinu. Hún hafði dá-
læti á garðinum sínum og var
hann töfrum líkastur, svo falleg-
ur var hann. Hún nostraði við
hann og svo sátu þau saman í
skotinu sínu á góðviðrisdögum og
nutu þess vel.
Hún hafði alveg sínar skoðanir
á hlutunum og lét þær í ljós,
hvort sem hún var sammála
manni eða ekki. Oft voru hnyttin
svörin frá henni. Þegar Ollý syst-
ir okkar fór að vinna í Freyju
sælgætisgerðinni kom hún
stundum heim með bréfpoka full-
an af afskurðum af Freyju staur-
um og fleira góðgæti. Ebba talaði
þá oft um það hvað hún var hepp-
in að fá þessa vinnu.
Og það var eiginlega það sem
hún sagði ef einhverjum í fjöl-
skyldunni vegnaði vel í vinnu sem
í einkalífi. Mikið ertu heppin/n að
kynnast þessum manni/konu, eða
mikið ertu heppin/n að fá þessa
vinnu.
Þegar hún var orðin lasin og
minnið aðeins farið að gefa sig
fannst henni sem oftar gaman að
tala um gamla tímann.
Í huganum var hún stundum
komin vestur í bæ að vesenast í
strætó, jafnvel í uppáhalds-
mokkakápunni sinni eða með
Óskari sínum og börnunum
litlum í Sörlaskjólinu.
Ef hún mundi ekki eitthvað
sem hún var spurð um átti hún til
að svara um leið og hún pírði ann-
Ingibjörg Finns
Petersen
✝ IngibjörgFinns Petersen
fæddist 3. mars
1924, lést 15. jan-
úar 2020. Jarðar-
förin fór fram 23.
janúar 2020.
að augað saman og
kímdi við: „Það veit
ég ekkert um“ – og
svo skellihlógum við
saman.
Henni fannst ég
óskaplega heppin að
fá að kynnast öðrum
manni eftir að
Smári minn dó, og
tók af mér það lof-
orð að kíkja við hjá
sér í Sörlaskjólinu,
svo hún gæti fyrst manna kíkt á
nýja mannsefnið mitt.
Takk fyrir samfylgdina og
góðvildina alla tíð.
Guð geymi þig ávallt, elsku
systir mín.
Gott er ein með guði að vaka,
gráta hljótt og minnast þín,
þegar annar ylur dvín, –
seiða liðið líf til baka,
og láta huggast, systir mín!
Við skulum leiðast eilífð alla,
aldrei sigur lífsins dvín.
Ég sé þig, elsku systir mín.
Gott er þreyttu höfði að halla
að hjarta guðs og minnast þín.
(Jóhannes úr Kötlum)
Þín
Ída.
„Fræið þarf næringu til að
vaxa og blómið líka, við vitum
það, Birna mín.“ Þessum orðum
gleymi ég aldrei, ásamt mörgum,
mörgum, mörgum öðrum gull-
kornum sem Ebba kom með.
Leitum þess sem göfugt er og
háleitt. Gerum það sem er rétt
því uppskeran eða umbun minnar
samvisku mun gefa mér meiri
gleði en loforð milljóna sem ekk-
ert vita hvort ég er þess verð.
Ég er svo lánsöm að hafa átt
hana Ebbu fyrir frænku. Hún var
elsta systir hennar mömmu. Ein-
stök stóra systir hennar og vin-
kona. Ég naut góðs af, því viska
hennar gaf mér öðruvísi þekk-
ingu og skilning á allskonar í líf-
inu sem þakkarvert er. Þakkir
fyrir einstakan vinskap og alls-
konar skemmtilegt.
Að hlusta á Ebbu og mömmu
tala um uppvaxtarár þeirra
systkina í Eyjum var notalegt og
gefandi, þar sem samband þeirra
var einstaklega kærleiksríkt.
Æskuheimili þeirra var hlýja,
kærleikur, samheldni, kátína og
söngur var yfir og allt um kring.
Það var alltaf svo gaman og
ævintýri líkast að koma í Sörla-
skjólið. Það er margs að minnast,
fullt af góðum og notalegum
minningum sem fylla mig stolti
og þakklæti. Þakklæti fyrir allt
og allt.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
...
Svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Elsku Sigrún, Kristín, Gísli,
barnabörnin og elsku mamma
mín.
Innileg samúðarkveðja.
Birna Smára.
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri grein-
ar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju,
Minningargreinar