Morgunblaðið - 03.03.2020, Page 26
MÖRK
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Alfreð Finnbogason náði á laug-
ardaginn Eiði Smára Guðjohnsen í
markafjölda fyrir erlend félagslið
í deildakeppni í knattspyrnu þegar
hann gerði seinna mark Augsburg
í 2:3-ósigri liðsins gegn Mönchen-
gladbach í þýsku Bundesligunni.
Þetta var 107. mark Alfreðs sem
atvinnumaður erlendis og það 35.
sem hann skorar í Bundesligunni
þýsku. Hann hafði áður skorað 53
mörk í Hollandi, 12 í Svíþjóð, fjög-
ur í Belgíu, tvö á Spáni og eitt í
Grikklandi. Öll hans mörk erlendis
hafa verið skoruð í efstu deildum
viðkomandi landa.
Eiður Smári skoraði 107 deilda-
mörk erlendis og þar af voru 78 á
Englandi, 13 í Belgíu, 10 á Spáni,
þrjú í Hollandi, eitt í Grikklandi,
eitt í Kína og eitt í Noregi. Eiður
gerði 23 mörk í B-deildinni á Eng-
landi fyrir Bolton en hin í efstu
deildum.
Heiðar er markahæstur
Eini Íslendingurinn sem hefur
skorað fleiri mörk í deildakeppni
erlendis en þeir Alfreð og Eiður
Smári er Heiðar Helguson en
hann skoraði 133 mörk. Þar af
gerði hann 115 mörk í tveimur
efstu deildunum á Englandi og 18
mörk í norsku úrvalsdeildinni.
Sá fjórði sem hefur gert hundr-
að mörk eða meira erlendis er
Arnór Guðjohnsen en hann gerði
104 mörk á ferli sínum í Belgíu
(66), Frakklandi (9) og Svíþjóð
(29).
Þegar mörkum á Íslandi er bætt
við skoraði Heiðar 164 deildamörk
á ferlinum, Arnór skoraði 138
mörk, Alfreð er kominn með 137
og Eiður Smári skoraði 114 mörk,
sjö þau fyrstu 15 ára gamall með
Val árið 1994.
Gylfi og Viðar nálgast 100
Ásgeir Sigurvinsson er næstur
íslenskra knattspyrnumanna á
þessum markalista en hann skor-
aði 96 mörk fyrir Standard Liege,
Bayern München og Stuttgart, eft-
ir að hafa skorað sjö mörk heima
á Íslandi fyrir Eyjamenn. Þar á
eftir koma tveir núverandi lands-
liðsmenn Íslands sem eiga mögu-
leika á að ná hundrað mörkunum.
Það eru Gylfi Þór Sigurðsson, sem
er kominn með 92 mörk á Eng-
landi og í Þýskalandi og Viðar
Örn Kjartansson sem hefur skorað
88 mörk í fimm deildum erlendis, í
Noregi, Kína, Svíþjóð, Ísrael og
Rússlandi.
Alfreð náði Eiði Smára í öðru sæti
Reuters
133 Heiðar Helguson.
Skoraði sitt 107. mark í deildakeppni erlendis gegn Mönchengladbach
AFP
107 Alfreð Finnbogason.
Morgunblaðið/Einar Falur
107 Eiður S. Guðjohnsen.
Ljósmynd/Gunnlaugur
104 Arnór Guðjohnsen.
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MARS 2020
England
Bikarkeppnin, 16-liða úrslit:
Portsmouth – Arsenal.............................. 0:2
B-deild:
Middlesbrough – Nottingham F............. 2:2
Staðan:
WBA 36 19 12 5 64:37 69
Leeds 36 20 8 8 54:30 68
Fulham 36 18 9 9 51:37 63
Nottingham F. 36 16 12 8 48:35 60
Brentford 36 16 9 11 59:33 57
Preston 36 16 8 12 49:42 56
Bristol City 36 15 9 12 50:52 54
Blackburn 36 14 11 11 52:42 53
Swansea 36 13 13 10 46:45 52
Millwall 36 12 15 9 41:40 51
Cardiff 36 12 15 9 50:50 51
Sheffield Wed. 36 13 9 14 46:44 48
Derby 36 12 12 12 46:49 48
QPR 36 13 8 15 55:61 47
Birmingham 36 12 11 13 47:54 47
Reading 36 12 9 15 43:41 45
Huddersfield 36 11 9 16 45:56 42
Hull 36 11 8 17 48:58 41
Wigan 36 10 10 16 38:50 40
Charlton 36 10 9 17 44:53 39
Stoke 36 11 6 19 44:54 39
Middlesbrough 36 8 14 14 36:47 38
Barnsley 36 8 10 18 42:60 34
Luton 36 10 4 22 43:71 34
Danmörk
Midtjylland – SönderjyskE..................... 3:0
Mikael Anderson lék ekki með Midtjyll-
and vegna meiðsla.
Eggert Gunnþór Jónsson lék allan leik-
inn með SönderjyskE en Ísak Óli Ólafsson
var ónotaður varamaður.
Staðan:
Midtjylland 23 19 2 2 39:13 59
København 23 16 2 5 41:26 50
AGF 22 12 4 6 36:23 40
Brøndby 23 12 2 9 42:32 38
Nordsjælland 23 11 4 8 44:32 37
AaB 23 10 4 9 38:29 34
Randers 22 10 4 8 37:29 34
Lyngby 23 9 4 10 28:36 31
OB 23 8 5 10 30:27 29
SønderjyskE 23 6 7 10 28:40 25
Horsens 23 7 4 12 20:42 25
Hobro 23 2 12 9 21:32 18
Esbjerg 23 4 4 15 19:39 16
Silkeborg 23 2 6 15 27:50 12
Kýpur
APOEL – Omonia .................................... 0:0
Björn Bergmann Sigurðarson var ekki í
leikmannahópi APOEL.
Svíþjóð
Kristianstad – Alingsås ...................... 33:28
Ólafur Andrés Guðmundsson skoraði níu
mörk fyrir Kristianstad og Teitur Örn Ein-
arsson fimm.
Aron Dagur Pálsson skoraði eitt mark
fyrir Alingsås.
Skuru – Skara ...................................... 28:23
Eva Björk Davíðsdóttir skoraði þrjú
mörk fyrir Skuru.
Dominos-deild karla
Tindastóll – Fjölnir .............................. 80:81
ÍR – Þór Þ ............................................. 90:85
Staðan:
Stjarnan 19 16 3 1744:1581 32
Keflavík 19 14 5 1684:1539 28
Tindastóll 19 12 7 1642:1569 24
KR 19 12 7 1638:1584 24
Njarðvík 19 11 8 1628:1496 22
Haukar 19 11 8 1675:1618 22
ÍR 19 10 9 1616:1702 20
Grindavík 19 8 11 1616:1660 16
Þór Þ. 19 7 12 1533:1581 14
Valur 19 6 13 1530:1643 12
Þór Ak. 19 5 14 1640:1824 10
Fjölnir 19 2 17 1598:1747 4
NBA-deildin
Charlotte – Milwaukee ........................ 85:93
Minnesota – Dallas............................. 91:111
LA Clippers – Philadelphia ............. 136:130
Denver – Toronto ............................. 133:118
Sacramento – Detroit....................... 106:100
New Orleans – LA Lakers............... 114:122
Golden State – Washington............. 110:124
Efstu lið í Austurdeild:
Milwaukee 52/8, Toronto 42/18, Boston 41/
18, Miami 38/22, Philadelphia 37/24, In-
diana 36/24, Orlando 27/33, Brooklyn 26/33.
Efstu lið í Vesturdeild:
Lakers 46/13, Denver 41/19, Clippers 41/19,
Houston 39/20, Utah 37/22, Oklahoma City
37/23, Dallas 37/24, Memphis 29/31.
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild kvenna, Dominos-deildin:
Origo-höllin: Valur – KR...................... 19.15
1. deild karla:
Ísafjörður: Vestri – Skallagrímur....... 19.15
ÍSHOKKÍ
Íslandsmót karla, Hertz-deildin:
Egilshöll: Fjölnir – SR ......................... 19.45
Í KVÖLD!
KÖRFUBOLTI
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
ÍR tryggði sér sæti í úrslitakeppni Ís-
landsmóts karla í körfuknattleik með
dramatískum fimm stiga sigri gegn
Þór frá Þorlákshöfn í úrvalsdeildinni,
Dominos-deildinni, í Seljaskóla í
Breiðholti í nítjándu umferð deild-
arinnar í gær. Leiknum lauk með
90:85-sigri ÍR-inga en mikið jafnræði
var með liðunum allan leikinn.
Borche Ilievski hefur sýnt það og
sannað í vetur að hann er einn af bestu
þjálfurum deildarinnar en enn og aft-
ur er hann að koma ÍR-ingum í úr-
slitakeppnina með lið sem á ekkert
endilega mikið erindi í hana, á papp-
írum í það minnsta.
Borche tók við liði ÍR í nóvember
2015 og hefur komið liðinu í úr-
slitakeppnina í öll fjögur skiptin þar
sem hann hefur stýrt ÍR-ingum yfir
heilt tímabil.
Draumur Þórsara um að leika í úr-
slitakeppninni er hins vegar lítill sem
enginn en liðið er í níunda sæti deild-
arinnar með 14 stig, tveimur stigum
minna en Grindavík og fjórum stigum
minna en ÍR. Bæði ÍR og Grindavík
eru með betri innbyrðis viðureign
gegn Þórsurum og Þórsarar þurfa því
að vinna þrjá síðustu leiki sína og
treysta á að ÍR og Grindavík misstígi
sig herfilega.
Annar sigurinn fyrir norðan
Fallnir Fjölnismenn unnu sinn
annan leik í deildinni í vetur þegar lið-
ið heimsótti meistaraefnin í Tindastóli
á Sauðárkrók en Grafarvogsliðið vann
eins stigs sigur, 81:80. Hinn sigur-
leikur liðsins kom gegn Þór frá Ak-
ureyri og komu því báðir sigurleikir
liðsins á tímabilinu á Norðurlandi.
Tindastóll hefði getað farið lang-
leiðina með að tryggja sér heimavall-
arrétt í úrslitakeppninni með sigri en
í staðinn er nú ákveðin pressa á Sauð-
krækingum fyrir lokaleikina. Fjöln-
ismenn hafa verið inni í flestum leikj-
um sem þeir hafa spilað í vetur en
gengið illa að klára leiki sína. Þeir
kláruðu hins vegar verkefnið í gær,
pressulausir, enda liðið fallið um
deild. Íslenskir leikmenn liðsins virt-
ust loksins þora að taka af skarið á
Sauðárkróki í gær, þó fyrr hefði verið.
Borche fer alltaf í úrslitakeppnina
Annar sigurinn
kom allt of seint
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Átök Þórsarinn Dino Butorac í baráttunni við ÍR-inginn Evan Singletary í Seljaskóla í Breiðholtinu í gær.
Körfuknattleiksþjálfarinn Finnur
Freyr Stefánsson gæti verið á
heimleið en þetta staðfesti hann í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Finnur Freyr þjálfar lið Horsens í
efstu deild Danmerkur en hann tók
við liðinu síðasta sumar. „Þegar við
fjölskyldan fluttum út var alltaf
planið að taka eitt ár í einu. Ég setti
inn klásúlu í samning minn um að
hann væri uppsegjanlegur eftir
hvert tímabil,“ sagði Finnur Freyr
en hægt er að lesa ítarlegt viðtal
við hann inni á www.mbl.is/sport/
korfubolti. bjarnih@mbl.is
Finnur Freyr á
heimleið?
Morgunblaðið/Kristinn Magnúss
Þjálfari Finnur Freyr Stefánsson
stýrði KR á árunum 2014-2018.
Knattspyrnumaðurinn Ari Leifsson
hefur skrifað undir þriggja ára
samning við norska knattspyrnu-
félagið Strømsgodset en þetta stað-
festi norska félagið á heimasíðu
sinni í gær. Ari kemur til félagsins
frá uppeldisfélagi sínu Fylki en
varnarmaðurinn er fæddur árið
1998. Ari á að baki 46 leiki í efstu
deild með Fylki og þá lék hann sinn
fyrsta A-landsleik í janúar á þessu
ári gegn El Salvador í Bandaríkj-
unum. Strømsgodset hafnaði í ell-
efta sæti norsku úrvalsdeildarinnar
á síðustu leiktíð. bjarnih@mbl.is
Árbæingur í at-
vinnumennsku
Ljósmynd/Strømsgodset
Miðvörður Ari Leifsson skrifaði
undir þriggja ára samning í Noregi.