Morgunblaðið - 03.03.2020, Qupperneq 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MARS 2020
„Fjölmiðlar hafa farið of-
fari í umfjöllun sinni um kór-
ónuveiruna“ er setning sem ég
heyri reglulega þessa dagana.
Þessi umræða fer mjög mikið í
taugarnar á mér því það er jú
auðvitað hlutverk fjölmiðla að
halda samfélaginu upplýstu um
það sem er í gangi hverju sinni.
Þar sem ég er íþrótta-
fréttamaður fékk ég þá spurn-
ingu um daginn af hverju
íþróttafréttamenn væru að
skrifa svona mikið um veiruna
sem nú geisar.
Til að svara þessum ágæta
manni í annað sinn, og auðvitað
öllum þeim sem finnst al-
gjörlega nauðsynlegt að tjá sig
um vanhæfni fjölmiðla í þessu
máli, langar mig að benda á þá
staðreynd að það er ekki verið
að fresta heilu knattspyrnuleikj-
unum og íþróttamótunum af því
að við erum að tala um einhverja
kvefpest. Það á að reyna að
koma í veg fyrir heimsfaraldur.
Það er í umræðunni að fresta
Ólympíuleikunum í Tókýó sem
hefjst í lok júlí og standa yfir
fram í miðjan ágúst. Það er nú
þegar búið að fresta HM innan-
húss í frjálsum íþróttum í Nanj-
ing. Það er búið að fresta öllum
knattspyrnuleikjum í Kína, Jap-
an og Kóreu fram í apríl. Það er
búið að fresta Formúlu 1 kapp-
akstrinum í Kína og þá er búið
að fresta tveimur badminton-
keppnum í Evrópu.
Það er líka talað um að fresta
mun fleiri risastórum íþrótta-
viðburðum eins og EM í knatt-
spyrnu og Tour de France.
Íþróttir eru frábær skemmtun
og eitthvað sem margir lifa fyrir.
Þegar byrjað er að tala um að
fresta stærstu íþróttaviðburðum
heims, eins leiðinlegt og það er,
þá ættu allir að vera meðvitaðir
um það að það er aldrei nóg af
upplýsingaflæði þegar heimsfar-
aldur gæti verið undir.
BAKVÖRÐUR
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
SKÍÐI
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Skíðamaðurinn Hilmar Snær Örv-
arsson úr skíðadeild Víkings varð á
föstudag fyrsti Íslendingurinn til að
vinna sigur á Evrópumótaröð IPC í
alpagreinum. Bar hann sigur úr být-
um í heildarstigakeppni í svigi á
mótaröðinni og hafnaði auk þess í
öðru sæti í stórsvigi. Hilmar tryggði
sér sigurinn eftir harða keppni við
Austurríkismanninn Thomas Groch-
ar á móti í Zagreb í Króatíu fyrir
helgi.
„Ég er virkilega ánægður. Þetta
hefur verið mjög gott tímabil hingað
til og ég og þjálfarinn minn höfum
náð okkar helstu markmiðum eftir
stífar æfingar,“ sagði Hilmar í sam-
tali við Morgunblaðið.
Hilmar tók þátt í Paralympics, Ól-
ympíumóti fatlaðra, í Pyeongchang í
Suður-Kóreu árið 2018 og hafnaði í
13. sæti í svigi. Síðan þá hefur hann
vaxið á heimsvísu og tekið þátt í og
náð góðum árangri á sterkum mót-
um erlendis. Hilmar missti fótinn
þegar hann var aðeins átta ára gam-
all eftir að hann greindist með
krabbamein í hné og keppir hann í
standandi flokki. Markmiðin voru
háleit fyrir tímabilið og kom árang-
urinn honum ekki endilega á óvart.
Skíðin eru númer eitt
„Við settum okkur ákveðin mark-
mið og að ná þessum árangri var
ekki óraunhæft. Síðustu tvö ár hef
ég bætt mig mikið, þar sem ég hef
þroskast og náð að æfa meira, sér-
staklega eftir að ég útskrifaðist úr
menntaskóla og er ekki eins miklu
námi. Ég hef náð að vera meira úti
og sett skíðin í forgang,“ sagði Hilm-
ar, sem nemur læknisfræðilega
verkfræði við Háskóla Íslands með-
fram skíðunum, en íþróttin gengur
fyrir. „Skíðin eru númer eitt og ég
hef aðeins getað sett námið til hliðar,
þar sem ég er bara í 50 prósent. Ég
get unnið það fram og aftur í tímann
á meðan ég sinni skíðunum,“ út-
skýrði Hilmar.
Eins og áður segir tryggði Hilmar
sér sigurinn eftir harða keppni við
Thomas Grochar í Zagreb. „Á fyrsta
deginum tók hann mig hressilega í
fyrri ferðinni, en ég náði svo aðeins
að saxa á hann. Á degi tvö tók hann
mig í fyrri ferðinni, en ég náði að
vinna hann í seinni ferðinni. Hann
var svo á undan eftir fyrri ferð á
föstudeginum, en það hentar mér
mjög vel að skíða á þverum brautum
og það gekk vel í seinni ferðinni og
svo datt hann alveg í lokin.“
HM og heimsbikar
Hilmar ætlar sér að ná langt á
HM í Lillehammer í Noregi á næsta
ári og þá stefnir hann á að keppa í
heimsbikarnum, sem er sterkasta
mótaröð heims. Í honum er keppt í
Evrópu, Norður-Ameríku og Aust-
ur-Asíu. Hilmar hefur áður keppt á
heimsbikarnum með góðum árangri.
„Í svigi er ég í topp fimm í heim-
inum á punktalista, svigið er mín
sterkasta grein. Á næsta ári stefni
ég hátt á HM þar sem ég ætla að ná
palli og svo ætla ég í heimsbikarinn á
næstu leiktíð, en það á eftir að koma
í ljós hvar tímabilið í heimsbikarnum
fer fram,“ sagði Hilmar, en hann
verður að vinna sig upp í námi næstu
daga eftir stranga keppnisferð.
„Nú ætla ég að ná upp náminu og
það tekur við núna. Ég æfi meðfram
því. Það er hins vegar óljóst hjá mér
og þjálfaranum hvenær ég keppi
næst,“ sagði hann.
Tvö ár eru í Paralympics í Peking
en skíðamaðurinn viðurkennir að
það sé erfitt að hugsa ekki þangað.
„Auðvitað hugsar maður aðeins um
það. Á næsta ári er upphitunarmót
sem verður á sama stað og Para-
lympics. Mér finnst líklegt að við för-
um á það. Það er skemmtilegur vet-
ur framundan á næsta tímabili.“
Mikið er keppt á skíðum á Ítalíu
og þá eru Paralympics 2022 í Kína.
Kórónuveiran hefur herjað á bæði
lönd og haft mikil áhrif á daglegt líf,
sem og hina ýmsu íþróttaviðburði.
Veiran hefur ekki haft bein áhrif á
Hilmar enn.
Fer vonandi ekki í sóttkví
„Ekki hingað til en í Zagreb þurft-
um við að skipta um hótel og okkur
grunaði að það hefði eitthvað með
kórónuveiruna að gera. Það hafa svo
verið hraðagreinar á Ítalíu sem hætt
var við vegna veirunnar. Ég var hins
vegar ekki að stefna þangað, þar
sem ég er ekki kominn í hraðagrein-
arnar enn. Við sjáum hvernig þetta
þróast. Vonandi fær maður ekki sím-
tal frá ríkinu þar sem ég er beðinn
um að fara í sóttkví,“ sagði Hilmar
Snær í samtali við Morgunblaðið.
Ætlar sér enn stærri hluti
Fyrsti Íslendingurinn til að vinna Evrópumótaröð Í hópi fimm bestu í heim-
inum Ætlar sér verðlaun á HM Horfir til Paralympics í Peking árið 2022
Ljósmynd/ÍFsport
Pyeongchang Hilmar Snær Örvarsson á Paralympics 2018 í Suður-Kóreu. Hann stefnir nú til Peking 2022.
Rakel Dögg Bragadóttir, fyrrver-
andi landsliðskona í handknattleik,
hefur verið ráðin aðalþjálfari
kvennaliðs Stjörnunnar frá og með
næsta keppnistímabili og hún tekur
því við liðinu í sumar af Sebastian
Alexanderssyni. Rakel hefur verið
aðstoðarþjálfari liðsins og sjálf spil-
að tíu leiki af átján í deildinni í vet-
ur. Sigurjón Björnsson hefur verið
ráðinn aðstoðarþjálfari en hann og
Rakel hafa unnið saman með yngri
landsliðum Íslands á undanförnum
árum. Sigurjón hefur þjálfað
kvennalið Fjölnis og ÍR síðustu árin.
Rakel tekur við
af Sebastian
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þjálfari Rakel Dögg Bragadóttir í
leik með Stjörnunni í vetur.
Knattspyrnumaðurinn Hólmbert
Aron Friðjónsson verður frá keppni
næstu sex vikurnar eða svo vegna
meiðsla á hné sem hann varð fyrir í
æfingaleik norska liðsins Aalesund
gegn Molde á föstudaginn. Í fyrstu
var óttast að krossband hefði slitn-
að en ljós kom að aðeins var um
áverka á beini að ræða. Fyrsti leik-
ur Aalesund í norsku úrvalsdeild-
inni á leiktíðinni er á heimavelli
gegn Haugesund 5. apríl. Hólmbert
missir væntanlega af fyrstu leikj-
unum en hann gerði 26 mörk fyrir
liðið í B-deildinni 2018 og 2019.
Meiðslin reynd-
ust ekki alvarleg
Ljósmynd/aafk.no/Srdan Mudrinic
Fagnar Hólmbert Aron Friðjónsson
hefur skorað mikið fyrir Aalesund.
Ólafur Andrés Guðmundsson átti
stórleik fyrir Kristianstad þegar
liðið vann fimm marka sigur gegn
Alingsås í toppslag sænsku úrvals-
deildarinnar í handknattleik í
Kristianstad í gærkvöldi. Leiknum
lauk með 33:28-sigri Kristianstad
en Ólafur skoraði níu mörk í leikn-
um. Þá skoraði Teitur Örn Ein-
arsson fimm mörk fyrir Kristian-
stad og Aron Dagur Pálsson eitt
mark fyrir Alingsås. Kristianstad
er með 42 stig í þriðja sæti deild-
arinnar, líkt og Alingsås sem er í
öðru sætinu.
Níu mörk í
toppslag
ÞJÓÐADEILDIN
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Síðdegis í dag kemur í ljós hvaða þrjú lið
verða með Íslandi í riðli í Þjóðadeild UEFA í
fótbolta karla en keppnin hefst í annað
skipti í haust.
Ísland tapaði öllum sínum fjórum leikjum
gegn Belgíu og Sviss í fyrstu keppninni,
haustið 2018 en þar sem liðum í A-deild
keppninnar hefur verið fjölgað úr tólf í sex-
tán heldur Ísland sæti sínu í deildinni. Rétt
eins og Þýskaland, Króatía og Pólland sem
urðu í neðstu sætum hinna þriggja riðlanna.
Ísland er í fjórða og neðsta styrk-
leikaflokki fyrir dráttinn en sextán bestu
landslið Evrópu, samkvæmt útkomu í síð-
ustu keppni, leika í A-deildinni. Ísland fær
því einn mótherja úr hverjum eftirtalinna
flokka:
1: Portúgal, Holland, England eða Sviss.
2: Belgía, Frakkland, Spánn eða Ítalía.
3: Bosnía, Úkraína, Danmörk eða Svíþjóð.
Ísland getur ekki mætt Króatíu, Póllandi
eða Þýskalandi, hinum þremur liðunum sem
eru í fjórða styrkleikaflokki. Eins og sést á
þessu er þegar ljóst að Ísland verður í firna-
sterkum riðli, til dæmis með Englandi,
Frakklandi og Danmörku, eða með Hol-
landi, Ítalíu og Svíþjóð svo dæmi séu tekin.
Leikirnir sex í riðlakeppninni fara fram í
haust, frá 3. september til 17. nóvember. Ís-
land mun leika tvo síðustu leikina í nóv-
ember á útivöllum þar sem Laugardalsvöll-
urinn er ekki talinn leikhæfur á þeim tíma
að öllu óbreyttu. Sigurliðin í riðlunum fjór-
um leika til úrslita um meistaratitil deild-
arinnar í júní 2021. Portúgal vann fyrstu
keppnina sumarið 2019.
Þjóðadeildin mun tengjast undankeppni
HM 2022 sem verður leikin á árinu 2021 en
gefur ekki eins mikla möguleika og fyrir EM
2020. Í húfi verða tvö sæti í umspili sem
leikið verður í mars 2022, á svipaðan hátt og
það umspil fyrir EM sem Ísland er á leiðinni
í síðar í þessum mánuði.
Evrópuþjóðirnar 55 leika í fjórum deildum
í Þjóðadeildinni, sextán lið í þremur efstu
deildunum en sjö lið í D-deildinni. Fjögur lið
færast á milli deilda.
Ísland mætir þremur firnasterkum í haust
Dregið í riðla fyrir Þjóðadeild UEFA í dag Ísland er í hópi sextán bestu þjóðanna sem leika í A-deildinni