Morgunblaðið - 03.03.2020, Qupperneq 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MARS 2020
Böðvar Páll Ásgeirsson
bodvarpall@mbl.is
Sópransöngkonan Sigrún Hjálm-
týsdóttir, Diddú, mun stíga á svið á
hádegistónleikum í Hafnarborg í
dag kl. 12 og flytja uppáhaldsaríur
sínar. Það gerir hún ásamt Antoníu
Hevesi sem leikur með á píanó en
Antonía er listrænn stjórnandi há-
degistónleika í Hafnarborg og hef-
ur verið frá því þeir hófu göngu
sína.
Ókeypis andleg næring
„Þetta verður gleðisprengja,“
segir Diddú þegar blaðamaður slær
á þráðinn til hennar. „Þetta eru
svona uppáhaldsaríurnar mínar
núna í augnablikinu. Það skiptist
mikið eftir tímabilum hvernig mað-
ur er upplagður og hvað er uppá-
halds. Við ætlum að flytja þetta og
næra fólkið á tónlist í hádeginu.“
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
Diddú syngur á hádegistónleikum í
Hafnarborg, það hefur hún gert
nokkrum sinnum að eigin sögn.
„Það eru örugglega komin sex eða
sjö ár síðan síðast,“ segir Diddú.
„Það er frítt inn svo fólk fær þarna
fría andlega næringu.“
Flugeldasýning
Spurð hvaða lög þær Antonía
muni flytja nefnir Diddú aríur eftir
Bellini, Puccini, rússneskt tónskáld
og franskt tónskáld. „Þau liggja vel
við höggi núna. Þau leika mjög
þægilega í röddinni,“ segir hún um
ástæðu lagavalsins.
„Þessar aríur eru svolítil
flugeldasýning sem hefur verið svo-
lítið mitt séreinkenni í gegnum ár-
in. Að syngja aríur sem eru krefj-
andi og þær eru það. En það er
alveg yndislega gaman fást við
þetta og spreyta sig á þessu,“ segir
Diddú og segist hafa sungið ein-
hverjar aríanna áður en þó ekki all-
ar. „Maður reynir alltaf við nýja
hluti við og við. Maður verður að
gera það til að halda sér á tánum.
Spreyta sig á nýjum viðfangs-
efnum.“
Þá segir Diddú það vera heiður
að vera boðið að taka þátt í tón-
leikaröðinni. „Það var hringt í mig
síðsumars á síðasta ári og spurt
hvort ég vildi taka þátt í þessu.“
Æfa og kenna saman
Um samstarf sitt við Antoníu
hefur Diddú aðeins gott að segja.
„Við erum búnar að vera að æfa
okkur fyrir þetta. Svo erum við að
kenna saman í Söngskóla Sigurðar
Demetz og ég er meðal annars að
kenna dóttur hennar söng, svo við
hittumst nú reglulega,“ segir Diddú
og bætir við að þegar hún söng sem
mest við Íslensku óperuna hafi
Antonía unnið þar.
Diddú segir „mjög grand“ hjá
Hafnarborg að bjóða fólki upp á
ókeypis tónleika en hádegistónleik-
arnir eru haldnir fyrsta þriðjudag í
hverjum mánuði.
Ráðgert er að tónleikarnir standi
yfir í um hálfa klukkustund. Húsið
verður opnað kl. 11.30 og hefjast
tónleikarnir eins og áður sagði kl.
12. Aðgangur er ókeypis og tónleik-
arnir öllum opnir á meðan húsrúm
leyfir en hádegistónleikarnir njóta
ætíð mikilla vinsælda.
Gleðisprengja í
Hafnarborg í dag
Söngkonan Diddú flytur ásamt Antoníu Hevesi uppá-
haldsaríur sínar á hádegistónleikum í Hafnarborg í dag
Morgunblaðið/Eggert
Hressar „Þetta verður gleðisprengja,“ segir Diddú um hádegistónleika í
Hafnarborg í dag þar sem hún syngur aríur við píanóleik Antoníu Hevesi.
Spennan er alltumlykjandi ogjafnvel í annars friðsömuhverfi, ef grannt er skoðað.Í glæpasögunni Fórnar-
lamb 2117 dregur Jussi Adler-Olsen
upp svarta mynd af ógnum sem fólk
stendur frammi fyrir og eftir lest-
urinn stendur manni ekki á sama,
því skilin á milli glæpa í raun-
heimum og tölvuheimum virðast að
engu orðin og hættan á hverju horni.
Fórnarlamb 2117 er frábær
spennusaga og ótrúlega raunveru-
leg. Lýsing á blaðamanninum Joan
Aiguader og fjölskyldu hans kallar
fram mynd af fréttamanninum How-
ard Beale í Óskarsverðlaunamynd-
inni Network, sem Pálmi Gestsson
gerir ódauðlegan í leikritinu Útsend-
ingu í Þjóðleikhúsinu um þessar
mundir. Joan á ekki túkall með gati,
hvað þá meira, en eins manns dauði
er annars brauð og í hans tilfelli er
líflínan flóttafólk, sem ekki kemst af
á Miðjarðarhafi. Ljósmynd hans af
látinni, roskinni konu í flæðarmálinu
á Ayia Napa á
Kýpur breytir öllu,
ekki bara hjá hon-
um heldur á sögu-
sviðinu, sem nær
norður til Kaup-
mannahafnar og
teygir anga sína í
allar áttir.
Ein lítil mynd
getur gert kraftaverk, en í þessu til-
felli veldur hún usla, skapar hræðslu
og óöryggi, ringulreið. Ólgandi
grautur sem Jussi Adler-Olsen kann
að gera sér mat úr. Deild Q innan
dönsku lögreglunnar verður ekki
lögð niður á meðan.
Fórnarlamb 2117 er áttunda bók-
in um Carl Mørck og félaga í deild Q.
Að þessu sinni er Assad meira í
sviðsljósinu en áður og kemur það
ekki til af góðu. Hann er tilbúinn að
vaða eld og brennistein máli sínu til
framdráttar en á þeirri vegferð er
jafnframt varpað ljósi á hvað hann
hefur þurft að ganga í gegnum á
liðnum árum. Átakanleg saga, sem
gæti staðið ein og sér.
Hryðjuverkamennirnir eru aldrei
langt undan og enginn er verri en
hrottinn Ghaalib, sem þrífst á
grimmd, mannvonsku og hefndar-
þorsta. Þegar svona menn komast í
skotfæri er fjandinn laus. Þá nægir
ekki að læsa. Óhugguleg saga sem
nístir inn að beini, sérlega vel gerð
spennusaga, en því miður raunsæ
lýsing á nánasta umhverfi.
Hryðjuverkin
nálgast óðfluga
Glæpasaga
Fórnarlamb 2117 bbbbm
Eftir Jussi Adler-Olsen.
Magnea J. Matthíadóttir þýddi.
Vaka-Helgafell 2020. Kilja, 504 bls.
STEINÞÓR
GUÐBJARTSSON
BÆKUR
Sagnasmiður
„Sérlega vel gerð
spennusaga,“ segir
um nýja bók Jussi
Adler-Olsen.
There Is No Evil, kvikmynd íranska
leikstjórans Mohammad Rasoulof,
vann Gullbjörninn á Berlinale,
kvikmyndahátíðinni í Berlín. Kvik-
myndin fjallar um aftökur í heima-
landi leikstjórans sem var ekki leyft
að ferðast til Berlínar að taka við
verðlaununum þar sem hann hefur
verið dæmdur til fangelsisvistar í
Íran og jafnframt verið bannað að
gera kvikmyndir. Er honum gefið
að sök að „dreifa áróðri“ í kvik-
myndum sínum. Verðlaunamyndina
kvikmyndaði hann í leyni meðan
áfrýjunarferli vegna ákærunnar á
hendur honum stóð yfir.
Við verðlaunaafhendinguna söfn-
uðust þátttakendur í kvikmyndinni
saman á sviðinu og í tilfinninga-
þrunginni þakkarræðu sagði fram-
leiðandi fjarveru leikstjórans vera
óréttláta og hrósaði leikurunum
sem hafi lagt líf sitt í hættu með því
að taka þátt í kvikmyndagerðinni.
Silfurbjörninn hreppti Never
Rarely Sometimes Always, kvik-
mynd bandaríska leikstjórans Eliza
Hittman. Hin þýska Paula Beer var
valin besta leikkonan fyrir hlutverk
sitt í Undine; Ítalinn Elio Germano
var valinn besti karlleikarinn fyrir
frammistöðuna í Hidden Away; og
Hong Sang-soo frá Suður-Kóreu val
valinn besti leikstjóri fyrir kvik-
myndina The Woman Who Ran.
Ein þeirra kvikmynda sem vöktu
hvað mesta athygli á Berlinale var
Last and First Men sem Jóhann
Jóhannsson tónskáld vann að en
lést frá. Það er 70 mínútna löng
kvikmynd í svarthvítu sem leik-
konan Tilda Swinton les inn á og er
blandað saman vísindaskáldsögu
frá 1930 eftir Olaf Stapledon,
dramatískri tónlist Jóhanns, sem
Deutsche Grammophon gaf út í lið-
inni viku, og dramatískum myndum
af brútalískum steinsteypuminnis-
vörðum í fyrrverandi Júgóslavíu.
Mynd fangelsaðs leik-
stjóra vann Gullbjörn
Dæmdur í Íran fyrir að dreifa áróðri
AFP
Verðlaunin Framleiðendur verð-
launamyndarinnar og leikkonan
Baran Rasoulof með Gullbjörninn.