Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.03.2020, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.03.2020, Blaðsíða 6
VETTVANGUR 6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22.3. 2020 Mig langar til að komast í gegnumþetta án þess að tala um fordæma-lausa tíma. Sem er reyndar erfitt því heimurinn hefur aldrei gengið í gegnum annað eins og það sem hefur fylgt kórónu- veirunni. Vissulega er þetta ekki fyrsta drep- eða farsóttin sem mannkynið hefur þurft að takast á við. Mislingar, bólusótt, malaría, spænska veikin og HIV, svo dæmi séu tekin, hafa lagt fleiri í valinn en allar heimsins styrjaldir. En þetta er öðruvísi vegna þess að við er- um tengdari en áður. Við erum öll á sama netinu og á því höfum við fylgst með þessum ógnvaldi dreifa sér. Sjúkdómurinn er eitt, en það sem fylgir er óhugnanlegt. Draugaborgir þar sem fólk lok- ar sig inni, vopnaðir lögreglumenn sem fram- fylgja útgöngubanni í lýðræðisríkjum, ferða- bann milli landa, gjaldþrot og atvinnuleysi. Það er það sem hefur fylgt þessari veiru á ferð hennar um heiminn. Það er erfitt að sjá eitthvað jákvætt í þessu ástandi. En ekki ómögulegt. Tveggja metra fjarlægðin, sem á að vera á milli manna, hefur á einhvern furðulegan hátt náð að þjappa fólki saman. Það deilir meira af sjálfu sér, er einlægara og gerir sitt besta til að halda utan um náungann á raf- rænan hátt og passar upp á að tapa ekki gleðinni. Ólíklegasta fólk hefur boðið fram þjónustu sína til að sendast fyrir fólk í sóttkví, koma mat til þeirra sem á þurfa að halda, stofnað Facebook-hópa og gætt þess að við gleymum ekki mennskunni í þessum hamförum. Við höfum staðið meira saman síðustu vikur en við höfum gert í langan tíma. Við höfum líka staðið saman á bak við þau sem eru að reyna að hafa hemil á þessum vanda og svara spurningum okkar á daglegum fundum. Vissulega ekki allir. Við getum alltaf treyst á fólk sem virðist alltaf vita betur en allir vís- indamenn heimsins. Fólk sem á alltaf svörin sem enginn annar á. Einhvern veginn vill þannig til að engu máli skiptir um hvað er rætt, þetta fólk hefur alltaf rétt fyrir sér. Mér finnst það reyndar vera aðeins of mikil tilviljun til að geta verið tilviljun. Sumir ganga býsna langt í kenningum, eins og mað- urinn sem taldi sig geta upprætt þessa plágu með því að slökkva á 5g sendum heimsins. Sumir hafa viljað takmarka rétt fólks til gagnrýni því það viti ekki um hvað það sé að tala og eigi af þeim sökum ekki erindi í um- ræðuna. Ég er ósammála. Lýðræði kallar á skoðanaskipti, gagnrýni, aðhald og frelsi til að orða hugsanir sínar. Það má aldrei stöðva. Það er samt alveg umhugsunarefni fyrir fjöl- miðla að velta því fyrir sér hvort það sé eitt- hvert vit í gagnrýninni, eða hvort viðmæland- inn sé bara einhver rugludallur með álhatt. Flestir geta beitt fyrir sig gagnrýninni hugs- un, en þessar fá- dæma aðstæður geta líka leitt til fádæma viðbragða og þegar óttinn grípur um sig vill skynsemin víkja. En það er engu að síður okkar að ákveða hverjum við ætlum að trúa og treysta og fyrir mitt leyti ætla ég að halda áfram að treysta vísindamönnum og fólkinu sem hefur fengið það hlutverk að standa í fremstu víg- línu í þessari baráttu. Það er erfitt að segja til um hvernig næstu vikur og mánuðir verða. Hvort sem manni líkar betur eða verr verður þessi tími samt örugglega lærdómsríkur. Hann mun kenna okkur sitthvað um mann sjálfan og að öllum líkindum ýmislegt um samfélagið í kringum okkur. Viðbrögðin undanfarið gefa mér tilefni til ákveðinnar bjartsýni hvað það varðar. Samstaða fólks, hæfileikinn til að sjá björtu hliðarnar og óvænt uppátæki á borð við úti- tónleika við elliheimili eru vísbending um að við höfum ákveðið að komast í gegnum þetta saman. Þrátt fyrir fyrirmæli um ákveðna fjarlægð. ’Við höfum staðið meirasaman síðustu vikur en viðhöfum gert í langan tíma. Viðhöfum líka staðið saman á bak við þau sem eru að reyna að hafa hemil á þessum vanda og svara spurningum okkar á daglegum fundum. Á meðan ég man Logi Bergmann logi@mbl.is Nándin í fjarlægðinni Það er sagt að vika sé lang-ur tími í pólitík. Við upp-lifum það nú öll að vika er enn lengri tími í skæðum far- aldri. Maður lætur segja sér það tvisvar að aðeins séu þrjár vikur frá því að fyrsta kórónuveiru- smitið greindist hér á landi. Á ensku er þessu víða fleygt þessa dagana: „What a year this week has been.“ Eða: „Þessi vika var nú meira árið.“ Og staðan breyt- ist hratt dag frá degi. Hugur okkar er hjá þeim sem hafa veikst og aðstandendum þeirra; þeim sem hafa þurft að sæta ein- angrun eða sóttkví; þeim sem hafa orðið fyrir tekju- missi; þeim sem upplifa ótta; þeim sem búa við að- skilnað frá sín- um nánustu; og þeim þjóðhetjum öllum sem leiða baráttuna gegn faraldrinum á vettvangi heilbrigðisþjónustu og almanna- varna. Óvissan framundan Því miður er ljóst að komandi vikur og mánuðir fela í sér enn meiri áskorun. Því er nú spáð að hér á Íslandi geti faraldurinn mögulega náð hámarki um miðj- an apríl en staðan breytist hratt og sífellt er verið að endurmeta spárnar. Mögulega tekur þetta lengri tíma. Nýleg grein í tímaritinu MIT Technology Review lýsir nálgun sem teiknuð hefur verið upp af Imperial College London. Hún gengur út á að beita víðtækum lokunum og samskiptatakmörk- unum sem yrðu settar á og tekn- ar af á víxl, nokkrar vikur í senn, eftir því hvernig innlagnir á gjörgæslu þróast. Hermilíkanið sem þarna var beitt benti til að með þessum hætti tæki meira en ár að ráða niðurlögum vandans í Bretlandi. Nú kann vel að vera að þetta spámódel sé ekki fullkomið og mögulega á það ekki heldur við á Íslandi. En dæmið sýnir að töluverð óvissa ríkir um fram- vinduna næstu vikur og mánuði. Það er mikilvægt að við gerum okkur grein fyrir því. Markviss skref Viðbrögð þjóða heims hafa verið ólík. Sums staðar var gert lítið úr vandanum þar til allt í einu var kúvent skyndilega. Ég tel að hér á landi hafi verið haldið vel á málum. Gagnvart ógn sem þessari er skiljanlegt að óþreyja geti gripið um sig í samfélaginu og kröfur vaknað um harkalegri aðgerðir en sérfræðingar telja skynsamlegar. Við höfum farið þá leið að treysta þeim sem mesta þekkingu hafa. Á þeim grundvelli voru stigin markviss skref sem hafa skilað árangri. Við skulum þó öll gera okkur grein fyrir að ekki verður glímt við áskorun af þessari stærð- argráðu án þess að einhverjar ákvarðanir orki tvímælis. Yfirveguð skilaboð Orð er á Íslandi til um allt sem er hugsað á jörðu, kvað Einar Benediktsson. Því miður er líka til rökstuðningur á internetinu um næstum allt sem er hugsað á jörðu! Það virðist vera hægt að velja sér nánast hvaða kenningu sem er og finna einhvern sem fært hefur rök fyrir henni. Þetta felur auðvitað í sér töluverða áskorun fyrir vitræna umræðu, til viðbótar við þá áskorun sem felst í því að jafnvel fremstu sér- fræðingar eru ekki alltaf á einu máli um hvern- ig tækla beri flókin viðfangs- efni. Greitt að- gengi að öllum heimsins upp- lýsingum og sjónarmiðum skapar frjóan jarðveg fyrir lífleg skoðanaskipti og jafnvel deilur. Það liggur fyrir að „við erum öll almannavarnir“. En ekki nóg með það: Við erum líka öll sér- fræðingar! Það er því mikil gæfa að þau sem hafa staðið í framlínu upplýsingagjafar til þjóðarinnar á þessum tímum hafa gert það með einstaklega faglegum, yf- irveguðum og trúverðugum hætti. Þau hafa slegið þann tón sem svo erfitt getur verið að hitta á, þar sem alvarleika máls- ins er komið mjög skýrt til skila á þann hátt að það valdi sem minnstu óþarfa uppnámi. Komið til móts við einstaklinga og fyrirtæki Þó að líf og heilsa séu í algjörum forgangi þurfum við á sama tíma að huga að hinum gríðarlegu efnahagslegu afleiðingum þess að samfélagið allt, ekki bara hér á landi heldur um allan heim, hefur stigið fast og snögglega á bremsuna og nánast stöðvast. Ljóst er að stjórnvöld þurfa hér að grípa til afgerandi ráð- stafana til að létta undir með einstaklingum og fyrirtækjum. Til viðbótar við mikla röskun í atvinnulífinu almennt erum við sem þjóð auðvitað sérstaklega viðkvæm fyrir áföllum í ferða- þjónustu og samdrætti í milli- ríkjaverslun. En við stöndum sem betur fer vel að vígi efnahagslega og höf- um burði til að milda þetta áfall mjög verulega, líklega meira en flestar aðrar þjóðir. Ef sagan kennir okkur eitt- hvað er það að við kunnum að takast á við áföll og krefjandi tíma. Samstaðan í samfélaginu undanfarna daga er áþreifanleg og hún er okkur öllum hvatning til að gefa allt í verkefnið. Krefjandi tímar ’ Ljóst er að stjórn-völd þurfa hér aðgrípa til afgerandi ráð-stafana til að létta undir með einstakling- um og fyrirtækjum. Úr ólíkum áttum Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir thordiskolbrun@anr.is BÆJARL I ND 14 - 16 20 1 KÓPAVOGUR S ÍM I 553 7 100 L I NAN . I S O P I Ð M Á N T I L F Ö S T U D A G A 1 1 - 1 8 I L A U G A R D A G A 1 1 - 1 6

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.