Morgunblaðið - 02.04.2020, Blaðsíða 52
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 2020
Þóra Kolbrá Sigurðardóttir
thora@mbl.is
Guðrún gerði deigið í höndunum og var
ekkert að flýta sér við það. „Ég nostraði
við þegar ég flatti það út og raðaði epl-
unum á, smáklisja en mér finnst gott ef
maður nær að baka eða elda á sínum hraða
og ekkert stress eða pressa í kringum það.
En ég er alsæl með þessa böku og mæli
svo sannarlega með henni, frábær sem eft-
irréttur en þá er hægt að gera hana fyrir-
fram jafnvel daginn áður, geyma inni í
kæli og setja hana svo inn í ofn meðan
borðað er og borin fram heit með ís. Ekk-
ert síðri á sunnudagseftirmiðdegi með
góðum kaffibolla. Njótið!“
Bökudeig
160 g hveiti
25 g sykur
1 tsk. salt
170 g smjör, kalt
50 ml vatn, ískalt
1 eggjahvíta (til penslunar)
1-2 msk. sykur (perlusykur)
Hægt er að notast við matvinnsluvél eða
gera deigið í höndunum. Setjið hveiti, syk-
ur og salt á borðið, gott er að hafa diska-
mottu undir til að vernda borðið. Skerið
smjörið í bita og blandið saman við hveitið
í þremur skömmtum. Hægt er að nota
hnífa til að saxa smjörið saman við hveitið
eða sköfu, smá þolinmæðis vinna en svo
þess virði. Mixið saman þangað til smjörið
er orðið í mjög litlum bitum. Bætið þá
vatninu saman við smávegis í einu þangað
til deigið er formað, ekki of þurrt en ekki
of blautt. Mótið kúlu og þrýstið henni að-
eins niður, setjið í plast og inn í ísskáp.
Leyfið deiginu að hvíla í minnst 2 klst.
Hægt er að geyma deigið inni ísskáp eða í
frysti ef það er gert fyrirfram.
Ef deigið er gert í matvinnsluvél er
hveiti, sykur og salt sett saman í og smjör-
ið skorið niður og sett saman við í þremur
skömmtum þangað til að það er orðið
kornótt, alls ekki alveg samblandað því við
viljum halda í litlu smjörblettina í deiginu,
það er það sem gerir deigið stökkt eða
flaky. Takið deigið úr matvinnsluvélinni
og setjið á borð og hellið vatninu saman
við og mótið þangað til það er ekki of þurrt
en ekki of blautt. Framhald sjá að ofan.
Möndlufylling
70 g marsípan
2 msk. smjör, við stofuhita
1 msk. hveiti
2 msk. sykur
1 eggjarauða
1 tsk. vanilludropar
1 tsk. möndludropar
Setjið öll hráefnin saman í mat-
vinnsluvél og blandið vel saman.
Samsetning
Takið fjögur epli fram, skrælið og sker-
ið í þunnar sneiðar.
Takið deigið úr kæli, setjið dass af hveiti
á borðið og takið deigið úr plastinu og á
borðið. Byrjið að fletja deigið út með
kökukefli með því að fletja alltaf í áttina
frá ykkur og snúa deiginu um fjórðung
jafnt og þétt. Svo deigið sé laust frá borð-
inu og jafn þykkt á alla kanta. Bætið hveiti
undir ef þarf.
Þegar deigið er útflatt leggið það yfir
kökukeflið og færið yfir á bökunarpappír.
Dreifið möndlufyllingunni yfir deigið og
skiljið u.þ.b. 3 cm eftir frá kanti, til að
brjóta inn.
Leggið eplin ofan á eftir hentisemi og
brjótið deigið inn á við. Setjið bökuna inn í
kæli á meðan ofninn hitnar. Stillið ofn á
210°c. Þegar ofninn er orðinn heitur, takið
bökuna úr kælinum, penslið kantana með
eggjahvítu og sáldrið sykri yfir. Setjið inn
í ofn og stillið á 20 mínútur. Eftir 20 mín.
er hitinn lækkaður í 175°c og bakað í 25
mín í viðbót.
Berið fram volga með rjóma eða van-
illuís.
Galette með eplum og möndlufyllingu
Ljósmynd/Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir
Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir heldur úti matarblogginu
Döðlur & smjör og hér deilir hún með lesendum
gómsætu galette með eplum og möndlufyllingu.
Uppfull af ást Þessi
dásemdarbaka var gerð í
höndunum af mikilli ást.
Til er það brauð sem þykir svo
gott að veitingastaðir hafa sleg-
ist um það og hafa veitinga-
menn fullyrt að það eigi sér
enga hliðstæðu. Nú er það
brauð loksins fáanlegt í hefð-
bundnum verslunum og má bú-
ast við að það rokseljist á næst-
unni enda er um að ræða
frystivöru.
Brauðið, sem er flatbrauð
ættað frá Sýrlandi, er mikið not-
að í vefjur og kebab. Það er
einnig tilvalið sem pítsubotn auk
þess sem vinsælt er að pensla
það með olíu og baka stutta
stund þar til það verður stökkt
og gómsætt. Þannig er hægt að
búa til einfalt hvítlauksbrauð
eða jafnvel brauðteninga í salöt.
Liba-brauðin eru sænsk fram-
leiðsla en eigandi fyrirtækisins
er upprunalega frá Sýrlandi en
flúði til Svíþjóðar og hóf
framleiðslu á flatbauðunum
árið 1992. Brauðin þykja
einstaklega góð og hafa
notið gríðarlegra vinsælda
um gjörvalla Skandinavíu
og það er því mikið gleði-
efni fyrir íslenska neyt-
endur að þau séu loks fá-
anleg í smásölu hér á
landi. Brauðin eru án
allra aukaefna, vegan og
laktósalaus.
Girnilegt Hér
gefur að líta flat-
brauð með per-
um, klettasalati,
valhnetum,
smá hunangi
og óðals-
osti.
Liba-brauð loksins
fáanlegt á Íslandi