Morgunblaðið - 02.04.2020, Side 16
16 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 2020
Heill frumskógur af gæludýrum...
Í fiskana mig langar svo
að setja í búrið stóra
mamma segir þú færð tvo
en pabbi segir fjóra.
Kauptúni 3 | Garðabæ | Sími: 564 3364 | fisko.is
Opið laugardag 10-18 sunnudag 12-18
L i f and i v e r s l un
kíktu í heimsókn
Hundar Kettir Fiskar Fuglar Nagdýr
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Ég veit ekki til þess aðnokkur sé í sóttkví eðaeinangrun hér í hreppn-um eða á Ströndum.
Vetrarfærðin hefur ekki boðið upp á
að fólk fari mikið á milli staða og á
Vestfjörðum öllum hafa fáir greinst
með veiruna, en við vitum ekki hver
þróunin verður. Við fjölskyldan höf-
um fyglt fyrirmælum og förum lítið
sem ekkert, nema nauðsyn krefji.
Við búum á sveitabæ rétt utan við
Drangsnes og skreppum þangað í
búðina. Þar hefur verið gripið til að-
gerða, afgreiðslutími lengdur svo
fólk þurfi ekki allt að koma á sama
tíma og spritt og hanskar fyrir
viðskiptavini,“ segir Marta Guðrún
Jóhannesdóttir, skólastjóri og kenn-
ari við Grunnskóla Drangsness.
„Skólinn er fullstarfandi því við
erum svo fá að samkomubannið gild-
ir ekki um okkur. Aðeins 7 börn eru
við skólann og þrír starfsmenn, en
við höfum samt gætt varúðar, núna
sitja börnin ekki saman og yngri og
eldri deildin eru ekki lengur í sam-
kennslu. Sprittbrúsar eru úti um all-
an skóla og allir alltaf að þvo sér með
sápu,“ segir Marta og bætir við að
þetta sé svolítið flókið í framkvæmd í
bekknum sem hún kenni.
„Ég er með yngstu nemend-
urna sem eru í fyrsta og öðrum bekk
og það er í eðli ungra barna að vilja
snerta, koma nálægt, sjá betur og
knúsast. Þau eru samt orðin ótrú-
lega lunkin við þetta, en það er
streituvaldur bæði fyrir okkur kenn-
arana og börnin að þurfa alltaf að
vera að passa okkur. Óneitanlega
hlakka því allir mikið til að komast í
páskafrí og að þurfa ekki að hugsa
stöðugt um að halda fjarlægð og
geta slakað á heima.“
Hér geta draumar ræst
Nýlega var auglýst eftir skóla-
stjóra við Grunnskóla Drangsness
og þegar Marta er spurð að því
hvers vegna hún sé að hætta segist
hún vilja hleypa nýjum að. „Í svona
litlum skóla er alveg sérstaklega
mikilvægt að fá inn nýja strauma og
nýtt fólk annað slagið. Ég hef verið
skólastjóri hér undandarin fimm ár
og mér finnst ég vera búin að gera
það sem mig langaði mest til að gera.
Nú get ég vonandi fylgt því eftir sem
kennari við skólann, því ég er ekkert
á förum. Ég hlakka til að fá nýjan
skólastjóra á Drangsnes, við höfum
verið ofboðslega heppin með fólk í
skólanum, hingað hefur komið úr-
valsfólk til starfa með góðar hug-
myndir sem hafa komið sér vel í
skólastarfinu, allskonar góðar breyt-
ingar, þó við höldum auðvitað líka
fast í hefðirnar,“ segir Marta og
bætir við að það sem hafi komið
henni á óvart þegar hún tók við fyrir
fimm árum, var hvað allt gekk hratt
fyrir sig í skólanum.
„Fyrir vikið er auðvelt að láta
drauma sína rætast í skólastjóra-
starfinu. Að koma í svona lítinn skóla
þar sem allir eru tilbúnir til að gera
breytingar og hleypa nýjum hug-
myndum að, er alveg einstakt. Um-
hverfi skólans er líka frábært, hér er
gróðurhús og sólskáli og mikið rækt-
unarstarf meðal nemenda. Þetta er
því einstakt tækifæri, og þar fyrir
utan er líka magnað að fá að kynnast
svona fámennum skóla.“
Marta hvetur fólk með börn til
að sækja um skólastjórastöðuna, því
hún vill gjarnan fá fleiri nemendur í
skólann.
„Okkur vantar sannarlega fleiri
börn í skólann, við erum með pláss
fyrir fleiri krakka og auðvitað skiptir
það máli fyrir okkur að geta haft líf
og fjör í skólanum. Við getum alveg
bætt við okkur að minnsta kostu tíu
nemendum, helst fleirum. Það eru
góð meðmæli fyrir okkur að öll þau
börn sem koma og eru gestir hjá
okkur í lengri eða skemmri tíma vilja
vera hérna áfram. Þó að við getum
bætt við okkur nemendum þá erum
við samt ekkert að vorkenna okkur
að við séum fámennur skóli því okk-
ur finnst það líka mikils virði að geta
haldið í þessa sérstöku skólagerð.
Sjö nemendur eru algjört lágmark,
það væri æðislegt að fá fleiri börn.“
Namm Nemendur grunn- og leikskólans taka upp grænmeti úr
matjurtagarði skólans. Sigurbjörg H. Halldórsdóttir fremst.
Útikennsla Mjög góð aðstaða er fyrir útikennslu, hér læra
nemendur í unglingadeild skólaárið 2015-2016 úti í blíðunni.
Vorið Þá fara nemendur í heimsókn í sauðburð. Jón Anton
Farley heldur á lambi í heimsókn að Odda í Bjarnarfirði.
Getum bætt við okkur börnum
„Skólinn er fullstarfandi því við erum svo fá að samkomubannið gildir ekki um okkur,“ segir Marta Guðrún Jóhannesdóttir, skólastjóri og
kennari við Grunnskóla Drangsness. Nýlega var auglýst eftir skólastjóra og hún hlakkar til að hleypa nýjum að og segir smæðina vera kost.
Notalegt Marta í skólanum ásamt nemendunum Friðgeiri Loga Halldórssyni, Maríönnu Fišerová og Tomáši Fišera.
Hefð Kennarar og nemendur skólans höggva árlega jólatré í skógrækt
kvenfélagsins Snótar. Finnur Ólafsson oddviti aðstoðar við að fella tréð.