Morgunblaðið - 02.04.2020, Blaðsíða 38
38 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 2020
VIÐ
BJÖRGUM
GÖGNUM
af öllum tegundum
snjalltækja
Bolholti 4, 105 • Reykjavík • S 534 1400 • www.smartfix.is
s n j a l l t æ k j a þ j ó n u s t a
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Antonio Guterres, framkvæmda-
stjóri Sameinuðu þjóðanna, sagði í
gær að kórónuveirufaraldurinn væri
mesta áskorun mannkyns frá tímum
síðari heimsstyrjaldar. Varaði hann
við því að ógn veirunnar við heilsu
manna og efnahag ríkja myndi þýða
heimskreppu, sem ekki hefði sést í
manna minnum. Það myndi aftur ýta
undir aukinn óstöðugleika og auka
líkurnar á að ófriður brytist út.
Helstu hlutabréfavísitölur heims-
ins féllu nokkuð í gær eftir að Donald
Trump Bandaríkjaforseti varaði
Bandaríkjamenn við því í fyrrinótt
að þeir þyrftu að vera reiðubúnir fyr-
ir erfiða daga framundan. „Þetta
verða mjög, mjög sársaukafullar
tvær vikur,“ sagði Trump, en nýj-
ustu spálíkön gera ráð fyrir að allt að
100.000-240.000 Bandaríkjamenn
muni láta lífið í faraldrinum.
Meira en 200.000 tilfelli hafa verið
staðfest í Bandaríkjunum og rúm-
lega 4.500 manns hafa dáið þar af
völdum faraldurins. Skipherra flug-
móðurskipsins Theodore Roosevelt,
sem er nú í Kyrrahafi, varaði við því í
fyrrinótt að veiran væri komin á
skrið þar, en 4.000 sjóliðar eru jafn-
an um borð. Krafðist hann þess að
gripið yrði í taumana. „Við eigum
ekki í stríði. Sjóliðar þurfa ekki að
deyja,“ sagði í bréfi hans til Penta-
gon. Ákveðið var í gær að hefja
brottflutning allra sem ekki þarf til
þess að sinna allra nauðsynlegustu
verkefnum um borð.
Wimbledon frestað
Faraldurinn heldur einnig áfram
að leika ríki Evrópu grátt. Af þeim
rúmlega 45.000 dauðsföllum sem
staðfest höfðu verið í gær voru meira
en 30.000 í ríkjum álfunnar.
Spánverjar og Bretar tilkynntu
annan daginn í röð um mestu fjölgun
dauðsfalla á einum sólarhring, og
hafa nú meira en 9.000 manns dáið á
Spáni og rúmlega 2.300 á Bretlandi.
Fjölgaði dauðsföllum á Bretlands-
eyjum í fyrsta sinn um meira en 500
manns, en alls voru 563 dauðsföll
skráð á undangengnum sólarhring.
Bresk stjórnvöld frestuðu í gær bæði
Wimbledon-tennismótinu og lista-
hátíðinni í Edinborg, og hétu því að
hefja umfangsmeiri skimanir í sam-
félaginu gegn veirunni.
Gera Bretar ráð fyrir að tilfellum
þar í landi muni fjölga hratt næstu
daga, en að svo muni hertar aðgerðir
stjórnvalda fara að skila sér.
Endurskoða notkun gríma
Kínversk stjórnvöld tilkynntu í
gær að þau hefðu skrásett meira en
1.300 tilfelli veirunnar þar sem engin
einkenni komu fram. Er óttast að
slíkir sjúklingar geti smitað 3 til 3,5
einstaklinga hver.
Bandarísk stjórnvöld munu í ljósi
þessa vera að íhuga að hvetja al-
menning þar til að ganga með grímu
á almannafæri, jafnvel þó að hún
væri bara heimagerð, en bandarísk
sóttvarnayfirvöld hafa hingað til ein-
ungis ráðlagt þeim sem eru veikir
eða þá sem annast veikt fólk að vera
með grímur.
Tékkland og Slóvenía hafa gert
það að skyldu að fólk hylji andlitið á
almannafæri, en á sama tíma hafa
stjórnvöld þar ítrekað að grímurnar
koma ekki í staðinn fyrir þörfina á að
halda fjarlægð og að þvo hendur sín-
ar oft og vel.
„Sársaukafullar vikur“ fram undan
Faraldurinn sagður mesta áskorun mannkyns frá seinna stríði Markaðir falla eftir viðvörun
Trumps Rúmlega 30.000 látnir í Evrópu Rúmlega 1.300 einkennalaus tilfelli staðfest í Kína
AFP
Faraldur Trump varaði við því að sársaukafullar vikur væru fram undan.
Jens Stolten-
berg, fram-
kvæmdastjóri
Atlantshafs-
bandalagsins,
varaði við því í
gær að ríki
bandalagsins
yrðu að huga vel
að vörnum sín-
um meðan á
faraldrinum
stæði. „Aðalmarkmið okkar er að
þessi heilsufarsógn verði ekki að
öryggisvá,“ sagði Stoltenberg, en
utanríkisráðherrar bandalags-
ríkjanna munu halda fjarfund í
dag til að ræða viðbrögð Atlants-
hafsbandalagsins við kórónuveiru-
faraldrinum.
Bandalagið hefur þegar hætt
við eða frestað mörgum af fyrir-
huguðum heræfingum sínum
vegna faraldursins. Stoltenberg
sagði að viðbúnaðarstig Atlants-
hafsbandalagsins væri þrátt fyrir
það óbreytt og vörnum þess væri
áfram sinnt þrátt fyrir heims-
faraldurinn.
Kórónuveir-
an verði ekki
öryggisvá
Utanríkisráðherr-
ar NATO funda í dag
Jens
Stoltenberg
Danska meistarakeppnin í poomsae, þar sem
keppendur þurfa að sýna rétt form á æfingum í
taekwondo, fór fram í gær. Keppnin var að
þessu sinni með óvenjulegu sniði, en segja má að
keppendur hafi allir unnið heima hjá sér. Hér má
sjá Rasmus Holm taka upp sína æfingu á snjall-
símann sinn, en Holm var bara í stofunni sinni í
Árósum á meðan. Engum sögum fór af úrslitum
meistarakeppninnar, en Holm virtist sáttur.
AFP
Taekwondo-keppendur vinna heiman frá sér
Vaxandi óánægju gætir innan ríkis-
stjórnar Hollands vegna afstöðu
Marks Rutte, forsætisráðherra
landsins, til útgáfu svonefndra „kór-
ónuskuldabréfa“, sem ætlað sé að
koma til móts við fyrirsjáanlega
kreppu á evrusvæðinu.
Ríkisstjórnir Spánar og Ítalíu,
sem verst hafa orðið úti í faraldr-
inum til þessa, hafa kallað eftir lán-
veitingu og yrði skuldabyrðin á þeim
borin sameiginlega af öllum ríkjum
evrusvæðisins. Hollendingar og
Þjóðverjar hafa hins vegar lagst
gegn þeim hugmyndum, þar sem
ríkin eru ófús til að gangast í ábyrgð-
ir fyrir ríki Suður-Evrópu, sem voru
með laka skuldastöðu áður en kór-
ónuveirufaraldurinn skall á.
Gert-Jan Segers, leiðtogi Kristi-
lega bandalagsins, og Rob Jetten,
leiðtogi hins frjálslynda D66-flokks,
hafa báðir sagt að gera eigi meira til
að koma Ítölum og öðrum Suður-
Evrópuþjóðum ESB til aðstoðar til
að mæta áfallinu. Hefur Segers kall-
að eftir því að ríkisstjórnin standi
ásamt hinum aðildarríkjunum að
„Marshall-aðstoð“ fyrir ríki Suður-
Evrópu og Jetten hefur sagt dipló-
matískt stórslys í aðsigi ef ekki verði
vikið frá „hugarfari bókarans“.
Reiði í garð Hollendinga
Ummælin koma í kjölfar þess að
leiðtogar ríkja Suður-Evrópu hafa
gagnrýnt Hollendinga harkalega
fyrir að leggjast gegn „kórónubréf-
unum.“ Þá gagnrýndi Antonio Costa,
forsætisráðherra Portúgals, Wopke
Hoekstra, fjármálaráðherra Hol-
lands, harkalega, en hann hafði
spurt hvers vegna sum ríki hefðu
ekki lagt meira fyrir til þess að mæta
áföllum. Hoekstra hefur beðist af-
sökunar á ummælunum. sgs@mbl.is
Greinir á um lántöku
AFP
ESB Afstaða Ruttes er umdeild.
Tveir af fjórum flokkum ríkisstjórnar Hollands ósammála
stefnu Ruttes Vilja „Marshall-aðstoð“ vegna veirunnar