Morgunblaðið - 02.04.2020, Blaðsíða 69
Semhjúkrunarfræðingurer ég mjög meðvituð ummikilvægi heilbrigðrar
þarmaflóru og góðrar meltingar
og því fagna ég allri umræðu um
hægðir og klósettferðir fólks. Í
gegnum mitt starf og einkalíf
hef ég áttað mig á hversu stór
partur af heilsu fólks er tengdur
meltingarveginum.
Mér finnst algerlega nauðsynlegt
að hver og einn hugi að sinni
„hægðaheilsu“ og sem betur
fer er þetta málefni mér engan
veginn óþægilegt eða viðkvæmt.
Fjölskyldunni minni finnst
þó algjör óþarfi að ræða þessa
hluti við eldhúsborðið, yfir
kvöldmatnum eða fyrir framan
gesti og gangandi en mér
finnst það hið besta mál og vil
leggja mitt af mörkum til að
mínar dætur skilji mikilvægi
heilbrigðrar meltingar. Það að
fara á klósettið og pæla í því sem
lendir þar er bara nauðsynlegt
heilsutékk.
Þeir sem þekkja mig vel vita að
ég á það til að vera með hægðir
á heilanum. Ekki í orðsins
fyllstu merkingu en svona allt
að því. Ástæðan er einfaldlega
sú að ég sjálf hef glímt við
meltingarvandamál um árabil
sem kallast hægðatregða og hefur
oft á tíðum gert mér lífið leitt.
Ótalmargir einstaklingar á öllum
aldri glíma við þennan hvimleiða
kvilla og vita nákvæmlega hvað
ég er að tala um. Ein líklegasta
ástæðan og upphaf þess að ég
fæ þessa meltingarkvilla má
rekja til sýklalyfjagjafar vegna
sýkingar í móðurlífi í kjölfarið á
barnsfæðingum. Mikið gríðarlega
var ég þakklát fyrir sýklalyfin
og endurheimt heilsunnar
en eftir sátu þarmarnir með
bakteríuflóruna í algeru ójafnvægi
og reglubundin hægðalosun
heyrði sögunni til. Það er frekar
þreytandi þegar ekkert er að
frétta og þarmarnir bara í fríi
og börnin þín halda að þú sért
komin sex mánuði á leið og eigi
von á systkini. Það er líka mjög
þreytandi að vera alveg stíflaður
og finna þreytu og slen byggjast
upp í takt við þensluna á kviðnum.
Nú fer þetta að verða meira og
meira spennandi, frásagnargleði
mín fer á flug og ég ætla því að
fá að deila með ykkur ferðasögu
síðasta árs.
Við fjölskyldan dvöldum á
Tenerife í tæpar tvær vikur í fyrra.
Ég gerði þau skelfilegu mistök
að taka ekki með mér neina
góðgerla því ég hélt að hægt væri
að kaupa slíkt í næsta heilsuhúsi
á eyjunni í Atlantshafi. Ónei, ekki
aldeilis. Eyjaskeggjar eru eflaust
flestir með fína meltingarheilsu
því hvergi fann ég heilsuhús
eða apótek sem seldi slíkar
gersemar sem meltingarensím og
fjölgerlar eru. Að kaupa kröftug
hægðaaukandi lyf var alveg
síðasta sort því ég nennti ekki að
ganga í hægðum mínum í fína
sundbolnum á ströndinni. Loks
á degi sjö í hægðastoppi fann ég
einhverja rándýra góðgerlablöndu
en þrátt fyrir að hafa klárað alla
pakkninguna næstu daga hafði
það engin áhrif. Allir gerlarnir
greinilega löngu dauðir úr hita
og ég hélt áfram að burðast með
nokkur kíló af úrgangsefnum sem
sátu sem fastast. Ég flaug heim til
Íslands töluvert sverari um mig
miðja og tilkynnti fjölskyldunni
minni að einungis eitt grjóthart
lambasparð hafi skilað sér í skálina
allt fríið. Þeim fannst ég ekki
fyndin!
Ég hef í mörg ár þurft að taka inn
góðgerla og ég hef ekki tölu á því
hve miklum fjármunum ég hef
eytt í allskonar vörur sem stuðla
að öflugri og betri meltingu og
heilbrigðari þarmaflóru. Sumt
virkar og annað alls ekki. Það er því
með mikilli ánægju sem ég segi frá
reynslu minni af Bio-Kult sem ég
hef notað með hléum undanfarin
ár en sem ég hef nú gefið meiri
gaum og tekið að staðaldri. Ég
ákvað í ljósi minnar reynslu og
tregðu að taka tvöfaldan skammt
í tvær vikur af bæði Bio-Kult og
Bio-Kult Candéa. Með því móti
náði ég að koma öllu vel af stað og
ná jafnvægi. Í dag tek ég ráðlagðan
skammt bæði kvölds og morgna og
finn að það hefur mjög góð áhrif
á meltinguna og garnahljóðin eru
fyrir mér kærkominn og ómfagur
hljómur. Ennfremur þoli ég betur
flestalla fæðu núna.
Bio-Kult fyrir alla
Innihald Bio-Kult Candéa-
hylkjanna er öflug blanda af
vinveittum gerlum ásamt hvítlauk
og Grape Seed Extract. Bio-Kult
Original er einnig öflug blanda af
vinveittum gerlum sem geta styrkt
þarmaflóruna. Bio-Kult Candéa og
Bio-Kult Original henta vel fyrir
alla, einnig fyrir barnshafandi
konur, mjólkandi mæður og börn.
Fólk með mjólkur- og sojaóþol má
nota vörurnar. Mælt er með Bio-
Kult í bókinni Meltingarvegurinn
og geðheilsa eftir Dr. Natasha
Campbell-McBride.
Sölustaðir: Flest apótek, heilsubúðir
og heilsuhillur verslana.
2-3ja
mánaðaskammtur íhverju glasi„Ég upplifi enga verki í dag og er aftur farinn
að njóta þess að styðja við heilsu mína með
hreyfingu, þökk sé Nutrilenk.“
Kristófer Valdimarsson, 81 árs.
Mest selda liðbætiefni á Íslandi
LIÐVERKIR – STIRÐLEIKI – EÐA BRAK Í LIÐUM?
Fæst í apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum verslana.
Nú er lífið
hægðaleikur
“Það að fara á klósettið og pæla í því sem
lendir þar er bara nauðsynlegt heilsutékk“
Laufey Steindórsdóttir hjúkrunarfræðingur, jóga- og
hugleiðslukennari og stofnandi Kyrrðarjóga hefur
glímt við meltingarvandamál um árabil.
Hér deilir húnmeð okkur á sinn skemmtilega hátt sinni
reynslu og hvernig hún hefur náð tök á sínummálum.
Bio-Kult Candéa og Bio-Kult Original henta vel fyrir alla, einnig
fyrir barnshafandi konur, mjólkandi mæður og börn