Morgunblaðið - 02.04.2020, Blaðsíða 69

Morgunblaðið - 02.04.2020, Blaðsíða 69
Semhjúkrunarfræðingurer ég mjög meðvituð ummikilvægi heilbrigðrar þarmaflóru og góðrar meltingar og því fagna ég allri umræðu um hægðir og klósettferðir fólks. Í gegnum mitt starf og einkalíf hef ég áttað mig á hversu stór partur af heilsu fólks er tengdur meltingarveginum. Mér finnst algerlega nauðsynlegt að hver og einn hugi að sinni „hægðaheilsu“ og sem betur fer er þetta málefni mér engan veginn óþægilegt eða viðkvæmt. Fjölskyldunni minni finnst þó algjör óþarfi að ræða þessa hluti við eldhúsborðið, yfir kvöldmatnum eða fyrir framan gesti og gangandi en mér finnst það hið besta mál og vil leggja mitt af mörkum til að mínar dætur skilji mikilvægi heilbrigðrar meltingar. Það að fara á klósettið og pæla í því sem lendir þar er bara nauðsynlegt heilsutékk. Þeir sem þekkja mig vel vita að ég á það til að vera með hægðir á heilanum. Ekki í orðsins fyllstu merkingu en svona allt að því. Ástæðan er einfaldlega sú að ég sjálf hef glímt við meltingarvandamál um árabil sem kallast hægðatregða og hefur oft á tíðum gert mér lífið leitt. Ótalmargir einstaklingar á öllum aldri glíma við þennan hvimleiða kvilla og vita nákvæmlega hvað ég er að tala um. Ein líklegasta ástæðan og upphaf þess að ég fæ þessa meltingarkvilla má rekja til sýklalyfjagjafar vegna sýkingar í móðurlífi í kjölfarið á barnsfæðingum. Mikið gríðarlega var ég þakklát fyrir sýklalyfin og endurheimt heilsunnar en eftir sátu þarmarnir með bakteríuflóruna í algeru ójafnvægi og reglubundin hægðalosun heyrði sögunni til. Það er frekar þreytandi þegar ekkert er að frétta og þarmarnir bara í fríi og börnin þín halda að þú sért komin sex mánuði á leið og eigi von á systkini. Það er líka mjög þreytandi að vera alveg stíflaður og finna þreytu og slen byggjast upp í takt við þensluna á kviðnum. Nú fer þetta að verða meira og meira spennandi, frásagnargleði mín fer á flug og ég ætla því að fá að deila með ykkur ferðasögu síðasta árs. Við fjölskyldan dvöldum á Tenerife í tæpar tvær vikur í fyrra. Ég gerði þau skelfilegu mistök að taka ekki með mér neina góðgerla því ég hélt að hægt væri að kaupa slíkt í næsta heilsuhúsi á eyjunni í Atlantshafi. Ónei, ekki aldeilis. Eyjaskeggjar eru eflaust flestir með fína meltingarheilsu því hvergi fann ég heilsuhús eða apótek sem seldi slíkar gersemar sem meltingarensím og fjölgerlar eru. Að kaupa kröftug hægðaaukandi lyf var alveg síðasta sort því ég nennti ekki að ganga í hægðum mínum í fína sundbolnum á ströndinni. Loks á degi sjö í hægðastoppi fann ég einhverja rándýra góðgerlablöndu en þrátt fyrir að hafa klárað alla pakkninguna næstu daga hafði það engin áhrif. Allir gerlarnir greinilega löngu dauðir úr hita og ég hélt áfram að burðast með nokkur kíló af úrgangsefnum sem sátu sem fastast. Ég flaug heim til Íslands töluvert sverari um mig miðja og tilkynnti fjölskyldunni minni að einungis eitt grjóthart lambasparð hafi skilað sér í skálina allt fríið. Þeim fannst ég ekki fyndin! Ég hef í mörg ár þurft að taka inn góðgerla og ég hef ekki tölu á því hve miklum fjármunum ég hef eytt í allskonar vörur sem stuðla að öflugri og betri meltingu og heilbrigðari þarmaflóru. Sumt virkar og annað alls ekki. Það er því með mikilli ánægju sem ég segi frá reynslu minni af Bio-Kult sem ég hef notað með hléum undanfarin ár en sem ég hef nú gefið meiri gaum og tekið að staðaldri. Ég ákvað í ljósi minnar reynslu og tregðu að taka tvöfaldan skammt í tvær vikur af bæði Bio-Kult og Bio-Kult Candéa. Með því móti náði ég að koma öllu vel af stað og ná jafnvægi. Í dag tek ég ráðlagðan skammt bæði kvölds og morgna og finn að það hefur mjög góð áhrif á meltinguna og garnahljóðin eru fyrir mér kærkominn og ómfagur hljómur. Ennfremur þoli ég betur flestalla fæðu núna. Bio-Kult fyrir alla Innihald Bio-Kult Candéa- hylkjanna er öflug blanda af vinveittum gerlum ásamt hvítlauk og Grape Seed Extract. Bio-Kult Original er einnig öflug blanda af vinveittum gerlum sem geta styrkt þarmaflóruna. Bio-Kult Candéa og Bio-Kult Original henta vel fyrir alla, einnig fyrir barnshafandi konur, mjólkandi mæður og börn. Fólk með mjólkur- og sojaóþol má nota vörurnar. Mælt er með Bio- Kult í bókinni Meltingarvegurinn og geðheilsa eftir Dr. Natasha Campbell-McBride. Sölustaðir: Flest apótek, heilsubúðir og heilsuhillur verslana. 2-3ja mánaðaskammtur íhverju glasi„Ég upplifi enga verki í dag og er aftur farinn að njóta þess að styðja við heilsu mína með hreyfingu, þökk sé Nutrilenk.“ Kristófer Valdimarsson, 81 árs. Mest selda liðbætiefni á Íslandi LIÐVERKIR – STIRÐLEIKI – EÐA BRAK Í LIÐUM? Fæst í apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum verslana. Nú er lífið hægðaleikur “Það að fara á klósettið og pæla í því sem lendir þar er bara nauðsynlegt heilsutékk“ Laufey Steindórsdóttir hjúkrunarfræðingur, jóga- og hugleiðslukennari og stofnandi Kyrrðarjóga hefur glímt við meltingarvandamál um árabil. Hér deilir húnmeð okkur á sinn skemmtilega hátt sinni reynslu og hvernig hún hefur náð tök á sínummálum. Bio-Kult Candéa og Bio-Kult Original henta vel fyrir alla, einnig fyrir barnshafandi konur, mjólkandi mæður og börn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.