Morgunblaðið - 02.04.2020, Side 34

Morgunblaðið - 02.04.2020, Side 34
34 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 2020 lagsmynd. Fyrirmyndin er orðin hluti af náttúrunni. Pluhar vinnur einnig með vináttu kvenna og hina kvenlægu vídd. Kyrrð og ofhlæði Nokkuð er um málverk á sýning- unni. Meðal listmálara er Emma- Louise Grady en í sýningarskrá segir að hún blandi saman mynstr- um frá Mið-Austurlöndum og lita- meðferð popplistar. Hins vegar virðist nærtækara að leita fyrir- mynda í frumbyggjalist. Grady beit- ir endurtekningu sem skapar í senn kyrrð og ofhlæði. Til dæmis minnir notkun díla, eða punkta, á frum- byggjalist Ástralíu. Þegar mál- verkið lengst til hægri hér á síðunni (Masters of Wine) er skoðað koma upp í hugann sum af fyrri mál- verkum Errós. Málverkin eru þó ekki fígúratíf. Tjald eins og skúlptúr Verk Harry Lusty, I neither sink nor swim, but drift within the rhythms, er af öðrum meiði. Svart tjald hangir úr loftinu í sjö vírum og verður með því eins og skúlptúr. Listakonan hefur áður unnið með hangandi verk. Listamaðurinn Jakub Stepanovic deilir með henni sýningarrými með verki sínu, Balance. Sagði í kynn- ingu að Stepanovic skapi innsetn- ingar sem endurspegli tengslin milli ólíkra menningarsamfélaga og trúarkerfa og bjóði um leið upp á ólík sjónarhorn. Í verkinu Balance tekur Step- anovic fyrir hugmyndina um jafn- vægi í lífinu. Það gerir hann bók- staflega með skúlptúrum sem tákna eiga framleiðni, afþreyingu, heil- brigði, sambönd og andlega iðkun. Verk þeirra Lustys og Stepanovic fara vel saman í rýminu. Það sem að baki býr Guto Morgan er meðal listmálara á sýningunni. Segir í sýningarskrá að hann rannsaki form í innra rými húsa og dragi fram smáatriði í arkitektúr og hönnun sem ella séu hulin. Við fyrstu sýn kemur myndflataskipan Piet Mondrian upp í hugann en hér er eitthvað annað á ferð. Næst liggur leiðin að innsetningu kínverska listamannsins Shilei Fan. Fan er sagður túlka togstreituna sem fylgir því að horfa upp á menn- ingararf Kína gefa eftir undan kröftum alþjóðavæðingarinnar. Í verkunum birtist nostalgía og ádeila á menningarleg yfirráð. Samkvæmt því mætti túlka fjarstýringarnar sem hliðstæðu kubbanna í borð- spilinu mahjong, sem skipar ríkan sess í kínverskri nútímasögu. Hið gamla er að víkja fyrir hinu nýja. Komist að kjarnanum Næst liggur leiðin að verkum list- málarans Sam Renson. Hún túlkar í verkum sínum nátt- úru Skotlands. Hefur lýst eigin verkum þannig að hún nálgist nátt- úruna sem abstraktmálari. Reyni að fanga liti, áferð og andrúmsloft til að komast að kjarnanum. Af því leiði ófyrirsjáanleiki og flæði. Síðast má nefna listakonununa Katherine Fay Allan sem fæst í inn- setningu sinni við dauðann og hvernig maðurinn hefur glatað tengslum við náttúruna. Verkið mun vera undir áhrifum af krabba- meinsmeðferð móður Allan. Inn- setningin samanstóð af skúlptúr, gjörningi og hljóðverki. Allan brá sér í gervi heilbrigðis- starfsmanns; sinnti sjúklingnum með andlitsgrímu og plasthanska. Kórónuveirufaraldurinn setur verk- ið í nýtt samhengi. Dauðinn er nú nálægari en áður. Morgunblaðið/Baldur Earth with Ella Listakonan Ruby Pluhar vann myndirnar með vinkonu sinni og samstarfskonu, Ellu. Pluhar vinnur með vináttu og tengsl kvenna. Ella verður hluti af náttúrunni. Orka Emma-Louise Grady sækir í myndheim fornrar myndlistar. Ofhlæðið minnir á æskuverk Errós. Kallast á Verk Harrys Lusty, I neither sink nor swim, but drift within the rhythms, fjær, og verk Jakubs Stepanovic, Balance, deila sýningarrými. Frá 2019 Verk Fan úr fjarlægð. Án titils Myndröð Sam Renson. Hún sækir innblástur í skoskt landslag. Shilei Fan „Remote and Control“. The rest of us Verk Fay Allan. Þríleikur Guto Morgan tekst að skapa sérstakan myndheim í verkunum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.