Morgunblaðið - 02.04.2020, Side 8

Morgunblaðið - 02.04.2020, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 2020       VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | WWW.VR.IS VR óskar eftir vönduðum sumarhúsum eða orlofs- íbúðum á leigu til framleigu fyrir félagsmenn sína. Leitað er eftir húsnæði á landsbyggðinni fyrir næsta sumar. Áhugasamir sendi upplýsingar á vr@vr.is fyrir 8. apríl 2020. Nauðsynlegt er að góðar ljósmyndir og lýsing á umhverfi fylgi með. Öllum tilboðum verður svarað. Eftirfarandi upplýsingar þurfa að fylgja tilboði: – Lýsing á eign og því sem henni fylgir – Ástand eignar og staðsetning – Stærð, fjöldi svefnplássa og byggingarár – Lýsing á möguleikum til útivistar og afþreyingar í næsta nágrenni Óli Björn Kárason, formaðurefnahags- og viðskipta- nefndar Alþingis, fjallar um ástandið í efna- hagslífinu í grein í Morgunblaðinu í gær og bendir á hætt sé við að með „viðamiklum og róttækum tíma- bundnum aðgerð- um sé búið til svikalogn“. Ekki sé nóg að leysa bráðavandann í efnahagslífinu, horfa þurfi fram í tímann.    Óli Björn bendir á að skyn-samlegt geti verið fyrir ríki og sveitarfélög að fella niður skattskuldir fyrirtækja. Þetta er réttmæt ábending. Veruleg hætta er á því að þegar það ástand sem nú ríkir er gengið yfir sitji fjöldi fyrirtækja uppi með skuldir sem eru rekstri þeirra í eðlilegu ár- ferði ofviða.    Hann nefnir einnig að ríki ogsveitarfélög komist „ekki undan því að gera róttækar breyt- ingar á skatta- og gjaldkerfi at- vinnulífsins til frambúðar. Í þeirri vinnu verða skilaboðin að vera skýr: Regluverk og skatta- umhverfi atvinnulífsins verður sniðið til að efla fyrirtækin, lítil og stór, auka samkeppnishæfni þeirra, arðsemi og getu til að standa undir góðum launum.“    Þetta er hárrétt ábending oglöngu tímabær. Á næstu vik- um og mánuðum skiptir miklu að stjórnvöld vinni að þessu samhliða því að huga að bráðavandanum. Rekstrarumhverfið þarf að laga sem fyrst og þegar áhrifa veir- unnar hættir að gæta er þýðing- armikið að fyrirtækin búi við um- hverfi sem hvetur til framtakssemi og uppbyggingar en heftir ekki þá sem vilja taka til hendinni. Óli Björn Kárason Huga þarf strax að umbótum STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Stjórn Faxaflóahafna kom saman til fundar í gær og samþykkti aðgerðir í því skyni að koma til móts við við- skiptavini fyrirtækisins vegna heims- faraldursins. Leigutakar húseigna hjá Faxaflóa- höfnum geta óskað eftir frestun á greiðslu leigu allt að þremur greiðslum sem eru á gjalddaga í mars, apríl og maí 2020. Gjalddagi og eindagi greiðslna sem frestað er að uppfylltum skilyrðum verður 15. janúar 2021. Leigugreiðslur leigjenda Faxaflóa- hafna eru um 27,0 mkr. á mánuði. Þá var samþykt að farþegagjöld hvala- og náttúruskoðunarfyrirtækja með skip og báta undir 200 brt. verði tímabundið lækkuð um 75% frá 1. apríl til 30. júní og um 50% frá 1. júlí 2020- 31. des. 2020. Útlit er fyrir að farþega- gjald vegna hafsækinnar ferðaþjón- ustu verði í ljósi aðstæðna óverulegt árið 2020, Loks verður lóðarleiga frá og með 1. apríl til 31. desember lækkuð. Lækkun á lóðarleigu gæti numið um 20 millj- ónum í lægri lóðatekjum. „Stjórn Faxaflóahafna leggur áherslu á að koma til móts við við- skiptavini sína í ljósi þess forsendu- brests sem er að verða í atvinnulífinu vegna afleiðinga COVID-19-faraldurs- ins. Stjórnin stendur einhuga á bak við þessar fyrstu aðgerðir um frestun og lækkun gjalda og verður áfram á vakt- inni komandi vikur og mánuði ef þörf verður á frekari aðgerðum til að mæta þörfum viðskiptavina,“ segir í sam- þykkt stjórnarinnar. Beiðni um frestun leigugjalds skal sendast á veffangið: frestun@faxafloa- hafnir.is. sisi@mbl.is Lækka farþegagjöld í hvalaskoðun Morgunblaðið/Reynir Sveinsson Hvalaskoðun Reiknað með sára- litlum tekjum af farþegagjaldi. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Fyrstu sendingarnar af fersku nautakjöti, eftir að innflutningur á ófrosnu kjöti var heimilaður um ára- mót, komu til landsins um miðjan febrúar. Aðeins var flutt inn rúm- lega tonn af nautakjöti í þeim mán- uði en hins vegar var flutt inn 21 tonn af ófrosnu kalkúnakjöti. „Þetta er töluvert minna en við hefðum haldið, miðað við hvernig umræðan og þrýstingurinn hefur verið. Lítill innflutningur á ófrosnu kjöti kom okkur skemmtilega á óvart, við gerðum ráð fyrir að hann gæti orðið meiri,“ segir Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri Landssambands kúabænda. 21 tonn af nýjum kalkúni Í febrúar voru flutt inn tæp 1,2 tonn af ófrosnum nautahrygg- vöðvum, hryggjum og nautalundum, samkvæmt innflutningstölum Hag- stofu Íslands. Í mánuðinum voru flutt inn tæp 28 tonn af frosnu nautakjöti og samanlagður innflutn- ingur af nautakjöti í febrúar er litlu minni en innflutningur á frosnu nautakjöti í febrúar. Tölur um mars liggja ekki fyrir. Ekkert var flutt inn af fersku svínakjöti eða kjúklingi í febrúar. Hins vegar var flutt inn 21 tonn af ófrosnum kalkúni í sneiðum eða hlutum. Margrét segir að samdráttur hafi orðið í sölu á nautakjöti á innan- landsmarkaði fyrstu tvo mánuði árs- ins. Verð á kýrkjöti til bænda var lækkað um áramót vegna birgða af hakki. Sláturleyfishafar hafa nú að undanförnu verið að auglýsa eftir ungneytum sem að sögn Margrétar bendir til þess að markaðurinn sé með ágætum. Hún tekur þó fram að óvissa sé með mars vegna kórónu- veirufaraldursins. Gera megi ráð fyrir samdrætti í sölu til hótela og veitingastaða af eðlilegum ástæðum, fólk sé heima og fari lítið út að borða. Þá kunni innkaupamynstrið einnig að breytast, fólki kaupi síður dýrari afurðirnar. Flutt inn eitt tonn af fersku nautakjöti  Ekkert af ófrosnu svíni eða kjúklingi Morgunblaðið/Golli Steik Lítið er flutt inn af fersku nautakjöti þótt það sé orðið heimilt.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.