Morgunblaðið - 09.04.2020, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 2020
Vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Sími 555 3100 www.donna.is
Honeywell gæða lofthreinsitæki
Hreint loft - betri heilsa
Loftmengun er hættuleg heilsu og
lífsgæðum. Honeywell lofthreinsitæki
eru góð við myglu-gróum, bakteríum,
frjókornum, svifryki, lykt og fjarlægir allt
að 99,97% af ofnæmisvaldandi efnum.
Verð kr.
18.890
Verð kr.
49.920
Verð kr.
35.850Verð kr.15.960
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Ennþá bið eftir betri tíð
Meinlaust veður um páskana en allt í
rétta átt Hlýindi í kortunum eftir helgi
Veðrið um páskana verður mein-
laust miðað við það sem hefur ver-
ið hingað til á þessu ári, en þó
engin bongóblíða. Vorið er því
ekki alveg komið ennþá en það er
rétt að byrja. „Þetta er svona allt
í rétta átt,“ segir Haraldur Eiríks-
son, veðurfræðingur á Veðurstofu
Íslands, í samtali við Morgun-
blaðið um páskaveðrið í ár.
Ágætisveður verður víða um
land í dag, hægur vindur og búast
má við sól á Norðurlandi en úr-
komu á Suðvesturlandi. Það verð-
ur frekar svalt og hitinn á bilinu 0
til 7 gráður, en í kvöld verður hit-
inn um frostmark um allt land.
Veik lægð er væntanleg upp að
Suðvesturlandi á morgun með
austanstrekkingi og rigningu eða
slyddu á Suður- og Vesturlandi.
Áfram verður bjart og hægari
vindur á Norður- og Austurlandi.
Um helgina snýst þetta við að
einhverju leyti þegar það byrjar
að rofa til á Suður- og Suðvestur-
landi en fyrir norðan má búast við
éljum um kvöldið. Hæglætisveður
er svo í kortunum á sjálfan páska-
dag en fremur svalt og skýjað með
köflum.
Það er svo von á aðeins betri tíð
eftir helgi, á mánudag og þriðju-
dag, með hlýindum og búast má
við vorblíðu á Norðaustur- og
Austurlandi. Hlýindunum fylgir þó
rigning á Suður- og Vesturlandi.
thor@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Starrar á flugi Veik lægð er væntanleg upp að Suðvesturlandi á morgun.
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Mánuðum saman hafði gamalt slökkvibílshræ staðið á
akbraut í Skógarhlíð í Reykjavík, eða þar til í gærkvöldi
að bíllinn var skyndilega fjarlægður. Allt í kringum bíl-
inn voru skilti sem gáfu til kynna að þar væri bannað að
leggja ökutækjum. Hafði Morgunblaðið heimildir fyrir
því að íbúar í hverfinu hefðu margsinnis kvartað undan
bílhræinu við Reykjavíkurborg.
Guðjón Ingi Eggertsson, heilbrigðisfulltrúi hjá Heil-
brigðiseftirliti Reykjavíkur, sagðist í samtali við blaðið
um miðjan dag í gær kannast við bílinn og að um væri að
ræða „vandamál“ sem flakkað hefði á milli borgarhluta,
en bíllinn hafði einnig staðið í borgarlandi í Grafarvogi
öllum til ama þar.
Aðspurður sagðist Guðjón Ingi ekki vita hver væri
skráður eigandi að ökutækinu enda búið að fjarlægja
númeraplötur fyrir löngu. Yrði hræið fjarlægt af verk-
taka á vegum Reykjavíkurborgar sagði Guðjón Ingi þá
vel hægt að rekja verksmiðjunúmer bílsins.
Spurður hvers vegna bílnum væri leyft að standa á
merktu bannsvæði mánuðum saman svaraði hann: „Við
erum búin að líma nokkrum sinnum viðvörun á þennan
bíl og skrá inn í gagnagrunn hjá verktaka sem sér um að
fjarlægja númerslaus ökutæki fyrir okkur. Ég veit ekki
af hverju þeir hafa ekki fjarlægt hann en mig grunar að
þeir eigi erfitt með að fjarlægja svona stóran bíl.“
Í gærkvöldi var svo bíllinn farinn, sem fyrr segir.
Látinn standa á bannsvæði
Bílhræ fjarlægt eftir fyrir-
spurn Morgunblaðsins
Morgunblaðið/Kristján
Sóðaskapur Þessi bíll var lengi íbúum í Hlíðum til ama.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
hefur til rannsóknar andlát karl-
manns á þrítugsaldri sem fannst
mikið slasaður við fjölbýlishús í mið-
borg Reykjavíkur á þriðjudags-
morgun. Þetta staðfesti Guðmundur
Páll Jónsson lögreglufulltrúi í sam-
tali við mbl.is í gær.
Maðurinn var fluttur á slysadeild
Landspítalans þar sem hann lést af
sárum sínum um miðjan þriðjudag.
Talið er að maðurinn hafi fallið
fram af húsinu og snýr rannsókn
lögreglunnar meðal annars að því
með hvaða hætti það varð.
Lögregla mun yfirheyra vitni og
kanna hvort eftirlitsmyndavélar hafi
fest atvikið á upptöku. Enn sem
komið er bendir ekkert til þess að
fall mannsins hafi borið að með sak-
næmum hætti.
Áfram í gæsluvarðhaldi vegna
andláts eiginkonu sinnar
Gæsluvarðhald yfir karlmanni á
sextugsaldri vegna andláts eigin-
konu hans á heimili þeirra var í gær
framlengt til 15. apríl. Maðurinn hef-
ur setið í gæsluvarðhaldi frá 2. apríl,
eða síðan krufning á líki konunnar
leiddi í ljós að líklegt væri að andlát-
ið hefði borið að með saknæmum
hætti. Konan lést 28. mars á heimili
hjónanna í Sandgerði.
Lést eftir
fall af fjöl-
býlishúsi
Lögregla rann-
sakar tildrög fallsins
Morgunblaðið kemur næst út
laugardaginn 11. apríl. Frétta-
þjónusta verður um páskana á
mbl.is. Hægt er að koma
ábendingum um fréttir á net-
fangið netfrett@mbl.is.
Áskrifendaþjónusta er opin
í dag, skírdag, frá kl. 8-12.
Lokað verður föstudaginn
langa en opið á laugardaginn
frá kl. 8-12. Símanúmer áskrif-
endaþjónustunnar er 569-1122
og netfangið askrift@mbl.is.
Bóka má dánartilkynningar
á mbl.is. Minningargreinar
vegna útfara þriðjudaginn 14.
apríl og miðvikudaginn 15.
apríl þurfa að hafa borist
blaðinu eigi síðar en á hádegi
á páskadag, 12. apríl.
Fréttaþjónusta
mbl.is um páskana
Síðdegisumferðin á höfuðborgarsvæðinu var
þyngri í gær en verið hafði síðustu dagana
þar áður. „Lögreglan ætlar að vera mjög
sýnileg við þjóðvegi á leiðinni út úr bænum á
morgun þannig að fólk viti að við séum að
fylgjast með,“ sagði Árni Friðleifsson, aðal-
varðstjóri umferðardeildar lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu, í samtali við mbl.is í
gærkvöldi. Árni sagðist gera ráð fyrir að um-
ferðin myndi þyngjast að einhverju leyti í
dag, en vonaði að það yrði þó ekki meira en
nauðsyn bæri til.
Síðdegisumferðin tók að þyngjast í gær
Morgunblaðið/Eggert