Morgunblaðið - 09.04.2020, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 2020
Sími 555 2992 og 698 7999
• Við hárlosi
• Mýkir liðina
• Betri næringar-
upptaka
Náttúruolía sem hundar elska
Við höfum notað Dog Nikita hundaolíu fyrir hundana
okkar í 3 ár og við erum ekkert á því að hætta.
Feldurinn á þeim er mjúkur, fallegur og hárlosið á
þeim gengur fyrr yfir. Þófarnir eru mjúkir og sléttir
en ekki harðir og grófir eins og þeir verða oft.Við
mælum með Dog Nikita hundaolíu.
Páll Ingi Haraldsson
EldurÍs hundar
Við mælum með Dog NIKITA hundaolíu
NIKITA hundaolía - Selaolía fyrir hunda
• Gott við exemi
• Betri og sterkari
fætur
Margrét Þóra Þórsdóttir
Akureyri
Óvenjusnjóþungur vetur er farinn að
setja mark sitt á íbúa á Akureyri
sem flestum þykir nóg komið. Tveir
síðustu vetur eiga það sameiginlegt
að mikið hefur snjóað, þeir lenda í
fjórða og fimmta sæti frá upphafi
mælinga á snjódýpt við Lögreglu-
stöðina á Akureyri. Þær mælingar
hófust árið 1967.
Kostnaður við snjómokstur hefur
komið illa við bæjarsjóðinn og líkast
til hefur sjaldan ef nokkurn tíma ver-
ið varið meira fé í að moka snjó en
síðustu misseri. Fyrstu mánuðir
þessa árs benda til að upphæðin
verði einnig mikil í ár.
Íþyngjandi snjómokstur
„Víst er að fyrri hluti þessa árs
mun verða með þeim dýrari hvað
snjómokstur varðar, þó ekki séu öll
kurl komin til grafar,“ segir Dan
Jens Brynjarsson, sviðstjóri fjár-
málasviðs Akureyrarbæjar.
Verktakar eru að senda inn reikn-
inga fyrir mokstur í nýliðnum mars-
mánuði og verður væntanlega ljóst
eftir páska hver heildarkostnaður
verður.
Akureyrarbær hefur sótt um við-
bótarframlag úr Jöfnunarsjóði
vegna íþyngjandi snjómoksturs í
bænum árin 2019 og það sem af er
ári 2020. Fram kemur í bréfi Ásthild-
ar Sturludóttur bæjarstjóra að liðnir
tveir vetur hafi verið mjög snjóþung-
ir á Norðurlandi og Akureyrarbær
ekki farið varhluta af því. Snjóþung-
inn hafi í för með sér mikinn kostn-
aður vegna snjómoksturs og hálkuv-
arna í bænum.
Á síðasta ári hafi meiri fjármunum
en nokkru sinni fyrr verið varið til
þessara verkefna, 225 milljónum
króna. Kostnaður hafi einnig verið
mikill það sem af er þessu ári, fyrstu
tvo mánuði þess er hann þegar orð-
inn um 84 milljónir króna. Ljóst sé
að sama gildi um marsmánuði, hann
verði einnig þungur.
Fyrstu daga apríl mánaðar hafa
snjómoksturstæki enn og aftur verið
á ferðinni um götur bæjarins. Enda
af nógu að taka ennþá. Það er því
ljóst að eitthvað bætist við snjó-
mokstursreikninginn.
Íþyngjandi
snjómokstur
tvo vetur í röð
Akureyrarbær sækir um viðbót-
arframlag úr Jöfnunarsjóði
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Snjómokstur Akureyrarbær hefur varið miklum fjármunum í snjómokstur
í vetur. Hér er snjó mokað út í sjó á Oddeyrarbryggjunni í vikunni.
Mokið meiri snjó
» Kostnaður Akureyrarbæjar
af snjómokstri er um 84 millj-
ónir króna í ár.
» Kostnaðurinn á síðasta ári
var 225 milljónir króna.
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Sigríður Einarsdóttir verður 100
ára á morgun, föstudaginn langa.
Hún býr við gott atlæti og er við
bærilega heilsu á Sólvöllum á Eyr-
arbakka, að sögn Þorsteins Ólafs-
sonar, systursonar hennar. „Minni
hennar er gott,“ segir hann.
Sigríður fæddist á Skúfslæk í
Flóa 10. apríl 1920 og er elst fjög-
urra systkina. Ári seinna, í apríl
2021, fæddust tvíburarnir Guðbjörg
og Guðrún og í nóvember 1922
fæddist Sveinn, bróðir þeirra. Þá
voru þau flutt að Syðri-Gróf í sömu
sveit. Foreldrar Sigríðar, Sesselja
Loftsdóttir frá Steinsholti í Gnúp-
verjahreppi og Einar Sveinsson frá
Ásum í sömu sveit, gerðust síðar
ráðsmenn í Brúnavallakoti á
Skeiðum.
Sigríður gekk í skóla í Brautar-
holti á Skeiðum. Þorsteinn segir að
hún minnist gönguferðanna í skól-
ann, sem oft voru ekki auðveldar á
snjóþungum vetrum, og Gríms-
vatnagoss 1934 og eldglæringa frá
því sem sáust á Skeiðunum.
Foreldrar hennar fengu ábúð í
Skarði í Gnúpverjahreppi, bjuggu
þar á móti séra Gunnari Jóhannes-
syni, sóknarpresti á Stóra-Núpi.
Varð vinátta með fjölskyldunum og
hafa börn prestsins alla tíð haldið
upp á Sigríði.
Sem ung kona var Sigríður vinnu-
kona á nokkrum heimilum í Reykja-
vík en 1949 byggðu foreldrar henn-
ar og systkinin Sigríður og Sveinn
nýbýlið Lækjarbrekku út úr landi
Steinsholts. Systkinin hafa alltaf
síðan verið kennd við Lækj-
arbrekku. Á tíunda áratugnum
fluttu þau á Hörðuvelli 6 á Selfossi.
Sigríður fór ekki mikið að heiman
en Þorsteinn segir að því eftir-
minnilegri hafi ferðirnar verið, svo
sem ferð með Drottningunni,
Dronning Alexandrine, árið 1958
með viðkomu í Færeyjum til Noregs
að heimsækja Guðrúnu systur sína,
sem hafði flust þangað í stríðslok.
Einnig ferð til Vestmannaeyja löngu
seinna.
„Aldrei fann hún til sjóveiki á
þessum sjóferðum,“ segir Þorsteinn.
Hann bætir við að margir minnist
sumardvalar og jafnvel lengri dvalar
í Skarði og Lækjarbrekku þar sem
gestir nutu móðurlegrar umönnunar
í lengri eða skemmri tíma.
Tímamót Sigríður Einarsdóttir býr á Sólvöllum á Eyrarbakka og verður 100 ára á morgun.
Býr við gott atlæti
og heilsan er góð
Sigríður Einarsdóttir á Lækjarbrekku 100 ára á morgun