Morgunblaðið - 09.04.2020, Síða 18

Morgunblaðið - 09.04.2020, Síða 18
18 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 2020 Þegar hugsað er til þeirra aðstæðna sem nú eru í þjóðfélaginu var einkar athyglisvert að sjá og heyra hve litla umfjöllun það fékk í fjölmiðlum og netmiðlum að Félag hjúkrunarfræðinga væri búið að vera kjarasamningslaust í heilt ár. Og þótt hér hafi þessi tiltekna stétt staðið undir ofurmannlegu álagi í margar vikur virtist það ekki komast inn í frumkvæðisumræðu hjá fjár- málaráðherra að samninganefnd hans hefði í heilt ár haldið þessari starfsstétt utan löggiltra kjarasamn- inga. Ég vek athygli á þessu í upp- hafi til að opna fólki sýn á hið mik- ilvæga ákvæði 65. greinar stjórnarskrár okkar, þar sem segir í upphafi að: „[Allir skulu vera jafnir fyrir lög- um og njóta mannréttinda án tillits til kynferðis, trúarbragða, skoðana, þjóðernisuppruna, kyn- þáttar, litarháttar, efna- hags, ætternis og stöðu að öðru leyti.“ Ríkissjóður (Alþingi) er stærsti atvinnuveit- andi og launagreiðandi landsins og sem slíkur eðlilega annar samn- ingsaðila þegar stétt- arfélög ríkisstarfs- manna leita kjarabóta fyrir félagsfólk sitt. Í því sambandi er eðlilegt að líta á jafnræðisstöðu þessara samningsaðila út frá fyrrgreindri 65. grein stjórn- arskrár. Annar samningsaðilinn set- ur lagareglurnar og fjármálaráð- herra þess samningsaðila hefur með höndum yfirstjórn samninganefndar ríkisins, sem stéttarfélögin þurfa að ná samkomulagi við um kjarabætur. Engin leið er í núverandi laga- umhverfi að skapa ásættanlegt jafn- ræði milli þessara framangreindu samningsaðila, þar sem annar að- ilinn hefur lögin sniðin að sínum þörfum og völdin til að hafna samn- ingum. Hvað segja stjórnsýslulögin? Starfsmenn ríkisins eiga sér eðli- lega vinnuveitendur í mannsmynd, en ekki bara ópersónulegan sam- nefnara. Ríkið hefur bæði aðalstjórn og framkvæmdastjórn, eins og önnur rekstrarform. Aðalstjórn Íslands er Alþingi, skipað 63 manneskjum, sem kosnar eru hlutbundinni kosningu um allt land til að taka sæti í aðal- stjórn Íslands. Og sem slíkar bera þær fulla ábyrgð á að öll verk þeirra standist þá stjórnarskrá sem öllum aðilum lýðveldisins ber að fara eftir. Sú 63 manna aðalstjórn sem kosin er skipar með atkvæðagreiðslu fram- kvæmdastjórn sem nefnd er ríkis- stjórn, sem mynduð er úr hópi að- alstjórnar. Þannig er samansett stjórnkerfi þess viðsemjanda sem stéttarfélög opinberra starfsmanna þurfa að semja við. Ég hef oft haft orð á þessu og velt upp spurningum um hvort það fólk sem sækist eftir sæti í aðalstjórn Ís- lands (Alþingi) geri sér grein fyrir skyldu sinni og ábyrgð þegar ákvarðanir eru teknar um reglur eða lagasetningu? Meginregla stjórn- sýslulaga er sú, samkvæmt 3. grein, að enginn megi taka þátt í ákvörðun reglna eða lagasetningar, ef sá hinn sami er t.d.: 1. Aðili máls. 2. Ef hann er eða hefur verið maki aðila, skyld- ur eða mægður aðila í beinan legg eða að öðrum lið til hliðar eða tengd- ur aðila með sama hætti vegna ætt- leiðingar. 3. Ef hann tengist fyr- irsvarsmanni eða umboðsmanni aðila með þeim hætti sem segir í 2. tölulið. Ríkið setur lögin og ákveður um hvað er samið Eins og lögum er nú háttað eru all- ir þingmenn fullgildir aðilar að aðal- stjórn Íslands og því beinir aðilar að lögmæti þeirra kjarasamninga sem stéttarfélög gera við framkvæmda- stjórnina, ríkisstjórn. Það leiðir beint til þess að öll þau lög sem að- alstjórn (Alþingi) hefur sett um stéttarfélög og vinnudeilur eru ekki gild sem hlutlaus lagasetning gagn- vart stéttarfélögum ríkisstarfs- manna, þar sem þau eru sett af öðr- um samningsaðilanum, launa- greiðandanum. Því eru þau stéttarfélög sem þurfa að ná kjara- samningi við ríkið háð því að gagn- aðili samninga þeirra setur lögin og leggur að öðru leyti línur fyrir samn- inganefnd ríkisins um hvað og hve- nær skuli gengið frá nýjum kjara- samningum. Það væri fróðlegt að fá þessa jafnræðisreglu borna undir óflokksbundna leynilega atkvæða- greiðslu í aðalstjórn (Alþingi) til athugunar á hlutlausri virðingu fyrir stjórnarskrá og lögum. Ásamt eigin hæfi eða vanhæfi þingmanna til að setja hlutlaus eða jafnrétthá lög fyrir báða aðila. Þarf alvara að vera dauðans alvara, svo eftir sé tekið? Eftir Guðbjörn Jónsson Guðbjörn Jónsson » Það væri fróðlegt að fá þessa jafnræðis- reglu borna undir óflokksbundna leynilega atkvæðagreiðslu í aðal- stjórn (Alþingi) til at- hugunar á hlutlausri virðingu fyrir stjórnar- skrá og lögum. Höfundur er fyrrverandi ráðgjafi. gj1941@simnet.is Mér hefur stundum fundist tilefni til að gagnrýna formann Framsóknarflokksins, Sigurð Inga Jóhanns- son ráðherra. Nú langar mig hins vegar til að hrósa honum – með fyrirvara þó. Þannig er að ég hef verið að fara í gegn- um tímarit og blöð sem ég hef lagt til hliðar á liðnum árum vegna þess að þau hafa haft umhugsunarverð skrif að geyma. Í þessum bunka dúkkuðu upp tvær prýðisgóðar blaðagreinar eftir framsóknarforingjann sem birtust í Morgunblaðinu í nóvember árið 2018. Önnur greinin bar fyrirsögnina Hugsum út fyrir búðarkassann, hin Frelsi til heilbrigðis. I told you so! Í báðum þessum greinum varar formaður Framsókn- arflokksins við því að leyfa innflutning á hráu kjöti. Í grein sinni Frelsi til heil- brigðis segist Sigurður Ingi vilja að EES- samningurinn verði tekinn upp á grundvelli breyttra forsendna: „Ég lít svo á að það sé þess virði að berjast fyrir breytingum á EES-samningnum til þess að vernda þá góðu stöðu sem við höfum á sviði landbúnaðar, dýraheilbrigðis og lýðheilsu. Um þetta er gríðarleg vakning um allan heim en ekki síst á Norðurlöndum. Það erfiða við þetta mál er ekki síst það að ef við leyfum tímanum að leiða í ljós hvort það hafi áhrif á lýðheilsu Íslendinga að flytja inn hrátt kjöt þá verður okkur í Fram- sókn engin fró í því að standa upp eftir 20 ár og segja … „I told you so“. Framsókn segir nei … Í hinni greininni, Hugsum út fyr- ir búðarkassann, er formaður Framsóknarflokksins ekki síður af- dráttarlaus: „Viljum við þakka ís- lenskum bændum fyrir að byggja hér upp heilbrigðan bústofn og framleiða heilnæmar vörur með því að leyfa versluninni að flytja inn hrátt kjöt og stefna lýðheilsu í hættu? Viljum við knýja þá til að stíga niður á sama plan og mörg lönd Evrópu eru að glíma við að komast út úr? Framsókn segir nei. Á Íslandi höfum við verið svo lánsöm að búa við þær aðstæður að íslenskar landbúnaðarafurðir eru með því heilnæmasta sem finnst í heiminum. Búfjársjúkdómar eru sjaldgæfir vegna legu landsins og vegna þess hvernig bændur hafa staðið að búskap sínum. Við erum því í einstakri og eftirsóknarverðri stöðu þegar kemur að því að kaupa í matinn. Við getum valið íslenskt og verið örugg um það að sú vara er með því öruggasta og besta sem fyrirfinnst í matvöruverslunum í heiminum.“ … en svo já! Ég held að þarna hafi sálin í Framsóknarflokknum, gamla flokki bændanna, talað. Síðan breyttist eitthvað því nokkrum vikum síðar, eftir nokkra fundi í ríkisstjórn, sagði Sigurður Ingi, flokks- formaður og ráðherra, skyndilega já. Hvers vegna? Seint verður því trúað að VG hafi viljað leggja á flótta með málið eins og raunin varð. En mér er óneitanlega spurn. Þá er Sjálfstæðisflokkurinn eftir. Var hann tilbúinn að fórna íslensk- um lýðheilshagsmunum? Hann liggur undir grun. En við hinu yrði eftir sem áður forvitnilegt að fá svar, nefnilega hvers vegna Fram- sóknarflokkrinn og Vinstrihreyf- ingin – grænt framboð gáfust upp í málinu. Við eigum rétt á svari. Farðu að sannfæringu þinni, Sigurður Ingi! En þá er líka komið að kjarna erindis míns við Sigurð Inga Jó- hannson, fyrir utan að hrósa hon- um fyrir skrifin. Ef þetta var þín sannfæring sem birtist í fram- angreindum skrifum þínum, sem ég hef trú á að hafi verið, þá er lag núna að taka málið upp að nýju! Hafi það verið rétt hjá þér í nóv- ember 2018 að „um þetta“ (þ.e. hættu á að flytja inn sýkla- lyfjaónæmi) sé „gríðarleg vakning um allan heim …“ þá má víst telja að ekki hafi dregið úr þeirri vakn- ingu nú. Þess vegna leyfi ég mér að segja, Sigurður Ingi Jóhannsson, fylgdu sannfæringu þinni! Gerirðu það áttu lof skilið, að öðrum kosti hlýt- ur fyrirvarinn sem nefndur var í upphafi að gilda. Eftir Ögmund Jónasson Höfundur er fyrrverandi alþingismaður og ráðherra. » Þess vegna leyfi ég mér að segja, Sig- urður Ingi Jóhannsson, fylgdu sannfæringu þinni! Ögmundur Jónasson Opið bréf til formanns Framsóknarflokksins Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður Samtaka atvinnulífs- ins, skrifar grein í Morgunblaðið sem birtist 4. apríl síðast- liðinn. Bara fyrirsögn greinarinnar gefur til- efni til að lesa alls ekki lengra þar sem full- yrðingin sem fram kemur í fyrirsögninni er svo fráleit og gefur sterkar vísbendingar um að efn- istökin séu af sama meiði. Í fyr- irsögninni segir: „Hlutastarf- aúrræðið, styrkur til launafólks, ekki atvinnurekenda.“ Yfirlýstur til- gangur stjórnvalda er styrkur til launamanna sem þrátt fyrir allt hefðu átt rétt á launum út uppsagn- arfrest hefði þeim verið sagt upp störfum þannig að fullyrðing Eyj- ólfs er í besta falli hálfsannleikur ef ekki hreinar og klárar rangfærslur. Hlutastarfaúrræðið tók gildi aft- urvirkt frá 15. mars þannig að löngu áður en nokkur launamaður hefur lokið störfum í uppsagn- arfresti eru stjórnvöld byrjuð að dreifa peningum skattgreiðenda eins og áburði í skjóli þessara að- gerða. Rétt er að greiðslurnar fara beint frá Vinnumálastofnun til launamanna án milligöngu launagreið- enda en frá sama tíma lækka launagreiðslur frá launagreiðanda um allt að 75%. Þá hefur berlega komið í ljós að fjöldi fyrirtækja hefur hent sér á betlivagninn jafnvel þótt þau þurfi í raun enga aðstoð held- ur séu aðeins að mis- nota þetta til að láta skattgreiðendur bera hluta launa- kostnaðar sem þeir sannanlega eiga að bera sjálfir. Ferðaþjónustufyr- irtæki sem eru búin á búa við blúss- andi uppgang síðustu ára virðast ekki hafa búið í haginn og þykjast ekki eiga krónu með gati. Eitt af fyrstu fyrirtækjunum til að leggjast með betlistafinn á þessa jötu er Bláa lónið sem hefur greitt eig- endum sínum milljarða í arð á síð- ustu árum. Flestir fastráðnir launa- menn eru með þriggja mánaða uppsagnarfrest og því spara þeir launagreiðendur sem nýta sér þetta úrræði launakostnað afturvirkt frá 15. mars fram að þeim tíma sem launamaður hefði lokið störfum á uppsagnarfresti hefði honum verið sagt upp annars. Þar sem uppsögn miðast við mánaðamót hefðu flestir launagreiðendur verið bundnir af greiðslu launa til meginþorra launa- manna sinna út júní næstkomandi en samkvæmt upplýsingum stjórn- valda til almennings ætti Covid-19- faraldurinn að vera yfirstaðinn að mestu þá og við skulum öll vona að það raungerist. Þá tekur hins vegar við að snúa atvinnulífinu í gang að nýju en einmitt þá verður þörf á að styðja við þau fyrirtæki sem líf- vænleg eru og hafa sýnt burði til að komast gegnum fyrstu skaflana. Það er varlegt að áætla að fólk bíði í röðum eftir að ferðast þegar far- aldrinum fer að slota og því munu erfiðleikarnir fara að gera vart við sig af alvöru fyrst þá. Hlutastarf- aúrræði stjórnvalda er því fyrst og fremst styrkur við launagreiðendur a.m.k. meðan uppsagnarfrestur við- komandi launamanns er að renna sitt skeið. Hvað tekur svo við þegar hlutastarfaúrræðið rennur sitt Hlutastarfaúrræðið, styrkur til hverra? Eftir Örn Gunnlaugsson »Nær að stjórnvöld ráðist í launastyrk óháð vinnuframlagi efir að uppsagnarfrestur rennur sitt skeið. Örn Gunnlaugsson Höfundur er fyrrverandi atvinnurekandi. orng05@simnet.is skeið? Dembist þá yfir hrina upp- sagna þar sem launamönnum verð- ur sagt upp 25% starfinu? Stjórn- völd ættu að afturkalla hlutastarfaúrræðið tafarlaust og ráðast í beina aðstoð við fyrirtækin með greiðslu hluta launa án minnk- unar á starfshlutfalli sem tekur gildi eftir að uppsagnarfresti hefði lokið með þeim skilyrðum að launa- mönnum sem styrkurinn á að taka til sé ekki sagt upp. Í gegnum tíðina hafa samtök vinnuveitenda sýnt al- gjöran vanmátt og getuleysi í samn- ingum við verkalýðshreyfinguna og aldrei staðið almennilega í lapp- irnar, í raun hefur allt verið gefið eftir að endingu. Ein af alvarleg- ustu eftirgjöfunum var þegar samið var um að launamenn ættu rétt á tveimur fyrstu veikindadögum á launum mánaðarlega en þetta ákvæði var held ég arfur frá fyr- irrennara þeirra, Vinnuveitenda- sambandi Íslands. Þar fékk ég að kynnast örlítið þeirri linkind sem höfð var í frammi gagnvart verka- lýðshreyfingunni þótt viðspyrnan hafi þó verið talsvert meiri þá en nú hjá SA. Áður fyrr fjallaði ráðning- arsamband um réttindi og skyldur á báða bóga. Núorðið fjallar það meira og minna um réttindi launa- manns og skyldur launagreiðanda. Hvers konar glóra er í því að sam- þykkja svona veikindadagaákvæði án þess að launamaður beri nokkra ábyrgð sjálfur? Þetta er svipað því að tryggingafélag greiði fyrst sjálfs- ábyrgð úr tjóni en tryggingataki rest. Í nágrannalöndum okkar þar sem ég þekki til eru ekki greidd laun fyrr en eftir fyrstu tvo daga í veikindafjarveru þannig að slíkt er letjandi til misnotkunar. Það má svo deila um hvort það er af linkind eða vorkunnsemi að ekki sé sett inn í kjarasamninga „force majeure“- ákvæði sem tekur til aðstæðna eins og nú eru uppi. Slíkt þykir sjálfsagt í ýmsum viðskiptaskilmálum. En SA, sem áður voru VSÍ, sjá enga ástæðu til að semja með ábyrgum hætti fyrir aðildarfélaga sína því þegar á bjátar banka þessi samtök upp á hjá stjórnvöldum með tár- blautan reikninginn. Þau eru því engu skárri en grátkórar verkalýðs- hreyfingarinnar og spurning hvort þau ættu ekki bara að sækja um að- ild að ASÍ og gráta svo með þeim á tyllidögum. Sameiginlega grétu þau hlutastarfaúrræðið í gegn. En er við öðru að búast í samfélagi þar sem enginn á að bera ábyrgð á sjálfum sér? Ríkið kemur alltaf til bjargar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.