Morgunblaðið - 09.04.2020, Side 21

Morgunblaðið - 09.04.2020, Side 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 2020 í minningunni frá heimsóknum hans til foreldranna í Brussel. Þá réð ríkjum húmor húsráðenda og sonarins. Nánast ekkert var þá of alvarlegt til að sjá skoplegar hlið- ar á efninu og gestir veltust um af hlátri yfir græskulausu gamninu. Einn er sá hæfileiki Sveins sem margir muna. Hann var bráð- fyndin eftirherma. Og nú er hann allur þessi ynd- islegi maður, gleðigjafi og starfs- félagi. Við huggum okkur við að hann er laus úr veikindum sem hrjáðu hann síðustu tíu árin. Við Anna biðjum góðan Guð að blessa minningu Sveins Björns- sonar og sendum börnum hans, systrunum og fjölskyldunni allri innilegustu samúðarkveðjur. Hjálmar W. Hannesson. Fyrir rúmum þrjátíu árum fóru verkefni íslensku utanríkis- þjónustunnar hratt vaxandi og starfsfólki var fjölgað til að takast á við örar breytingar á alþjóðvett- vangi undir lok kalda stríðsins. Það unga fólk sem kom þá til starfa hitti fyrir marga reynda kollega, suma brautryðjendur í þeirri smáu en knáu utanríkis- þjónustu sem var stofnuð fyrir áttatíu árum og aðra sem höfðu síðar tekið þátt í að byggja á þeim trausta grunni. Mér eru sérstak- lega minnisstæð þessi fyrstu kynni af Sveini Björnssyni. Ég var í hópi unga fólksins en hann hafði þá tuttugu ára starfsferil að baki. Hann bar með sér andblæ fjarlægra slóða og framandi menningar og var vel mæltur á fjölda tungumála. Hann var fág- aður heimsmaður með djúpar rætur á Íslandi. Þessi þekking og skilningur á öðrum þjóðum og meðvitund um að vera Íslending- ur gerðu hann að framúrskarandi diplómat, bæði í þjónustu og hagsmunagæslu. Það var ekki síður eftirminnilegt hversu vel Sveinn tók á móti ungu sam- starfsfólki og var reiðubúinn að kenna því og liðsinna. Það var gert með glöðu geði og lipurð. Hann hafði ríka kímnigáfu og oft stutt í glens og hlátur. Sveinn tók starfið alltaf mjög alvarlega en hafði jafnframt sérstakt lag á að gera það skemmtilegt. Sveinn gegndi mörgum ábyrgðarstöðum á ferlinum í ut- anríkisþjónustunni, m.a. sem fastafulltrúi hjá Evrópuráðinu í Strasbourg og gagnvart ÖSE og alþjóðastofnunum í Vín. Við- fangsefni þessara samtaka og stofnana eru margþætt og oft tæknilega flókin og íslenskt fyr- irsvar fámennt. Þrátt fyrir þetta á köflum erfiða starfsumhverfi hafði Sveinn ávallt mjög góða yf- irsýn yfir viðfangsefnin og rétta íslenska forgangsröðun. Fag- mennska hans endurspeglaðist í þeirri virðingu og vinsemd sem erlendir kollegar sýndu honum. Á þessum árum var hann jafnframt sendiherra Íslands gagnvart nokkrum ríkjum í Evrópu. Af störfum Sveins í utanríkisráðu- neytinu má nefna að hann var tvisvar prótókollsstjóri en það er starf sem krefst sérstakrar ná- kvæmni og háttvísi. Það er á eng- an hallað þótt hann sé þar nefnd- ur sem fremstur á meðal jafn- ingja í sögu ráðuneytisins. Hann tók einnig tímabundið að sér störf utan ráðuneytis og var um skeið forsetaritari. Þegar Sveinn lét af störfum í utanríkisþjónustunni var heilsan brostin. Jafnvel við þær erfiðu að- stæður sýndi hann gestkomandi starfsfélögum ávallt þá kurteisi og glaðlyndi sem einkenndi hann um ævina. Þótt hann væri ekki lengur á vinnustaðnum var hans oft getið að góðu þegar liðnar stundir voru rifjaðar upp. Samtíð- armenn Sveins munu áfram geyma minningu um mikinn heið- ursmann. Utanríkisþjónustan þakkar Sveini fyrir vel unnin störf og samveru á rúmlega fjörutíu ára ferli og ég votta fjölskyldu hans og vinum einlæga samúð. Sturla Sigurjónsson, ráðuneytisstjóri. Harpa Heimisdóttir s. 842 0204 Brynja Gunnarsdóttir s. 821 2045 Kirkjulundur 19 | 210 Garðabær s. 842 0204 | www.harpautfor.is Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýjar kveðjur vegna andláts og útfarar ástkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, GUNNARS ÓLAFSSONAR, Gunnars í Odda, Bessahrauni 10, Vestmannaeyjum. Erla Kristín Sigurðardóttir Hlynur Bergvin Gunnarsson Gunnlaug Hannesdóttir Þröstur Árni Gunnarsson Sigrún Jónbjarnardóttir Gunnar Björn, Berglind Ósk, Birkir Már, Kristinn Már og Daníel Karl Elskuleg móðir okkar tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, GUÐRÍÐUR JÓNSDÓTTIR, Garðatorgi 17, Garðabæ, lést á pálmasunnudag, 5. apríl, á Hjúkrunarheimilinu Hrafnistu, Hafnarfirði. Erling Ásgeirsson Erla Þorláksdóttir Anna Ásgeirsdóttir Ingibjörg Edda Ásgeirsdóttir Hallgrímur Jónasson Ásgeir Ásgeirsson Unnur Steinsson barnabörn, langömmubörn og langalangaömmubarn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐJÓN VILINBERGSSON, fv. vélfræðingur hjá Eimskipi, lést á Hrafnistu 31. mars. Útförin hefur farið fram í kyrrþey vegna aðstæðna í þjóðfélaginu. Aðstandendur þakka auðsýnda samúð og vilja koma á framfæri þakklæti til starfsfólks Hrafnistu fyrir alúð og umhyggju. Rannveig Ásgeirsdóttir börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabarn Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GEIR LÚÐVÍKSSON, Bjarkarási 22, Garðabæ, lést á Landspítalanum mánudaginn 30. mars. Útför hans fór fram í kyrrþey. Fjölskyldan þakkar starfsfólki hjartadeildar Landspítalans fyrir yndislegt viðmót og góða umönnun. Guðrún Bjarnadóttir Björg Geirsdóttir Svandís Geirsdóttir og fjölskyldur Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, TRYGGVI PÁLL FRIÐRIKSSON listmunasali, Grænahjalla 23, Kópavogi, lést í faðmi fjölskyldunnar á heimili sínu þriðjudaginn 7. apríl. Bálför verður að lokinni kistulagningu en vegna aðstæðna í þjóðfélaginu verður útför auglýst síðar. Elínbjört Jónsdóttir Margrét Tryggvadóttir Jóhann Ágúst Hansen Elín Tryggvadóttir Guðjón Guðmundsson og barnabörn Ástkær faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi og langafi, BJÖRN VIÐAR SIGURJÓNSSON, Miðtúni 62, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ laugardaginn 4. apríl. Í ljósi aðstæðna í samfélaginu verður útförin einungis fyrir nánustu aðstandendur. Þökkum auðsýnda samúð. Sigurjón Helgi Björnsson Þorgerður Jónsdóttir Aðalsteinn Rúnar Björnsson Paula Holm Ármey Björk Björnsdóttir Jón G. Þormar Páll Pálsson barnabörn og barnabarnabörn Hjartans þakkir fyrir hlýhug og samúð vegna andláts föður okkar, sonar míns, bróður og föðurbróður, JÓNS LOGA ÞORSTEINSSONAR bónda í Vestri-Garðsauka. Útför fór fram í kyrrþey. Minningarstund verður haldin síðar þegar aðstæður leyfa. Starfsfólki á gjörgæslu Landspítalans færum við sérstakar þakkir. Þeim sem vilja minnast hans er bent á björgunarsveitirnar. Sóley Alexandra Bahner Jónsdóttir Sjöfn Lovísa Bahner Jónsdóttir Emma Guðrún Bahner Jónsdóttir Þorsteinn Leó Bahner Jónsson Sjöfn Halldóra Jónsdóttir Þorsteinn Garðar Þorsteinsson Þorsteinn Jakob Freyr Þorsteinsson Góður vinur er fallinn eftir hetju- lega baráttu við illvígan sjúk- dóm. Ég þakka Róbert Jack trausta og gefandi vináttu um langt árabil. Það var svo ótal margt sem við tókum þátt í saman. Í tíu ár vorum við með sinn hvorn reksturinn í hús- næði við Ármúla í Reykjavík. Á þeim tíma tók Róbert Kalla son minn á samning í rafvirkj- un og lauk hann námi sínu hjá honum. Þeir voru bestu vinir frá fyrsta degi og var þetta gæfuspor fyrir son minn. Þeg- ar stund var milli stríða feng- um við okkur kaffisopa og Róbert Jón Jack ✝ Róbert JónJack fæddist 15. september 1948. Hann lést 18. mars 2020. Útför Róberts Jóns hefur farið fram. Minning- arathöfn mun fara fram síðar. spjall. Róbert var alltaf með eitthvað spennandi á prjón- unum og ég held að flestir fram- kvæmdadraumar hans hafi ræst. Róbert átti ættir að rekja til Skot- lands og oft sagði hann: Ég þarf að sýna þér bæinn þar sem afi og amma áttu heima í Skotlandi. Ekki leið á löngu þar til við vorum lagðir af stað til Skot- lands og þar áttum við saman skemmtilega viku. Við rennd- um á slóðir forfeðra hans við götu sem heitir: Hilside Drive og knúðum þar dyra og feng- um að skoða húsið og fara inn í herbergið sem Róbert hafði þegar hann dvaldi sumarlangt hjá afa og ömmu. Við hittum fjölskylduvini og hann sýndi mér ýmislegt sem hafði heillað hann sem barn. Við störfuðum um árabil saman í stúkunni Einingunni og áttum þar sér- lega ánægjulegar samveru- stundir með góðum vinum og á seinni árum eftir að þau sæmdarhjón Sigrún og Róbert höfðu fest kaup á jörðinni Geitafelli og byggt þar upp glæsilega aðstöðu, íbúðarhús, gistiaðstöðu og veitingahús að ógleymdum Manchester Unit- ed-turninum sem jafnframt var glæsilegt safn. Þetta uppá- tæki fjölskyldunnar vakti at- hygli um víða veröld og voru veitingar lofaðar í hástert og barst þeim fjöldi þakkarbréfa og viðurkenninga. Á ferðum okkar hjóna um Norðurland renndum við gjarnan við á Geitafelli og heilsuðum upp á vini okkar Sigrúnu og Róbert. Mér og Iðunni minni er afar ljúft að þakka góðum vini ynd- islega og trausta vináttu sem aldrei bar skugga á. Einnig hlýhug og vináttu fjölskyldu þeirra við Kalla minn á veg- ferð þeirra saman á lífsins leið. Við sendum Sigrúnu og börnum þeirra okkar kærustu samúðarkveðjur og þakkir. Iðunn og Ólafur Gränz. Guðni Jónsson ✝ Guðni Jónsson fæddist 31.ágúst 1942. Hann lést 25. mars 2020. Útförin fór fram í kyrrþey. Guðni Jónsson var áhrifamað- ur í sínu lífi. Ekki vegna þess að hann gegndi störfum sem bæru áhrifin með sér, heldur vegna þess að hann náði til viðmæl- enda sinna. Ég er einn þeirra fjölmörgu sem hann hafði áhrif á. Við áttum ýmislegt saman að sælda á liðinni öld og með okkur tókst vinátta sem aldrei brast, þótt samskiptum okkar hafi fækkað hin síðari ár. Hann gat verið hvass í sam- skiptum en þeim hann þekktu leyndist ekki að undir sló milt hjarta. Nú hefur hann kvatt. Börnum hans, Ásgeiri og Önnu, börnum þeirra og mökum samhryggist ég og segi þeim og öðrum að Guðni var góður maður sem vildi vel. Guð blessi minningu vinar. Jón Þórisson. Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síð- una. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning- argreinunum. Undirskrift | Minningargreina- höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stutt- nefni undir greinunum. Myndir | Hafi mynd birst í til- kynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.