Morgunblaðið - 09.04.2020, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 09.04.2020, Blaðsíða 32
Enzymedica býður uppá öflugustu meltingarensímin á markaðnum en einungis eitt hylki með máltíð getur öllu breytt. BETRI MELTING – BETRI LÍÐAN ● Ensím eru nauðsynleg fyrir meltingu og öll efnaskipti líkamans. ● Betri melting, meiri orka, betri líðan! ● 100% vegan hylki. ● Digest Basic hentar fyrir börn. Útsölustaðir: Flest apótek, heilsuhillur stórmarkaða. Ekki gleyma að taka meltingarensím með matnum um hátíðarnar. Gleðilega MELTINGU Á meðal fjölda nýjunga á næsta leikári Þjóðleikhússins er hádegisleikhús sem hleypt verður af stokkunum í haust. Þetta kemur fram í viðtali við Magnús Geir Þórð- arson þjóðleikhússtjóra í blaðinu í dag. Sýnt verður í hádeginu fjóra virka daga vikunnar og Þjóðleikhúsið auglýsir nú eftir nýjum íslenskum leikritum til sýningar í hádegisleikhúsinu. Magnús greinir einnig frá nýju samstarfsverkefni Þjóðleikhússins og RÚV, Sunnudags- leikhúsi hjá RÚV. »28 Hádegis- og sunnudagsleikhús meðal nýjunga á næsta leikári FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 100. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. „Ég held að lífið hérna sé svipað og hjá flestum öðrum um þessar mundir. Varðandi fótboltann þá megum við æfa fimm saman í einu. Þá eru gjarnan fimm leikmenn á einum vallarhelmingi og fimm á öðrum. Þjálfararnir standa fyrir utan völlinn. Tveggja metra reglan er svo í gildi og menn reyna að halda sér í formi á einhvern hátt,“ sagði Matthías Vilhjálmsson, knattspyrnumaður hjá Vålerenga í Noregi, þegar Morgunblaðið tók hann tali. Búið er að fresta noska fótboltanum, eins og nán- ast öllum fótbolta í Evrópu. » 27 Mega æfa fimm saman í einu hjá Vålerenga í norska fótboltanum ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Kirkjusókn hefur gjarnan verið mikil um páska og verða kirkjur nú opnar á hefðbundnum tíma, en vegna sam- göngubannsins verða messur eðli- lega fámennari en áður. Prestar bjóða upp á sálgæslu, en lítið hefur verið sótt til þeirra eftir að bannið var sett á, að sögn sr. Skúla Sigurðar Ólafs- sonar, sóknar- prests í Nes- kirkju. Mat presta sé að mik- ill erill verði í sál- gæslu eftir páska og eftir að bann- inu verði aflétt. Safnaðarstarfið er ekki svipur hjá sjón þessa dagana. Engu að síður reyna trúfélög að bregðast við. Þjóð- kirkjan kemur til landsmanna með ýmsum hætti og fólki gefst kostur á að sækja kirkju þar sem prestar og djáknar eru til staðar. Þá hafa söfn- uðir sent út efni á netinu, hugvekjur, barnaefni og fleira sem almenningur getur nálgast. „Prestar eru alltaf til reiðu þegar kemur að sálgæslu,“ segir Skúli. Hann bætir við að talsverður munur sé þó á milli landsvæða. „Þar sem ég þjónaði í Keflavík og á Ísafirði má segja að vaktin hafi alltaf verið í gangi en hér í Reykjavík er venjan sú að prestar á stofnunum taki við mál- um sem þar koma upp, ef þau eru ut- an vökutíma. Þetta er þó að ein- hverju leyti ólíkt eftir sóknum og hverfum hér á höfuðborgarsvæðinu.“ Kórónuveiran hefur haft bein áhrif á Skúla, en hann er nýstiginn úr sóttkví. Hann segist hafa heyrt á starfssystkinum sínum að þau hafi sinnt sálgæslu, meðal annars í gegn- um síma eða aðra miðla. Prestar skipti einnig með sér vöktum hvað varðar útfarir og sú þjónusta tengist einnig sálgæslu. „Sjálfur er ég með fáein viðtöl bókuð en fólk heldur að sér höndum og bíður átekta,“ segir hann. Trúnaðarsamtal „Sálgæsla er virk hlustun þar sem prestur eða annar sem miðlar henni hlýðir á það sem hvílir á fólki,“ út- skýrir Skúli. „Við leggjum áherslu á að við beitum ekki klínískum aðferð- um og tökum ekki hjá okkur nótur eða aðra minnispunkta. Þetta er trúnaðarsamtal og ef fólk vill getum við hvílt áhyggjur okkar í bæn.“ Neskirkja verður opin í kvöld, á morgun og páskadagsmorgun. „Við reiknum með sárafáum og í raun má ekki bjóða fleirum en 20 í kirkjuna,“ bendir Skúli á. „Þetta eru stundir þar sem fólk getur komið, hlýtt á fallega tónlist leikna á orgelið og kveikt á bænakertum. Hugvekjur sendum við svo út á messutíma á netinu.“ Skúli áréttar að samkomubannið lami kirkjustarf og fermingarnar, sem áttu að fara fram í vor, verði til dæmis að bíða til hausts. „Það er ægi- legur söknuður að hefðbundnu helgi- haldi að fermingarmessum ógleymd- um. Þær eru hluti af því sem við getum kallað hápunkt vetrarins og börnin eru hinir sönnu vorboðar. En við verðum að una við þetta ástand eins og aðrir, hlýða Víði. Ekki kemur annað til greina í þeirri von að milda megi áfallið af þessum faraldri.“ Þegar allt verður komið í samt lag verður fögnuður í kirkjunni. „Þá hringjum við kirkjuklukkum eins og hefur tíðkast að gera á sigur- stundum!“ segir Skúli. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Kirkjan Skúli Ólafsson, sóknarprestur í Neskirkju, segir presta telja að mikill erill verði í sálgæslu eftir páska. Prestar alltaf til reiðu  Kirkjuklukkum verður hringt í lok veirufaraldurs

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.