Morgunblaðið - 28.04.2020, Page 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 2020
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Iðnaðarmenn
Málarar.
Tökum að okkur alla almenna
málningarvinnu, mjög sangjarnir
í verðum.
Upplýsingar í síma 782-4540 eða
loggildurmalari@gmail.com
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Eurotec A4 harðviðarskrúfur.
Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
ÚTBOÐ
ÓLAFSBRAUT 62-64
Verkís hf., fyrir hönd Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga,
óskar eftir tilboðum í framkvæmdir vegna bygg ingar á 5
íbúða, ásamt starfsmannaaðstöðu, búsetu þjónustukjarna
fatlaðs fólks við Ólafsbraut 62-64, Ólafsvík.
Verkið nær til fullnaðarfrágangs alls verksins. Verktaki skal
steypa grunn, reisa hús, innrétta, ganga frá utanhúss sem
og innan og fullgera húsið samkvæmt útboðs gögnum.
Nokkrar magntölur:
Flatarmál húss: 441 m2 1370 m3
Þak og botnplata 357 m3
Verktaki tekur við byggingarsvæði í núverandi ástandi.
Búið er að fylla undir undirstöður, fylla í bílastæði og girða
athafnarsvæði og setja upp hlið inn á vinnusvæðið.
Verklok á heildarverki eru 30. ágúst 2021, útboðsgögn
verða afhent á stafrænu formi með því að senda tölvupóst
á netfangið anmt@verkis.is þar sem fram kemur heiti
verks, nafn bjóðanda, netfang og símanúmer tengiliðs
bjóðanda.
Tilboðum skal skila rafrænt á netfangið anmt@verkis.is
fyrir kl.13.00, 11. maí 2020. Tilboð verða opnuð á fjarfundi
kl. 13.30, 11. maí 2020.
Raðauglýsingar
Tilkynningar
Mat á umhverfisáhrifum
Álit Skipulagsstofnunar
Suðurnesjalína 2
Skipulagsstofnun hefur gefið álit sitt um mat á umhverfisáhrifum sam-
kvæmt lögum nr. 106/2000. Álitið liggur frammi hjá Skipulagsstofnun,
Borgartúni 7b, Reykjavík. Álitið og matsskýrslu Landsnets er einnig að
finna á vef stofnunarinnar www.skipulag.is.
Félagsstarf eldri borgara
Seltjarnarnes Enn liggur alt félags og tómstundastarf niðri vegna
covid19. Nú bíðum við eftir fréttum af tilslökunum sem gerðar verða
4. maí en við vitum að þær koma hægt og í litlum skrefum. En við
reynum að nýta veðrið til útiveru og vonumst eftir að geta svo aðeins
farið að hittast fljótlega.
Tilboð/útboð
✝ RagnheiðurMargrét Jó-
hannesdóttir fædd-
ist 18.11. 1946 og
lést 11.4. 2020 í
Borgarnesi. Ragn-
heiður var dóttir
Gyðu Magn-
úsdóttur og Jó-
hannesar Árnason-
ar, en Kristján
Björn Bjarnason,
eiginmaður Gyðu,
gekk Ragnheiði í föðurstað.
Ragnheiður var elst af fjórum
systkinum. Þau eru Valgerður
S. Kristjánsdóttir, f. 27 júní
1952, lést 5. júlí 1994, Guðrún
Kristjánsdóttir og Magnús
ist Ragnheiður Ágústi Hjalta
Sigurjónssyni og eiga þau sam-
an tvær dætur, þær Kristínu
Magdalenu Ágústsdóttur, sem
var gift Úlfari Guðbrandssyni.
Eiga þau saman fimm börn
sem eru Jón Gunnar Úlfarsson,
kona hans er Hafdís Lára Hall-
dórsdóttir, börn þeirra eru
Kristófer Úlfar Jónsson, Bryn-
dís Arna Jónsdóttir, þá eru það
Ágúst Guðmann Úlfarsson,
Guðbrandur Örn Úlfarsson,
Sigurjón Ragnar Úlfarsson,
Magdalena Þöll Úlfarsdóttir.
Seinni dóttir Ragnheiðar og
Ágústs er Gyða Björk Ágústs-
dóttir sem á börnin Baldvin
Orra Einarsson og Kristmund
Andra Einarsson með Einari
Sigríkssyni. Hún á einnig
Ragnheiði Árnýju Árnadóttur,
faðir hennar var Árni Ragnar
Árnason, fæddur 7.9. 1972, lést
21.5. 2009.
Útförin fór fram í kyrrþey.
Ólafur Krist-
jánsson. Árið 1966
kynnist Ragnheið-
ur Vali Gunnlaugs-
syni og eignast
þau soninn Hinrik
Norðfjörð Valsson.
Fyrrverandi kona
hans er Guðrún E.
Victorsdóttir. Barn
þeirra er Sara
Margrét Hinriks-
dóttir, maki Sig-
urður Friðrik Ólafsson, barn
þeirra Andrea Emma Sigurð-
ardóttir. Sambýliskona Hinriks
er Daníela Björgvinsdóttir.
Eiga þau saman Walter Björg-
vin Hinriksson. Árið 1971 gift-
Elsku hjartans Ranka okkar,
við vitum ekki alveg hvar við eig-
um að byrja. Okkur finnst svo
skrítið og óraunverulegt að þú
sért bara farin frá okkur, en get-
um huggað okkur við það að þú
finnur ekki lengur til. Hvernig þú
tókst á við veikindin og alla aðra
erfiðleika sem þú þurftir að ganga
í gegnum er aðdáunarvert. Þú
kvartaðir aldrei. Alltaf þegar þú
varst spurð hvernig þú hefðir það
eða hvernig þér liði þá var alltaf
svarið: „Ég er bara góð.“ „Ég hef
það bara fínt.“ „Það er ekkert að
mér.“ Það var alltaf einhver annar
sem hafði það verra en þú.
Þú varst okkur svo miklu
miklu meira en móðursystir. Þú
tókst okkur systrum opnum
örmum eftir að mamma okkar
lést árið 1994. Þú varst okkar
stoð og stytta út lífið. Þú gerðir
engan greinarmun á okkur og
þínum eigin börnum, Hinna,
Stínu og Gyðu Björk, hvað ást
og umhyggju varðar. Börnin
okkar voru líka barnabörnin þín
og kölluðu þig aldrei neitt annað
en ömmu. Þú varst stolt af þeim
öllum enda talaðir þú alltaf um
að eiga 17 barnabörn og fjögur
langömmubörn. Við erum þér
endalaust þakklát fyrir það sem
þú varst okkur. Takk fyrir að
hlusta og styðja okkur í gegnum
súrt og sætt.
Þið mamma voruð alltaf svo
samrýndar systur og eru flestar
okkar æskuminningar um ykkur
að gera eitthvað með okkur,
hvort sem það voru rúntarnir til
að skoða gardínur, fara eitthvað
til að villast eða grilla klukkan
eitt á laugardagskvöldi því það
var grillauglýsing í sjónvarpinu.
Það var alltaf líf og fjör í Garða-
víkinni.
Það voru allir jafnir í þínum
augum og þú tókst öllum opnum
örmum óháð stétt eða stöðu. Þú
varst alltaf boðin og búin að
hjálpa öllum sem þurftu á því að
halda. Allar ferðirnar sem þú
tókst Ingigerði Sólveigu og
Daníel Trausta með þér austur á
Flúðir til Stínu. Þar voru allir
velkomnir, enda nóg pláss og oft
margt um manninn. Þau eiga
ómetanlegar minningar þaðan.
Nú verða ekki fleiri skottúrar í
heimsókn til Rönku ömmu sem
framlengdust yfir matartíma því
boðið var upp á uppáhaldsmat
Lovísu og Alexanders. Síðan
þurftum við aðeins að jafna okk-
ur yfir sjónvarpinu, sem endaði
að sjálfsögðu með gistingu, því
enginn vildi fara heim því það
var svo notalegt hjá þér. Þú
komst á alla viðburði sem voru
hjá krökkunum í skóla og leik-
skóla. Það var alltaf hægt að
treysta á þig.
Næstu jól verða eitthvað tóm-
leg á Presthúsabrautinni þar
sem þú verður ekki hjá okkur á
aðfangadag eins og undanfarin
ár. Það verða heldur engar fleiri
Svíþjóðarferðir. Það var svo gott
að hafa þig og fannst okkur það
vera mikil forréttindi. Við mun-
um alltaf hafa og varðveita allar
minningarnar um þig sem ein-
kennast af gleði, hlýju og um-
hyggju. Þín verður sárt saknað,
þú varst límið sem hélt okkur
öllum saman.
Elsku Hinni, Stína, Gyða
Björk og fjölskyldur, megi Guð
styrkja ykkur í sorginni. Missir
ykkar er mikill.
Gyða Margrét, Sigrún
Íris, Kristjana Ósk
og fjölskyldur.
Ragnheiður Mar-
grét Jóhannesdóttir
✝ María Helga-dóttir fæddist
12. ágúst 1930 í
Keflavík. Hún lést á
hjúkrunarheim-
ilinu Droplaugar-
stöðum 18. apríl
2020.
Foreldrar henn-
ar voru Helgi Guð-
mundsson læknir, f.
3.8. 1891, d. 29.4.
1949, og Sigur-
björg Hulda Matthíasdóttir
hjúkrunarkona, f. 14.9. 1891, d.
8.8. 1968. Þeirra börn átta sem
lifðu eru: Guðmundur, f. 11.10.
1919, d. 14.11. 1984, Matthías, f.
12.4. 1921, d. 9.2. 1986, Haukur,
f. 25.10. 1922, d. 15.10. 1990,
Ólafur, f. 12.8. 1924, d. 29.6.
Fríða, f. 1994, og Jara Birna, f.
1999. 2) Stefán, f. 27.5. 1954,
kvæntur Sólveigu Hjördísi Jóns-
dóttur, börn þeirra eru Jón
Hjörleifur, f. 1981, María Hrund,
f. 1983, og Stefán Rafn, f. 1985.
3) Ragnheiður, f. 2.7. 1958, dótt-
ir hennar er Elsa Dagmar, f.
1985. 4) Anna Guðfinna, f. 6.1.
1964, gift Sigurði Sveini Jóns-
syni, synir þeirra eru Dagur, f.
1990, Hávar, f. 1995, og Stígur,
f. 2004. Langömmubörnin eru
tíu og eitt langalangömmubarn.
María giftist árið 1949 Stefáni
Ágústi Júlíussyni. Þau voru
meðal frumbyggja í Smáíbúða-
hverfinu og bjuggu nánast allan
sinn búskap á Sogavegi 202. Eft-
ir lát eiginmanns síns bjó María í
Miðleiti 8 þar til hún fór á hjúkr-
unarheimilið Droplaugarstaði
fyrir um fimm árum.
Útför Maríu fór fram í kyrr-
þey 24. apríl 2020.
2002, Ragnheiður,
f. 7.9. 1927, d.
26.10. 1943, Guðrún
Jóhanna, f. 7.9.
1927, María sem
hér er kvödd og
Sigurlaug, f. 6.8.
1936, d. 27.4. 1985.
María giftist
Stefáni Ágústi Júl-
íussyni, f. 22.3.
1922, d. 16.2. 1996.
Þau eignuðust fjög-
ur börn, þau eru: 1) Þorkell, f.
7.10. 1948, d. 25.3. 2006, dóttir
hans og Ásu Þ. Matthíasdóttur
er Steinunn, f. 1969, synir hans
og Berit Holthe eru Andrés, f.
1977, og Ágúst, f. 1979, dætur
hans og Kolbrúnar Önnu Jóns-
dóttur eru Nína Hjördís, f. 1989,
Ástkær móðir mín hefur kvatt
þessa jarðvist á nítugasta aldurs-
ári. Samleið okkar mömmu nær
yfir rúm sextíu ár og margs er að
minnast. Upp í hugann koma
mörg minningabrot.
Mamma að signa mig klæðandi
mig í nærbolinn eftir bað,
mamma að minna mig á hrein-
læti, mamma að sinna mér af ein-
stakri alúð í veikindum, leggjandi
kalda bakstra á heitt enni.
Mamma að steikja bestu læris-
sneiðar í heimi, mamma að elda
lambahrygg á sunnudagsmorgni.
Mamma að tala í síma hlæjandi
sínum dillandi hlátri. Mamma
snillingur í að halda mörgum
boltum á lofti í einu í útileik með
mér og vinkonum mínum,
mamma alltaf kvikk og liðug.
Mamma að fara að sofa með rúll-
ur og slæðu, umhugað um útlitið.
Mamma að strauja allt, líka hand-
klæði og viskustykki . Mamma að
sauma upp úr Burdablöðum á
okkur systkinin, mamma í ak-
korði að stytta buxur á bræður
mína sem þurftu þær alltaf á síð-
ustu stundu, mamma að breyta
heima: færa veggi, mála, færa til
húsgögn. Mamma ein að reita ill-
gresi og raka möl í botnlanganum
heima á hverju vori fyrir alla
íbúana. Mamma að gantast með
bræðrum sínum þegar þeir komu
í heimsókn á Sogaveginn.
Mamma að veiða með pabba; í
vöðlunum með kaffibollann og
veiðistöngina og bíðandi þolin-
móð eftir að biti á. Mamma að fá
viðurkenningu á Íslandsmóti fyr-
ir flugukast kvenna. Mamma í
sumarbústaðnum við Meðalfells-
vatn að hella upp á kaffi fyrir
næstu veiðiferðina út að vatni
með pabba. Sumarbústaðurinn
og veiðiskapurinn þeirra líf og
yndi.
Ógleymanlega veiðiferðin í
Reykhólasveitina með mömmu
og pabba, bræðrum mömmu og
þeirra fjölskyldum, ferð sem varð
uppspretta óteljandi veiðisagna
og brandara næstu áratugina.
Mamma hrókur alls fagnaðar á
mannamótum, mamma að segja
sögur og brandara.
Mamma með mér á ferðalög-
um eftir að pabbi dó, tvær saman
til Flórída, Portúgal, Spánar,
Englands og Kýpur. Mamma að
njóta þessara ferða. Mamma að
hringja í mig hlæjandi sínum
smitandi hlátri og ég byrja strax
að hlæja með. Svo kom sagan eða
brandarinn eftir dágóða stund.
Mamma að segja mér að klæðast
aldrei rauðu og passa vel að verða
aldrei kalt.
Þetta eru eingöngu nokkur
minningabrot, þau eru auðvitað
ótalmörg. Ef eitthvað stendur
upp úr er það hve mamma var
glaðvær og góð kona og gædd
miklum húmor sem hún hélt alla
tíð, meira að segja eftir að hún
greindist með Alzheimer. Nokkr-
um mánuðum fyrir andlát henn-
ar, þegar sjúkdómurinn var far-
inn að svipta hana minninu æ
meir og hún rétt svo þekkti mig,
þá sat ég hjá henni og minnti á að
ég væri jú víst orðin 61 árs. Þá
segir mamma hratt og skýrt: „Í
guðanna bænum vertu ekki að
segja nokkrum manni frá þessu.“
Elsku besta fallega mamma
mín. Takk fyrir allt sem þú veittir
mér.
Guð geymi þig og pabba sem
nú hvílið hlið við hlið.
Þín elskandi dóttir
Ragnheiður.
María Helgadóttir er látin,
tæplega níræð að aldri. María
hefur dvalist á Droplaugarstöð-
um undanfarin ár. Þannig vildi til
að móðir mín bjó þar líka síðustu
mánuðina sína. Þarna voru þær
báðar ömmur dætra minna, sátu
saman til borðs, en grimmur
sjúkdómur varð þess valdandi að
þær þekktu ekki hvor aðra.
María var fædd og uppalin í
Keflavík á stóru heimili foreldra
sinna, læknisins Helga og Huldu
sem var hjúkrunarkona. Ætla má
að mikið hafi mætt á heimilinu
þegar slys og veikindi steðjuðu
að. Ég hef heyrt að heimilið hafi
nánast breyst í sjúkrahús þegar
samkomuhúsið Skjöldur varð eldi
að bráð í lok desember 1935. Síð-
ar herjuðu berklar á fjölskyld-
una. Heimilisfaðirinn og ein syst-
irin lutu í lægra haldi fyrir þeim
sjúkdómi.
Ung kynntist María Stefáni
Ágústi Júlíussyni, sem ætíð var
kallaður Gústi. Hún var aðeins
átján ára þegar hún eignaðist sitt
fyrsta barn, Þorkel, sem síðar
varð eiginmaður minn. Börnin
komu svo á fimm ára fresti, Stef-
án, Ragnheiður og Anna Guð-
finna.
Þegar ég kom inn í fjölskyld-
una voru öll börnin vaxin úr grasi,
en ætíð var líflegt á Sogavegin-
um, þar sem Gústi og Mússa, eins
og hún var stundum kölluð, áttu
sitt heimili lengst af.
María var einstaklega glaðvær
kona og hláturmild. Ég held að ég
hafi aldrei fengið að heyra brand-
arann um korktappann, sem hún
var alltaf að reyna að segja, því
hún hló alltaf svo mikið sjálf, að
hún gat ekki klárað söguna! Hún
var hvatvís og gjafmild. Þegar ég
minntist á að mér þætti mynd
uppi á vegg hjá henni falleg, reif
hún myndina umsvifalaust af
naglanum og gaf mér hana. Einn
föstudagsmorgun, fyrir margt
löngu, sá María auglýst litasjón-
varpstæki í Morgunblaðinu. Hún
varð að fá svona sjónvarp strax.
Einhvern hefur hún sennilega
fengið til að skutla sér í búðina,
tækið var keypt og tengt inni í
stofu. Gústa varð heldur hverft
við þegar Prúðuleikararnir birt-
ust allt í einu í öllum regnbogans
litum á skjánum eftir svarthvítar
fréttir RÚV. Hann hafði ekkert
tekið eftir því að hann væri að
horfa á nýtt sjónvarp. Gústi var
rólegur og traustur maður. Þau
voru yin og yang, svo ólík, en
samt órofa heild.
María var litríkur karakter,
það gustaði af henni. Hún var
alltaf vel tilhöfð, sagði mér eitt
sinn þegar hún bjó í Miðleitinu að
hún færi aldrei út með ruslið
nema mála sig fyrst. Hún gæti jú
hitt einhvern á leiðinni!
María og Gústi áttu lengi at-
hvarf í sumarhúsi við Meðalfells-
vatn. Þau dvöldu þar löngum
stundum og laxveiði í vatninu átti
hug þeirra allan. María var hin
mesta veiðikló. Oft tók hún líka
góðar ljósmyndir í sveitinni, hún
hafði næmt, listrænt auga.
Nú er þessi góða kona farin.
Ég þakka henni samfylgdina og
leyfi mér að vona að einhvers
staðar á góðum stað standi þau
Gústi og Þorkell á fallegum ár-
bakka og renni fyrir lax.
Kolbrún Anna Jónsdóttir.
María Helgadóttir