Morgunblaðið - 28.04.2020, Qupperneq 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 2020
28. apríl 1968
Karlalandsliðið í handknatt-
leik fær óvæntan skell, 29:17,
gegn Spánverj-
um í vináttu-
landsleik í Ali-
cante. Leikurinn
fer fram við að-
stæður sem
koma íslenska
liðinu í opna
skjöldu en
leikið er utanhúss í 25 stiga
hita. Sigurður Einarsson er
markahæstur í íslenska liðinu
með fimm mörk en Ingólfur
Óskarsson og Gísli Blöndal
skora þrjú mörk hvor.
28. apríl 1984
Oddur Sigurðsson setur nýtt
Íslandsmet í 400 metra hlaupi
karla og nær
þriðja besta
árangri Norð-
urlandabúa í
greininni frá
upphafi þegar
hann hleypur
vegalengdina á
45,69 sekúndum á móti í Des
Moines í Bandaríkjunum þar
sem hann hafnar í þriðja sæti.
Oddur átti fyrra metið, 46,49
sekúndur, en með þessu nær
hann bæði lágmarki inn á
bandaríska háskólameistara-
mótið og ólympíulágmarki, og
er því á leið á sína aðra Ól-
ympíuleika um sumarið.
28. apríl 1992
„Nú hætti ég í stelpunum og
sný mér að strákunum,“ segir
Gústaf Adolf Björnsson, þjálf-
ari kvennaliðs Víkings í hand-
knattleik, við Morgunblaðið
eftir að lið hans tryggir sér Ís-
landsmeistaratitilinn með
sigri í oddaleik gegn Stjörn-
unni á útivelli, 24:21. Gústaf
snýr þar með til starfa hjá
Knattspyrnusambandi Íslands
þar sem hann hefur verið ráð-
inn aðstoðarþjálfari Ásgeirs
Elíassonar, þjálfara karla-
landsliðsins.
28. apríl 1999
Íslenska karlalandsliðið í
knattspyrnu leikur sinn tíunda
leik í röð án
taps undir
stjórn Guðjóns
Þórðarsonar
þegar það sigr-
ar Möltu 2:1 í
vináttulands-
leik á útivelli.
Þórður Guðjónsson skorar
fyrsta mark leiksins og sig-
urmarkið skorar Ríkharður
Daðason með skalla eftir fyr-
irgjöf Hermanns Hreið-
arssonar.
28. apríl 2004
Lettland og Ísland gera
markalaust jafntefli í vin-
áttulandsleik karla í knatt-
spyrnu í Riga en úrslitin þykja
góð fyrir íslenska liðið þar
sem Lettar höfðu komið gríð-
arlega á óvart og voru á leið í
lokakeppni EM 2004 í Portú-
gal. Árni Gautur Arason
markvörður er í aðalhlutverki
og ver tvívegis meistaralega í
leiknum.
28. apríl 2013
Grindvíkingar tryggja sér Ís-
landsmeistaratitil karla í
körfuknattleik annað árið í
röð með því að sigra Stjörn-
una, 79:74, í oddaleik liðanna
um titilinn á heimavelli sínum
í Grindavík. Aaron Broussard
með 25 stig, Samuel Zeglinski
með 21 og Sigurður Gunnar
Þorsteinsson með 12 stig og 11
fráköst eru í aðalhlutverki hjá
Íslandsmeisturunum.
Á ÞESSUM DEGI
DANMÖRK
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Thea Imani Sturludóttir, landsliðs-
kona í handknattleik, leikur með
danska úrvalsdeildarliðinu Aarhus
frá og með næsta tímabili. Thea,
sem er 23 ára, kemur til félagsins frá
Oppsal í Noregi, þar sem hún lék
eitt tímabil í efstu deild. „Ég heyrði
fyrst í þeim fyrir áramót. Þjálfarinn
hefur fylgst með mér í gegnum fer-
ilinn og vissi af mér. Hann ákvað að
heyra í mér og snemma á þessu ári
heimsótti ég félagið og leist vel á. Ég
skrifaði undir samninginn fyrir
nokkru,“ sagði Thea í samtali við
Morgunblaðið.
Fékk meðmæli frá Birnu
Thea er spennt fyrir komandi tím-
um hjá nýju félagi, í nýju landi og
nýrri deild. Segir hún aðstæður í
Aarhus vera býsna góðar og þá fékk
hún meðmæli frá Birnu Berg Har-
aldsdóttur, liðsfélaga sínum í lands-
liðinu. „Það var allt saman mjög fag-
legt þarna. Þjálfarinn er reynslu-
mikill og ég fann að liðsandinn var
góður. Umgjörðin er góð og mjög
góð aðstæða fyrir styrktaræfingar.
Aarhus er líka flott borg og margir
Íslendingar búa þar. Birna hefur
spilað þarna líka og hún sagði að
þetta væri flott félag og gott fyrir
mig að taka þetta skref,“ sagði Thea
um sitt nýja félag.
„Akkúrat núna er ég að hugsa um
að bæta minn leik í handbolta og
verða betri og betri. Fyrst þegar þú
kemur inn í nýtt land og nýja deild
þarftu aðeins að venjast, en ég er
spennt að sjá hvað ég get lært á nýj-
um stað og hjá nýjum þjálfara,“
sagði Thea, en Heine Eriksen hefur
þjálfað Aarhus frá árinu 2017. Þá
hefur hann einnig þjálfað yngri
landslið Danmerkur.
Thea, sem lék með Fylki hér
heima, segir erfitt að bera norsku og
dönsku deildina saman, áður en hún
hefur spilað í þeirri dönsku. Reiknar
hún samt sem áður með að sú
danska sé aðeins sterkari. „Það er
erfitt að segja þegar ég hef ekki spil-
að sjálf í deildunum. Í norsku deild-
inni eru þrjú efstu liðin í sérflokki,
en þjálfarinn segir að það séu fleiri
sterkari lið í Danmörku og deildin sé
jafnari. Þetta eru svipað sterkar
deildir, en danska deildin kannski
aðeins sterkari,“ sagði Thea, sem
hefur skorað 54 mörk í 40 A-
landsleikjum.
Þriðja markahæst
Eftir tvö ár í norsku B-deildinni
með Volda ákvað hún að söðla um og
fara til Oppsal í efstu deild. Thea
spjaraði sig vel í efstu deild og skor-
aði 66 mörk í 19 leikjum og var
þriðja markahæst í sínu liði á tíma-
bilinu, áður en því var aflýst vegna
kórónuveirunnar.
„Mér fannst það ganga ágætlega.
Ég fór ekki inn í tímabilið með nein-
ar væntingar. Ég vissi hvað ég væri
að fara í á blaði, en ég var óviss
hvernig myndi ganga á vellinum.
Þetta var fínt fyrsta tímabil í efstu
deild. Maður vill samt alltaf gera
betur og það var leiðinlegt að enda
þetta svona og ekki ná að klára alla
leikina,“ sagði Thea en Oppsal var í
níunda sæti af tólf liðum þegar
keppni var hætt.
Vildi finna að ég væri tilbúin
Eins og áður segir spilaði Thea í
tvö ár með Volda í B-deildinni, þá
undir stjórn Halldórs Stefáns Har-
aldssonar. Hann þjálfaði hana sömu-
leiðis hjá Fylki. „Ég spilaði með
Volda í tvö ár og við vorum nálægt
því að fara upp í efstu deild, en það
gekk ekki alveg. Helsti munurinn á
deildunum er að það eru fleiri yngri
leikmenn í deildunum fyrir neðan og
færri leikmenn með reynslu. Leik-
mennirnir í efstu deildinni eru svo
líkamlega sterkari,“ sagði Thea.
Eftir góða spilamennsku með
Fylki í Olísdeildinni tímabilið 2016/
17 hélt Thea til Noregs og hitti þar
fyrir áðurnefndan Halldór Stefán.
Undir handleiðslu hans varð hún
betri leikmaður og tók að lokum
skrefið upp í efstu deild.
„Það var ekki endilega planað hjá
mér að taka þessu svona rólega,
heldur vildi ég finna það hjá mér að
ég væri tilbúin fyrir næsta skref.
Þegar ég var hjá Volda hjá Halla
fékk ég mjög góða þjálfun og þótt ég
væri ekki að spila á móti topp-
leikmönnum var ég á góðum stað.
Ég gat æft eins mikið og ég vildi og
gat stjórnað álaginu. Ég gat unnið í
mínum hlutum og orðið betri leik-
maður áður en ég fór í efstu deild og
þegar ég tók skrefið var ég til-
búnari.“
Getur verið hark
Thea er ánægð með samninginn
sem danska félagið bauð henni, en
það er ekki alltaf dans á rósum að
vera atvinnumaður í handknattleik í
kvennaflokki. Stefnir Thea á að
mennta sig samhliða boltanum
næsta vetur. „Þetta getur verið
hark, en það er misjafnt í kvenna-
handboltanum. Ég fékk fínan samn-
ing núna, en ég stefni samt sem áður
að því að byrja í skóla, en ég fæ ekki
að vita hvernig það fer strax. Staðan
er mjög mismunandi eftir löndum og
félögum. Oftast eru það bara efstu
og bestu félögin sem borga 100 pró-
sent atvinnumannalaun, en þetta er
mjög misjafnt,“ sagði Thea Imani
Sturludóttir.
Spennt að
sjá hvað ég
get lært
Thea Imani til Danmerkur frá Noregi
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Landsliðið Thea Imani Sturludóttir skorar gegn Frökkum síðasta haust en
hún hefur leikið 40 A-landsleiki og skorað í þeim 54 mörk.
Enska knattspyrnufélagið Liver-
pool hefur neyðst til að fresta
áformum um að stækka heimavöll-
inn sinn Anfield um tólf mánuði.
Ætlar félagið að stækka völlinn um
7.000 sæti. Mun Anfield þá rúma
61.000 áhorfendur, en nú er ljóst að
framkvæmdum lýkur ekki fyrr en í
fyrsta lagi sumarið 2023. „Við höf-
um þurft að glíma við nokkrar
frestanir vegna veirunnar,“ sagði
Andy Hughes, sem sér um fram-
kvæmdirnar fyrir hönd félagsins.
Áttu þær upprunalega að hefjast í
desember á þessu ári.
Stækkun á
Anfield frestað
AFP
Anfield Völlurinn rúmar áfram 54
þúsund manns næstu árin.
Forráðamenn félaga efstu deildar
Þýskalands í körfubolta hafa
ákveðið að klára tímabilið með tíu
liða úrslitakeppni. Liðunum tíu
verður skipt í tvo fimm liða riðla og
eftir riðlakeppnina fara fram átta
liða úrslit. Áætlað er að keppnin
taki um þrjár vikur og verður
keppt án áhorfenda. Allir leikir
fara fram á sama stað. Martin Her-
mannsson og samherjar hans í Alba
Berlín verða á meðal þátttakenda,
en liðið var í fjórða sæti og nýbúið
að tryggja sér bikarmeistaratitil
þegar hlé var gert á keppni.
Martin í tíu liða
úrslitakeppni
Ljósmynd/Euroleague
Berlín Martin Hermannsson er á
leiðinni í tíu liða úrslitakeppni.
Knattspyrnusamband Íslands hefur
sent stjórnvöldum áskorun um að
þau úrræði sem ætlað sé að létta
undir með fyrirtækjum og ein-
staklingum vegna heimsfaraldurs-
ins af völdum kórónuveirunnar nýt-
ist einnig íþróttahreyfingunni í
landinu.
Áskorunin er svohljóðandi:
„Búa þarf svo um hnúta að úr-
ræði stjórnvalda sem ætlað er að
létta undir með fyrirtækjum og ein-
staklingum vegna heimsfaraldurs
Covid-19 nýtist einnig íþróttahreyf-
ingunni í landinu. Ljóst er að óhjá-
kvæmilegar sóttvarnaaðgerðir
stjórnvalda vegna faraldursins, sem
leitt hefur til stöðvunar á allri
íþróttastarfsemi, hafa komið mjög
illa við knattspyrnu- og íþrótta-
hreyfinguna í heild sinni. Áhrifin
eru jafnt félagsleg sem fjárhagsleg.
Rétt er að minna á að íþrótta-
hreyfingin hefur á liðnum áratugum
lyft grettistaki hvað varðar holla
íþróttaiðkun ungs fólks og fyllt
þjóðina stolti yfir árangri afreks-
fólks á innlendum og erlendum
vettvangi. Þennan árangur er mik-
ilvægt að varðveita með öllum til-
tækum ráðum og búa í haginn fyrir
enn frekari sókn.
Brostnar forsendur knattspyrnu-
hreyfingarinnar þessa dagana er
krefjandi verkefni sem við tökumst
á við í sameiningu og reynum að
leysa eftir bestu getu samfélaginu
til heilla. Þegar faraldurinn braust
út var knattspyrnuhreyfingin, með
stórum hópi starfsmanna og sjálf-
boðaliða í stjórnum félaganna, í óða
önn að undirbúa komandi keppn-
istímabil.
Knattspyrnuhreyfingin horfir til
þess að aðgerðir ríkisstjórnar og
sveitarfélaga létti þeim róðurinn
þannig að lágmarka megi þann
skaða sem þegar er orðinn. Því
beinir stjórn KSÍ þeirri eindregnu
áskorun til stjórnvalda að tryggja
íþróttahreyfingunni öfluga við-
spyrnu á komandi vikum og mán-
uðum.
Gríðarlega mikilvægt er að þau
úrræði sem stjórnvöld bjóða rekstr-
araðilum og einstaklingum nýtist
einnig íþróttahreyfingunni. Þessu
er mjög ábótavant í þeim úrræðum
stjórnvalda sem kynnt hafa verið til
þessa og úr því þarf nauðsynlega að
bæta. Til dæmis getur íþróttahreyf-
ingin ekki nýtt sér lokunarstyrki
þrátt fyrir að starfsemi á hennar
vegum hafi verið stöðvuð í þágu
sóttvarna. Eins nýtast launaúrræði
illa vegna fjölda hlutastarfa í hreyf-
ingunni, en þau úrræði geta ekki
nema um 30% starfsfólks knatt-
spyrnuhreyfingarinnar nýtt sér.
Með betrumbótum á þessum úr-
ræðum ásamt öðrum aðgerðum
myndi rekstrarumhverfi íþrótta-
félaganna verða betra og félögin,
sem ekki eru rekin í hagnaðarskyni,
geta frekar sinnt sínu mikilvæga
samfélagslega hlutverki.“
Skora á stjórnvöld að sinna íþróttahreyfingunni