Morgunblaðið - 28.04.2020, Side 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 2020
Sem betur fer hefur ástandið
hér á landi batnað til muna síð-
ustu vikur. Allt horfir til betri
vegar og leyfir maður sér því að
vera bjartsýnn á að Íslandsmótið
í fótbolta geti hafist í júní.
Knattspyrnusamband Ís-
lands stefnir að því að hefja Ís-
landsmótið föstudagskvöldið 13.
júní, hálfum öðrum mánuði eftir
að það átti upphaflega að fara í
gang. Eins og staðan er í sam-
félaginu í dag hljóta líkurnar á að
það gangi upp að vera góðar.
Þá geta stærstu mót yngri
flokka vonandi farið fram sömu-
leiðis. Ég fór á sínum tíma á tvö
Shellmót í Vestmannaeyjum og
tvö Essomót á Akureyri. Ég verð
seint sakaður um mikla hæfileika
á knattspyrnuvellinum og var því
oftar en ekki í D-liði. Þrátt fyrir
það eru þetta með betri æsku-
minningum sem ég á.
Það er stórkostleg skemmtun
fyrir ungt knattspyrnufólk að
fara á þessi mót og vonandi
verður möguleiki á að halda þau í
sumar.
Fyrra Shellmótið sem ég
fór á var árið 2000. Landsliðs-
maðurinn Kolbeinn Sigþórsson
varð markahæstur allra á mótinu
með 25 mörk. Atli Sigurjónsson,
núverandi leikmaður KR, vann
skalla á milli keppni og Trausti
Sigurbjörnsson, sem á 20 leiki í
efstu deild með Þrótti og ÍA,
vann kappátið!
Ég sjálfur skoraði tvö mörk á
mótinu og ég man enn þá eftir
þeim eins og þau hefðu gerst í
gær. Ég var mættur á fjær eins
og Tryggvi Guðmundsson og
kláraði ótrúlega vel. Þessi mót
skapa minningar sem aldrei
gleymast, hvort sem þú skoraðir
25 mörk og spilar með landslið-
inu, eða einu tvö mörkin þín á
stuttum og misheppnuðum ferli.
BAKVÖRÐUR
Jóhann Ingi
Hafþórsson
johanningi@mbl.is
HANDBOLTI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
„Við höfum bara verið að ræða sam-
an um framhaldið og höfum horft að-
eins fram í tímann,“ segir Guð-
mundur B. Ólafsson, formaður
Handknattleikssambands Íslands,
spurður um viðræður við landsliðs-
þjálfarann Guð-
mund Þ. Guð-
mundsson.
Þjálfarinn gat
þess í samtali við
RÚV um helgina
að hann hefði
rætt við HSÍ um
áframhaldandi
samstarf.
„Það má alveg
segja að áhugi sé
hjá báðum aðilum
að halda þessu áfram en ekki er kom-
in nein niðurstaða. Guðmundur er
með samning til júní 2021 og því er
rúmt ár eftir. Tíminn er hins vegar
fljótur að líða og næsta mót er HM í
janúar en við vitum hins vegar ekki
hvenær leikir í undankeppni EM fara
fram.“
Þjálfar einnig í Þýskalandi
Landsliðsþjálfarinn er einnig þjálf-
ari Melsungen í Þýskalandi en sú
staða var ekki uppi þegar hann var
ráðinn síðast til HSÍ. Hafa stjórn-
armenn í HSÍ einhverja skoðun á því
hvort landsliðsþjálfarinn skuli vera í
öðru þjálfarastarfi eða ekki?
„Guðmundur tók starfið í Þýska-
landi að sér með okkar samþykki og
við vorum því alveg upplýst um það.
Við teljum ekki að starf hans hjá
Melsungen rekist á við okkar verk-
efni. Við þetta eru bæði kostir og
gallar og er alltaf matsatriði á hverj-
um tíma,“ segir Guðmundur B. og
þessi vinkill á málinu hefur verið til
umræðu.
„Gátum átt von á þessu“
Síðasta föstudag voru teknar
ákvarðanir hjá Handknattleiks-
sambandi Evrópu um næstu skref
vegna kórónuveirunnar. Undan-
keppnum hjá A-landsliðunum var til
að mynda aflýst sem og tveimur Evr-
ópukeppnum félagsliða sem gerði það
að verkum að Valsmenn ljúka ekki
Áskorendabikar Evrópu. Var eitt-
hvað í þessari ákvörðun EHF sem
kom Guðmundi formanni á óvart?
„Maður vissi ekki neitt fyrir fram.
Við höfðum aðeins velt þessu fyrir
okkur og maður sá ekki ganga upp
hvernig búa ætti til landsliðsviku í
haust, með hliðsjón af stóru deild-
unum í Evrópu. Sem dæmi þá er
mjög þétt spilað í Þýskalandi. Niður-
staðan kom manni ekkert rosalega á
óvart þótt maður hafi ekki spáð þessu
fyrir fram. Þetta var niðurstaða sem
við gátum alveg átt von á. Að karlalið-
ið sé komið inn á HM er alveg frá-
bært. Við vonum bara að veiran verði
yfirstaðin en erfitt er að segja til um
hvernig þau mál þróast í Afríku eins
og annars staðar. Þar af leiðandi á
eftir að koma í ljós hvort undirbún-
ingur liðsins raskast eða ekki. En það
er ekki hægt að neita því að það er
þægileg staða fyrir okkur að vera
komnir áfram.“
Reksturinn er erfiður
Hvernig skynjar Guðmundur and-
rúmsloftið í hreyfingunni um þessar
mundir? Hvernig gengur reksturinn
hjá handknattleiksdeildunum miðað
við þau samtöl sem hann hefur átt?
„Þetta var hrikalega erfiður tími
fyrir okkar íþrótt að hætta keppni.
Við vorum að sigla inn í hápunkt vetr-
arins hvað Íslandsmótið varðar og því
högg að hætta á þessum tímapunkti.
Akkúrat þegar spennan var að aukast
rétt fyrir úrslitakeppnina. Vissulega
voru þetta vonbrigði en allir virðast
taka þessu með ró og skilja forsend-
urnar sem búa að baki.
Ljóst er að reksturinn hjá deild-
unum er erfiður. Mér sýnist að menn
séu að skera niður eins og þeir geta.
Reynt er að gera reksturinn hag-
kvæmari. Ég skynja að félögin eru að
því núna og menn nýta tímann í það.
Reyndar held ég að það sé ekki bara
út af veirunni. Við þessar breytingar
fóru menn í ákveðna naflaskoðun.
Einkum í ljósi þess að búast má við að
tekjurnar verði minni fyrst efnahags-
lífið er að dragast saman. Óljóst er
hversu langan tíma það tekur fyrir
efnahagslífið í landinu að jafna sig,“
segir Guðmundur B. Ólafsson.
Áhugi hjá báðum aðilum
að starfa saman áfram
Óneitanlega þægilegt að vera komnir á HM, að sögn formanns HSÍ
Morgunblaðið/Einar Ragnar Haraldsson
EM 2020 Alexander Petersson gæti verið á leið á HM í janúar. Hann var í stóru hlutverki á EM í byrjun árs eftir að
Guðmundur landsliðsþjálfari fékk Alexander til að gefa kost á sér í íslenska landsliðið á nýjan leik.
Guðmundur B.
Ólafsson.
Leikmenn enska knattspyrnuliðsins
Arsenal fá að mæta á ný á æfinga-
svæði félagsins síðar í þessari viku
en með ströngum skilyrðum. Að-
eins fimm leikmenn mega mæta á
svæðið í einu og er skipt í hópa sem
æfa í klukkutíma hver fyrir sig.
Þeir einu sem fá að koma þangað
með þeim eru styrktar- og líkams-
þjálfarar. Knattspyrnumenn bíða
eins og aðrir eftir því að breska rík-
isstjórnin tilkynni um næstu skref í
mögulegri afléttingu samkomu-
banns. Von er á næstu fréttum í
þeim efnum 7. maí næstkomandi.
Leikmenn fá að
mæta á æfingar
AFP
Arsenal Leikmenn Arsenal mega
mæta á æfingasvæðið fljótlega.
Úrúgvæski knattspyrnumaðurinn
Edinson Cavani er ítrekað orðaður
við önnur félög en ljóst þykir að
hann yfirgefi París SG í sumar þeg-
ar samningur hans rennur út.
L’Equipe, franska íþrótta-
dagblaðið, segir mjög líklegt að
hann fari til Manchester United,
sem sé eitt af fáum félögum sem
hafi fjárhagslega burði til að fá
þennan 33 ára gamla sóknarmann í
sínar raðir. Cavani er að ljúka sínu
sjöunda tímabili með PSG þar sem
hann hefur skorað 138 mörk í 200
leikjum í frönsku 1. deildinni.
Cavani líklegast
til Manchester
AFP
Manchester Edinson Cavani er
orðaður við Manchester United.
Alþjóðaknattspyrnusambandið,
FIFA, ætlar að leggja til breytingu
til bráðabirgða á reglum um inná-
skiptingar leikmanna þegar fótbolt-
inn fer aftur í gang eftir hléið sem
staðið hefur yfir víðast hvar í nokkr-
ar vikur.
Lagt er til að hvert lið megi gera
fimm breytingar á liði sínu í hverj-
um leik, en það verði þó að gerast
með því að stöðva leikinn í mesta
lagi þrívegis á meðan hann er í
gangi til að forðast óþarfa tafir. Í
hálfleik má að sjálfsögðu gera allt að
fimm breytingar.
Tillagan er lögð fram á þeim for-
sendum að ljóst sé að leikmenn komi
beint úr löngu fríi frá fótboltanum
eftir stöðvunina af völdum kór-
ónuveirunnar og útlit sé fyrir að
leikið verði mjög þétt til þess að
hægt sé að ljúka tímabilinu á sem
skemmstum tíma. Þetta svigrúm
með skiptingar er því hugsað leik-
mönnunum til verndar gagnvart
álagsmeiðslum. Lagt er til að þessi
regla verði áfram í gildi tímabilið
2020-’21, sem og í landsleikjum til
ársloka 2021, enda stefnir í að leikja-
álagið verði áfram umtalsvert næstu
misserin.
International Football Association
Board, IFAB, verður að samþykkja
reglurnar en sú nefnd heldur utan
um knattspyrnulögin á heimsvísu og
fjallar um málið síðar í þessari viku.
FIFA vill heim-
ila fleiri inná-
skiptingar
Knattspyrnusamband Íslands fær
liðlega 4,3 milljónir evra, um 685
milljónir íslenskra króna, frá Knatt-
spyrnusambandi Evrópu, UEFA.
Sambandið úthlutar þeirri upphæð
til sinna fimmtíu og fimm aðildar-
ríkja. Samtals verður upphæðin um
37,5 milljarðar króna sem fara frá
UEFA til aðildarsambandanna.
Í ljósi þeirra áhrifa sem kórónu-
veiran hefur haft á knattspyrnu-
hreyfinguna í álfunni verður aðild-
arsamböndum eins og KSÍ í
sjálfsvald sett hvernig þau ráðstafa
þessu fé.
Í tilkynningu frá UEFA kemur
fram að knattspyrnuforystan í
hverju landi sé best til þess fallin að
meta hvar peningarnir koma að
bestum notum.
„Íþróttin stendur frammi fyrir áð-
ur óþekktum áskorunum vegna CO-
VID-19. UEFA vill aðstoða sín að-
ildarsambönd að bregðast við með
þeim hætti sem þau telja heppileg-
ast í samræmi við þær aðstæður sem
uppi eru hjá þeim.“
Upphæðin sem Evrópuþjóðirnar
fá bætist ofan á þá upphæð sem
FIFA lætur aðildarsamböndin fá. Í
þeim pakka á KSÍ von á tæplega 100
milljónum íslenskra króna eins og
fram kom hjá Mbl á dögunum. Sam-
bandið fær því hátt í 800 milljónir
sem ættu koma að góðum notum í
þessu árferði. kris@mbl.is
KSÍ fær 685 milljónir frá Knattspyrnusambandi Evrópu