Fréttablaðið - 27.08.2020, Side 2

Fréttablaðið - 27.08.2020, Side 2
Fyrst og fremst er þetta keimlíkt öðru félagsmiðstöðvastarfi. Eina sem er öðruvísi er að þarna er hinseginleikanum hamp- að. Áhugamál spyrja ekki um kynhneigð. Hrefna Þórarinsdóttir Veður Hæg vestlæg eða breytileg átt, en 5-10 m/s V-til á morgun. Skýjað að mestu á vestanverðu landinu og lítilsháttar væta á stöku stað. SJÁ SÍÐU 18 Síðustu dagar sumars SAMFÉLAG Hrefna Þórarinsdóttir, forstöðukona Hinsegin félagsmið- stöðvar Samtakanna ‘78 og Tjarnar- innar, opnaði félagsmiðstöðina á ný eftir sumarfrí á þriðjudag og komu 111 hinsegin ungmenni á fyrsta kvöldið. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan félagsmiðstöðin opn- aði fyrir fjórum árum. Nýlega fékk félagsmiðstöðin fjögurra milljóna króna styrk frá Reykjavíkurborg, en hún er opin öll þriðjudagskvöld frá kl. 19.30-22.00. Hrefna segir spenn- andi tíma fram undan. Stefnan er sett á að hafa starf fyrir 10-12 ára. „Við byrjuðum í september 2016 og það mættu um 15-20 krakkar á hverja opnun, það var opið einu sinni í viku. Á fyrstu opnun þessa skólaárs mættu 111 krakkar og mikil gleði, uppsöfnuð orka og væntumþykja sprakk hreinlega út. Þetta er því komið svolítið langa leið á þessum fjórum árum,“ segir Hrefna sem segir krakka í dag vera mun opnari með kynhneigð sína og þó einhver komi út úr skápnum sé næsta spurning hvað sé í hádegis- matinn eða hvort viðkomandi hafi séð nýjustu myndina á Netflix. „Það eru mörg börn sem eru að átta sig á sinni kynhneigð og sínu rétta kyni, sama hvað þau eru gömul. Það er svo geggjað að við séum komin á þann stað að þau geti áttað sig svona ung. Barn sem er 10-14 ára er farið að átta sig á því hver það er og er farið að mynda sína sjálfsmynd. Barnið er að breytast í fullmótaðan einstakling þó samkvæmt lögum sé það barn. Þetta er algengur aldur að fara að skoða og hugsa hvort það passi inn í það mót sem það fæddist inn í. Ég finn mikinn mun á þessum fjórum árum sem ég er búin að vera í þessu. Hvað þetta er orðið eðlilegt. Þetta er minna mál, sérstaklega fyrir krakkana, en ég held að þetta sé enn töluvert mál fyrir fullorðna. Að aðlagast einhverri hugmynd um einstakling sem stendur þeim nærri – allt í einu þarf að breyta þeirri mynd. Ég held að það sé vegna þess að fullorðnir séu ekki búnir að fá þá fræðslu sem unga fólkið hefur fengið og ekki höfðu fullorðnir int- ernetið þegar þeir voru að alast upp, eins og núna. Nú er hægt að nálgast alls konar fræðslu og upplýsingar bara með því að taka upp símann.“ „Við erum með verkefni í gangi sem heitir Hinsegin fyrirmyndir. Þar fáum við þekkt hinsegið fólk til að spjalla við krakkana. Við erum að halda hinsegin böll og aðra viðburði en fyrst og fremst er þetta keimlíkt öðru félagsmiðstöðvarstarfi. Eina sem er öðruvísi er að þarna er hin- seginleikanum hampað. Áhugamál spyrja ekki um kynhneigð. Núna erum við komin á þann stað að geta þróað starfið og gert það betra. Á aðeins nokkrum árum höfum við farið úr litlum 10-15 manna hittingi á Suðurgötu í 111 manna opið kvöld þar sem öll eru velkomin.“ benediktboas@frettabladid.is Starfið vaxið töluvert á síðustu fjórum árum Alls komu 111 hinsegin unglingar þegar félagsmiðstöð Samtakanna ‘78 opn- aði eftir sumarleyfi. Á fyrsta opnuninni fyrir fjórum árum komu 15-20. Félags- miðstöðin fékk nýlega fjárstyrk frá borginni og stefnir á starf fyrir 10-12 ára. Krakkar úr félagsmiðstöðinni slógu í gegn á hátíðardagskrá Hinsegin daga og fluttu siguratriði Skrekks frá síðasta ári í nýrri útgáfu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Viðmiðunarstundaskrá hefur verið óbreytt frá 2011. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR MENNTAMÁL Menntamálaráðu- neytið hefur kynnt drög að breyt- ingum á viðmiðunarstundaskrám grunnskóla. Er tilefni breytinganna viðvarandi slakur árangur íslenskra nemenda í íslensku og náttúrufræði í PISA-rannsókninni. Gert er ráð fyrir því að kennsla í íslensku á yngsta stigi grunnskóla aukist um tæplega 80 mínútur á viku og um tæplega klukkustund á viku á miðstigi. Þannig færi hlutfall íslensku á viðmiðunarstundaskrá í 21,5 prósent en í dag er það rétt rúm 18 prósent. Í drögum að breytingunum sem eru til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda kemur fram að grunn- skólar hafi svigrúm til að útfæra þessa aukningu. Hins vegar myndi svigrúm sem skólar hafa í dag til ráðstöfunar á tíma hjá yngsta stigi og miðstigi falla niður. Þá er gert ráð fyrir mikilli aukn- ingu í kennslu í náttúrufræði á ungl- ingastigi. Verður aukningin um 120 mínútur á viku og verður dregið úr vali nemenda sem því nemur. Með þessari aukningu færi hlutfall nátt- úrugreina í viðmiðunarstundaskrá úr 8,3 prósentum í 11 prósent. – sar Bregðast við PISA könnun Kennsla í íslensku og náttúrufræði verður aukin til að bregðast við slæmum árangri í PISA könnunum. Tímapantanir á opticalstudio.is og í síma 511 5800 SMÁRALIND • HAFNARTORG • KEFLAVÍK Sjónmælingar eru okkar fag FLUG Samkvæmt Ásgeiri Erlends- syni, upplýsingafulltrúa Land- helgisgæslunnar, er ekkert fast taxtagjald þegar þyrlurnar eru leigðar út. „Almennt sinnir Land- helgisgæslan ekki sérverkefnum en þegar svo ber við er samið sérstak- lega um þau út frá eðli og umfangi,“ segir Ásgeir. Gæslan hefur leigt út þyrlur til ýmissa verkefna, svo sem til að f lytja kvikmyndatökumenn, auð- uga ferðamenn og í ýmiss konar krókavinnu. Í frétt Vísis frá árinu 2018 sagði Georg Lárusson forstjóri að ferðamennirnir borguðu „ein- hverjar milljónir“, en vildi þó ekki nefna ákveðna tölu. Umræða um þyrluferð dóms- málaráðherra hefur farið hátt og erfitt hefur reynst að fá uppgefinn kostnað fyrir hverja flugstund. Ljóst er þó að kostnaðurinn er mikill. – khg Segja ekkert taxtagjald á þyrluútleigu Iðnaðarmenn hafa nýtt góðviðrisdagana undanfarið vel til útiviðgerða. Á Norðurbakka í Hafnarfirði var verið að dytta að nokkrum gluggum. En Adam var ekki lengi í Paradís og samkvæmt veðurspánni næstu daga má búast við gráum skýjum og jafnvel rigningu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK 2 7 . Á G Ú S T 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.