Fréttablaðið - 27.08.2020, Síða 4
Við erum þarna að
ganga til nauðsyn-
legra verka. Það var óhjá-
kvæmilegt að taka fjármála-
stefnuna upp í ljósi
gjörbreyttra efnahagslegra
aðstæðna.
Birgir Ármannsson
jeep.is
UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR
S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
35” BREYTTUR 33” BREYTTUR ÓBREYTTUR
JEEP® GRAND CHEROKEE TRAILHAWK – VERÐ FRÁ: 11.690.000 KR.
• 3.0 V6 250 HÖ. DÍSEL, 8 GÍRA SJÁLFSKIPTING
• 570 NM TOG
• HÁTT OG LÁGT DRIF
• RAFDRIFIN LÆSING Í AFTURDRIFI
• LOFTPÚÐAFJÖÐRUN AÐ FRAMAN OG AFTAN
• HLÍFÐARPLÖTUR UNDIR VÉL, KÖSSUM OG SKIPTINGU
• BI-XENON LED FRAMLJÓS MEÐ ÞVOTTAKERFI
• RAFDRIFIN OPNUN Á AFTURHLERA
ALVÖRU JEPPAR - ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF
JEEP® GRAND CHEROKEE BREYTTIR OG ÓBREYTTIR
• ÍSLENSKT LEIÐSÖGUKERFI
• BAKKMYNDAVÉL MEÐ BÍLASTÆÐAAÐSTOÐ
• FJARLÆGÐASKYNJARAR AÐ FRAMAN OG AFTAN
• BLINDHORNSVÖRN
ALLAR BREYTINGAR UNNAR AF BREYTINGARVERKSTÆÐI ÍSBAND
STJÓRNSÝSL A Starfshópur sem
Sigurður Ingi Jóhannsson sam-
göngu- og sveitarstjórnarráðherra
skipaði til að meta áhrif COVID-19
faraldursins á fjármál sveitarfélaga
hefur nú lokið störfum. Samkvæmt
Dan Jens Brynjarssyni, fjármála-
stjóra Akureyrarbæjar, sem á sæti
í hópnum, mun ráðuneytið gefa út
tilkynningu von bráðar.
Starfshópurinn safnaði upp-
lýsingum um fjárhagsstöðu sveitar-
félaganna og framtíðarhorfur. Til-
gangurinn er að gefa stjórnvöldum
betri yfirsýn og til að geta beitt
úrræðum fyrir rekstrarvanda.
Í viðtali við sjónvarpsstöðina N4
sagði Ásthildur Sturludóttir, bæjar-
stjóri Akureyrar, að halli bæjarins
nálgist þrjá milljarða króna á árinu
en búist hafi verið við einum millj-
arði í halla. Rúman milljarð megi
rekja beint til faraldursins. Helstu
ástæður séu aukið atvinnuleysi og
minnkandi útsvars tekjur. Bregðast
verði við með skertri þjónustu.
Orð Ásthildar gefa vísbendingu
um áhrif faraldursins á fjárhag sveit-
arfélaganna í landinu en þó er staða
þeirra mismunandi. Atvinnuleysi
sé til að mynda vel yfir 15 prósent á
Suðurnesjum en aðeins 3 prósent á
Vestfjörðum og Norðurlandi vestra.
Þá eru mörg lítil sveitarfélög afar
háð ferðaþjónustunni og má gera ráð
fyrir að faraldurinn hafi meiri áhrif
á þau. Fyrir viku síðan úthlutaði
Sigurður Ingi 150 milljónum króna
til sex sveitarfélaga sem eiga mikið
undir ferðaþjónustu, til dæmis
Hornafirði, Skútustaðahreppi og
Bláskógabyggð. – khg
Von á niðurstöðum starfshóps Sigurðar Inga
REYK JAVÍKURBORG Hlaðan, nýtt
upplýsingastjórnunarkerfi Reykja-
víkurborgar, kolféll á öryggisprófi
sem borgin lét gera og hefur því
verið frestað að innleiða kerfið.
Borgin tilkynnti í september að
það hefði gengið til samninga við
hugbúnaðarfyrirtækið Hugvit hf.
og var skrifað undir tíu ára samning
upp á 970 milljónir.
Á borgarráðsfundi var frestunin
rædd en meirihlutinn bókaði að fyr-
irtækið sem framkvæmdi öryggis-
könnunina gat nálgast viðkvæmar
persónuupplýsingar á vegum
ríkisstofnana sem nota kerfið. Í
bókuninni er einnig bent á að það
hafi verið starfsfólk þjónustu- og
nýsköpunarsviðs borgarinnar sem
kom upp um gallann í forritinu.
Í bókun Sjálfstæðisf lokksins er
bent á að svo virðist sem borgin hafi
ekki verið með öryggisúttekt á þeim
hugbúnaði sem keyptur var og reyn-
ist nú vera með öryggisgalla. – bb
Milljarðakerfi
borgarinnar féll
á öryggisprófi
Sigurður Ingi skipaði starfshópinn í
síðastliðið vor. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
STJÓRNMÁL Alþingi kemur saman
til framhaldsfunda í dag en þá hefst
svokallaður þingstubbur. Þing-
fundur hefst á munnlegri skýrslu
forsætisráðherra um stöðu mála
varðandi COVID-19 faraldurinn
og þá mun fjármálaráðherra mæla
fyrir breytingum á fjármálastefnu.
Önnur mál sem verða til umfjöll-
unar á þingi næstu daga eru frum-
varp um hlutdeildarlán, mál tengd
ríkisábyrgð Icelandair og frumvarp
um framlengingu hlutabótaleiðar-
innar og lengingu tímabils tekju-
tengdra atvinnuleysisbóta.
Birgir Ármannsson, þingflokks-
formaður Sjálfstæðisflokksins, segir
að þetta leggist ágætlega í hann.
„Við erum þarna að ganga til
nauðsynlegra verka. Það var óhjá-
kvæmilegt að taka fjármálastefn-
una upp í ljósi gjörbreyttra efna-
hagslegra aðstæðna. Það sama á við
um Icelandair-málið og f leiri mál
sem tengjast COVID,“ segir Birgir.
Steingrímur J. Sigfússon, for-
seti þingsins, segist búast við því
að þingmál tengd ríkisábyrgð
Icelandair fari á dagskrá á morgun
sem og frumvörp frá félagsmála-
ráðherra. Hann segist bjartsýnn á
að það takist að afgreiða þessi mál
á tilsettum tíma.
„Það var lagt upp með það að
reyna að láta viku duga í þennan
stubb og við vinnum samkvæmt
því. En það verður bara að ráðast,
og væntanlega fyrst og fremst af
nefndarvinnunni, hvort það næst,“
segir Steingrímur.
Oddný Harðardóttir, þingflokks-
formaður Samfylkingarinnar, segir
að þingið þurfi að gefa sér tíma til
að fara vandlega yfir mál Icelandair.
„Það þurfa að vera sterk rök fyrir
því að ábyrgjast svona stórt lán til
félags í erfiðleikum. Á móti kemur
að það er mikill hagur fyrir sam-
félagið að Icelandair nái að rétta úr
kútnum. Það þarf að vega þetta og
meta.“
Þá sé endurskoðun fjármála-
stefnu risastórt mál. „Það verður
að ganga úr skugga um það að ekki
sé verið að stilla upp fjármála-
stefnu sem er að skella kostnað-
inum af þessum heimsfaraldri á
þá sem missa vinnuna og sjúklinga
á meðan aðrir verða fyrir litlum
áföllum,“ segir Oddný.
Að undanförnu hefur skapast
nokkur umræða um það hversu
langt stjórnvöld geta gengið í sótt-
varnaaðgerðum sínum án aðkomu
Alþingis.
„Það viðurkenna allir að stjórn-
völd hafa bæði skyldu og svigrúm
til að grípa til aðgerða en það getur
hins vegar verið álitamál hversu
langt er gengið í hverju tilviki fyrir
sig. Það á síðan eftir að koma í ljós
hvaða umræða mun eiga sér stað
á þeim forsendum en hún verður
alveg örugglega einhver,“ segir
Birgir.
Steingrímur segir að þessi mál
verði hægt að ræða þegar forsætis-
ráðherra f lytur munnlega skýrslu
sína í dag. „Þá fá allir tækifæri til
að láta sitt álit í ljós á því. Þannig að
við erum að byrja á því að gefa rými
fyrir umræður um það.“
Hann bendir á að stjórnvöld hafi
allan tímann látið aðgerðir sínar
vera til takmarkaðs tíma í senn.
„Það hefur allavega ekkert komið
á mitt borð að menn telji að það
þurfi einhverjar lagalegar ráðstaf-
anir, heldur séu fullnægjandi laga-
heimildir til staðar þegar þeim er
beitt með þessum hætti. En auð-
vitað geta menn haft á þessu öll
sjónarmið,“ segir Steingrímur.
sighvatur@frettabladid.is
Stór mál á dagskrá Alþingis
Þingstubburinn svokallaði hefst í dag en stór mál á borð við breytingar á fjármálastefnu og ríkisábyrgð
Icelandair bíða afgreiðslu Alþingis. Forsætisráðherra flytur þinginu skýrslu um stöðu mála vegna COVID.
Þingfundasvæðið hefur verið stækkað til að tryggja nægilegan aðskilnað milli þingmanna. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
VINNUMARK AÐUR „Áhrif krepp-
unnar í kjölfar COVID-19 farald-
ursins bitna harðast á þeim sem
missa vinnuna og f jölskyldum
þeirra. Það er ánægjulegt ef ríkis-
stjórnin kemur loksins með ein-
hverjar aðgerðir sem við höfum
kallað eftir en þær aðgerðir duga
ekki einar og sér,“ segir Oddný
Harðardóttir, þingflokksformaður
Samfylkingarinnar.
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi
sínum í gær að leggja fram frum-
varp Ásmundar Einars Daðasonar
félagsmálaráðherra um aðgerðir til
að mæta aðstæðum á vinnumark-
aði sem skapast hafa vegna áhrifa
kórónaveirufaraldursins.
Samfylkingin er með frumvarp
í vinnslu sem verður lagt fram nú
þegar þing kemur saman þar sem
lagðar eru til frekari aðgerðir.
„Til að dreifa byrðunum telur
Samfylkingin afar mikilvægt að
tekjutengda tímabilið verði lengt
um þrjá mánuði, grunnatvinnu-
leysisbætur hækkaðar í 95 prósent
af lágmarkslaunum og rétturinn
til atvinnuleysistryggingar verði
lengdur um 12 mánuði.“
Það myndi þýða hækkun grunn-
bóta úr 289.500 krónum á mánuði
upp í rúmar 318 þúsund. Einnig er
lagt til í frumvarpinu að framlag
með hverju barni verði hækkað
varanlega og hlutabótaleiðin fram-
lengd til 1. júní á næsta ári. – sar
Segir aðgerðir
stjórnvalda
ekki duga einar
2 7 . Á G Ú S T 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð