Fréttablaðið


Fréttablaðið - 10.09.2020, Qupperneq 3

Fréttablaðið - 10.09.2020, Qupperneq 3
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —1 9 6 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R F I M M T U D A G U R 1 0 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 beint á brauðið eða kexið!nýtt Kæfurnar frá SS eru nú í nýjum umbúðum. Nettari einingar og betri endurlokun minnka matarsóun og varðveita gæði. Fimm bragðgóðar tegundir. 180 g r i f s b e r j a k æ fa l i f r a r k æ fa m e ð r i f s b e r j u m HEFUR ÞÚ PRÓF AÐ NÝ JU RIFSB ERJA- KÆFU NA? Fjölmiðlafólk fyllti ganga Héraðsdóms Reykjavíkur í gærmorgun og vann saman í kös með fartölvur í kjöltunni. Viðfangsefni fréttanna, Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, fylgdist með framvindunni yfir axlir Stígs Helgasonar, fréttamanns RÚV. Á meðan lagði Erla Bolladóttir á ráðin með lögmanni sínum, Ragnari Aðalsteinssyni. Sjá síðu 6 FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI VIÐSKIPTI Ásgeir Jónsson seðla­ bankastjóri segir gengi krónunnar vera „orðið mjög lágt, mun lægra en fær staðist við eðlilegt fram­ leiðslustig í efnahagslífinu.“ Hann eigi því ekki endilega von á miklum áhrifum á gengið við það að lífeyris­ sjóðirnir verði ekki lengur bundnir samkomulagi um að standa ekki að gjaldeyriskaupum vegna fjár­ festinga erlendis. Hann telur að ferðaþjónustan muni koma mjög fljótt til baka um leið og það fer að draga úr sóttvarna­ ráðstöfununum. „Þetta er því tímabundið ástand,“ útskýrir seðlabankastjóri, „og í sjálfu sér óskynsamlegt fyrir lang­ tímafjárfesta líkt og lífeyrissjóði að rjúka í mikil gjaldeyriskaup þegar gengið er tímabundinni lægð.“ Greint var frá því í Markaðinum í gær að samkomulag Seðlabank­ ans við lífeyrissjóðina, um að þeir myndu gera hlé á gjaldeyriskaupum sínum, yrði ekki framlengt þegar það rennur út 17. september næst­ komandi. Enginn vilji sé til þess á meðal sjóðanna að þeir haldi áfram að sér höndum í erlendum fjárfest­ ingum. Eftir lokun markaða í gær til­ kynnti Seðlabankinn að hann væri reiðubúinn til að selja allt að 240 milljónir evra, jafnvirði 40 milljarða króna, úr gjaldeyrisforða sínum í reglulegum viðskiptum við við­ skiptavaka bankanna á gjaldeyris­ markaði til ársloka. Markmiðið sé að auka dýpt og stöðugleika á markaði. Seðlabankastjóri segir að hann hafi ekki álitið þörf á að framlengja samkomulagið við lífeyrissjóðina. Hann líti hins vegar svo á að sjóð­ irnir séu áfram minnugir samfélags­ legrar ábyrgðar sinnar. Ásgeir telur að ekki þurfi sérstakar aðgerðir til að bregðast við gjaldeyr­ isútflæði vegna lífeyrissjóðanna. „Ég hef engar sérstakar áhyggjur af því að fá þá aftur inn sem þátttakendur á gjaldeyrismarkaðinum. Gengis­ veikingin hefur auðvitað haft þau áhrif að vægi erlendra eigna hefur aukist, sem hlutfall af heildareign­ um sjóðanna. Það kann því að vera minni ástæða fyrir lífeyrissjóðina en ella, að auka mjög við erlendar fjárfestingar á þessum tímapunkti.“ – hae / sjá síðu 8 Gengið lægra en fær staðist  Seðlabankastjóri segir gengi krónunnar orðið mjög lágt. Ekki skynsamlegt fyrir lífeyrissjóði að standa í miklum gjaldeyriskaupum. Bankinn til í að selja 240 milljónir evra til að auka stöðugleika á markaði.   Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri HANDBOLTI Handboltinn rúllar af stað í kvöld eftir hálfs árs fjarveru. Í kvennadeildinni verður það hlut­ verk ÍBV og Stjörnunnar að stoppa titilbaráttu Fram og Vals. Margar landsliðskonur hafa bæst í deildina fyrir komandi tímabil og verður deildin sterk í ár. Hjá körlunum eru Valsmenn lík­ legir, en mörg lið gætu blandað sér í baráttuna. Samkvæmt spá fyrir­ liða og þjálfara er búist við því að Hafnarfjarðarliðin FH og Haukar veiti Val mesta samkeppni. – kpt / sjá síðu 16 Flestra augu á Val í boltanum Margar öflugar konur hafa bæst í kvennadeildina sem verður sterk í ár.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.