Fréttablaðið - 10.09.2020, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 10.09.2020, Blaðsíða 12
Ein dýrmætasta náttúruperla á hálendi Íslands er Langisjór og gróðursnautt nágrenni hans. Nafnið má rekja til lengdar vatnsins sem er 20 km en þótt það nái 75 m dýpt er mesta breidd aðeins um 2 km. Langasjó umlykja fallegir móbergshryggir sem mynduðust við gos undir ísaldarjöklum og ber þar hæst Tungnaárfjöll, Grænafjallgarð og ekki síst Fögrufjöll að austan- verðu. Suður af vatninu er síðan Sveinstindur (1.090 m), frábært útsýnisfjall sem kennt er við Svein Pálsson lækni og náttúrufræðing sem var þarna á ferð sumarið 1794. Það var hins vegar annar merkur náttúrufræðingur, Þorvaldur Thoroddsen, sem gaf bæði Fögrufjöllum og Langasjó nafn árið 1889, en þá blasti Langisjór við honum sem mórautt jökullón og gekk skriðjökull niður í hann nyrst. Þegar Síðujökull tók að hörfa á síðustu öld, breytti kvísl úr Skaftá um stefnu og sveigði austur fyrir Fögrufjöll í stað þess að renna í Langasjó. Við þetta varð Langisjór fagurblár á litinn og um leið eitt tærasta stöðuvatn landsins. Það er ótrúlegt, en fram yfir síðustu aldamót ráð- gerði Landsvirkjun að veita Skaftá í Langasjó og umbreyta vatninu í uppistöðulón fyrir virkjanir á Tungnaár- og Þjórsársvæðinu. Sem betur fer var því stórslysi afstýrt og frá 2011 er blátær Langisjór hluti Vatnajökulsþjóðgarðs. Ganga má umhverfis Langasjó á 2-3 dögum með allt á bakinu. Þá verður að vaða Útfallið, affall Langasjávar, sem rennur í Skaftá. Að öðru leyti er gangan umhverfis Langasjó þægileg og er gengið um vogskorin og mosavaxin Fögrufjöll sem skaga víða fram í vatnið með tilkomumiklum klettahöfðum. Þetta er ósnortið hálendi eins og það gerist best og útsýnið yfir Langasjó ómótstæðilegt. Fyrir þá sem kjósa dagsgöngu má hæglega þræða Fögrufjöll fram og til baka á löngum göngudegi, og jafnvel bæta við Sveinstindi í lokin. Það er auðvelt að komast að Langasjó frá Fjalla- baksleið nyrðri og tilvalið að gista í skála Útivistar við Sveinstind eða sunnar í Skælingum eða Hóla- skjóli. Fiskur er í vatninu og þar er stunduð stangveiði en auk þess er Langisjór vinsæll fyrir kajaksiglingar. Er þá hægt að sigla umhverfis eyjuna Ást í Fagrafirði inn af Fögrufjöllum, sem stendur undir nafni eins og allt umhverfið. Fjöllin fögru við sjóinn bláa Tómas Guðbjartsson hjartaskurð- læknir og náttúruunnandi og Ólafur Már Björnsson augnlæknir og ljósmyndari Fögrufjöll taka sig einstaklega vel út með blá- tærum Langa- sjó. MYNDIR/ÓMB Við Langasjó eru einstök grænblá vötn – en þetta ósnortna umhverfi er með helstu gullmolum á hálendi Íslands. Sveinstindur í forgrunni og handan hans Langisjór með Fögrufjöllum til hægri. 1 0 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.