Fréttablaðið - 10.09.2020, Qupperneq 12
Ein dýrmætasta náttúruperla á hálendi Íslands er Langisjór og gróðursnautt nágrenni hans. Nafnið má rekja til lengdar vatnsins sem er 20 km en þótt það nái 75 m dýpt er mesta breidd aðeins um 2 km. Langasjó umlykja
fallegir móbergshryggir sem mynduðust við gos
undir ísaldarjöklum og ber þar hæst Tungnaárfjöll,
Grænafjallgarð og ekki síst Fögrufjöll að austan-
verðu. Suður af vatninu er síðan Sveinstindur (1.090
m), frábært útsýnisfjall sem kennt er við Svein
Pálsson lækni og náttúrufræðing sem var þarna á
ferð sumarið 1794. Það var hins vegar annar merkur
náttúrufræðingur, Þorvaldur Thoroddsen, sem gaf
bæði Fögrufjöllum og Langasjó nafn árið 1889, en þá
blasti Langisjór við honum sem mórautt jökullón og
gekk skriðjökull niður í hann nyrst. Þegar Síðujökull
tók að hörfa á síðustu öld, breytti kvísl úr Skaftá um
stefnu og sveigði austur fyrir Fögrufjöll í stað þess að
renna í Langasjó. Við þetta varð Langisjór fagurblár
á litinn og um leið eitt tærasta stöðuvatn landsins.
Það er ótrúlegt, en fram yfir síðustu aldamót ráð-
gerði Landsvirkjun að veita Skaftá í Langasjó og
umbreyta vatninu í uppistöðulón fyrir virkjanir á
Tungnaár- og Þjórsársvæðinu. Sem betur fer var því
stórslysi afstýrt og frá 2011 er blátær Langisjór hluti
Vatnajökulsþjóðgarðs.
Ganga má umhverfis Langasjó á 2-3 dögum með
allt á bakinu. Þá verður að vaða Útfallið, affall
Langasjávar, sem rennur í Skaftá. Að öðru leyti er
gangan umhverfis Langasjó þægileg og er gengið um
vogskorin og mosavaxin Fögrufjöll sem skaga víða
fram í vatnið með tilkomumiklum klettahöfðum.
Þetta er ósnortið hálendi eins og það gerist best og
útsýnið yfir Langasjó ómótstæðilegt. Fyrir þá sem
kjósa dagsgöngu má hæglega þræða Fögrufjöll fram
og til baka á löngum göngudegi, og jafnvel bæta við
Sveinstindi í lokin.
Það er auðvelt að komast að Langasjó frá Fjalla-
baksleið nyrðri og tilvalið að gista í skála Útivistar
við Sveinstind eða sunnar í Skælingum eða Hóla-
skjóli. Fiskur er í vatninu og þar er stunduð
stangveiði en auk þess er Langisjór vinsæll
fyrir kajaksiglingar. Er þá hægt að sigla
umhverfis eyjuna Ást í Fagrafirði inn af
Fögrufjöllum, sem stendur undir nafni
eins og allt umhverfið.
Fjöllin fögru
við sjóinn bláa
Tómas
Guðbjartsson
hjartaskurð-
læknir og
náttúruunnandi
og Ólafur Már
Björnsson
augnlæknir og
ljósmyndari
Fögrufjöll taka
sig einstaklega
vel út með blá-
tærum Langa-
sjó. MYNDIR/ÓMB
Við Langasjó eru einstök grænblá vötn – en þetta ósnortna umhverfi er með helstu gullmolum á hálendi Íslands.
Sveinstindur í forgrunni og handan hans Langisjór með Fögrufjöllum til hægri.
1 0 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð