Fréttablaðið - 10.09.2020, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 10.09.2020, Blaðsíða 4
 Því virðist vera öðruvísi farið með kórónaveirufaraldurinn og margt bendir til þess að líðan þeirra sem eiga erfitt uppdráttar hafi versnað. Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir, stjórnarformaður Sorgarmið- stöðvarinnar Veður Sunnan- og suðaustanátt í dag, víða 8-13 og rigning með köflum, einkum S- og V-lands. Vaxandi norðaustanátt á Vestfjörðum í kvöld. Hiti 3 til 9 stig. SJÁ SÍÐU 20 Steinbryggjan teygir sig að miðbænum Tímapantanir á opticalstudio.is og í síma 511 5800 SMÁRALIND • HAFNARTORG • KEFLAVÍK Sjónmælingar eru okkar fag Við endurnýjun lagna undir Tryggvagötu hefur komið í ljós að steinbryggjan, sem þar er sunnan við götuna, nær lengra í átt að miðbænum en reiknað var með. Samkvæmt upplýsingum frá Veitum þýðir þetta að núverandi skólplögn er ekki í þeirri hæð sem búist var við. Stækka þarf framkvæmdasvæðið og loka tímabundið fyrir bílaumferð frá Pósthússtræti að Lækjargötu. Gönguleiðir verða þó greiðar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK SAMFÉLAG Alþjóðlegur fornvarna- dagur sjálfsvíga er haldinn í dag, 10. september um allan heim, en frum- kvæðið kemur frá WHO – Alþjóða heilbrigðisstofnuninni. „Tilgangur dagsins er þríþættur. Það er að vekja athygli á því hversu mikilvægt er að vinna að forvörnum gegn sjálfsvígum, minnast þeirra sem hafa fallið fyrir eigin hendi sem og að styðja þá sem hafa misst ástvini,“ segir Guðrún Jóna Guð- laugsdóttir, hjúkrunarfræðingur og stjórnarformaður Sorgarmið- stöðvar. Að hennar sögn hefur aldrei verið mikilvægara að vekja athygli á baráttunni gegn þessum skæða vágesti, enda eru vísbendingar um að einangrunin og þær félagslegu takmarkanir sem COVID-faraldur- inn hefur valdið, hafi haft miður góð áhrif á þá sem eru í áhættuhópi varðandi sjálfsvíg. Samkvæmt bráðabirgðatölum frá ríkislögreglustjóra hafa 30 útköll verið vegna sjálfsvíga það sem af er ári. Árið 2019 voru sjálfsvíg alls 18 talsins en 23 árið 2018. Rétt er að geta þess að ekki er um staðfesta tölu að ræða, því krufningu er ekki lokið í öllum tilvikum. Augljóslega er þó um vísbendingu að ræða þess efnis að tíðni sjálfsvíga verði óvenju mikil á þessu ári. „Það er þekkt staðreynd að þegar mikið gengur á í þjóðfélögum þá fækkar sjálfsvígum. Til dæmis ef landslið þjóðar vinnur sigur sem sameinar alla í gleði, eða þá að sam- félagið þjappar sér saman þegar ein- hvers konar hamfarir ganga yfir. Því virðist vera öðruvísi farið með kórónaveirufaraldurinn og margt bendir til þess að líðan þeirra sem eiga erfitt uppdráttar hafi versnað,“ segir Guðrún. Sorgarmiðstöð var opnuð fyrir ári síðan en þar er aðstandendum sem hafa misst ástvini vegna sjálfs- víga veittur stuðningur. „Við höfum tvímælalaust fundið fyrir fjölgun þeirra sem mæta í stuðningshópa hjá okkur. Hluti skýringarinnar er mögulega sá að fólk í slíkum aðstæðum er orðið opnara með að leita sér hjálpar en einnig er sá dapurlegi möguleiki að sjálfsvígum sé að fjölga,“ segir Guðrún. Sonur Guðrúnar féll fyrir eigin hendi fyrir áratug síðan og segir hún að mikið vatn hafi runnið til sjávar varðandi úrræði fyrir aðstand- endur. „Það var ekki um auðugan garð að gresja í þeim efnum fyrir mig á sínum tíma en sem betur fer hefur grettistaki verið lyft. Það er þó margt sem má betur fara. Aðgerða- áætlun stjórnvalda gegn sjálfsvíg- um fór í gang árið 2018 og rennur út í ár. Ég vonast innilega eftir góðum tíðindum þess efnis að auknu fjár- magni verði veitt í baráttuna.“ bjornth@frettabladid.is Tíðni sjálfsvíga virðist hafa aukist á þessu ári Alþjóðlegur forvarnadagur sjálfsvíga er í dag. Stjórnarformaður Sorgarmið- stöðvar segir að boðskapurinn hafi sjaldan verið jafn mikilvægur, enda eru vísbendingar um að faraldurinn hafi haft slæm áhrif á viðkvæma hópa. Guðrún segir að aldrei hafi verið mikilvægara að vekja athygli á sjálfsvígum en nú. Félagslegar takmarkanir hafi ýtt undir tíðni þeirra. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Sigurður Ingi Jóhannsson sam- gönguráðherra. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR SAMGÖNGUR Íbúar á landsbyggð- inni með lögheimili fjarri höfuð- borginni eiga nú kost á 40 prósenta lægri f lugfargjöldum til borgar- innar með verkefninu Loftbrú, sem Sigurður Ingi Jóhannsson sam- gönguráðherra kynnti í gær. „Undir Loftbrú falla Vestfirðir, hluti af Norðurlandi vestra, Norð- urland eystra, Austurland, Horna- fjörður og Vestmannaeyjar,“ segir í tilkynningu frá samgönguráðu- neytinu. Sextíu þúsund manns geti fengið afsláttinn, sem áætlað er að ríkið verji 600 milljónum króna á ári í að fjármagna. Hver og einn getur fengið lægri fargjöld fyrir allt að þremur ferðum til Reykjavíkur og til baka á ári. „Það er mikið réttlætismál að þeir sem búa fjarri höfuðborginni og vilja og þurfa að sækja þjónustu þangað, fái niðurgreiðslu á ferðum sínum með flugi,“ segir Sigurður. Um tvo hópa gilda undantekn- ingar frá reglunni um lögheimili á landsbyggðinni:  framhaldsskóla- nema utan af landi á höfuðborgar- svæðinu og börn með lögheimili á höfuðborgarsvæðinu sem eiga for- eldra eða forráðamenn sem búa á landsbyggðinni. – gar Vill niðurgreiða flugferðir fyrir landsbyggðina SAMFÉLAG Almenningur leitar nú að nýju stjórnarskránni undir myllumerkinu #Hvar? Með herferðinni er vakin athygli á því að í október eru átta ár frá því að þjóðin greiddi atkvæði um nýja stjórnarskrá í þjóðaratkvæða- greiðslu og í nóvember verður áratugur frá því að blásið var til þúsund manna þjóðfundar um stjórnarskrármál í aðdraganda þess að stjórnlagaráð tók til starfa. Fólk tekur þátt í herferðinni með því að deila myndum af sér á sam- félagsmiðlum þar sem það leitar að stjórnarskránni meðal annars í ruslafötum, innan um runna og á bak við húsgögn á heimilinu. Er þetta gert undir myllumerkinu #Hvar? Um 19 þúsund hafa skrifað undir áskorun til Alþingis, á vegum Sam- taka kvenna um nýja stjórnarskrá, um lögfestingu nýrrar stjórnar- skrár. – aá Leitað að nýrri stjórnarskrá  Íbúar á landsbyggðinni eigi nú kost á 40 prósenta lægri flugfargjöldum til Reykjavíkur. 1 0 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.