Fréttablaðið - 10.09.2020, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 10.09.2020, Blaðsíða 20
LÍTTU VIÐ Á BELLADONNA.IS Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Verslunin Belladonna NÝJAR HAUSTVÖRUR STREYMA INN Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@ frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Jóhanna Helga Viðarsdóttir Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ýr valdi að læra fatahönnun eftir stúdentspróf, því hún hafði alltaf haft sérstakan smekk á fötum og notaði föt til að aðgreina sig frá öðru fólki, til að tjá tónlistarsmekk og viðhorf í lífinu. „Ég var komin í vinakreðsu af listafólki, bæði tónlistar- og mynd- listar- og það kveikti í mér neista til þess að rækta sjálf mína eigin listhæfileika. Fatahönnun varð fyrir valinu því það var eitthvað sem ég taldi mig geta orðið góð í og höfðaði sterkt til mín,“ segir Ýr. „Ég útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands vorið 2010, og fór í starfs- nám til Parísar og New York. Frá útskrift hef ég hannað undir eigin merki. Fyrst undir eigin nafni YR Collections og svo seinna undir Another Creation og núna undir merkinu Warriör.“ Auk þess að hanna föt undir eigin merki hefur hún fengið tæki- færi til að vinna við búningagerð, bæði fyrir kvikmyndir, tónlistar- myndbönd, RÚV, Íslenska dans- flokkinn og Íslensku óperuna. Einnig hefur hún unnið mikið við sérsaum. „Ég hef fengið að sauma á mjög flottar konur eins og til dæmis Dorrit Moussaieff, Halldóru Geir- harðs, Elizu Reid, Svölu Björgvins, Ragnhildi Steinunni og margar, margar fleiri. Ég tek einnig að mér að sérsníða brúðarkjóla og næ oftast um það bil einum þannig á ári,“ segir Ýr. „Það hefur gefið mér ótrúlegan innblástur að breyta út af vana og hanna föt sem eru fyrir annan til- gang en að framleiða og selja.“ Umhverfisvænn fatnaður Ýr hefur starfrækt fatamerkið Warriör í tæpt ár og ný lína merk- isins er væntanleg í netverslun og pop-up verslun í haust. Áherslan í nýju línunni er á breytanlegan fatnað sem hentar öllum kynjum, en þetta er í fyrsta sinn sem hún hannar föt sem eru líka hugsuð fyrir karlmenn. Ýri er umhugað um umhverfis- mál og segir mikilvægt fyrir hönn- uði að átta sig á siðferðislegum skyldum sínum gagnvart sam- félaginu. Þess vegna vinnur hún hönnun fatamerkis síns, Warriör, út frá þeirri meginreglu að varan sé endingargóð, og með sjálf bærni í huga. Hún vill breikka áhersl- Sandra Guðrún Guðmundsdóttir sandragudrun@frettabladid.is Auk þess að hanna undir eigin merki hefur Ýr fengist mikið við sérsaum. Ýr segir að fatnaðurinn sé eins konar sameiningartákn og auðkenni. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Lúpínugallinn er fjölnota. Það er hægt að snúa honum á rönguna svo náttúruprentið sé inni í fóðrinu og Warriör- lógóið að utan eða öfugt. Föt og tíska endur- spegla oft sam- félagið og það sem er í gangi hverju sinni. Framhald af forsíðu ➛ urnar á umhverfisvænan fatnað og vinnur nú með endurunnin efni. Í kjölfarið ákvað hún að vinna með myndlistarkonu til þess að fá inn- blástur og hugmyndir um hvernig náttúran gæti spilað stærra hlut- verk í hönnuninni. „Myndlistarkonan Hrund Atla- dóttir vinnur mikið með náttúru- vernd og verkefni tengd henni. Hún gerði meðal annars tvö stór upplifunarverk á síðasta ári, þar sem hún breytti Kópavogskirkju í mosavaxinn foss og tók yfir ljósin á Hörpu, á sama tíma og alþjóðlega loftslagsverkfallið átti sér stað,“ segir Ýr. „Hrund hannaði mynstur á galla fyrir Warriör í sumar, sem var óður til lúpínunnar. En það mætti jafn- vel kalla hana „Warrior“ íslensku flórunnar. Lúpínan er umdeildasta planta íslenskrar náttúru, ýmist elskuð eða hötuð og veldur deilum.“ Lúpínugallinn er fjölnota. Það er hægt að snúa honum á rönguna svo náttúruprentið sé inni í Ýr hefur hannað mjög fjölbreyttan fatnað eins og þessa fallegu kápu. fóðrinu og Warriör-lógóið að utan, eða öfugt. Þannig er hægt að fá ólíka útgáfu af sömu flík. „Fatnaðurinn er eins konar sam- einingartákn og auðkenni. Föt og tíska endurspegla oft samfélagið og það sem er í gangi hverju sinni,“ segir Ýr. „Föt geta sýnt hvaða stéttar- stöðu fólk hefur, eða látið í ljós skoðanir og gildismat þess. Ég vil að merkið Warriör höfði til þeirra sem vilja vinna að sínum eigin hugmyndum og vera leiðandi í sínu fagi eða sviði. Undir það flokkast að sjálfsögðu allir lista- menn, sprotar og bara allir sem koma verkum sínum á framfæri.“ 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 0 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.