Fréttablaðið - 10.09.2020, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 10.09.2020, Blaðsíða 6
UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16 GOÐSÖGN KNÚIN RAFORKU *Verð miðað við gengi USD 132, svartur Compass, hvítur Renegade, áætluð afhending í október 2020 JEEP PLUG-IN-HYBRID FORSALA - AFHENDING Í OKTÓBER 2020 ALVÖRU JEPPAR - ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF JEEP COMPASS LIMITED 4X4 5.999.000* PLUG-IN-HYBRIDPLUG-IN-HYBRIDJEEP RENEGADE TRAILHAWK 4X4 5.499.000* SVEITARFÉLÖG Af íslenskum sveitar- félögum hefur aðeins Strandabyggð leitað til samgöngu- og sveitar- stjórnarráðuneytisins vegna fjár- hagslegra málefna sveitarfélagsins. Þetta staðfestir Eiríkur Benónýsson, sérfræðingur hjá Eftirlitsnefnd um fjármál sveitarfélaga. Nefndin sendi bréf til allra sveit- arfélaga þegar fyrsta bylgja farald- ursins stóð yfir og áréttaði skyldu þeirra til að senda nefndinni til- kynningu telji þau að fjármálin séu ekki í samræmi við sveitarstjórnar- lög eða ef í óefni stefni í rekstri.  „Ráðuneytið hefur lagt til að fram fari fjárhagsleg úttekt á rekstri sveitarfélagsins. Það mun síðan ráðast af niðurstöðu úttektarinnar hvert framhald málsins verður,“ segir Eiríkur. – bþ Eitt sveitarfélag hefur leitað til ráðuneytisins SAMFÉLAG Það sem af er september- mánuði hafa alls 185 einstaklingar sagt sig úr Þjóðkirkjunni samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá. Stofn- unin birti í vikunni nýjar tölur um fjölda meðlima trúfélaga sem mið- aðist við 1. september, en þar kom fram að meðlimir Þjóðkirkjunnar væru 230.657 talsins og hafði þeim fækkað um 497 síðan 1. desember í fyrra. Líkur eru á að  þann fjölda sem hefur sagt  sig úr Þjóðkirkjunni  á þessum stutta tíma megi að hluta til skýra með umdeildri mynd sem Biskupsstofa birti til þess að auglýsa barnastarf Kirkjunnar, en þar mátti sjá Jesús með brjóst undir regnboga- fána. Auglýsingin hefur vakið mikið umtal og er talið að heitar umræður verði um auglýsinguna á Kirkju- þingi sem verður sett í dag. – bþ Um 200 manns hafa sagt sig úr Þjóðkirkjunni MENNTUN Á meðan fyrsta bylgja COVID-19 faraldursins stóð hér- lendis var bókasöfnum landsins lokað í sex vikur. Að sögn Pálínu Magnúsdóttur borgarbókavarðar sýndi lokunin þá fram á æpandi framboðsskort á raf bókum hér- lendis. „Bókaútgefendur á Íslandi, með örfáum undantekningum, hafa engan áhuga sýnt á því að gefa út bækur sínar í rafrænu formi sem ég tel mjög miður,“ segir Pálína. Hún segir að ástæðan sé sú að bókaút- gefendur séu fastir í þeim þanka- gangi að með slíkri útgáfu séu þeir að tapa sölu á verkum sínum og auka líkur á hvers konar fjölföldun og þjófnaði. Hérlendis er starfrækt Raf bóka- safn á samnefndri vefslóð þar sem notendur geta leigt sér raf bækur í lesbretti eins og Kindle. En vanda- málið er að afar lítið framboð er þar af íslenskum bókum. „Það kerfi sem er algengast þar er svokallað „ein bók, einn lesandi“. Það þýðir að hver raf bók er aðeins leigð út til eins lesanda í einu, eins og á hefð- bundnu bókasafni,“ segir Pálína. Þá sé tryggt að höfundar fái greitt úr bókasafnssjóði fyrir hvert útlán. „Það er einnig vinsælt fyrirkomulag að raf bækurnar séu með hámark á útlánum. Þannig megi kannski bara leigja bók út í 24 skipti, en þá þarf að kaupa nýtt eintak,“ segir Pálína. Á meðan fyrsta bylgja COVID-19 faraldursins stóð yfir jukust útlán Raf bókasafnsins um 50% miðað við sama tíma í fyrra. Gallinn er sá að aðallega var um bækur á ensku að ræða. Pálína segist hafa miklar áhyggj- ur af stöðu mála. „Það hafa einfald- lega ekki allir ráð á því að kaupa allt efni sem þeir og aðrir fjölskyldu- meðlimir hafa áhuga á að lesa. Þannig er hætt á að lestur bóka verði aðeins fyrir þá efnameiri, ef þess er ekki gætt að aðgengi að bókum á öllum formum sé gott,“ segir Pálína. Hún segir að það séu sam- eiginlegir hagsmunir allra á bóka- markaði að ýta undir að almenn- ingur lesi sem allra mest. „Skorður á aðgengi fólks að bókum valda því aðeins að lestur minnkar og það er slæmt fyrir alla. Þá tel ég blasa við að þeir sem lesa mikið séu líklegri til þess að kaupa bækur. Ég sjálf er til dæmis umkringd bókum á bókasafninu en kaupi engu að síður mikið af bókum,“ segir Pálína. bjornth@frettabladid.is Áhugaleysi um rafbókaútgáfu Borgarbókavörður hefur áhyggjur af áhugaleysi bókaútgefenda við að gefa bækur sínar út í rafrænu formi og þar með aðgengilegu bókasöfnum. Telur hún að óbreytt ástandi geti leitt til aukins ójöfnuðar. GRIKKLAND Moria-f lóttamanna- búðirnar á grísku eyjunni Lesbos eru gjörónýtar eftir að eldur braust út í þeim í fyrrinótt. Búðirnar, sem voru hannaðar fyrir um þrjú þúsund manns, hafa verið yfirfullar um þó nokkurt skeið og höfðu um þrett án þúsund manns aðsetur í þeim. Samkvæmt Notis Mitarachi, inn- flytjendamálaráðherra Grikklands, kveiktu hælisleitendur í búðunum eldinn. Ekki liggur fyrir hvort ætl- unin hafi verið að brenna búðirnar en að eldarnir hafi verið kveiktir í mótmælaskyni vegna sóttvarna- ráðstafana í búðunum. Einhverjir þeirra sem greindust með COVID-19 smit hafi neitað að fara í einangrun með fjölskyldum sínum. Um fjörutíu slökkviliðsmenn börðust við eldinn, en samkvæmt slökkviliðsstjóra svæðisins hindr- uðu mótmælendur úr hópi hælis- leitenda slökkvistarfið. Enginn lést í eldinum en þó nokkrir fengu reyk- eitrun. Kyriakos Mitsotakis, forsætisráð- herra Grikklands, efndi til neyðar- fundar í kjölfar eldsvoðans og fóru einhverjir ráðherrar til Lesbos til að meta aðstæður. Evrópusambandið hefur heitið Grikkjum aðstoð vegna brunans og hvatti Heiko Maas, utan- ríkisráðherra Þýskalands, aðildar- ríki ESB til að taka við hælisleit- endum úr búðunum. – atv Flóttamannabúðirnar á Lesbos rústir einar eftir mikinn eldsvoða Um þrettán þúsund manns höfðu aðsetur í búðunum. MYND/EPA Borgarbókavörður segir lokun bókasafna vegna COVID-19 hafa varpað ljósi á lítið framboð rafbóka. MYND/AÐSEND 1 0 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.