Fréttablaðið - 10.09.2020, Síða 15

Fréttablaðið - 10.09.2020, Síða 15
 Ýmsir líta svo á að þjóðin hafi beinlínis samþykkt þessa út- gáfu af tillögum stjórnlagaráðs sem nýja stjórnarskrá. AF KÖGUNARHÓLI Þorsteinn Pálsson N Ý F O R M h ú s g a g n a v e r s l u n h ú s g a g n av e r s l u n Klassísk gæða húsgögn á góðu verði Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Komið og skoðið úrvalið GLOBL VIKTOR Hvíldarstóll KRAGELUND OTTO KRAGELUND K371 Kragelund stólar K 406 Stólar Sófasett Borðstofuborð Skenkar/skápar Kommóður/hillur Hvíldarstólar o.m.fl. Borstofuhúsgön frá Casö Mikið úrval af hvíldarstólum með og án rafmagns. CHICAGO hornsófi Rimme frá Casö, raðau saman þinni samstæðu Rúm fjögur ár eru frá því að naumur meirihluti Breta ákvað í þjóðaratkvæðagreiðslu að segja skilið við Evrópusambandið. Í full þrjú ár var Bretland stjórnlaust af því að hver skildi úrslitin eftir sínu höfði. Nú telja sumir að aðlögunartím- anum kunni að ljúka um næstu áramót án nýs samnings. Margir tala um hættu í því sambandi. Það er þó eina niður- staðan, sem er í fullu samræmi við þann kost, sem meirihlutinn merkti við á kjörseðlinum. Brexit Kjarni málsins er sá að Bretar fengu aldrei kost á að segja álit sitt á því hvort þeir vildu samningssamband af einhverju tagi í stað aðildar. Valið var bara: Inni eða úti. Þeir kusu að fara út án nokkurs fyrirvara um samnings- samband. Viðbrögð ríkisstjórna og þjóðþinga við niðurstöðum þjóðaratkvæðis skipta alltaf máli. Þannig var rökrétt að þáverandi forsætisráðherra Breta segði af sér eftir að málstaður hans féll. Það var hins vegar út í hött að velja annan aðildarsinna til að taka við. Það eina rétta í stöðunni var að gefa þjóðinni tafarlaust kost á að velja nýtt þing til að framkvæma nýjan þjóðar- vilja. Það tók meira en þrjú ár. Icesave Eins hefðu þjóðaratkvæðagreiðslurnar hér heima um Icesave átt að leiða til nýrra þingkosninga. Í síðara skiptið felldi þjóðin lög, sem meirihluta ríkis- stjórn og Sjálfstæðisflokkurinn höfðu samþykkt. Hér skorti skilning á rök- réttum, lýðræðislegum viðbrögðum. Þjóðaratkvæðið um Icesave var ekki leiðbeinandi. Það var bein ákvörðun. Aftur á móti fól hún ekki í sér lyktir deilunnar við Breta og Hollendinga. Í raun kaus þjóðin að ráði forseta Íslands að flytja valdið um málalyktir frá Alþingi til fjölþjóðlegs dómstóls. Kjarni málsins er að þjóðaratkvæðið var veðmál um málalyktir fyrir dómi en ekki málalyktirnar sjálfar. Þær komu fyrst með EFTA-dómnum, sem féll Íslandi í vil á grundvelli Evrópu- sambandsreglna. Stjórnarskráin Sú stjórnarskrárendurskoðun, sem for- sætisráðherra stýrir nú, hefur kveikt umræðu um leiðbeinandi þjóðarat- kvæði frá 2012. Þar var spurt hvort leggja ætti tillögur stjórnlagaráðs til grundvallar nýrri stjórnarskrá. Þáverandi ríkisstjórn tók bókstaf- lega orðalagið að leggja til grundvallar. Frumvarp hennar var því nokkuð breytt að ráði íslenskra sérfræðinga í stjórnskipunarrétti. Nokkru síðar lagði ríkisstjórnin fram mjög umfangsmiklar viðbótar- breytingar samkvæmt ráðgjöf sér- fræðinga Evrópuráðsins. Eftir það vildi hún ekki láta reyna á umræður um málið á Alþingi. Þegar á þessu stigi voru skiptar skoðanir um túlkun á niðurstöðum þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Staða málsins Óbreytt tillaga stjórnlagaráðs hefur síðan verið gefin út á prenti með ávarpi fyrrum forseta Íslands. Ýmsir líta svo á að þjóðin hafi bein- línis samþykkt þessa útgáfu af tillögum stjórnlagaráðs sem nýja stjórnarskrá. Af því leiði að Alþingi hafi ekki umboð til annars en samþykkja hana í heilu lagi. Forsætisráðherra lítur á hinn bóginn svo á að sú áfangaskipta endurskoðun, sem hún hélt áfram frá tíð ríkisstjórnar Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, byggi á niðurstöðu þjóðaratkvæða- greiðslunnar. Svo eru þeir, sem telja að spurning- arnar í þjóðaratkvæðinu hafi verið eins og í illa orðaðri skoðanakönnun. Niðurstöðurnar hafi því verið of óskýrar til að binda Alþingi á nokkurn hátt. Lærdómurinn Þjóðaratkvæðið um Brexit leysti báða helstu stjórnmálaflokka landsins upp í stríðandi fylkingar. Af þessu hlaust langvarandi pólitískur glundroði, sem fyrst nú sér fyrir endann á. Enginn sér þó fyrir efnahagslegu áhrifin. Icesavemálinu lauk með því að Bretar og Hollendingar fengu allar kröfur sínar að fullu greiddar með vöxtum og áföllnum kostnaði. Tvær þjóðaratkvæðagreiðslur og sigur fyrir fjölþjóðlegum dómi breyttu engu um þá niðurstöðu. Þegar síðasta þing þessa kjörtíma- bils hefst eru aðstæður með þeim hætti að deilur um túlkun á átta ára gamalli þjóðaratkvæðagreiðslu halda umræðum um afmarkaðar efnisbreyt- ingar á stjórnarskrá í uppnámi. Þjóðaratkvæðagreiðslur geta skorið á hnúta en líka búið til vandamál og hættur eftir því hvernig að þeim er staðið og við þeim brugðist. Brexit, Icesave og stjórnarskráin S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 13F I M M T U D A G U R 1 0 . S E P T E M B E R 2 0 2 0

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.