Fréttablaðið - 10.09.2020, Page 36
BÍLAR
Erum með mikið úrval af allskonar
bílaverkfærum á frábæru verði!
ViAir 12V loftdælur
í miklu úvali.
Hleðslutæki
12V 6A
6T Búkkar
605mm Par
Jeppatjakkur
2.25t 52cm.
Omega
Viðgerðarkollur
4.995
9.999
17.995
7.495
Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
Verkfæralagerinn
Alltaf nóg til af humri hjá Norðanfiski...
STÓRUM HUMRI!!
Norðanfiskur ehf. sérhæfir sig í framleiðslu á
úrvals sjávarfangi til veitinga- og stóreldhúsa.
Einnig má finna vörur Norðanfisks í
neytendapakkningum í verslunum
Bónus um land allt.
Hafið samband á nordanfiskur@nordanfiskur.is eða í síma 430 1700
Dacia hefur látið frá sér fyrstu
opinberu myndirnar af þriðju kyn-
slóð Dacia Sandero, en hann verður
frumsýndur formlega seinna í
mánuðinum. Um tæknilegri bíl
er að ræða þó hann haldi enn í
einfaldleika sinn. Þótt ekki hafi
verið gefnar miklar upplýsingar
um tæknileg atriði, er greinilegt á
myndunum að bíllinn er lengri en
fyrri kynslóð, sem gefur til kynna
nýjan undirvagn.
Síðan bíllinn kom á markað árið
2002 hefur hann verið byggður á
sama undirvagni og þriðja kyn-
slóð Renault Clio. Búast má við
að nýr Sandero verði því á CMF-B
undirvagninum eins og nýr Clio
og Nissan Juke. Er það nauðsyn-
legt til að bíllinn standist auknar
kröfur um minni mengun og meira
öryggi.
Einnig er von á bílnum í Stepway
útfærslu, sem er með hærri fjöðrun
og þakbogum. Ólíklegt er að við
sjáum bílinn með tvinnbúnaði
eins og í nýjustu Nissan og Renault
bílunum, en líklegast eins lítra
bensínvél sem skilar 71 hestafli.
Aflmeiri útgáfa yrði með 1,3 lítra
vél, sem með forþjöppu skilar 128
hestöflum. Aftast á myndinni með
fréttinni má sjá næstu kynslóð
Dacia Logan, en hann verður einn-
ig byggður á sama undirvagni og
Sandero.
Dacia Sandero frumsýndur í myndum
Hver man ekki eftir gamla góða
Wagoneer jeppanum? Talsvert
var til af þeim bílum hérlendis,
enda landinn alltaf verið ginn-
keyptur fyrir stórum, fjórhjóla-
drifnum bílum. Ný útgáfa eftir
næstum 30 ára bið er því tíðindi
fyrir jeppafólk.
Jeep hefur frumsýnt tilraunaút-
gáfu af Grand Wagoneer lúxus-
jeppanum, en hann er væntan-
legur á markað árið 2022.
Þótt hér sé sagt að hann sé
aðeins tilraunabíll, er líklegt að
hann verði nokkuð nálægt þessum
bíl í endanlegu útliti. Það sýnir bíl-
inn með nýju útliti fyrir bíla Jeep,
sem er þynnra og breiðara grill,
skipt í sjö hluta eins og áður. Aðal-
ljósin eru líka þynnri en við höfum
séð áður. Það er díóðurönd sem
nær yfir allan framenda bílsins og
virkar eins og dagljósabúnaður.
Merki bílsins er á framhurðum
hans og til þess að það fari nú ekki
fram hjá neinum að um amerískt
ökutæki sé að ræða, er bandaríski
fáninn í merkinu.
Að innan er talan sjö líka alls-
ráðandi. Bíllinn er sjö sæta og það
eru sjö upplýsingaskjáir, hvorki
meira né minna. Sá stærsti er 12,3
tommur og framsætisfarþeginn er
með sinn eigin 10,3 tommu skjá.
Það sama á við um aftursætisfar-
þegana sem fá 10,3 tommu skjá
í miðjustokkinn á milli fram-
sætanna. Þessi tilraunaútgáfa er
Wagoneer frumsýndur í tilraunaútgáfu
Það styttist í að frumgerð nýs
Volkswagen ID.6 verði tilbúin
í framleiðslu, en nýlega náðust
njósnamyndir af þessum sjö sæta
raf bíl við prófanir í Ölpunum. Bíll-
inn kemur fyrst á markað í Kína
á næsta ári, en ekkert hefur verið
gefið upp um hvort hann verði
boðinn í Evrópu.
Það að hann hafi verið við próf-
anir í Ölpunum rennir þó stoðum
undir það og víst er þörf á sjö sæta
raf bílum á markað í álfunni. Bíll-
inn sást fyrst sem tilraunabíllinn
ID. Roomzz í fyrra og líkist honum,
þótt hann hafi losað sig við hliðar-
myndavélar í stað spegla. Bíllinn
verður byggður á MEB undirvagn-
inum og með tvo rafmótora sem
samtals skila 302 hestöflum.
Njósnamyndir af nýjum ID.6
Útlitið er langt frá gamla Wagoneer jeppanum þótt sjá megi skírskotun eins og sjöskipt grillið.
Að innan er tæknin allsráðandi með
sjö skjái fyrir ökumann og farþega.
Suzuki Jimny hefur
selst vel sem fjöl-
skyldubíll enda ódýrasti
jeppi sem fáanlegur er.
Nýr Grand Wago-
neer verður byggð-
ur á sama undirvagni og
Ram 1500 pallbíllinn og
þar af leiðandi með
svipaðan vélbúnað.
Búast má við að nýr
Sandero verði á
CMF-B undirvagninum
eins og nýr Clio.
Njáll
Gunnlaugsson
njall@frettabladid.is
sýnd sem tengiltvinnbíll en von er
á rafdrifinni útgáfu í framhaldinu.
Jeep hefur ekki gefið upp hvaða
vél er ofan í Wagoneer en þar sem
hann er byggður á sama undir-
vagni og Ram 1500 pallbíllinn, er
ekki ólíklegt að það sé 450 hestafla
V8 vél sem er 5,7 lítrar að rúmmáli.
Einnig er mögulegt að ný línusexa
frá FCA verði kynnt í nýjum Wago-
neer þegar hann kemur á markað.
Útlitið minnir á aðra ID bíla þótt að VW merkið vanti á prófunarbílinn.
Suzuki Jimny jeppinn var tekinn
af Evrópumarkaði fyrir skömmu
vegna hertra mengunarreglna,
en gæti nú verið á leiðinni aftur
á markað. Að vísu verður hann
þá aðeins boðinn í tveggja sæta
útgáfu. Er það gert svo að hann
falli í f lokk atvinnubíla, en þeir
þurfa ekki að undirgangast eins
strangar mengunarreglur. Eru við-
miðunarmörkin þar 147 g/km af
CO2 í stað 95 g/km fyrir fólksbíla.
Bíllinn er eins og áður að öðru
leyti, nema að farangursrýmið
stækkar um 33 lítra og sett er þil
til að vernda farþegana. Að sögn
Sonju G. Ólafsdóttur, markaðs-
stjóra Suzuki, verður þessi útgáfa
Jimny boðin hérlendis.
Jimny heldur áfram
sem tveggja sæta
Hinn vinsæli Jimny verður nú að-
eins fáanlegur sem tveggja sæta.
Ný kynslóð Dacia Sandero verður byggð á sama undirvagni og nýr Renault
Clio, sem og Dacia Logan, sem sjá má bregða fyrir í bakgrunninum.
1 0 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R22 B Í L A R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð