Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.2020, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.2020, Síða 4
MEST LESIÐ Á DV Í VIKUNNI Í FRÉTTUM ER ÞETTA HELST... Átak gegn einangrun Dæmi eru um að eldri borgarar á Íslandi hafi lokað sig inni vikum og jafnvel mánuðum saman af ótta við COVID-19 far- aldurinn og að staðan valdi kvíða og þunglyndi. Formaður Landssambands eldri borgara, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, hefur lýst yfir áhyggjum af stöðunni og hefur hrundið af stað átaki til að hvetja til hreyfingar og samskipta. Þrjú stærstu íþróttafélögin í Kópavogi taka þátt í átakinu og verður boðið upp á margvíslega hreyfingu og skipulagðar ferðir í íþrótta- húsin, fólki að kostnaðarlausu. Eins verður stuðningur við eldri borgara á höfuðborgarsvæðinu aukinn. Samningar standa Tvísýnt var í byrjun viku hvort Lífskjarasamningnum yrði sagt upp eða ekki. Eftir að ríkisstjórnin tilkynnti um að- gerðir til að styðja við atvinnulífið var þó fallið frá atkvæða- greiðslu um uppsögn samningsins og heldur hann því gildi sínu. Verkalýðshreyfingin hefur gagnrýnt Samtök atvinnu- lífsins fyrir að hóta að segja upp samningnum til að knýja fram aðgerðir ríkisstjórnarinnar í þágu atvinnurekenda. Íslendingar í gagnaleka Gagnaleki varð nýlega frá kínverska fyrirtækinu Zhenhua, en fyrirtækið tengist kínverska hernum. Kom þá á daginn að fyrirtækið hefur safnað saman gífurlegu magni persónu- legra upplýsinga um áhrifamenn víða um heiminn. Í gagnalek- anum má finna nöfn 411 Íslendinga sem eiga það sammerkt að vera annaðhvort áhrifamenn í íslensku samfélagi eða tengdir slíkum. Aðeins er um brot af heildarlista að ræða og er talið að jafnvel séu 4.000 Íslendingar á vöktunarlista fyrirtækisins. Meðal þeirra sem eru á listanum eru fyrrverandi ráðherrar, Katrín Júlíusdóttir, Geir H. Haarde og Óttar Proppé en einnig þingmenn, sendiherrar, dómarar, fjölmiðlafólk, íþróttamenn og einstaklingar sem hafa verið ákærðir eða hlotið dóm fyrir efnahagsbrot. Atvinnuleysi Tæplega þrjú hundruð einstaklingar misstu vinnuna í átta hópuppsögnum í september. Mikill meirihluti starfaði innan ferðaþjónustunnar. Vinnumálastofnun spáir því að atvinnu- leysi gæti orðið um 12 prósent innan skamms en áætlað at- vinnuleysi í september var tæp 10 prósent. Spáir Vinnu- málastofnun því að á bilinu 21-25 þúsund einstaklingar verði atvinnulausir hér á landi um áramótin. Forsjá þrátt fyrir grun um kynferðisbrot Föður hefur verið dæmd forsjá yfir barni þrátt fyrir að vera grunaður um að hafa brotið á því kynferðislega. Var for- sjáin tekin af móður því hún hafði ekki virt umgengni og haldið barninu frá föður vegna meintra brota hans. Í for- sjárdóminum kom fram að faðirinn hefði gengist við því að brjóta kynferðislega gegn hálfsystur sinni þegar hún var aðeins fimm ára gömul og bar stjúpsystir hans einnig vitni um að hann hefði brotið gegn henni þegar hún var barn. Maðurinn viðurkenndi jafnframt að fá holdris í kringum barn sitt. Málið hefur vakið töluverðan óhug í samfélaginu. Tóku á sig launalækkun Leikmenn íslensku A-landslið- anna í knattspyrnu samþykktu að taka á sig umtalsverða launalækkun í verkefnum sínum í september. Með þessu sýna þeir samstöðu við KSÍ vegna erfiðrar fjárhagsstöðu og COVID-19. Töluvert tekju- fall er hjá íþróttafélögum þar sem áhorfendur eru ekki heimilaðir á leikjum. Guðni Bergsson, formaður KSÍ, telur að tap félagsins verði á annað hundrað milljónir þegar allt verður talið. 1 Einar Ágúst var laminn og pyntaður af pólskum hermönnum – „Vinur minn dó við hliðina á mér“ Einar Ágúst Víðisson var um tíma á kafi í neyslu og glæpum. Hann deildi sögu sinni í hlaðvarpi Sölva Tryggva. 2 „Vandræðalega“ augnablikið milli Donald Trump og Melaniu Trump eftir kappræðurnar For- setahjónin rétt heilsuðust á meðan mótherji Trumps, Joe Biden, og eigin- kona hans féllust í faðma. 3 Móðir ungi konunnar í Kristals-auglýsingunni stígur fram – „Þú ert að lítilsvirða dóttur mína“ Móðir konu sem leikur í auglýsingu fyrir drykkinn Kristal var óánægð með umræðu meðal femínista um meintan kynferðislegan undirtón auglýsingar- innar. 4 Dóttir Ruthar Reginalds varð fyrir skotárás og biður um hjálp – „Hann bjargaði lífi mínu“ Ruth Moore, dóttir Ruthar Reginalds, varð ásamt unnusta sínum fyrir stórhættu- legri skotárás í Kaliforníu. 5 Slæmar fréttir fyrir Harry og Meghan – Raunveruleikinn blasir við Margir eru á því máli að svipta eigi hertogahjónin Harry og Meghan titlum sínum eftir að þau stigu til hliðar frá konunglegum skyldum sínum. 6 Auglýsing fyrir Kristal vekur sterk viðbrögð – „Er það bara ég eða er þessi auglýsing viðbjóður?“ Kristal-auglýsing sem sýndi unga konu stilla sér upp með dós af Kristal vakti sterk viðbrögð innan femínista- hóps á Facebook. 7 Fylgdarkona segir að menn sem halda framhjá skiptist í þrjá flokka Fylgdarkonan Amanda Goff fjallaði um hvers konar menn halda framhjá konum sínum. 8 Ásakanir um einelti og andlegt ofbeldi í Krýsuvík – „Manni leið eins og skít og hann fór létt með að brjóta mig niður“ Fyrrverandi starfs- menn meðferðarheimilisins Krýsuvík- ur segjast hafa verið beittir andlegu ofbeldi og einelti af yfirmanni. Ármúla 21, 108 Reykjavík - Reykjavík – Sími 533 4040 kjoreign@kjoreign.is - www.kjoreign.is/ KJÖREIGN FASTEIGNASALA - TRAUST OG ÖRUGG FASTEIGNASALA í 40 ÁR Ásta María Benónýsdóttir Löggiltur fasteignasali asta@kjoreign.is 897-8061 Sigurbjörn Skarphéðinsson Löggiltur fasteignasali, skjalagerð. sigurbjorn@kjoreign.is 533-4040 Dan Valgarð S. Wiium Hdl, löggiltur fasteignasali. dan@kjoreign.is 896-4013 Rakel Salóme Eydal Löggiltur fasteignasali og löggiltur leigumiðlari rakel@kjoreign.is 533-4040 Þórarinn Friðriksson Löggiltur fasteignasali. thorarinn@kjoreign.is 844-6353 Jón Bergsson lögmaður og löggiltur fasteignasali jon@kjoreign.is 777-1215 Fr um Kristinn Valur Wiium Sölumaður, sími: 896 6913 Ólafur Guðmundsson Sölustjóri, sími: 896 4090 Bjóðum til sölu 180,7 fm parhús á tveimur hæðum með innb. bíl- skúr. Svefnherb. eru fjögur og bað- herb. tvö. Sérlega fallegur garður og afgirtur sólpallur úr timbri með heitum potti. Húsið er í sérlega góðu ástandi, nýlega málað að ut- an. Vel skipulagt hús í lokaðri götu í barnvænu umhverfi. Verð 49 milljónir. ATH. skipti á minni eign möguleg. GRASARIMI – PARHÚS Ólafur Guðmundsson Sölustjóri, sími: 896 4090 Dan V.S. Wiium hdl., og löggiltur fasteignasali Kársnesbraut, 200-Kópavogi Síðumúli - 108 Rvk Smiðjuvegur, 200- Kóp VERSLUNAR OG IÐNAÐ NÆÐI. Atvinnuhúsnæði til leigu. Til sölu - Atvinnuhúsnæði/Verslunarhúsnæði á 1.hæð jar hæð í tveggja hæða steinhúsi. Stærð alls 166,0 fm. Á efri hæð hússins eru íbúðir. Stórir gluggar að framanverðu og tveir inngangar í húsnæðið. Laust fljótlega. Til sölu - Iðnðaðarhúsnæði á tveimur hæðum, Stærð alls 629,4 fm. Stór salur (bakhús) með innkeyrsludyrum að fra- manverðu. Salurinn er með góðri lofthæð, ca. 4 metrar upp í bita, engar súlur. Gluggar á báðum hliðum húsnæðisins. Milliloft með gluggum á suðausturhliðinni. Eignin er til afhendingar í janúar 2014. Verð: 65,0 millj Til leigu.- Verslunar og iðnaðarhúsnæði á jarðhæð. Mjög góð og áberandi staðsetning. Húsnæðið er með gott auglýsin- gagildi. Góðir gluggar og tveir inngangar. Hentar marghát- taðri starfsemi. Stærð 415 fm. þ.e. 330 fm verslun og 85 fm lagerhúsnæði. Eignin er laus strax. VEGNA MIKILLAR SÖLU UNDANFARNA MÁNUÐI VANTAR OKKUR ALLAR STÆRÐIR OG GERÐIR EIGNA Á SKRÁ. 4 FRÉTTIR 2. OKTÓBER 2020 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.