Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.2020, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.2020, Side 11
FRÉTTIR 11DV 2. OKTÓBER 2020 úr krabbameini, Jónas árið 2011 og Sigrún árið 2017. Silla segist sakna þeirra á hverjum degi. „Það er bara þannig. Ég hélt að það myndi fjara út en ég sakna þeirra á hverjum einasta degi en það er ljúf- sárt því við áttum svo gott líf saman.“ Pabbi þinn trúði á líf eftir dauðann. Finnur þú eitthvað fyrir þeim í húsinu? „Nei, og ég er brjáluð yfir því.“ Komast þau bara nokkuð fyrir, eru ekki öll börnin þín enn heima? „Jú, jii – og barnabörn og makar. Þau komast bara ekki fyrir. Þau koma kannski við þegar ég fer að senda börnin mín út í lífið og það léttir á húsinu. Það verður gaman að finna ilmvatnslyktina hans pabba. Ég hlakka til.“ Kynþokki og kakósúpa Silla hefur lengi þótt ein mest sjarmerandi fjölmiðlakona landsins og rödd hennar þykir umvefja hlustandann hlýju en hún er með vinsæla þætti á Rás 1 sem kallast Segðu mér. Hún hefur starfað á RÚV nánast frá fæðingu að undan- skildum sex mánuðum á Stöð 2. Útvarpskonan hljómþýða hefur verið útnefnd ein af kyn- þokkafyllstu konum landsins en gefur ekki mikið fyrir það og hlær hátt og innilega þegar hún er spurð út í kynþokkann. Á lista yfir Kynþokkafyllstu konur landsins sem birtist á DV.is fyrir þremur árum er henni lýst sem grískri gyðju sem bætir í kynþokkann hvert ár og segist álitsgjafinn helst vilja láta hana lesa sig í svefn á hverju kvöldi. Annar segir það skyldu að setja hana í sjónvarp og segir hana með einstakan limaburð sem líkist einna helst gasellu sem líður um Útvarpshúsið. Þegar upp- lestrinum úr greininni lýkur hlær Silla enn meira. „Þegar ég las þetta á sínum tíma þá las ég gas-eðlu og hugsaði að það væri nú lík- lega eitthvað hræðilegt,“ segir hún en álitsgjafarnir höfðu nú nokkuð til síns máls. Þegar nýr útvarpsstjóri, Stefán Eiríksson, tók við embættinu fyrir skemmstu var það eitt hans fyrstu verka að birta 10 ára gamla færslu á Facebook-síðu sinni þar sem hann hafði skrifað: Flottur þáttur hjá Sigurlaugu Mar- gréti Jónasdóttur og spurn- ingin er; af hverju er hún ekki oftar í sjónvarpinu? Stefán endurbirti færsluna eftir að hann tók við sem útvarps- stjóri og skrifar: Óskandi að ég þekkti einhvern sem gæti gert eitthvað í þessu. Og nú spyr ég Sillu, er verið að gera eitthvað í þessu? Hún kímir. „Ég er eitthvað að fara að gera.“ Hvað þýðir það? „Ég á mér drauma. Það er þetta með matinn. Ég er alltaf með hann á heilanum,“ segir hún. Og það er rétt. Marinn hvítlaukur og gott rauðvín eru hluti af þeim lífsgæðum sem hún heldur fast í. „Mataráhuginn er kominn frá ömmu Sillu. Hún bjó við hliðina á okkur í Eskihlíðinni og ég borðaði alltaf heitan mat í hádeginu hjá henni. Mér fannst hún gera besta mat í heimi og svo var alltaf kakó- súpa eða hrísgrjónagrautur á eftir.“ Grátið af gleði Hún segist snemma hafa áttað sig á að hún hefði tilfinningu fyrir matargerðarlistinni. „Ég var mjög þakklát þegar ég áttaði mig á að ég get búið til góðan mat, svo þegar við flutt- um til Flórens í eitt ár þegar Torfi fór í gullsmíðanám, þá bara gerðist eitthvað. Það var eins og ný vídd. Upplifunin að versla á matarmarkaðnum og fá alltaf gefins rucola (kletta- salat) með var stórkostlegt. Ég vissi ekki hvað það var þegar við fluttum þarna út. Og lyktin af því. Dásamleg. Við áttum ekki mikinn pen- ing en alltaf nóg fyrir pasta og smá rauðvíni. Það var bara grátið af gleði hvern dag. Þetta var svo stórkostlegt. Sonur okkar var þá tveggja ára og ég keypti ís handa hon- um alla daga. Hann hafði ekk- ert sérstaklega mikinn áhuga á ísnum – en ég hafði það. Ég sleppti ekki úr degi. Ís alla daga. Mér fannst þetta svo stórkostlegt. Þetta er að njóta lífsins. Þetta er það mikilvæg- asta sem hefur komið fyrir mig. Að kynnast nýrri menn- ingu, það verða allir að upplifa það að búa í öðru landi.“ Silla segist hafa fylgst náið með nágrannakonunum sem voru alltaf með tuskuna á lofti að þrífa stigana, viðra hitt og þetta. Hún tók því fljót- lega upp á því sjálf að vera alltaf að viðra eitthvað út um gluggann, vera með matinn tilbúinn klukkan sex og sjúga í sig menninguna og hefð- irnar í kring. „Þetta var svo skemmtilegt. Svo hjóluðum við um, hristum mottur og drukkum rauðvín. Það var þarna eitt kvöld sem við ákváðum að fá okkur ekki rauðvínsglas með kvöld- verðinum og ég man að við vöknuðum og horfðum á hvort annað og ákváðum að þetta myndum við ekki gera aftur. Bara aldrei,“ segir hún og hlær og undirstrikar að lífið sé til þess að njóta. „Það er bara eitthvað við það að merja hvítlauk og fá sér eitt rauðvínsglas.“ Að þora að þegja Hún segir að enn þann dag í dag, áratugum eftir að hafa stýrt sínum fyrsta útvarps- þætti, sé græna útsendingar- ljósið það besta í heimi. „Mér líður best í beinni útsendingu. Græna ljósið og allt er gott. Það er ekki sjálfsagt að finn- ast alltaf jafn gaman að ganga inn í húsið og vita ekki hvern- ig þátturinn verður, hvað ég fæ út úr mínum viðmælanda. Hvað ætlar hann að segja mér? Hverjir hlusta, ekki það að ég hafi nokkurn tímann hugsað mikið um það.“ Það sést langar leiðir að starfið er órjúfanlegur hluti af Sillu og samofið flestu sem skiptir hana máli. Arfleifðinni og fjölskyldunni. Áhuginn á fólki og sögum þess. „Almennt hef ég mestan áhuga á því hvernig fólk lifir af. Hvernig það lifir erfiðleika og já, lífið, af. Þegar fólk gefst ekki upp. Ég er sjálf þannig. Ég heimta það ekki að vera hamingju- söm en maður reynir. Og það er frábært. Fólk sem notar húmorinn, það finnst mér líka geggjað. Að því sögðu hef ég fengið ábendingar um að ég hlæi of mikið í útsendingu,“ segir Silla og hlær. „Kannski hlæ ég of mikið. Ég veit það ekki.“ En hefur þú aldrei fengið einhvern í viðtal sem hafði enga sögu? Ekkert að frétta? „Einu sinni. Á öllum þessum tíma bara einu sinni. Ég var farin að íhuga að spyrja við- komandi út í skóstærð. Það var bara ekkert að frétta. Annars hefur fólk alltaf eitt- hvað að segja. Pabbi var minn kennari og þegar hann var búinn að sannfæra mig um að maður ætti ekki að óttast þögnina, þá held ég að ég hafi fyrst orðið þokkaleg útvarps- kona. Að þora að taka viðtöl við fólk og þora að þegja. Því þá veit maður að fólk heldur áfram. Því það hugsar, vá, hún ætlar ekki að segja neitt í beinni útsendingu. Og þá talar fólk áfram og segir það sem það ætlaði ekki að segja. Það er málið,“ segir Silla. Hún segir að þó að það sé allt að fara til fjandans þá mæti hún alltaf til vinnu og græna ljósið kviknar og lífið heldur áfram. „Ég hef mætt til vinnu á erfiðum degi með grátstafinn í kverkunum en það er ekki hægt að hætta við útsendingu. Maður gerir þetta bara. Ég hef gengið í gegnum alls konar erfiðleika, missi og erfiðleika innan fjöl- skyldunnar eins og annað fólk. En ég mæti alltaf í vinnuna. En svo kemur kannski að því að maður þurfi að passa sig. Hjördís systir mín hringir stundum í mig og segir það. Silla, þú verður að passa þig.“ Að því sögðu segir Silla það skipta máli að leyfa sér að gráta. „Ég mæli með því að gráta á milli ljósa. Þá er maður búinn þegar komið er á áfangastað. Ég notaði það mikið þegar pabbi var á líkn- ardeild. Grét á milli ljósa og snýtti mér áður en ég fór inn á spítalann.“ Níu manns í mat Sigurlaug og Torfi kynntust í MH og eiga saman tvær stúlkur og einn dreng en þetta er allt orðið fullorðið fólk að hennar sögn en þau búa þó öll heima og gott betur. Makar og barnabörn fylla nú húsið sem þau hjónin keyptu með foreldrum Sillu og bjuggu þau hvor á sinni hæðinni. Því má að vissu leyti segja að Silla hafi aldrei flutt að heiman. „Hugmyndin kom eiginlega frá Torfa þegar við komum heim frá Ítalíu, uppfull af rómantík yfir stórfjölskyld- unni. Við fundum þá þetta hús með tveimur íbúðum og höfum búið þar öll síðan.“ Var það aldrei vesen? Allir að skipta sér af öllum? „Nei, aldrei nokkurn tímann. Það var venjuleg klassísk fýla Ég mæli með því að gráta á milli ljósa. Þá er maður búinn þegar komið er á áfangastað. Silla keypti þennan fall­ ega silkikjól fyrir árlegt kampavínsboð sitt sem nú verður að bíða betri tíma.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.