Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.2020, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.2020, Side 22
Á rið 2012 byrjuðu Shanna Liz Goylar og Dave Kroupa að hittast. Þau voru bæði um 35 ára gömul. Dave Kroupa hafði áður verið í sambandi við konu sem hét Amy Flora. Þau áttu saman tvö börn en höfðu aldrei verið gift. Kro- upa virtist ekki kæra sig um of miklar skuldbindingar og þegar Amy hafði sýnt áhuga á hjónabandi hafði Dave slitið sambandinu. Dave naut þess að vera einhleypur og var virkur á stefnumótasíðum. Þar kynnt- ist hann Liz. Hún var á sama aldri og átti líka börn af fyrra sambandi. Fljótlega kom í ljós að Liz tók sambandinu alvar- legar en David og var mjög hugfangin af honum. Henni gramdist að hann skyldi verja tíma með börnunum sínum tveimur og hún vildi hafa hann út af fyrir sig. Þetta var fullmikið af því góða fyrir Dave sem var í rauninni ekki að leita að al- varlegu sambandi. Þegar honum fannst Liz vera orðin of uppáþrengjandi sleit hann sambandinu. Nýja kærastan og óvæntir úrslitakostir Skömmu eftir þetta kynnt- ist Dave forritaranum Cari Farver. Hún virtist vera á sömu bylgjulengd og Dave hvað varðaði hæfilegan hita ástarsambands og hún vildi ekki alltaf vera með honum, heldur líka vera út af fyrir sig, enda varði hún miklum tíma í forritunarvinnu sína. Cari átti einn son frá fyrra sambandi. Hún hafði strítt við þunglyndi en eftir að hafa fengið heppilega lyfja- gjöf náði hún góðum tökum á heilsufari sínu og gekk vel í vinnu og einkalífi. Þó að hvorugt vildi miklar skuldbindingar urðu þau nánari og Cari varði miklum tíma við forritunarvinnu sína heima hjá David, oft á meðan David var að heiman við sína vinnu, en hann var bifvéla- virki. Hinn 13. nóvember árið 2012, þegar Cari var við vinnu sína heima hjá Dave og hann var í vinnunni sinni á bifvélaverkstæðinu, fékk hann textaskilaboð frá Cari sem komu eins og þruma úr heiðskíru lofti. Hún spurði hvort hann vildi flytja inn til hennar. David svaraði strax „nei“. Cari brást illa við þessu og eftir að nokkur skeyti höfðu farið þeim á milli sagði hún vilja slíta sambandinu og ekki hitta hann framar. Cari lét ekki ná í sig Í hönd fór undarlegur tími, þegar enginn gat náð í Cari en hún lét rigna fjandsam- legum skilaboðum yfir Dave. Ekki leið á löngu þar til hún fór líka að ofsækja fyrirver- andi kærustu hans, Liz, með viðurstyggilegum skilaboð- um. Ráða mátti af sendingum hennar að hún væri mjög af- brýðisöm út í Liz og óttaðist að Dave tæki aftur saman við hana. Þetta var mjög ólíkt Cari eins og David hafði þekkt hana, en á hinn bóginn höfðu kynni þeirra ekki varað lengi. Það kaldhæðnislega var að þessi undarlega áreitni Cari færðu þau David og Liz saman og þau fóru að hittast mikið aftur. Tvennt var sérstaklega óþægilegt við skilaboða- sendingar Cari. Annað var að sumar báru með sér að hún væri að fylgjast með Liz og Dave og virtist stundum vita nákvæmlega hvað þau voru að gera þá stundina. Hitt var að enginn virtist geta náð í hana. Á Facebook-síðu sinni birti hún færslu þar sem hún sagðist vera farin burtu en sagði ekki hvert, en að hún vildi að fólk léti sig í friði og hætti að spyrja um hana. Sonur hennar svaraði færslunni og spurði móður sína þriggja spurninga um sig er snertu atriði sem að- eins hún gat vitað. Cari sem ávallt var fljót að svara skila- boðum svaraði þessum skila- boðum ekki. Cari lét fjandsamlegu skilaboðasendingarnar ekki nægja. Hún braust inn í bíl- skúr Liz og málaði svívirð- ingar á veggina þar. Stuttu síðar var kveikt í húsi Liz og þar drápust gælu- dýr hennar, tveir hundar. Dave var orðinn alvarlega hræddur við Cari og keypti sér skammbyssu til verndar. Nokkrum misserum síðar týndist byssan. Þegar ofsóknir Cari voru búnar að ná hámarki hjöðn- uðu þær. Skilaboðin frá henni urðu strjálli. Ástvini hennar grunaði sterklega að hún hefði ekki látið sig hverfa heldur væri látin. Það virkaði til dæmis afar tor- tryggilegt að hún hefði ekki svarað spurningu sonar síns á Facebook-síðunni. Eftir því sem lengri tími leið frá hvarfi hennar virtist ótrúlegra að hún hefði ekki samband við neinn. Kvöld eitt var gerð skotárás á Liz og særðist hún á fæti. Hún bar kennsl á árásaraðil- ann og sagði að Amy Flora hefði verið að verki, barns- móðir Dave. Við rannsókn kom í ljós að byssukúlan var úr sams konar byssu og hafði horfið frá Dave. Liz var nú sannfærð um að Amy væri að baki skila- boðasendingunum og öðrum ofsóknum og viðraði þá hug- mynd við lögreglu sem tók vel í tilgátuna. En þau viðbrögð voru bara á yfirborðinu. Lög- reglan var að rannsaka aðra tilgátu. Sannleikurinn kemur í ljós Við ítarlegar rannsóknir á tölvum og snjalltækjum Dave og Liz komst lögreglan að því að skilaboðasending- arnar komu frá Liz. Og það sem meira var: í síma fundu tölvusérfræðingar mynd sem hún hafði eytt og sýndi aflim- aðan fótlegg af Cari, sem var auðþekkjanlegur af tilteknu húðflúri. Í bíl Cari fannst fingrafar af Liz og blóðblettur úr Cari. Árið 2016 var Shanna Liz Goylar ákærð fyrir morðið á Cari Farver. Þó að hún neitaði og ekkert lík fyndist þóttu sönnunargögnin nægileg, hún var fundin sek og dæmd í lífs- tíðarfangelsi. Sjúkleg afbrýðisemi og löngun til verða eiginkona Dave Kroupa varð til þess að hún framdi morð, þóttist vera önnur kona um árabil, kveikti í eigin húsi og drap gælu- dýrin sín, og veitti sjálfri sér skotsár. Til að toppa þetta reyndi hún síðan að klína öllu saman á aðra konu, Amy Flora. Furðulegri verða glæp- irnir ekki. n SAKAMÁL Ágúst Borgþór Sverrisson agustb@dv.is Shanna Liz Goylar fer í sögubæk- urnar. MYND/DOUGLAS CONTY CORREC- TIONS Dave Kroupa fékk hrollvekjandi skilaboð frá sinni fyrrverandi. MYND/ SKJÁSKOT AF YOUTUBE Cari Farver lét sig hverfa og fór að hegða sér undarlega. MYND/SKJÁSKOT AF YOUTUBE Sjúklegri verður afbrýðisemin ekki Þessi saga gerist í Ohama í Nebraska, Bandaríkjunum. Hún segir frá að því er virðist venjulegu fólki en er þó uppfull af blekkingum og það er framið morð. Sagan er svo lygileg að ef hún væri bíómynd þætti hún ótrúverðug. En þetta er ískaldur veruleiki. 22 FÓKUS 2. OKTÓBER 2020 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.