Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.2020, Qupperneq 28
S æl. Ég og kærastinn minn höfum verið sam-an í sex ár. Ég elska
hann mjög mikið og stundum
finnst mér eins og við gætum
sprungið úr ástríðu en svo
koma tímabil þar sem allt
dettur í dúnalogn á auga-
bragði og í kjölfarið byggist
upp spenna sem endar með
sprengingu. Ég á erfitt með
að segja til um hversu oft
þetta gerist, stundum líða
bara klukkutímar á milli
en oftast 3-4 vikur. Yfirleitt
ekki mikið meira. Stundum
hef ég reynt að setja puttann
á það hvað orsakar helst
sprengingarnar, en það er
ekkert sem ég finn þar. Mér
líður eins og við séum föst í
mynstri sem við komumst
ekki út úr. Geturðu hjálpað
mér? Kveðja, Ein að springa
úr ást en samt í vanda.
Grípið tímanlega inn í
Sæl, ástarsprengja. Takk
fyrir góða spurningu. Það er
margt þarna sem rímar við
vanda hjá öðrum pörum sem
leitað hafa til mín. Aðallega
er það vítahringurinn sem er
kunnuglegur en svo getur það
verið pínu fyndið að enginn
man um hvað „sprenging-
arnar“ snérust. Því miður
á ég ekki til skyndilausnir
en ég get fullvissað þig um
að það er fullt af fólki sem
hefur fundið lausnir á sam-
bærilegu. Það mikilvægasta
er að það sé vilji fyrir hendi
til þess að reyna að laga og
ræða saman.
Þegar unnið er með víta-
hringi getur verið hjálplegt
að reyna að grípa inn í áður
en allt er komið í háaloft og
fyrirbyggja þannig þessa
klassísku þróun. Þú nefnir
að þú áttir þig ekki nákvæm-
lega á það hvað orsakar helst
sprengjur en það gæti verið
gott að skoða hvað það er sem
einkennir hækkandi spennu-
stig hjá ykkur.
Hækkandi spennustig
Mér dettur í hug að ástandið
sem þú nefnir „dúnalogn“
geti verið upphafið að ykkar
vítahring? Ef svo er, þá gæti
verið ráð að þið mynduð
merkja ykkur það, ræða
saman þegar þið finnið fyrir
logninu og prófa ykkur áfram
með nýjar leiðir sem gætu
komið í veg fyrir storminn?
Hækkandi spennustig
verður líffræðilegt og þegar
við náum ákveðnum hæðum
setur líkaminn af stað varn-
arkerfi sitt. Í slíkum aðstæð-
um grípur fólk til varnar-
viðbragða og oftast eru þau
með þrenns konar sniði, það
er barningur (fight), flótti
(flight) eða frost (freeze).
Sennilega hafið þið bæði sýnt
allt framangreint en þegar
annar frýs þá er algengt
að hinn fari í barning. Ef
annar aðilinn leggur á flótta
þá berst hinn með kjafti og
klóm. Í mikilli hættu kallar
líkaminn fram sömu varnar-
viðbrögð, sumir hlaupa, aðrir
frjósa. Þetta segir okkur hvað
sterk tilfinningatengsl geta
framkallað hjá okkur sterk
viðbrögð. Rifrildi við kær-
astann þinn geta haft sam-
bærileg áhrif á taugakerfi
þitt og mikil hætta og jafnvel
stríðsástand.
Kortleggið vítahringinn
Þessi vitneskja getur hjálpað
ykkur sem einstaklingum
að kortleggja hvar í víta-
hringnum þið eruð stödd. Þú
finnur spennustigið hækka
og það fer eitthvað að ólga
innra með þér. Ekki leyfa
því að stigmagnast, stingdu
heldur á kýlið og reyndu að fá
maka þinn til þess að hjálpa
þér að ná þér niður áður en
sprengjan verður til. Á þessu
stigi nýtist sumum að eiga
„leyniorð“ sem gæti verið:
pass, kæling eða knúspása
(svo eitthvað sé nefnt). Knús
er ekkert vitlaus hugmynd
því faðmlag framkallar fram-
leiðslu vellíðunarhormóna
sem gætu unnið gegn hækk-
andi spennustigi.
Það mikilvægasta í þessu
gæti þó verið að þið séuð
ekki að reyna að ræða saman
eða komast að niðurstöðu
í miðjum hvirfilbyl. Þegar
taugaspennan í líkama ykkar
er í hámarki heyrið þið bara
10% af því sem sagt er við
ykkur og afar líklegt má telj-
ast að það séu bara fúkyrðin
fremur en góðu lausnirnar.
Margir ná þessu stigi rétt fyr-
ir svefninn, þegar taugakerfið
er sem viðkvæmast og allir
eru þreyttir. Þá getur „við
sofnum aldrei ósátt“ háð fólki
verulega, en sumum finnst
gott í þessari stöðu að vera
sammála um að vera ósam-
mála og klára umræðuna með
skýrari koll daginn eftir.
Greina erfiðar stundir
Þó að þú vitir ekki alveg hvað
það er sem þið rífist aðallega
um eða framkallar hjá ykkur
sprengingar þá getur verið
nytsamlegt að greina erf-
iðar stundir og skoða hvort
þið finnið eitthvert mynstur.
Tengjast sprengjurnar álags-
punktum í tengslum við fjöl-
skyldulífið? Sum pör rífast
oftast milli 17-19 vegna þess
að þá eru þau svöng. Koma
sprengjur í kjölfar erfiðis-
daga í vinnunni? Ef þið rýnið
þetta saman í rólegheitunum
þá getur vel verið að þið
finnið vísbendingar til þess
að vinna út frá.
Að lokum mæli ég alltaf
með því að fá aðstoð frá
þriðja aðila. Slíkt þarf ekki
að kalla á margra mánaða
meðferð, einn tími getur gert
kraftaverk. Bara það að horf-
ast í augu við vandann, leita
hjálpar og eiga smá samtal
getur einmitt verið skrefið
sem þið þyrftuð til þess að
brjóta upp vítahringinn.
Það er til mikils að vinna,
rífast minna og njóta meira.
Þið getið þetta! n
Við hvetjum lesendur til að senda
spurningar og vangaveltur sínar til
Kristínar í tölvupósti á:
hjonabandssaela@gmail.com.
Spurningunum verður svo svarað
hér í Fjölskylduhorninu, að sjálf-
sögðu nafnlaust og í fullum trúnaði.
28 FÓKUS 2. OKTÓBER 2020 DV
Fjölskylduhornið
Kristín Tómasdóttir hjónabandsráðgjafi
svarar spurningum lesenda um málefni
er varða fjölskylduna, börnin og ástina í
Fjölskylduhorni DV. Að þessu sinni svarar
Kristín spurningu lesanda sem er fastur í
vítahring rifrilda.
VÍTAHRINGUR RIFRILDA
MYND/GETTY
Á þessu stigi
nýtist sumum að
eiga „leyniorð“
sem gæti verið:
pass, kæling eða
knúspása.
Sérfræðingur svarar