Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.2020, Page 38
Eniga, meniga, allir röfla um peninga. Súkkadí, búkkadí, kaupa meira fínerí. MYND/ANTON BRINK
38 SPORT 433 2. OKTÓBER 2020 DV
Hörður Snævar
Jónsson
hoddi@433.is
1,5 MILLJARÐAR Í BOÐI EF
LANDSLIÐINU TEKST VEL TIL
Það er gríðarlega mikið í húfi fyrir KSÍ, félögin í landinu og íslenska
landsliðsmenn ef strákunum okkar tekst að komast inn á sitt þriðja
stórmót í röð. Á síðustu árum hafa félögin fengið yfir 600 milljónir.
Í slenska karlalandsliðið leikur mikilvægan lands-leik gegn Rúmeníu í
næstu viku, um er að ræða
leik í umspili um laust sæti
á Evrópumótinu á næsta ári.
Sigur þar gefur sæti í úrslita-
leik um laust sæti þar sem Ís-
land mætir Búlgaríu eða Ung-
verjalandi sem mætast á sama
tíma í næstu viku. Úrslitaleik-
urinn fer fram ytra í nóvem-
ber. Fyrir leikmenn íslenska
landsliðsins er um að ræða
gullið tækifæri til að komast
inn á sitt þriðja stórmót í röð.
Íslenska karlalandsliðið komst
í fyrsta skiptið inn á stórmót
árið 2016 þegar liðið tók þátt
á Evrópumótinu í Frakklandi
með eftirminnilegum hætti,
liðið komst svo inn á Heims-
meistaramótið tveimur árum
síðar í Rússlandi.
Gríðarlegir fjármunir í boði
Komist íslenska landsliðið inn
á Evrópumótið gefur það KSÍ
1,5 milljarða í kassann á gengi
dagsins í dag, þegar liðið
komst inn á Evrópumótið 2016
var sú upphæð 1,3 milljarðar
á gengi dagsins í dag. UEFA
hefur hækkað greiðslur sínar
til þeirra félaga sem koma inn
á mótið. Fyrir hvern sigur á
mótinu fær það knattspyrnu-
samband 243 milljónir í vasa
sinn en jafnteflið gefur helm-
ing þeirra upphæðar. Komist
Ísland á Evrópumótið er liðið í
riðli með Þýskalandi, Portúgal
og Frakklandi og verður spil-
að í Búdapest og í München.
Fjármunirnir sem Ísland
fékk á Evrópumótinu í Frakk-
landi og svo á Heimsmeistara-
mótinu í Rússlandi hafa einn-
ig komið sér vel fyrir félögin
í landinu. Eftir Evrópumótið
2016 fengu félögin í landinu
453 milljónir króna, eftir HM
í Rússlandi fóru 200 millj-
ónir til aðildarfélaga KSÍ. 653
milljónir sem íslensk knatt-
spyrnufélög hafa notið góðs af
fyrir árangur íslenska karla-
landsliðsins. Nú þegar rekstur
félaganna hefur sjaldan verið
erfiðari væri það mikil bú-
bót fyrir íslensk félög að fá
greiðslur sem þessar til að
létta undir með sér.
Yrði búbót fyrir félögin
á erfiðum tímum
Fjármunirnir sem komið
hafa inn í rekstur félaganna
frá stórmótum strákanna
hafa gefið vel, þannig fengu
félög allt að 18 milljónum í
vasa sinn eftir Evrópumótið
í Frakklandi. Þá gafst tæki-
færi til að borga hærri laun
og fá inn betri leikmenn en ef
peningar kæmu inn í gegnum
Evrópumótið 2021 yrði það
til að borga niður skuldir og
létta undir mjög svo erfiðum
rekstri. „Það er eftir hellingi
að slæðast, það hefur samt
sem áður engin umræða átt
sér stað um skiptinguna ef
til þess kemur. Það er alltof
snemmt að taka það samtal,
fyrst er að komast á mótið
og fagna því, svo geta félögin
sest niður með KSÍ,“ sagði
Birgir Jóhannsson, fram-
kvæmdarstjóri Íslensks Topp-
fótbolta, sem eru hagmuna-
samtök félaga í efstu deildum
á Íslandi.
Félögin hafa orðið fyrir
miklum tekjubresti, áhorfend-
ur hafa ýmist verið bannaðir
eða takmörkun á því hversu
margir geta mætt á völlinn
hér á landi í ár. „Hljóðið er
þungt í félögunum og hefur
verið það síðustu mánuði.
Það er ekki bjart fram undan,
tekjur eru yfirleitt mestar
í kringum sumartímann.
Evrópukeppni, miðasölur
og krakkamótin. Ég veit um
mörg dæmi þar sem félög hafa
verið að missa styrktarsamn-
ing, það eru fjölmörg dæmi.
Félögin eru að missa eða þá að
það er lækkun á samningum.
Knattspyrnulið er með marga
á launaskrá, ellefu leikmenn
í byrjunarliði, varamenn og
starfslið. Það verður mjög
erfitt að fara í gegnum þennan
vetur.“
Birgir segir að það myndi
breyta miklu fyrir félög í
vanda að fá greiðslu frá KSÍ
ef íslenska landsliðið kæmist
inn á Evrópumótið. „Það væri
„leikbreytir“, við vitum allt
um það. Það er ekkert fast í
hendi en vonandi tekst strák-
unum vel til og komast inn á
sitt þriðja stórmót í röð,“ sagði
Birgir að lokum.
Gríðarlegt tekjutap KSÍ
Það eru ekki bara félögin í
landinu sem hafa mátt þola
mikið högg, allt stefnir í að
íslenska karlalandsliðið leiki
alla heimaleiki sína fyrir
luktum dyrum á þessu ári.
England kom í heimsókn í
september og á næstu dögum
koma hingað Rúmenía í um-
spili um laust sæti á EM
og síðan koma Danmörk og
Belgía í Þjóðadeildinni. „Að
sjálfsögðu myndi muna um
það ef strákarnir kæmust inn
á Evrópumótið. Það er fyrir
utan gleðina og ánægjuna sem
því fylgir að ná þeim árangri,
við erum einbeitt á það að ná
árangri með karla- og kvenna-
landsliðin á næstu vikum. Það
er mikið undir og fjárhags-
legi ávinningurinn er mikill
ef karlalandsliðið kemst inn
á EM,“ sagði Guðni Bergsson,
formaður KSÍ, um stöðuna.
„Þetta eru vel á annað
hundrað milljónir sem við
verðum af þegar fjórir leikir
karlanna eru fyrir luktum
dyrum,“ sagði Guðni en KSÍ
átti talsvert eigið fé til að
ganga á þegar kórónaveiran
gekk yfir heimsbyggðina. Það
eru svo ekki bara KSÍ og fé-
lögin í landinu sem græða á
því að Ísland komist inn á EM,
leikmennirnir sem komast í
lokahóp á mótið fá vel á annan
tug milljóna í vasa sinn. n
Vel á annað
hundrað milljónir
sem við verðum af.