Austri


Austri - 21.12.1995, Blaðsíða 7

Austri - 21.12.1995, Blaðsíða 7
Jólin 1995. AUSTRI 7 sinni við sögu á helgum jólum bernsku minnar. Annars var líka ekki að vænta því þetta var stráhatt- ur með breiðum börðum, til þess gerður að skýla fyrir heitu sólskini í Suðurálfu og hentaði auðvitað alls ekki á hvítum jólum úti á Islandi. Þannig var mál með vexti að þegar Gísli föðurbróðir minn sneri heim frá hvalveiðum í Afnku 1917 færði hann frænda sínum tvævetrum þennan forláta grip, gersemi sem aðeins var gripið til við hátíðleg tækifæri. Svo líða nokkur ár og það eru jól og komið fram á kvöld. Spila- mennskan var í algleymingi. Mamma færði okkur mjólk og kræs- ingar sem við neyttum með góðri lyst. Gunna hefur áreiðanlega feng- ið molasopa sem hún kunni vel að meta, bakkelsi var henni síður að skapi. Aður en við tækjum til á ný þurfti ég að fara afsíðis. Húsnæði til einkanota fyrir hvern mann var þá ekki innbyggt í vistarverur fólks, ekki á þessum slóðum, og þó til staðar, sér byggt úti á hlaði. Ég kippti skóm á fætur mér eins og fornmenn gerðu þegar svo stóð á. Og þar sem veður var fremur svalt og golukaldi ofan í kaupið þótti mér óráðlegt að fara þessa nauðsynjaferð berhöfðaður. Sýndist mér þá best við eiga, þrátt fyrir norðlæga breiddargráðu, að setja upp hitabelt- ishattinn, á þessu hátíðarkvöldi. Það var undan veðri að fara á út- leiðinni og allt gekk vel. En svo fór í verra. Þegar ég snaraðist fyrir hús- hornið og átti fáein skref ófarin að útidyrunum kom vindsveipur ofan úr fjalli, skaust undir hattbörðin breiðu og hreif hattinn með sér eitt- hvað út í buskann. Mér féll allur ketill í eld, kom inn „fölur og fár“ og vitnaðist þó fljótt hvað í var orðið. Var mér svo mjög brugðið að ég leit ekki við spilun- um, háttaði ofan í rúm og fór að lesa í Nýja testamentinu sem ég hafði fengið íjólagjöf. Nú er þar til að taka að á þeim misserum var á Brekku annar ungur maður, Arni Björnsson frá Reykj- um, og hefur vísast verið fylgdar- maður minn í téðri ferð. Hann var fjórum árum eldri en ég, kjarkmaður og „klókur í sér“. En þá einkunn notuðum við oft okkar á milli seinna þegar okkur þótti það við eiga. Og tekur nú til sinna ráða. Já, Arni fór að leita hattsins. En ekki get ég ímyndað mér að nokkrum hafi þótt sú leit líkleg til að bera árangur. Ekki var dagsbirt- unni fyrir að fara og vindur stóð inn og niður frá bænum og eins líklegt að hatturinn hefði fokið út á fjörð og sigldi nú hraðbyri frá landi. Hver gat sagt um það? Snjór var um allar jarðir, bjart uppi yfir og líklega glæta af tungli. Nema Árni kemur auga á örmjó för eftir börðin á hattinum þar sem hann hafði skondrað undan vindinum ofan á fannbreiðunni, skáhallt áleið- is til sjávar. Náði hann svo að fylgja þessari veiku vegvísun inn og niður tún og allt niður í fjöru. Og viti menn. Þar liggur þá sólhatturinn frá Suður-Afríku, kirfilega skorðaður milli tveggja steina. Nú skyldu menn halda að eigandi hattsins hefði orðið fjöðrum fenginn þegar Árni kom sigri hrósandi með þessa sérkennilegu kuldahúfu. En það var nú öðru nær. Svo er sagt að þá hafi ég fleygt frá mér Nýja testamentinu án þess að segja orð, breitt sængina upp yfir höfuð og ekki látið á mér kræla það sem eftir var kvöldsins. Varla þarf að nefna það að daginn eftir hafði þessi skaðasári, ungi maður tekið gleði sína, albúinn að hefjast handa við spilamennskuna á ný ásamt hinum krökkunum - og Gunnu. Á hinn bóginn má vel geta þess að sögulokum að tveimur árum seinna var hatturinn góði aftur „hætt kominn“. Eigandi hans lenti í Sterl- ingsstrandinu við Brimnes 1922 ásamt móður sinni og fóstursystur. Engin mannhætta var þar á ferðum en nokkur ruglingur varð á farangri farþega er þeir voru feijaðir til lands á skipsbátnum. Hatturinn varð til dæmis viðskila við eiganda sinn í fyrstu ferðinni. Leið svo og beið. En þegar réttar voru upp á klappirnar, úr síðasta bátnum, hinar og þessar eigur ferðafólksins sem legið höfðu eftir um borð, þá skilaði hann sér hatturinn í réttar hendur, ekki bar á öðru. Vilhálmur Hjálmarsson ‘Þölfáum starfsfólfc tiísjós og Cands góða samvinnu á árinu scm er að Cíða. Skinney hf. Steinunn SF 10, Freyr SF 20, Skinney SF 30 Höfn, Hornaílrði MÓÐIR Ég vil þakka allar stundir, er ég hvíldi í skauti þínu. Þessir Ijúfu, liðnu fundir, lögðu yl að hjarta mínu. Þú hefur vakað vegna mín vetrar langar nœtur, afþvífesti ástin þín innst í hjarta rætur. Frið og mátt égfann í svör- um, flest ég man aforðum þínum, meðan bœrist bros á vörum blika tár á hvörmum mínum. Efað kom ég inn til þín og var þungt í geði breyttirðu œtíð móðir mín, minni hryggð í gleði Þvífœr ekki þungi og hiti þreytt mig enn á lífsins göngu að mérfmnst, sem enn ég siti endur hjá þérfyrir löngu. JÓLAMINNING 1929 Hvað er á jörðu svo himnesk sem jól? I hæðunum stjörnurnar brenna. Eru þau ekki œvinnar sól? Því augu til himins renna. I austri stjarnan aföllum ber, sem eilífa Ijósið mannanna er, svo vorið í vitund þeim kemur. íhreysi og sölum er helgidagsró, og hátíða söngvarnir óma, sem veita hjartanu vœrðir ogfró og vekja til lífsins afdróma, því kœrleikansdrottinn klappar á dyr, hjá konu og manni og barni sem spyr umfæðingu Krists, syngdu fagnaðar hljóma. Höfundur Bjarni Jónsson kennari fæddur í Grófargerði 28.4 1895. dáinn 28.7 1981 'é ★ - AfAust - Óslqim fAustfirðingum gíediíegrajóía og farsœídar á þpmancti árum. ‘Þöfcfum ánægjuíegt samstarf á tiðnu ári. - AfAust- Atvinnuþróunarfélag Austurlands Atvinnuþróunarsjóður Austurlands .— \ Sendum öCtitm viðsfciptavinum ofcfcar og starfsfóCfci Sestu ósfcir um gCeðiCegjóC ogfarsæCd á fcomandi ári. 1 Kaupfélag Vopnfirðinga Mjólkursamlag Vopnfirðinga Sláturfélag Vopnfirðinga Vopnafirði ___________

x

Austri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austri
https://timarit.is/publication/792

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.