Austri


Austri - 21.12.1995, Blaðsíða 19

Austri - 21.12.1995, Blaðsíða 19
Jólin 1995. AUSTRI 19 Addi framhald af bls. 16. Eitt vorið, ætli það hafi ekki vorið 1964, var sérstaklega eftirminnilegt. Þá var vegurinn frá Egilsstöðum hingað út eftir kolófær, allur eins og hann lagði sig og engin leið að komast hann á vörubíl. Þá bauðst Björn Stefánsson kaup-félagsstjóri til að lána mér GMC trukk sem kaupfélagið átti. Eg þáði það auðvit- að og notaði hann til að komast á milli og veitti ekki af. Trukkurinn var með spili og það var víða þannig, að hann komst ekki upp úr drullunni öðruvísi en að draga sig upp á spilinu. Þegar þetta var voru flestir vegir niðurgrafnir og í verstu pittunum rakst stuðarinn stundum í bakkana. Einhverju sinni þetta vor var ég að koma frá Egilsstöðum á trukknum og var með hlass á pallin- um. Þá gerist það í drullupitti í hlið- arhalla út á Eiðaöxlum að skjól- borðið brotnar af og allur flutning- urinn, tonn af fóðurkorni, brúsar og annar vamingur lenti í drulludýkið. Það var ljóta verkunin. Þegar þetta gerðist var ég með aðstoðarmann, Magnús Sigurðsson frá Hjartarstöð- um. Þetta vor gerði alveg ægilegt páskaveður og það kom svo snöggt að það var eins og hendi væri veif- að. Áður hafði um tíma verið ein- muna blíða, svo það var snjólaust og frost byrjað að fara úr jörðu. Við Bói (Magnús Sigurðsson) vorum þá á Kaupfélags gemsanum út á Egils- stöðum. Um kaffileytið erum við að taka bensín í Söluskálanum og bú- ast til heimferðar. Það hafði verið spáð vondu veðri og í norðri blasti við okkur biksvartur veggur. Þegar við keyrðum upp þar sem nú er Fagradalsbrautin byrjaði að snjóa og þegar við komum upp á vegamótin til Reyðarfjarðar var komið sjóðvit- laust veður. Við vorum það sem eft- ir var dagsins og fram á kvöld að brjótast út í Eiða í aurbleytu og snjó. Hefðum við ekki verið á trukknum hefðum við aldrei komist út eftir. Dóttirin fæddist í bíl Aurbleyta á vegum gerði Adda og Dagnýju konu hans grikk í annan tíma og varð þess valdandi að einkadóttir þeirra Sigríður fæddist í bíl rétt utan við Eyvindarárbrúna. Eg spyr Adda nánar um þennan at- burð. „Þetta var vorið 1966. Ég var auðvitað hvergi nærri, var einhvers staðar að brjótast í flutningum. Dagga var á Eiðum þegar þetta var og Jökull Sigurðsson, sem var kenn- ari þar keyrði hana á fæðingardeild- ina. Hann átti þá stóran Chervolet, bíl með drifi á öllum hjólum og á þessu farartæki leggja þau af stað í Egilsstaði. Sigrún Björgvinsdóttir fer með, svona til halds og trausts. Þegar komið er inn undir Eyvindará drepur bíllinn á sér í drullupitti og fer ekki í gang aftur. Jökull hleypur upp í Miðhús til að hringja eftir að- stoð. Á meðan fæddist barnið þarna í bílnum og Sigrún sem var búin að eiga nokkur börn sjálf var ekki í nokkrum vandræðum með að veita þá hjálp sem þurfti. Fljótlega komu svo Haukur Magnússon læknir og Brynhildur Bjarnadóttir ljósmóðir frá Egilsstöðum á vettvang. Þær mæðgur voru síðan fluttar á fæðing- ardeildina og heilsaðist vel. Bíllinn var eftir þetta í gríni kallaður fæð- ingarheimilið. Þegar Jökull fór frá Eiðum keypti Björn Andrésson hann og notaði hann lengi í póst- flutninga." Dagný hefur setið álengdar og hlýtt á spjall okkar Adda. Hún bætir við að fæðinguna hafi borið svo brátt að, að hún hafi ekki einu sinni haft tíma til að vera hrædd og allt hafi þetta gengið að óskum, þrátt fyrir óvenjulegar að- stæður. En hvernig er með litlu stúlkuna sem þarna leit dagsins ljós, var hún ekki fædd með bíladellu? Addi brosir við. „Jú, það má nú eigin lega segja það. Hún var bara smá angi þegar hún byrjaði að fara með mér í mjólkurferðimar. Þegar eitthvað var að veðri átti ég oft í mestu vandræð- um með að fá hana til að verða eftir heima. Ég vissi aldrei af henni á þessum ferðalögum, hún var alltaf eins og ljós . Á bak við bflstjórasæt- ið var dálítið skot þar sem ég geymdi pósttöskurnar og ýmislegt dót. Þangað skreið hún þegar hún varð þreytt og sofnaði. Hún var heldur ekki gömul þegar hún fór að hjálpa mér. Á þessum árum var mjólkurstöðin þar sem brauðgerðin er nú og pósthúsið var enn í gömlu símstöðunni. Það var því stutt að fara á þessa staði og hún trítlaði með tómar pósttöskumar út á póst- hús og fór síðan með úttektarmið- ana frá bændum í kaupfélagið. Þá var Anna Birna Snæþórsdóttir sem nú býr í Möðrudal að vinna þar og Sigga mín fór alltaf með seðlana til hennar. Þetta flýtti fyrir mér, því þegar ég var búin að koma af mér mjólkinni var oftast búið að ganga frá póstinum í töskumar og afgreiða pantanirnar í kaupfélaginu.“ Fór ekki drjúgur tími í alls konar útrétt- ingar fyrir bændur? „Jú, það voru margir snúningar. Ég var beðinn að útrétta hreint alla hluti mögulega og ómögulega fyrir bæði bændur og húsfreyjur, allt frá tvinnakeflum upp í timburfarma. Svo rak ég erindi hjá lækni bæði fyrir menn og skepnur og varð þá á stundum að gefa sjúk- dómslýsingar. Einu sinni kom sveit- ungi minn nokkuð við aldur að máli við mig og bað mig blessaðan að fara nú til læknisins fyrir sig og fá eitthvað við niðurgangi. Þá var hér læknir sem ég man nú ekki lengur hvað hét, ákaflega hress og skemmtilegur. Ég ber upp við hann erindið og hann lætur mig hafa gutl á glasi sem sjúklingurinn á að taka inn. Svo skila ég af mér glasinu, en eftir viku er karl kominn aftur og Nú ég fer aftur og hitti doktorinn og færi honum þessi boð. Hann bregð- ur sér inn í lyfjabúrið og kemur aft- ur með mixtúru sem hann réttir mér hlæjandi með þeim orðum að dugi þetta ekki verði bara að setja tappa í karlinn. Vatnadreki á bæjarlækinn er draumurinn „Ég hætti í mjólkurflutningunum árið 1973. Þá vorum við Dagný fyr- ir nokkru búin að byggja okkur íbúðarhús og byrjuð að búa hér á Hóli. Ég sá að það gekk ekki að vera í hvoru tveggja búskapnum og flutningunum og ég valdi búskap- inn. Þegar ég var að hætta voru tankflutningamir að byrja og Svavar Stefánsson sem þá var mjólkurbús- stjóri spurði mig hvort ég hefði ekki áhuga á að gera út tankbíl. Ég var sannast að segja dálítið veikur fyrir hugmyndinni, en þegar ég hafði at- hugað málið sá ég að það var alltof kostnaðarsamt fyrir mig og hugsaði ekki um það meir.“ Það fer ekki fram hjá neinum sem hingað kemur í hlaðið, að þú átt þér það áhugamál að gera upp gamla bfla, ertu búin að fást við það lengi? „Ég hef verið að dútla við þetta í nokkur ár. Ég tók alltof seint við mér. Það höfðu margir eigulegir bíl- ar verið jarðaðir þegar ég loksins fór að gera eitthvað í málunum.“ Hvað áttu marga fornbíla núna? „Ég á fjóra trukka. Kanadískan Chervolet árgerð 1944 , tvo Gemsatrukka, ár- gerðir 1943 og 1944, sem ég keypti af norska hernum, og Reo Studi Baker árgerð 1952, sem ég fékk hjá KEA á Dalvík.“ Liggja margar vinnustundir í þessum bílum? „Já, sérstaklega þeim kanadíska, sem ég gerði upp alveg frá grunni. Ég hef alltaf séð eftir því að halda ekki saman tímunum sem í hann fóru. Ég fékk þennan trukk hjá Þóroddi Árnasyni, bílaáhugamanni í Nes- kaupstað. Var lengi búinn að bera víumar í hann, en Þóroddur tók lítið undir og sagði hann ekki falan. Svo kemur hann eitt sinn hér og segir að ég megi eiga bflinn, ef ég nenni að hirða hann. Þá var ég fljótur af stað. Bíllinn hafði síðast verið notaður sem slökkvibíll, en ég gerði hann upp í upprunalegri mynd, setti á hann pall og smíðaði sturtubúnað. Þetta er samskonar trukkur og Ás- grímur föðurbróðir minn átti og leyfði mér að keyra þegar ég var strákur og það gerði hann auðvitað enn eftirsóknarverðari. Trukkana frá norska hernum hef ég flutt inn í fé- lagi við Sigurð Jónsson í Lagarfoss- virkjun. Við höfum verið í sambandi við ágætis mann út í Noregi, föður Beritar á Hallormsstað, sem hefur hefur boðið í bílana fyrir okkur og jafnvel borgað þá til að byrja með úr eigin vasa, ef þannig hefur staðið á. Við Siggi höfum svo dundað við að gera upp þá upp hvor í sínu lagi, en átt gott samstarf um útvegun vara- hluta og fleira. Fyrri bflinn flutti ég inn 1994 og hef lokið við að gera hann upp en þann seinni fékk ég í haust og ætla mér að dunda við hann í vetur ef tími gefst til. Þessir bflar eru gangfærir og í ágætu lagi, en það þarf að rífa þá alla í sundur hreinsa, stykkin og sandblása og síðan sprauta svo það liggur í þessu töluverð vinna“. Áttu þér einhver draumaverkefni á þessu sviði? „Já, mig hefur alltaf langað að komast yfir skriðdreka og gaman væri að gera upp gamalt mótorhjól. En stærsti draumurinn er að smíða vatnadreka." Og Addi bætir við kíminn. „Ég þarf að geta komist yfir bæjarlækinn, og heim- sótt nágranna minn Öm í Húsey, án þess að keyra hundrað kflómetra.“ ( Þess má geta að bæjarlækurinn á Hóli er sjálft Lagarfljótið.) „Ég er hér með teikningar af svona tæki, það má nota í þetta jeppa eða grind af Gemsa. Mig vantar bara tíma.“ Hefurðu menntun í vélvirkjun? „Ég hef enga pappíra, en ég var tvo vetur á verkstæðinu hjá Steinþóri Eiríkssyni og það hefur reynst mér góður skóli. Það var alveg óskap- lega gaman að vinna hjá Steinþóri, en það er nú önnur saga. Þetta var á árunum sem ég var að vinna á ýtu hjá Ræktunarsambandinu. Þá var ég með ýtumar á verkstæðinu á vetmm og sinnti viðhaldi og viðgerðum. Þegar ég var ungur hafði ég hug á að komast í iðnskóla og læra bíla- viðgerðir, en það varð ekki af því, kannski vegna þess að ég lenti í slysi þegar ég var að vinna við byggingu Grímsárvirkjunar og missti tvo fingur.“ Eg mundi engu breyta Nú hefur komið mynd af þér og fornbílunum í sjónvarpinu koma ekki margir hingað heim og vilja hafa tal af þessum manni? „Það hafa nú engir áhuga á manninum, en margir vilja gjaman sjá bflana. Okk- ur finnst báðum mjög gaman að fá gesti og hingað koma margir, sem betur fer.“ Nú býrð þú hér, einhverjir mundu segja á hjara veraldar, hefur þér aldrei dottið í hug að flytja í burtu? „Nei, aldeilis ekki, það hefur mér aldrei dottið í hug. Náttúran hér er alveg einstök, dýralífið er svo fjöl- breytt. Á vetrum eru hreindýrin í hlaðvarpanum og á vorin er hér mikið fuglalíf og selalátur við Fljót- ið. Þegar ég var strákur var ég hreinlega byssuóður og fram eftir öllum aldri stundaði ég veiðar, veiddi hreindýr, seli, fugla, minka og refi, já hreint allt sem ég komst yfir. Nú er þessi veiðináttúra að mestu leyti útbrunninn, en ég nýt þess í staðinn að fylgjast með dýra- lífinu. Hér á Hóli er ekki rekinn neinn stórbúskapur. Við erum með um hundrað kindur, sem auðvitað er engan vegin nóg til að lifa af, en ég er líka í vinnu hjá Landgræðslunni við uppgræðslu á Sandinum og svo vinn ég svolítið að viðgerðum, en það er nú lítið upp úr því að hafa.“ „Hvað mundir þú gera ef þú vær- ir ungur í dag?“ „Ég mundi ekki vilja breyta lífi mínu mikið frá því sem verið hefur, utan þess að ég vildi að ég hefði haft mig í að afla mér meiri menntunnar og helst farið bæði í búnaðarskóla og lært vél- virkjun, að öðru leyti er ég mjög sáttur við líf mitt.“ Skammdegisskuggarnir eru famir að lengjast og það er dökkt til jarð- arinnar. Við Addi förum upp á tún þar sem ég tek myndir af tveimur gömlum Internationale dráttarvél- um, sem báðar eiga sína sögu. Addi hefur gefið Minjasafni Austurlands vélamar og til tals hefur komið að hann geri aðra þeirra upp fyrir safn- ið. Að myndatöku lokinni er sest við veisluborð sem húsfreyja hefur töfrað fram á stuttri stundu. Eftir kaffidrykkju og notalegt spjall við húsráðendur kvitta ég í gestabók þeirra hjóna, sem ber því vitni að hingað leggja rnargir leið sína, enda er hér gott að koma. I dag er hann á suðvestan og sumarfæri og ég er ekki nerna fjöratíu mínútur í Egils- staði, leið sem tekið getur sólar- hringa að brjótast í illviðri og ófærð. Sá kanadíski á túninu á Hóli, eins og nýkominn úr kassanum, eftir óteljandi vinnu- stundir. Við hlið hans stendur GMC trukkur árgerð 1944, sem Addi keypti af norska hernum og gerði einnig upp. Þess má geta að sá bíll er til sölu. segist þurfa að fá eitthvað kröftugra. aðstoðað okkur ómetanlega. Hann Reo Study Baker árgerð 1952. Bílinn keypti Addi afKEA á Dalvík og gerði upp. Addi hefur ekki bara bjargað bílum frá glötun. Hér stendur hann við tvo gamla trakt- ora (nalla) af gerðinni Internationale, sem liann hefur gefið Minjasafni Austurlands. Sá fremri var notaður niður í Loðmundarfirði en sá sem aftar stendur var í eigu Rœkt- unarsambands Austur-Héraðs.

x

Austri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austri
https://timarit.is/publication/792

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.