Austri


Austri - 21.12.1995, Blaðsíða 21

Austri - 21.12.1995, Blaðsíða 21
Jólin 1995. AUSTRI 21 dóttir og dótturdóttir Weyvadts, báðar Ijósmyndarar. Skrifstofa Weyvadts er enn í húsinu, óbreytt að kalla frá 1883, en þá lést hann. Hús- ið er tvílyft timburhús á hlöðnum kjallara. Upphaflega var það allt pappaklætt og svart til að sjá og er það óðum að taka á sig þá mynd aft- ur. I tilefni af 100 ára afmæli Seyðis- fjarðarkaupstaðar í sumar var gefin út Húsasaga sem inniheldur ljós- myndir, lýsingar og sögulegar upp- Tjörukaggi í Sjóminjasafni Austurlands. lýsingar um öll hús á Seyðisfirði sem byggð voru fyrir 1940. Þóra Guðmundsdóttir arkitekt ritaði bók- ina. F ornleifaskráning I sumar lauk skráningu allra forn- leifa í Norðfirði með því að skráð var í Hellisfirði, Viðfirði og Sand- vík. Fornleifaskráning er einskonar eignatalning sem hefur að markmiði að komast að því hverskonar forn- leifar er að finna á tilteknu svæði, hvað margar og hvar þær eru stað- settar. Skráningin á að nýtast þeim sem vinna við skipulagsmál og ferðamál auk þess sem almennur áhugi um fornleifar er mikill og vaxandi. Endanlegur tilgangur er að fá smám saman yfirlit yfir allar fornleifar á Islandi og eru þegar til skrár yfir nokkur svæði á Aust- urlandi. Áfram verður haldið og lögð áhersla á að halda áfram skráningu í öðrum sveitarfélögum á næstu árum. í þjóðminjalögum er kafli sem fjallar um fornleifar. Til þeirra telj- ast allar jarðfastar minjar sem eru 100 ára eða eldri og njóta þær sjálf- krafa friðunar. Rétt er að benda á að óheimilt er að raska á nokkurn hátt skapa beinlínis atvinnu. Velta safna á Austurlandi er um 14 milljónir kr. í ár. Þá er aðeins átt við rekstrarveltu en ekki fram- kvæmdir við fasteignir. Tekjur safna koma af framlögum eignaraðila sem eru sveitar- og bæjarfélög, fyrirtæki og félög. Aðrar tekjur eru af að- gangseyri og styrkjum. Frá Þjóð- minjasafni Islands koma rekstrar- styrkir til safnanna sem nema sam- tals rúmlega 2 milljónum króna í ár. Alls vinna um 7 manns fasta Ljósm. Geir Hólm 1995. vinnu við söfnin, sumir í hlutastarfi. Á sumrin vinna u.þ.b. helmingi fleiri því þá bætast við gæslustörf og afleysingar. Nokkrir til viðbótar vinna við sérstök safnatengd verk- efni eins og ljósmyndaskráningu í hlutastarfi. Styrkir til að ráða fólk til tíma- bundinna starfa hjá söfnum hafa fengist frá Atvinnuleysistrygginga- sjóði. Auk þess hefur slík vinna verið greidd með styrkjum úr Þjóð- hátíðarsjóði og öðrum sjóðum í dá- litlum mæli. Mjög mikil þörf er fyr- ir fleira fólk til ákveðinna verkefna hjá söfnum eða við minjavörsluna. Nefna má skráningarvinnu og tölvuinnslátt, ljósmyndaskráningu, söfnunarátök, endurnýjun sýninga, endurbætur á umhverfi safna og umsjón með einhverskonar tilbreyt- ingu í safnastarfinu á sumrin. Okannað er hversu margir hafa atvinnu af húsbyggingum og lag- færingum á húsnæði safnanna. I því sambandi má geta þess að stærstu verkefnin í ár eru nýbygging Minja- safns Austurlands, sem að lang- mestu leyti er kostuð af ríkissjóði (hlutur Minjasafnsins í safnahúsinu á Egilsstöðum) og framkvæmdir við Löngubúð á Djúpavogi sem einnig eru að stórum hluta greiddar með Andrúmsloft stríðsáranna á Reyðarfirði. Ljósm. Safnastofnun Austurl. við fornleifum nema með leyfi frá þjóðminjayfirvöldum. Ársveltan Minjasöfn og minjavernd eiga vaxandi skilningi að fagna. Nýjum sýningum og starfsdögum er vel tekið af almennum safngestum og safnaefni þykir fréttnæmt nú sem aldrei fyrr. Þá hafa augu margra sveitar- og bæjarstjórnarmanna opn- ast fyrir því að söfn og gamlar byggingar hafa miklu hlutverki að gegna í ferðaþjónustu auk þess að sérframlagi úr ríkissjóði. Þá er ókannað hve mikla vinnu og verðmæti húsverndarverkefni skapa á Austurlandi. Aðeins má geta þess að styrkir úr Húsafriðunarsjóði til Austurlands nema um 6 milljónum króna á árinu og frá Þjóðminjasafni koma um 4.5 milljónir til húsa- verndar. Með ósk um gleðileg jól og far- sælt komandi ár, Guðrún Kristinsdóttir minjavörður Safnastofnun Austurlands Lj óðagetr aun Ágætu lesendur! Hér fáið þið ljóðagetraun til að spreyta ykkur á í skammdeginu. Getraunin er þannig úr garði gerð, að úr ljóðlínu er búin til spurning og á svarið að vera auðvelt þeim sem kann eða kannast við viðkomandi ljóð eða vísu. Fullgilt svar telst vera, svar við spurningunni, nafn höfundar og heiti ljóðs eða vísu ef um það er að ræða. Dregið verður úr réttum lausnum og bókaverðlaun veitt. Svör- in þurfa að berast blaðinu fyrir 20 janúar nk. merkt ljóðagetraun og sendist til: Austra, pósthólf 173, 700 Egilsstöðum. í kringum hvað hringa ég slyngan hófahund? Hverjar stíga vonarglaðar dans? Hvað er sem neflaus ásýnd? Hver grætur í annað sinni? Á hverra móð verður sættin? Hver er Hólmverjanna tignardrottning? Hver er hugljúfur þegar hann hlær? Hvað drýpur af upsum hússins? Hver boðar blíðasta dag eftir ljúfustu nótt? Yfir hvað látum við ljóshraða svífa sjón? Hvað vætlar niður hestsins vanga? Hvað mælti dusilmennið drýldið? Hver fer ástfangin hjá sér, snýr sér undan og sofnar. Hvað bíður blaðmjúkra birkiskóga? Hverjir fundu ey og urðu þjóð? Á hvern hátt settu kjörin á manninn mark? Hvað er ekki, ekki, ekki þolandi? Hver ber með sóma réttnefnið? Um hvað er ég á nálum öldungis? Hvað er verst af öllu í heimi? Sendum viðskiptavinum okkar og starfsfólki bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár. Þökkum ánægjulegt samstarf á liðnu ári. Hraðfrystihús Eskifjarðar Eskifirði Kaupfélag Austur- Skaftfellinga óskar félagsmönnum og öðrum viðskiptamönnum gleðilegra jóla og farsœldar á komandi ári með þökkfyrir viðskiptin og samvinnuna á árinu sem er að líða.

x

Austri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austri
https://timarit.is/publication/792

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.