Austri


Austri - 21.12.1995, Page 8

Austri - 21.12.1995, Page 8
8 AUSTRI Jólin 1995 Safnadagur í Burstarfelli Árlegur Safnadagur var haldinn í minjasafninu á Burstarfelli fyrstu helgina í ágúst í sumar og lögðu margir ferðamenn leið sína í safnið. Ibúar á Vopnafirði lögðu að venju sitt af mörkum til að gera daginn sem eftirminnilegastan og fengu aðstoð frá nágrönnum sínum á Jökuldal, sem gerðu sér lítið fyrir og fóru með lest klyfjahesta frá Sænautaseli á Jökul- dalsheiði til Vopnafjarðar. Farið var af stað á föstudagi og komið í Burstarfell um nónbil á laugardegi. Yfirleitt mun þessi leið hafa verið farin á einum degi, en þar sem lestarmenn töfðust vegna fjölmiðlafárs og aðgangsharðra ljósmyndara var gist um nóttina í gagnamannakofa á eyðibýlinu Mel. Á Safnadaginn var Metúsalem Einarsson ekki langt undan með myndavélina og tók nokkrar bráðskemmtilegar myndir, sem segja sína sögu: Að mörgu þarf að hyggja. Einn klárinn hefur tapað skeifu. Stefán og Lilja ráðfœra sig við Sigurð Helgason sem falbýður slíkan varni Hjá Gunnari Runólfssyni er eldur á afli. Smjörgerðin var í höndum gestanna. Guðrún Kristinsdóttir skekur strokkinn. Búið er að taka klyfjarnar ofan af hestunum. Baggarnir geyma verðmœtan varning sem leggja á inn í höndlunina s.s, tólg, ull, prjónles, o.fl. A myndinni má þekkja frœnkurnar Lilju Oladóttur og Dagmar Ýr Stefánsdóttur, en þœr fóru með lestina ásamt Stefáni Pálssyni. Maðurinn sem snýr baki í myndavélina er Hallgrímur Helga- son. „Hvað er títt?“ Kristján Magnússon spjallar við gamla konu eða er hann kannski að bjóða henni upp í dans. Þegar inn í bœinn kemur kitlar kaffi- ilmurinn vitin. Það ertt þœr Sigríður Bragadóttir og Margrét Þorgeirsdótt- ir sem lielltu upp á könnuna. Stefán Pálsson, lestarstjóri frá Eg- ilsstöðum heilsar Björgu Einarsdótt- ur liúsfreyju á Burstarfelli. I stofu situr Gunnar Sigmarsson og þenur dragspilið af al- kunnri list. pi ( ' íi f

x

Austri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austri
https://timarit.is/publication/792

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.