Fréttablaðið - 01.10.2020, Page 3

Fréttablaðið - 01.10.2020, Page 3
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —2 1 1 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R F I M M T U D A G U R 1 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 w v Sími 590 5000 · Laugavegur 170 · HEKLA #NúGeturÞú Nýr rafmagnaður ID.3 Verið velkomin í reynsluakstur www.volkswagen.is/id3 Haustlitirnir eru byrjaðir að setja mark sitt á Elliðaárdalinn. Í dag er spáð bjartviðri og sjö stiga hita. Tilvalið er að ganga um borgina og virða fyrir sér litadýrðina. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK VIÐSKIPTI Rökstuddur grunur er um að slóvakíska tryggingafélagið NOVIS, sem er með fleiri en fimm þúsund viðskiptavini á Íslandi og fær um 160 milljóna króna iðgjöld frá Íslandi í hverjum mánuði, hafi ekki fjárfest iðgjöld viðskiptavina sinna með fullnægjandi hætti. Gerðar hafa verið athugasemdir við sölu á tryggingaafurðum félagsins, bæði á Íslandi og í Slóvakíu, og ung- verska fjármálaeftirlitið lagði tíma- bundið bann við nýsölu á vissum afurðum árið 2018. Varaseðlabankastjóri fjármála- eftirlitsins segir að stofnunin hafi haft viðvarandi eftirlit með starf- semi íslenskra vátryggingarmiðl- ara, en heimildir til að grípa inn í starfsemi slóvakíska fyrirtækisins hér á landi séu takmarkaðar. – þfh / sjá síðu 8 Grunur um að eignir dugi ekki STJÓRNMÁL „Núna er verið að stíga skref, byggt á rannsóknum, enn frekar í þá átt að tryggja að feður taki frekar þátt í fyrstu vikum og mánuðum í lífi barnsins.“ Þetta segir Ásmundur Einar, félags- og barnamálaráðherra, um fyrirhugað frumvarp sitt um breyt- ingar á lögum um fæðingarorlof. „Eyrnamerkingin er til að þvinga okkur feðurna til að taka fæðingar- orlof, því reynslan hefur sýnt að ann- ars er það ekki gert.“ – ab / sjá síðu 4 Foreldrar eigi jafna þátttöku Ásmundur Einar Daðason STJÓRNMÁL Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra nýtur mests trausts ráðherra samkvæmt nýrri könnun sem Zenter rannsóknir framkvæmdu fyrir Fréttablaðið. Alls treysta 18,5 prósent henni betur en öðrum ráðherrum. Næst á eftir henni koma Bjarni Bene- diktsson með 10,8 prósent og Lilja Alfreðsdóttir með 10,7 prósent. Traust til Lilju hefur þannig dalað nokkuð milli ára, en í sambærilegri könnun Fréttablaðsins í fyrra naut hún mests trausts allra ráðherra. Þá hefur Sigurður Ingi Jóhanns- son, samgöngu- og sveitarstjórn- arráðherra, rétt úr kútnum frá síðustu könnun og Svandís Svav- arsdóttir heilbrigðisráðherra sömuleiðis. „Hér getur sýnileiki ráðherra, þar sem þeir þykja standa sig vel, skipt máli. Þær Svandís og Katrín hafa verið mjög sýnilegar út af COVID, ásamt Bjarna að sjálfsögðu,“ segir Eva H. Önnu- dóttir, dósent í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, aðspurð um breytingar frá síðustu könnun. „Lilja Alfreðsdóttir var mjög sýni- leg fyrir ári, sérstaklega í kjölfar Klausturmálsins, og það gæti hafa af lað henni „fylgis“ þegar spurt var um hverjum væri best treystandi í þeirri könnun,“ bætir Eva við. Bjarni Benediktsson er oftast nefndur þegar spurt er hvaða ráð- herra njóti minnst trausts. Næst- flestir nefna Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráð- herra. – aá / sjá síðu 6 Katrínu er best treyst Forsætisráðherra nýtur mests trausts allra ráðherra samkvæmt nýrri könnun. Traust til heilbrigðisráðherra eykst. Traust til menntamálaráðherra dalar. Eva H. Önnudóttir

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.