Fréttablaðið - 01.10.2020, Page 40

Fréttablaðið - 01.10.2020, Page 40
 ÞAÐ VAR LAGT UPP MEÐ AÐ VERA Í GÓÐRI SAMVINNU VIÐ VIÐMÆLENDUR OG TRAUSTI ÞVÍ ÞETTA GETUR VERIÐ VIÐKVÆMT AÐ SEGJA SÖGUR AF FÓLKI SEM GETUR EKKI SAGT SÖGU SÍNA SJÁLFT. MÉR FINNST SVO MIKILVÆGT AÐ FJÖLBREYTNIN SEM EINKENNIR SAMFÉLAGIÐ OKKAR SÉ SÝNI- LEG Í MENNINGARTENGDU EFNI. EKKI SÍST Í ÞÁTTUM SEM SNÚAST UM UPPRUNA FÓLKS. VÍTAMÍNDAGAR til 10. október AFSLÁT TUR*25% *A F V Ö LD U M V ÍTA M ÍN U M Þættirnir Hver ertu? hefja göngu sína í kvöld í Sjónvarpi Símans. Í þeim fær leikkonan, rit-höfundurinn og þátta-stjórnandinn Þóra Kar- ítas Árnadóttir til sín þjóðþekkta einstaklinga og skoðar sögu þeirra og ættartré. Þættirnir eru því í raun nokkurs konar blanda af ættfræði- og spjallþætti með heimildaívafi. Þóra skoðar með viðmælendum sínum hvernig saga og bakgrunnur þeirra hefur haft áhrif á líf einstakl- ingsins og mótað. „Hugmyndin að þáttunum kemur úr herbúðum Republik, sem annast framleiðsluna fyrir Sjónvarp Sím- ans. Ég var kölluð inn til að athuga hvort ég hefði áhuga á efninu og þá var ekki aftur snúið. Við tók hugar- f lugsvinna þar sem við veltum fyrir okkur hvernig við gætum útfært þáttinn miðað við íslenskar aðstæður. Við gáfum okkur það að flestir viti sitt hvað um sögur úr ætt- inni og eitthvað um upprunann, en reyndum að kafa djúpt í bakgrunn hvers og eins í því skyni að draga fram sitthvað sem fólk ýmist vissi mikið eða lítið sem ekkert um fyrir fram,“ segir Þóra Karítas. Hún segir hvern þátt hafa alveg sérstakan karakter út frá sögu við- mælanda. „Ég spyr alla almennra spurn- inga um æsku, fjölskylduform og uppeldisaðstæður og hversu mikið viðkomandi hefur pælt í forfeðrum sínum og formæðrum, og með hvaða hætti þeim finnst þeir sem á undan koma hafi haft áhrif á sig. Svo tekur við að kynnast nánar sögum úr móðurlegg og föðurlegg við- mælandans, en stundum er meiri áhersla á aðra ættina ef sögurnar þurftu mikið pláss,“ segir hún. Ferlið gefandi Hún segir ferlið og vinnslu þáttanna hafa verið mjög gefandi og töluverð- ur undirbúningur sé þar að baki. „Mig langaði að gera líf lega þætti þar sem grúskað væri í ættfræði. Ég áttaði mig snemma á því að það verða allir bara svo sætir þegar þeir tala um ömmur sínar eða afa og þótt það sé hægt að rekja okkur öll til landsnámsfólks og draga fram sögur af fólki frá því um 1500, þá fundum við að þeim mun nær sem við vorum í tíma, var efnið persónu- legra og áhrifaríkara.“ Þóra segir þau hafa verið heppin og tökum hafi verið lokið þegar heimsfaraldur COVID skall á hér á landi. „Það hefði gert ferlið öllu flóknara ef við hefðum ekki verið búin að klára tökurnar. Við vorum bókstaf- lega á leið til Angóla þann 1. mars, þegar ljóst var að faraldurinn hefði borist til Íslands og greint hafði verið frá fyrsta smitinu hér. Það var mjög skrýtið að leggja af stað í svona langt ferðalag á framandi stað á tímum heimsfaraldurs, en tekið hafði hálft ár að ganga frá töku- leyfum og pappírsvinnu tengda ferðinni og það kom því ekki til greina að hætta við og við sáum ekki eftir því, enda ekki á hverjum degi sem maður fær tækifæri til að heimsækja Afríku,“ segir hún. Allt gekk ótrúlega vel þrátt fyrir óvissuna sem var í loftinu, að sögn Þóru. „Tökurnar sem fóru fram úti voru gríðarlega mikilvægar fyrir þátt- inn um Unnstein Manúel, svo við vorum einstaklega heppin að þetta tókst allt saman.“ Hún segir það hafa verið einstak- lega gefandi að kynnast viðmæl- endum sínum við gerð þáttanna. „Suma þekkti ég lítillega fyrir en ég hitti hvern og einn á kaffi- húsi áður en tökur hófust. Það voru mikilvægir fundir og skemmtileg trúnó. Það var lagt var upp með að vera í góðri samvinnu við viðmæl- endur og njóta trausts, því þetta getur verið viðkvæmt, að segja sögur af fólki sem getur ekki sagt sögu sína sjálft. Fjölskylduleyndar- mál geta líka loðað við ættir lengi og þá getur verið viðkvæmt fyrir einhvern í fjölskyldunni ef hulunni er lyft af þeim. Ég vildi gera öllum ljóst að það væri ekki markmiðið að særa neinn, heldur draga fram áhugaverða karaktera og sögur úr fortíðinni,“ segir Þóra Karítas. Áhugaverðar sögur Margt kom Þóru Karítas á óvart við gerð þáttanna. „Ég vissi til dæmis ekki að langafi Hannesar landsliðsmarkvarðar hefði verið numinn á brott í seinna stríði og sendur í fangabúðir á eyj- unni Mön, en þangað ferðuðumst við með honum og við fáum að kynnast þeirri mögnuðu sögu í þáttunum. Amma Ágústu Evu var amman í Grjótaþorpinu. Hún átti magnað lífshlaup sem hægt er að lesa um í Lífsbókinni eftir Ragn- heiði Davíðsdóttur. Ég vissi ekki að hún hefði samið textann við lag Bergþóru Árnadóttur um Lífsbók- ina, eða verið fyrst allra til að stinga opinberlega upp á Vigdísi sem for- seta. Ég hafði ekki hugmynd um að Hera Hilmarsdóttir leikkona væri komin af Thor Jensen og Margréti Þorbjörgu Kristjánsdóttur,“ segir hún. Þóra fékk að heyra ógrynni af áhugaverðum sögum frá viðmæl- endum sínum. „Það er margt sem ég vissi ekki og svo reynum við líka að draga fram smá þjóðarfróðleiksmola um stóra atburði í Íslandssögunni í þátt- unum, eitthvað sem tengist sögu okkar allra.“ En á Þóra Karítas sér einhvern draumaviðmælanda? „Mér finnst saga allra áhugaverð og ég væri til í að tala við svo marga, ekki síður óþekkta en þekkta. Ég vil þó ekki gefa upp þau nöfn sem ég hef í sigtinu, því ef það verður ekki af því að gera f leiri þætti get ég séð fyrir mér að gera heimildar- Skoðar ættfræði þjóðþekktra Íslendinga Í kvöld hefja göngu sína þættirnir Hver ertu? í Sjónvarpi Símans, í stjórn Þóru Karítasar Árnadóttur. Í þeim kafar hún í fortíð, sögu og ættfræði viðmælenda sinna. 1 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R26 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð LÍFIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.