Fréttablaðið - 02.10.2020, Síða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —2 1 2 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R F Ö S T U D A G U R 2 . O K T Ó B E R 2 0 2 0
Nýr Škoda Superb iV
Rafmagn & bensín
Verð frá 5.590.000 kr. hekla.is/skodasalur · Sími 590 5000 · Laugavegur 170 · HEKLA
12 síðna sérblað fylgir blaðinu í dagFyrsta heimilð
FÖ S T U
DAG U R
2 . O K
TÓ B E R
2 0 2 0Fyrsta he
imilið
KYNNIN
GARBLA
Ð
151. löggjafarþingið var sett klukkan tvö í gær að lokinni guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Þingstörfin í haust munu vafalítið litast af COVID-19 faraldrinum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
FISKVINNSLA Arnarlax í Bíldudal
hefur glímt við endurteknar listeríu-
sýkingar. Er þar á ferð tegund listeríu
sem valdið getur sýkingum í fólki.
„Arnarlax hefur til skamms tíma
séð aukningu í jákvæðum sýnum
en vinnur kerfisbundið með listeríu
dag hvern til að hafa stjórn á henni,“
segir Björn Hembre, forstjóri fyrir-
tækisins.
„Þeir hafa gripið til mjög umfangs-
mikilla aðgerða hvað varðar þrif og
endurbætur,“ segir Dóra S. Gunnars-
dóttir hjá Matvælastofnun. Virðist
hafa tekist að vinna bug á óværunni,
í bili að minnsta kosti. – gar / sjá síðu 6
Þrálát listería
hrjáir Arnarlax
Dóra S.
Gunnarsdóttir
STJÓRNMÁL Hrun í af komu ríkis-
sjóðs og gríðarlegur halli einkenna
fjárlagafrumvarp sem kynnt var í
gær. COVID-19 faraldurinn setur
svip sinn á frumvarpið en gert
er ráð fyrir að af koma ríkissjóðs
versni á næsta ári um 192 milljarða
króna vegna beinna efnahagslegra
áhrifa faraldursins. Alls er gert ráð
fyrir 264 milljarða króna halla á
næsta ári.
Framlög til ýmissa fjárfestinga
aukast um ríf lega 36 milljarða
króna á næsta ári frá fjárlögum
yfirstandandi árs og stendur til
að setja um 111 milljarða króna
í fjárfestingar. Stærsta einstaka
fjárfestingarverkefnið er bygging
nýs Landspítala en gert er ráð fyrir
tæplega 12 milljarða króna fram-
lagi til framkvæmdanna árið 2021.
Þingmálaskrá ríkisstjórnar-
innar var einnig birt í gærkvöldi.
Stefnt er að heildarendurskoðun
fjölda stórra lagabálka á síðasta
þing vetri þessa kjörtímabils.
Frumvarp til nýrra jafnréttislaga
og nýrra laga um fæðingar- og
foreldraorlof verður lagt fram í
þessum mánuði.
Heimsfaraldurinn setur einnig
svip á fyrirhuguð þingmál stjórn-
arinnar en þar er meðal annars
vikið að endurskoðun laga um
almannavarnir og sóttvarnalaga.
Heilbrigðisráðherra mun einn-
ig mæla fyrir tillögu um að sett
verði á fót landsráð um mönnun
og menntun í heilbrigðiskerfinu.
Þá hyggst hún standa við orð sín
frá því í vor með frumvarpi um
afnám refsinga fyrir vörslu neyslu-
skammta.
Katrín Jakobsdóttir forsætis-
ráðherra f lutti stefnuræðu sína í
gærkvöldi og í kjölfarið fóru fram
umræður um hana. Atvinnumál
og loftslagsmál voru í forgrunni í
ræðu hennar. „Þetta verður græn
við spyrna,“ sagði hún.
Atvinnumálin voru f leirum
hugleikin í gær. Meðal annars
Sigurði Inga Jóhannssyni sam-
gönguráðherra. „Um það snýst
vinna okkar á Alþingi og í ríkis-
stjórn síðustu mánuðina, næstu
vikur, næstu mánuði: Að standa
vörð um störf og skapa ný störf.
Atvinna, atvinna, atvinna,“ sagði
hann. – aá / sjá síðu 4
Kosningaveturinn er hafinn
Há fjárfestingaframlög í fjárlagafrumvarpi í skugga hruns í afkomu ríkissjóðs. Fjöldi stórra mála fram
undan á síðasta þingvetri kjörtímabilsins. Aðaláherslan verður að standa vörð um störf og skapa ný.
Katrín
Jakobsdóttir
flutti stefnuræðu
sína í gærkvöldi
Frumvarp til nýrra
jafnréttislaga og nýrra laga
um fæðingar- og foreldra-
orlof verða lögð fram í
þessum mánuði.