Fréttablaðið - 02.10.2020, Blaðsíða 29

Fréttablaðið - 02.10.2020, Blaðsíða 29
Það sem er sérstak- lega skemmtilegt við SmartThings eru allir skynjararnir sem hægt er að bæta við. Snjallhátalari setur slaufu á snjallheimilið og spilar ekki bara tónlist, heldur virkar sem miðstöð fyrir öll snjallkerfi heimilis- ins. Snjallofnastillar koma í stað hefðbundinna ofnastilla og gera það kleift að stilla hitastig ofnsins með símanum eða raddstýringu í gegnum snjallhátalara. Philips Hue býður upp á fjölbreytta lýsingu sem hægt er að stilla með símanum. Ljósaperurnar frá Phillips Hue tengjast með annaðhvort WiFi eða Blue­ tooth og þeim er auðveldlega hægt að stjórna með appi í snjallsímanum. WiFi Mesh tækin tala saman og varpa þráðlausa netinu lengra áfram. Snjalldyrabjöllur Talið berst a snjalldyrabjöllum. Dagný útskýrir að þær geti virkað eins og dyrasími en einnig sé hægt að fylgjast með hver kemur að bjöllunni. „Snjalldyrabjöllur eru að jafnaði búnar myndavél sem myndar gesti sem ber að garði. Ef vélin greinir hreyfingu byrjar myndbandsupp- taka og tilkynning berst í síma eigandans svo hægt sé að fylgjast með. Dyrabjallan hefur bæði hátalara og hljóðnema, svo hægt er að eiga bein samskipti. Ef þú ert á ferðalagi, gætirðu þóst vera heima ef þig grunar tilraun til innbrots. Þú gætir líka þóst ekki vera heima ef þú nennir ekki að taka á móti viðkomandi aðila.“ WiFi Mesh kerfi Þráðlaus nettenging er undir- staða allra snjallheimila. Nokkuð algengt er að ekki sé jafn góð net- tenging alls staðar innan veggja heimilisins og oftar en ekki hefur fermetrafjöldi lítið með það að gera. Dagný segir líklegt að kenna megi veggjunum sjálfum um, en steinsteypuveggir geta auðveld- lega hindrað WiFi-merkið. „Til að leysa þetta vandamál væri kjörið að fá sér svokallað Mesh-kerfi. Mesh-kerfi kemur í stað netbeinis og samanstendur yfirleitt af tveimur til þremur tækjum sem komið er fyrir á nokkrum stöðum í húsinu þannig að þau nemi hvert annað. Þau tala saman og varpa þráðlausa netinu lengra áfram. Þannig tryggja þau að þú og tækin þín nái alltaf góðu þráðlausu netsambandi,“ útskýrir hún. Snjallofnastillar Snjallofnastillar koma í stað hefð- bundinna ofnastilla og gera það kleift að stilla hitastig ofnsins með símanum eða raddstýringu í gegnum snjallhátalara. Kostirnir við snjallofnastilla eru fyrst og fremst þægindi og orkusparnaður að sögn Dagnýjar. Hægt er að velja nákvæmt hitastig herbergis og meira að segja stilla það þannig að kaldara sé yfir daginn á meðan fólk er í skóla eða vinnu en hlýrra á kvöldin þegar allir eru heima. „Það er líka mögulegt að halda hitastigi lágu þegar farið er í ferða- lög, en að það sé komið í eðlilegt horf um leið og komið er heim. Þetta getur líka virkað vel fyrir til dæmis sumarbústaði. Þú getur hitað hann á leiðinni í bústaðinn og þá er hann hlýr þegar þú mætir á staðinn,“ segir hún. Snjallofnastillar sjá einnig til þess að pinnar í ofnum festist ekki, eins og gerist oft. Danfoss gaf á dögunum út splunkunýtt kerfi, Ally. Það er nú komið með Zigbee- stuðning sem opnar möguleikann á að tengja það inn á hin ýmsu snjallkerfi. „Í startpakkanum kemur einn ofnastillir og tengistöð, svo er hægt að fá staka ofnastilla til að bæta við kerfið. Hver tengistöð styður allt að 32 ofnastilla. Það er þumalputtaregla þegar kemur að því að ákveða hvort svona snjall- ofnastillar virki fyrir þig að þeir virka á langflesta nýlega ofna en þeir virka oft ekki á gamla ofna þar sem ofnastillirinn er staðsettur niðri við gólf. Þetta er samt ekki algild regla,“ segir Dagný. Snjallhátalarar Snjallhátalari setur slaufu á snjallheimilið og spilar ekki bara tónlist, heldur virkar sem miðstöð fyrir öll snjallkerfi heimilisins þannig að hægt er að stýra því með raddskipunum. „Sem dæmi gætirðu skipað snjalla iRobot-ryksuguvélmenn- inu þínu að byrja að ryksuga gólfin án þess að hætta því sem þú ert að gera þá stundina. Vinsælustu raddstýringarkerfin eru Google Assistant og Amazon Alexa. Bæði Google og Amazon framleiða sína eigin hátalara, en aðrir fram- leiðendur á borð við Sonos, Bose, Marshall og fleiri bjóða einnig upp á hátalara sem styðja annaðhvort eða bæði,“ segir Dagný. „Þetta eru ekki venjulegir hátalarar. Þeir eru með innbyggða hljóðnema sem greina röddina þína og þó að þeir spili háa tónlist þá greina þeir raddskipunina í gegnum það.“ Dagný segir að áhugi á snjall- vöru hafi aukist mikið á undan- förnum árum og að það virðist ekkert lát ætla að verða á því í bráð. „Úrvalið á bara eftir að aukast og það verða sífellt f leiri vörur fáan- legar í snjallbúningi. Við mælum með að fólk nálgist heimili sitt á nýjan hátt og hoppi á snjalllestina. Starfsfólk ELKO er mjög frótt um tækin og aðstoðar þig við að finna lausn sem hentar þínu heimili best,“ segir Dagný. Dagný minnir á að það er 30 daga skilafrestur á snjallvörum hjá ELKO. „Þú mátt því prófa vöruna og ef þér líkar hún ekki þá er hægt að skila henni og fá endurgreitt eða fá inneignarnótu.“ XXXXXXXXXXXXXXXXXXXXKYNNINGARBLAÐ 11 F Ö S T U DAG U R 2 . O K TÓ B E R 2 0 2 0 SNJALLHEIMILIÐ - FYRSTA HEIMILIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.