Fréttablaðið - 02.10.2020, Blaðsíða 14
Það þarf þó að leysa
úr aðstöðuvanda
jaðaríþrótta fljótlega þar
sem hjólabretta-
fólk og Klifur-
félagið missa
húsnæði sitt
á næstunni.
Katrín Atladóttir
2 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R14 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
ÍÞRÓTTIR Þrjú hálf knatthús eru í
kortunum í Reykjavík á næstu tíu
árum, fimleikahús mun rísa í efra-
Breiðholti, KR-ingar fá f jölnota
knatthús og íþróttahús.
Menningar-, íþrótta- og tóm-
stundaráð tók fyrir stefnu í íþrótta-
málum Reykjavíkur til ársins 2030
– forgangsröðun við uppbyggingu
mannvirkja þar sem 18 verkefni fá
brautargengi. Nýr Laugardalsvöll-
ur er ekki inni í tölunni en Reykja-
víkurborg á stóran hlut í vellinum
sem verður endurbyggður, vonandi
sem fyrst enda orðinn gamall og
lúinn.
Verkefnin voru metin út frá
fjárhagslegum og félagslegum for-
sendum og voru lítil verkefni sem
kosta 100 milljónir og minna ekki
tekin til greina.
Stækkun á fimleikahúsi Fylkis
fyrir hálfan milljarð skoraði hæst
og er í fyrsta sæti. Íþróttahús í
Laugardal sem yrði framkvæmd
upp á tvo og hálfan milljarð er
í öðru sæti. Eins og kunnugt er
á Þróttur ekkert íþróttahús og
íþróttahúsin við skólana í hverf-
inu eru ýmist mjög lítil eða ekki
til staðar. „Það var mat hópsins að
íþróttahús í Laugardal gæti leyst
mörg vandamál í einu og verið
með góða nýtingu allan daginn,“
segir Katrín Atladóttir, borgarfull-
trúi Sjálfstæðisf lokksins, sem sat í
starfshópnum.
Við mat á kostnaðaráætlun á
húsinu í Laugardal er gert ráð fyrir
að það myndi nýtast íþróttafélög-
unum og skólunum. Katrín bendir
á að mennta- og menningarmála-
ráðuneytið hafi nýlega skilað frá
sér skýrslu um þjóðarleikvang fyrir
inniíþróttir þar sem kom fram að
slíkt hús ætti best heima í Laugar-
dal og gæti sú höll nýst Þrótti og
íbúum hverfisins vel.
„En það er alltaf mikil hætta á
hagsmunaárekstrum. Hver myndi
ganga fyrir Börn á æfingum með
sínu íþróttafélagi eða landslið að
æfa sig fyrir stórmót?“ spyr hún og
heldur áfram: „Það er líka ljóst að
hús með áhorfendaaðstöðu fyrir
5.000-8.000 manns og aðstöðu til
tónleikahalds mun kosta marg-
falt á við hóf legra hús. Ég hef þó
fullan skilning á að hér þarf að vera
höll sem uppfyllir þær kröfur sem
gerðar eru til sérsambanda vegna
alþjóðlegra keppna eða landsleikja
í handknattleik og körfuknattleik.“
Þrjú hálf knatthús eru í verkefn-
unum hjá Val, Fram og Leikni. KR-
ingar fá fjölnota knatthús eins og
það er kallað í skýrslunni. Katrín
segir að þetta séu óskir félaganna.
„Verkefnin sem við tókum tillit til
voru óskir frá félögunum sjálfum.
Við tóku ekki að okkur að breyta
þeirra óskum eða búa til ný verk-
efni. Það er þó mín persónulega
Tuttugu milljarða uppbygging
Lagt er til að borgarráð samþykki tugmilljarða uppbyggingu á íþróttamannvirkjum í Reykjavík á næstu
tíu árum. Nýr Laugardalsvöllur er ekki tekinn með né aðstöðuvandi jaðaríþrótta sem eru á hrakhólum.
Reykjavíkurborg ætlar að fjárfesta í aðstöðumálum íþrótta fyrir um 20 milljarða króna á næstu tíu árum.
Stækkun á fimleikahúsi / Fylkir 500
Íþróttahús í Laugardal 2.500
Gervigrasvellir í Laugardal 600
Fimleikahús í Breiðholti 2.000
Fjölnota knatthús / KR 1.200
Skautahöll, viðbygging 1.000
Keilusalur 400
Fylkisvegur, endurbætur 300
Tennishús í Laugardal 1.500
Aðstaða fyrir jaðaríþróttir 600
Frjálsíþróttavöllur í Laugardal 800
Siglingaaðstaða 200
Knatthús / Valur 1.200
Knatthús / Fram 700
Íþróttahús / KR 2.000
Víkin, endurbætur 1.800
Knatthús / Leiknir 900
Íþróttahús / Valur 2.500
✿ Forgangsröðun verka
í milljónum kr.
skoðun að peningum sé ekki best
varið með því að byggja hálf knatt-
hús um alla borg. Nú er knatthús í
Grafarvogi og í Breiðholti þannig
að mér finnst að ef ætti að byggja
knatthús ætti það að vera mið-
svæðis og þjóna þeim félögum
sem eru starfrækt þar og vestar í
borginni.“
Katrín bendir á að vonandi verði
þessi skýrsla notuð við fjárhagsá-
ætlanagerð næstu árin. „Það þarf
þó að leysa úr aðstöðuvanda jað-
aríþrótta f ljótlega þar sem hjóla-
brettafólk og Klifurfélagið missa
húsnæði sitt á næstunni. Það þarf
að vera fjölbreytt f lóra íþrótta í
boði fyrir börn og unglinga í borg-
inni svo öll geti fundið sig í ein-
hverju, það er svo mikilvægt,“ segir
Katrín. benediktboas@frettabladid.is
FÓTBOLTI Erik Hamrén og Freyr
Alexandersson, þjálfarar íslenska
karlalandsliðsins í knattspyrnu,
munu í dag tilkynna hvaða leik-
menn koma til með að mynda leik-
mannahóp liðsins í næstu leikjum
þess sem eru annars vegar leikur við
Rúmena í undanúrslitum í umspili
um laust sæti á EM 2021 og svo leikir
í Þjóðadeildinni við Dani og Belga.
A llir f ramang reindir leik ir
fara fram á liðlega viku tímabili
á Laugardalsvellinum. Leikurinn
við Rúmeníu er fimmtudaginn 8.
október, Danir koma í heimsókn
sunnudaginn 11. október og Belgar
miðvikudaginn 14. október.
Með sigri gegn Rúmeníu kemst
Ísland í hreinan úrslitaleik upp á
sæti í lokakeppni EM þar sem and-
stæðingurinn verður Ungverjaland
eða Búlgaría.
Búast má við því að Hamrén og
Freyr velji f leiri leikmenn en þeir
gera vanalega vegna þess að í þess-
um landsliðsglugga eru þrír leikir í
stað tveggja eins og vanalegt er og
þá eru nokkir lykilleikmenn liðsins
að glíma við meiðsli sem leiða til
þess að þeir geta tæplega spilað þrjá
leiki á svo skömmum tíma.
Mesta spurningarmerkið er hvort
Jóhann Berg Guðmundsson verður
orðinn leikfær á fimmtudaginn
næsta en hann er farinn að æfa
með liði sínu Burnley sem vekur
von í brjósti um að hann verði klár
í slaginn í tæka tíð.
Kári Árnason og Kolbeinn Sig-
þórsson hafa hrist af sér meiðslin
sem hafa verið að plaga þá síðustu
daga hjá Kára og vikur hjá Kol-
beini. Þá er Rúnar Már Sigurjónsson
sem var meiddur í síðustu leikjum
íslenska liðsins orðinn heill heilsu
og verður að öllum líkindum í
hópnum í dag.
Ísland ætti að endurheimta lykil-
leikmenn sem misstu af síðustu
leikjum en búast má við að Alfreð
Finnbogason, Aron Einar Gunnars-
son, Gylfi Þór Sigurðsson og Ragnar
Sigurðsson geti tekið þátt í leikj-
unum eftir að hafa misst af síðasta
verkefni. – hó
Tilkynna hópinn fyrir Rúmeníuleikinn í dag
KRAFTLYFTINGAR Fjölskylda Jóns
Páls Sigmarssonar, ásamt hópi fólks,
hefur safnað áheitum fyrir styttu
af kappanum og vill að hún fái að
standa þar sem Jakaból var.
Hópurinn tekur fulla ábyrgð á
öllum kostnaði og framkvæmdum
sem og viðhaldi við styttuna, sem
á að vera tveggja metra há og metri
á breidd á steyptum palli sem mun
standa um 50 sentimetra upp úr
jörðinni. Hópurinn sendi bréf til
menningar-, íþrótta- og tómstunda-
ráðs sem samþykkti að óska eftir
umsögn Listasafns Reykjavíkur.
Jón Páll er einn þekktasti íþrótta-
maður landsins enn í dag en hann
lést árið 1993 aðeins 33 ára gamall.
Hann var þá búinn að vinna keppn-
ina Sterkasti maður heims fjórum
sinnum. Samkvæmt bréfinu er
hugmyndin að styttan verði hefð-
bundin bronsstytta og að á henni
verði að finna stutt æviágrip Jóns
Páls. – bb
Vilja styttu af
Jóni Páli fyrir
utan Jakaból
Jón Páll Sigmarsson árið 1984.
MYND/LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR
Ísland leikur þrjá
heimaleiki á sex dögum.
FÓTBOLTI Knattspyrnusamband
Evrópu (UEFA) hefur tilkynnt að
takmarkaður f jöldi áhorfenda
verði heimilaður á landsleikjum í
október. Hámarksfjöldi áhorfenda
á hverjum leik miðast við 30% af
heildarsætaf jölda viðkomandi
leikvangs, en þó með hliðsjón af
hámarksfjölda samkvæmt lögum
og reglum í hverju landi, auk þess
sem þessi heimild gerir ráð fyrir
umfangsmiklum sóttvörnum á
hverjum leikvangi samkvæmt
nýútgefnum reglum UEFA (UEFA
Minimum Health & Hyg iene
Requirements for the Return of
Spectators).
Ekki er gert ráð fyrir stuðnings-
mönnum gestaliða sérstaklega
og er því ekki von á Rúmenum á
f immtudaginn en frekari upp-
lýsinga er að vænta frá UEFA.
KSÍ vinnur nú að undirbúningi
leikjanna og útfærslu sóttvarna-
hólfa í samræmi við fjöldatakmark-
anir og verða nánari upplýsingar
um miðasölu, aðgengismál, sótt-
varnir og fleira gefnar út eins fljótt
og mögulegt er. – hó
Áhorfendur
leyfðir á næstu
leikjum Íslands