Fréttablaðið - 02.10.2020, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 02.10.2020, Blaðsíða 22
Fyrstu íbúðarkaup eru alltaf vandasöm enda er hér fyrir marga um að ræða stærstu fjárfestingu lífsins. Hvort sem valið er að kaupa nýtt eða gamalt þá gildir það ætíð að skoða fasteignina vel og vandlega áður en ákvarðanir eru teknar. „Þegar kemur að því að fjárfesta í fyrstu íbúð er gríðarlega mikilvægt að velja byggingarfyrirtæki eða -aðila sem þú getur treyst. Við hjá ÞG verki höfum verið að byggja íbúðir í yfir tuttugu ár og leggjum mikla áherslu á að skila íbúðum í sem mestu mögulegu gæðum. ÞG verk er með öflugt gæðakerfi til þess að fylgjast með gæðum íbúða og við leggjum áherslu á að bregðast við athugasemdum kaupenda með markvissum hætti,“ segir Hrefna Þorvaldsdóttir, sölu- og markaðs- stjóri ÞG verks ehf. Kostirnir við að kaupa nýtt fram yfir það að kaupa í eldra húsi eru fjölmargir, en einn þann Hagkvæmni og gæði í fyrirrúmi hjá ÞG verki ÞG verk hefur frá 1998 byggt yfir 2.000 íbúðir. Í Vogahverfi má finna fjölbreytta kosti fyrir fyrstu kaup- endur og í Urriðaholti eru tvö spenn- andi verkefni á framkvæmdastigi. Hrefna Þorvaldsdóttir, sölu- og markaðsstjóri ÞG verks ehf., segir að Vogahverfið muni byggjast upp á næstu árum og verða mjög skemmtilegur og þéttur kjarni. Íbúðirnar í Urriðaholti eru bjartar, rúm- góðar og búnar fyrsta flokks innréttingum. Svo skemmir útsýnið síður en svo fyrir. MYNDIR/AÐSENDAR augljósasta segir Hrefna vera að nýju húsnæði fylgi lítið sem ekkert viðhald. „Ef upp koma einhverjir gallar ertu með um 5-10 ára ábyrgð frá byggingaraðila sem ber að lag- færa gallann. Fyrstu kaupendur eru oft pör sem hyggja á barneignir og þegar börnum fjölgar og þau stækka þá þarf oft að rýmka til. Þá er ný eign yfirleitt töluvert auð- veldari í sölu en eldri eignir.“ Nýtt og spennandi hverfi í uppbyggingu ÞG verk er með fimm íbúðarhús til sölu í Skektuvogi sem í eru rúm- lega áttatíu íbúðir auk þess að vera með tvær aðrar lóðir á svæðinu. Samtals mun fyrirtækið byggja um 400 íbúðir í Vogabyggð á næstu þremur árum. Vogarnir eru nýtt og spennandi hverfi á stað sem áður var iðnaðarhverfi. „Á komandi árum byggist þar upp íbúðarhverfi sem er frábærlega staðsett. Hverfið er mjög miðsvæðis og í góðum ÞG verk leggur gífurlega mikið upp úr gæðum og fyrsta flokks efnisvali í íbúðum sínum. 4 KYNNINGARBLAÐ 2 . O K TÓ B E R 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U RFYRSTA HEIMILIÐ - FASTEIGNIR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.